Morgunblaðið - 21.12.1988, Síða 17
í grein í Morgunblaðinu 11. júní
1960: „Grafarfriðurinn er hinzta
athvarf í mannheimi; hann hefur
verið heilagur haldinn jafnlengi allri
menningu, og miklu lengur — nema
í einum stað á íslandi: Miðbænum
í Reykjavík, í lostagarði Landssím-
ans, að kórbaki hinnar elztu kristnu
kirkju að bæ Ingólfs og Þorkels
mána, sem óhreyfð stóð í átta ald-
ir“. Þama var Helgi að andmæla
hinu fruntalega róti og ruddalega
raski, sem allt of lengi hefur við-
gengizt í hinum foma legstað Reyk-
víkinga við Aðalstræti og Kirkju-
stræti. Það ætti að segja sig sjálft,
að menn, sem hafa ekki tilfínningu
fyrir helgi grafreita og virðingu
fyrir forfeðrum sínum og söguleg-
um minjum, ættu aldrei að vinna
eftirlitslaust í kirkjugörðum. Helga
var þungt niðri fyrir á þessum
árum, en mér sýnist líka, að Björn
hafi nokkrar áhyggjur af garðinum,
sem bók hans fjallar um, sbr. eink-
um bls. 39, 81, 99 og 103—104.
Það er ótækt, að steinar séu teknir
af réttum stöðum og þeim kastað
í hrúgur, nema tryggt sé, að þeir
verði fluttir aftur á sinn stað. Satt
bezt að segja, fínnst mér stundum
hafa dregizt óþægilega lengi, að
steinar, krossar og önnur legmörk
fari aftur á sinn eina samastað.
Fyrir mörgum árum man ég eftir
því, að brot úr trékrossi lá á þriðja
ár á milli þúfna. Lesa mátti skímar-
nafn og fyrri hluta bæjamafns. Svo
var þetta brot horfið, en ég hef
alltaf vonað, að það hafi ratað aftur
á réttan stað. Þetta var seinasta
minningin um manninn. Þessi bók
verður vonandi eindregin áminning
til allra, sem hér eiga um að fjalla,
að gæta þessa menningararfs okkar
svo vel, að í fullkomnu lagi sé. Ég
vil ekki þurfa að óttast neitt annað.
Höfandur er framkvæmdastjóri.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. jPPSptBEJl. 1988
3íl7
Austfirskar frásagnir
Bókmenntir
Sigurjón Björnsson
Geymdar stundir 4. bindi.
Frásagnir af Austurlandi.
Armann Halldórsson valdi efiiið
og bjó til prentunar.
Víkurútgáfan. Guðjón Eliasson
1988. 223 blaðsíður.
í þetta ijórða bindi hefur Ármann
Halldórsson safnað saman ýmsum
fróðleik um Austurland og Aust-
firðinga frá liðnum tímum. Allt efn-
ið með einni undantekningu að ég
held hefur birst áður í blöðutn, bók-
um eða tímaritum. Er efnið hið
margbreytilegasta og í flestum til-
vikum skemmtilegt aflestrar.
Ragnar Ásgeirsson bytjar frá-
sagnimar með lifandi ferðasögu af
því er hann fór víða um Austurland
laust fyrir 1930 að halda land-
búnaðamámskeið. Þá koma nokkrir
kaflar úr bók eftir Pál Guðmunds-
son. Páll þessi fæddist og ólst upp
á Austurlandi, en fluttist ungur
vestur um haf. Segir þar einkum
frá vem hans í Möðrudal. Öllu
veigameiri er löng og vandlega
unnin ritgerð Einars Braga Sig-
urðssonar um síðustu aftöku á
Austfjörðum og tildrög hennar.
Hafði grein þessi áður birst í 1.
bindi Eskju. Er þetta hin fróðleg-
asta lesning. Stuttur pistill er eftir
Jón Þórðarson prentara um kosn-
inguna á Seyðisfirði 1909. Það var
nokkuð söguleg kosning og þurfti
að tvítaka hana. Þá féll dr. Valtýr
Guðmundsson út af þingi með litlum
atkvæðamun. Gísli Jónsson fi-á
Háreksstöðum segir i alllöngu
máli frá æskuámm sínum í Jökul-
dalsheiði fyrir og eftir síðustu alda-
mót. Þá kemur fróðleg ferðasaga
frá sumrinu 1864 eftir séra Sigurð
Gunnarsson á Valþjófsstað. Þá
fóm þrír ungir piltar alla leið úr
Fljótsdal og suður til Reykjavíkur
að taka inntökupróf í latínuskólann.
Var það að vonum mikið ferðalag.
Hefði sú frásögn raunar mátt vera
allmiklu lengri. Þorsteinn Magn-
ússon £rá Höfii segir hér einkenni-
lega sögu af því hvemig kú sem
hlekktist á í burði var bjargað.
Smáþáttur er um hina gömlu Bu-
starfellsætt eftir Ólaf Daviðsson.
Raunar er fyrst og fremst um sagn-
ir af hinum kunna sýslumanni Bimi
að Bustarfelli að ræða. Ármann
Halldórsson ritar um Bjöm Hall-
dórsson frá Úlfarsfelli, birtir bréf
frá honum og vísur eftir hann. Er
þetta langur og velgerður þáttur
með miklum skýringum. Hluti þessa
efnis hafði áður birst í 4. h. Múla-
þings, ársriti þeirra Austfírðinga.
En hér er bætt við nýju efni, sem
Ármann hefur grafið upp. Þá em
prentaðar hér þijár stuttar frásagn-
ir af þremur austfirskum landnáms-
mönnum. Glefsur em birtar úr
Desjamýrarannál og ber þar hæst
sögu Ljúflings-Áma. Loks em
tíndar til allmargar austfirskar
þjóðsögur, fengnar úr þjóðsagna-
söfnum og ýmsum öðmm ritum.
Hverjum efnisþætti fylgir stuttur
inngangur safnanda, þar sem getið
er hvar og hvenær efnið hefur birst
áður og gerð er grein fyrir höf-
undi. Talsvert er um skýringar. Þá
er að lokum nafnaskrá.
Mér virðist að efni í þetta bindi
ritsafnsins sé vel valið og ágætlega
að útgáfu staðið á alla lund.
Þrír ólíkir drengir
Bókmenntir
JennaJensdóttir
Heiðdis NorðQörð: Góður betrí
bestur. Myndir gerði Jóhann
Valdimar Gunnarsson. Skjald-
borg 1988.
Það er bjart yfír öllu því er
Heiðdís Norðfjörð flytur ungum les-
endum. Lífsviðhorf hennar sýnast
mér þau að leysa megi með dreng-
skap og hreinlyndi úr hvers kyns
flækjum er alltaf verða á vegi bama
í samskiptum við aðra, á hvaða aldri
sem þeir era.
I sögum hennar endurspeglast
þessi viðhorf. Þrír tápmiklir strákar
em aðalpersónur í sögunni Góður
betri bestur. Þeir era allir mjög ólík-
ir og búa við ákaflega ólíkar heimil-
isaðstæður.
Ástæðulaust þras og afskipta-
semi fullorðna fólksins fer i taug-
amar á þeim. Þó reka þeir sig á
að oftast hlýst betra af því að fara
að ráðum þess.
Öllum verða þeim á mistök —
eftir eðli og uppeldi hvers og eins
misjafnlega mikil.
Hjólastuldurinn sýnir annars
vegar hve móðir Halla, er sinnir lítið
syni sínum, er grandalaus um líferni
hans og hegðun — og hins vegar
hvað vökulir foreldrar Dóra geta
Ieyst farsællega úr viðkvæmu vand-
ræðamáli.
Gömlu hjónin koma óvænt inn í
söguna, þegar Siggi getur ekki
hamið reiði sína og þau verða fyrir
óhappi af hans völdum.
Höfundur vinnur vel úr sámskipt-
um gömlu hjónanna og drengjanna
vegna óviljaverks Sigga. Og þau
kynni eiga eftir að verða til góðs
bæði fyrir gömlu hjónin og dreng-
ina.
Jákvæð starfsemi skapar að lok-
Heiðdís Norðfjörð
um félagsanda með drengjunum
þrem. Fmmlegar tússmyndir era
margar í bókinni.
Dæmi um
á góðu verði hjá Ellingsen
Vestur-þýskur olíu
vegglampi með
grænum geymi og
messing spegli.
Hollenskur olíulampi
með hvítum glerskerm
og messing brennara
með dreifara.
Handunnið kertaljós
frá Bretlandi með hvítu
gleri.
Norskur handmálaður
físibelgur.
Handunnin aringrind
úr messing.
Breytileg uppsetning.
Mesta lengd: 85 sm.
Hæð: 55 sm.
Makita borvél nr. \
M802, með höggi,
réttum og öfugum
snúningi, stiglausum
hraðastilli og 13 mm
patrónu.
Bosch borvél, CSB 500
RE. Stiglaus hraðastill-
ir, með réttum og öfug-
um snúningi og 1/2"
patrónu.
Makita borvél nr.
M00I, með rafhlöðu
(engin snúra), réttum
og öfugum snúningi og
10 mm patrónu.
Amerísk vasaljós
„Maglite" sterk og
endingagóð með
halogen peru, innifalið
í verði rafhlöður og
vara pera.
Stærra Ijósið.
Klukka úr messing,
v-þýsk gæðavara með
quartz-úrverki.
Sjónauki 7X5Ö7BCF
næturgler.
Loftvog úr messing,
v-þýsk.
Norskt arinsett úr
smíðajárni „Acantus
Minna Ijósið,
Kr. 7.998,- S 1 Kr. 1.842,- 1 I Kr. 1.430,- 3 I Kr. 3.271,-
Kr. 5.855,- I Kr. 8.790,- 1 H. kr. 5.995,-
Kr. 4.416,- I I Kr. 4.144,- Á 1 Kr. 5.395,- 1 i Kr. 1.325,- i Kr. 6.230,-
SENDUM UM ALLT LAND
aLLitiassaa
Grandagarði 2, Rvík, sími 28855