Morgunblaðið - 21.12.1988, Page 19
MORÓÖNBEAÐIÐ, MJÐVIKUDÁGUR 21: DÉ
19
Felumynd
________Bækur______________
Súsanna Svavarsdóttir
TRÚIN, ÁSTIN OG EFINN -
minningar séra Rögnvalds Finn-
bogasonar. Guðbergur Bergsson
skráði. Útgefandi: Forlagið.
Trúin, ástin og efinn hefur að
geyma endurminningar séra Rögn-
valds Finnbogasonar á Staðastað,
skráðar af Guðbergi Bergssyni. Bók-
in hefst á fyrstu bemskuminningum
í Hafnarfírði og lýkur 17. júní 1959,
svo ljóst er að hér er aðeins fyrri eða
fyrsti hluti æviminninga klerksins.
A milli upphafs og endis er svo frá-
sögnin sjálf, sem skiptist upp í tæp-
lega sjötíu kafla — punktar úr ævi
séra Rögnvalds. Það er farið vftt og
breitt yfír, en staldrað við á fáum
stöðum. Þvi miður fannst mér frá-
sögnin heldur sundurlaus og einum
of mikið vaðið úr einu í annað, án
þess að nokkrum hlut væru gerð
skil. Eiginlega er aðaláherslan á öðru
fólki; fólki sem séra Rögnvaldur hef-
ur hitt í gegnum tíðina, lýsingum á
því og afstöðu til þess. Séra Rögn-
valdur talar um það á nokkrum stöð-
um að hinir og þessir menn hafi
haft áhrif á hann, en lítið fer fyrir
þvi að hann segi hvers vegna.
Trúin, ástin og efínn er nafn sem
gefur góð fyrirheit. Helst átti maður
von á að hér kæmi bók, þar sem
velt væri upp djúpum hugleiðingum
um hliðstæður og andstæður þessara
hugtaka, séra Rögnvaldur mundi
lýsa því hvers vegna hann efaðist
um trú sína, ef einhver er, hvemig
hann hefði sætt trúnna og efann.
Hann segir að vísu að pólitísk af-
staða hans hafí átt þátt í þvi að
honum gekk erfíðlega að taka
ákvörðun um að verða prestur, en
ekkert um einvígið sem hann háði
við sjálfan sig. Sú tilfínning sem
maður situr eftir með er að hann
hafí verið of latur til að standa í
prestskap og of latur til að gera það
ekki. Engin átök virðast hafa átt sér
stað.
Hvaða hlutverk ástin spilaði í lífí
hans, annað en að láta hann giftast
rangri konu í upphafi, er enn ekki
orðið alveg ljóst 17. júní 1959. Sjöfn
nokkur, sem hann var ungur ást-
fanginn af, fer utan, skrifar honum
uppsagnarbréf og séra Rögnvaldur
skrifar í æviminningum sínum:
„Bréfið barst mér í ágúst og ég vissi
að nú væri að duga eða drepast.
Þegar ungir menn eru ástfangnir
fínnst þeim að allur heimurinn standi
eða falli með ást sinni og unn-
ustunni. Og þannig var það fyrir
mér. Ég hafði eflaust verið særður
djúpu holundarsári í sálina við vin-
slit okkar. Svo ég reyndi að leita
mér hugbótar til að sanna fyrir sjálf-
um mér og öðrum að ég væri ekki
heillum horfínn, að ég ætti enn ástir
meyja. Þess vegna gekk ég strax að
þeim hlutum, eins og náminu í guð-
fræðinni — af alefli — og nú skyldi
þeim prófum lokið líka og engu fresta
sem áður hafði dregist úr hömlu. Þar
á ég við brúðkaupið."
Svo giftist hann Eriu, sem hann
er giftur á 110 síðum af 214, en
varla er hægt að segja að hann minn-
ist á hana, nema þegar hann tekur
fram að hún hafi verið með í ein-
hveijum flutningum um landið ...
Nei, hér býijar séra Rögnvaldur af
enn meiri ákafa að þylja og bylja
upp mannanöfn, hveija hann hittir í
þorpum, bæjum, sveitum, hveijir
koma að heimsækja hann og svo
framvegis. En meginhlutinn virðist
ekki koma ævi hans neitt við. Séra
Rögnvaldur segir frá því að Thor
Vilhjálmsson hafí dvalið hjá honum
í Bjamanesi, hvemig veðrið var þeg-
ar Thor var sóttur út í skipið sem
flutti hann og er ffásögnin af sam-
ræðum þeirra tveggja, staupandi sig
bak við Bergárfoss, dæmigerð fyrir
yfirborðslegan stíl bókarinnar: „Eftir
að hafa dregið tappann úr flöskunni
og drukkið, sátum við sætkenndir í
þessu liráslagalega en hrikalega
umhverfí. Á bak við fossúðann rædd-
um við í einlægni og fullir af anda-
gift um lífið og tilveruna, sem við
reyndum að sjá í gegnum, eins og
hvort tveggja væri eins konar foss
tímans." Hvað segir þetta? Ekki
neitt.
En því miður er þetta mjög dæmi-
gert fyrir þetta fyrsta bindi ævisögu
séra Rögnvalds. Margir „kallar" em
taldir til, þjóðfrægir menn sem hafa
haft skoðanir á öllum hlutum; pólitík-
usar, prestar, biskupar, skáld og rit-
höfundar, en þeir standa í bókinni
eins og einhveijar vaxmyndir. Bókina
vantar alla dýpt; alla umræðu um
heimspekileg málefni, um tilfinning-
ar mannsins andspænis skynseminni,
um tilvist okkar yfirleitt og trúin ...
Eftir lestur bókarinnar veit ég satt
að segja elcki hvort séra Rögnvaldur
trúir einhveiju yfir höfuð og um
hvað hann efast ef hann trúir engu.
Bókin er, því miður, eins og felu-
mynd af þeirri bók sem maður
vænti. Kannski hefði átt að bíða með
að rita hana þar til séra Rögnvaldur
hefur öðlast umburðarlyndi gagnvart
sjálfum sér.
Vi ■ i'iimi .......................— S&ihart&fe•
Svefhinn aflar líkamanum orku
Svefhinn færir okkur orku sem á þarf að halda í dagsins önn. Þess vegna ræður góður
nætursvefn hvort andlegt og líkamlegt þrek endist næsta dag.
Forsenda fyrir værum nætursvefhi og hvíld er gott undirlag. Heilsudýna Bay Jacobs-
ens býður okkur hvað best skilyrði til að geta risið úr rekkju hress og endumær vel und-
ir nýjan dag búin.
Reynslan sýnir að í heilsudýnunni leggjast margir kostir á eitt um að tryggja að líkam-
inn geti aflað sér orku:
- Hún einangrar gegn ónotaiegum hitasveiflum, endurvarpar eðlilegum líkamshita og
tryggir þannig þægilegan líkamshita alla nóttina árið um kring
- Dýnan lagar sig að líkamanum þannig að stærri flötur hans hvflir á undiiiagninu.
- Hún nuddar líkamann og örvar vöðva og blóðrás og losar um spennu.
Þessir kostir gera það að verkum að menn sofa værar og bylta sér sjaldnar. Á morgn-
ana kemur velliðan í stað afgengs stirðleika í baki og mjóhrygg og dofa í fótleggjum.
Dýnan hefur fengið frabærar viðtökur hér á landi. 30 daga skilafrestur. Hentug gjöf
fyrir foreldra, afa og ömmu eða fyrir sjálfan þig.
Útsölustaðin Hreiðrið, Faxafeni 12, Rvk.; Útskálar, Rauðarárstíg 14, Rvk.; Bústoð,
Keflavík; Málningaþjónustan, Akranesi; Húsgagnaloftið, ísafiröi; Hátún, Sauðárkróki;
Vörubær, Akureyri; Aldan, Seyðisfírði; KASK, Höfn; Höskuldur Stefánsson, Reyðarfirði;
Reynisstaðir, Vestmannaeyjum; Sportbær, Selfossi.
#
BAYJACOBSEN"
GULLVÆGAR BÆKUR
í SAFNIÐ
Þrauigóðir á raunaslund
Steinar J. Lúðviksson
Björgunar- og sjóslysasaga íslands, 19.
bindi
Bókin fjallar um órin 1972—1974.
Þá gerðust margir stórviðburðir. Togarinn Hamranes sökk
út af Jökli 1972. Hörmuleg sjóslys urðu í skaðaveðrum
1973 þegar vélbátarnirMaría og Sjöstjarnan fórust. Einn-
ig segir frá strandi Port Vale við ósa Lagarfljóts.
Þjóðhættir og þjóðtrú
Skráð aff Þórði saffnstjóra i Skógum
Þessi bók er árangur af samstarfi Þórðar Tómassonar safn-
stjóra í Skógum og Sigurðar Þórðarsonar hins fróða af
Mýrum í Hornafirði. Hér greinir frá lífi og starfi, þjóð -
siðum og þjóðtrú.
ÖRLYGUR
SfÐUMÚLA 11,
SÍMI 8 48 66
Minningar Huldu Á Steffánsdóttur
Skólastarf og effri ár
Hulda segirfrá Kvennaskólanum ó Blönduósi þar sem hún
var skólastjóri og Húsmæðraskóla Reykjavíkur sem hún
veitti forstöðu.
„Mér finnst bókin með hinum bextu, sem ég hef
lesid þessarar tegundar" Þór Magnússon, þjóðminja-
vörður um fyrslu minningabók Huidu í bréfi til hnnnar 10. jan. 1986.