Morgunblaðið - 21.12.1988, Side 34
aaer H38M38aa .12 auoAauaivara uiaAjavíuoflOM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DE8EMBER1988
Stjórnmálaólga í Grikklandi:
Papandreou hótaði að segja
af sér veerna fjárlaeranna
Abenu. Reuter. —* V V—7
is fyrir vopnasölu til fraks. Sak-
sóknari í Aþenu hefur krafist þess
að málið verði rannsakað.
Vestrænir stjómarerindrekar
Suður-Kórea:
Aþenu. Reuter.
FJARLAGAFRUMVARP grísku
ríkisstjórnarinnar var samþykkt
á sunnudagskvöld en búist hafði
verið við tvísýnni atkvæða-
greiðslu á þingi. Andreas Pap-
andreou forsætisráðherra kvaðst
líta svo á að niðurstaðan jafn-
gilti traustsyfirlýsingu við ríkis-
stjórn hans en þingkosningar
fara fram í Grikklandi næsta
sumar.
Papandreou lýsti yfir því á laug-
ardag að ríkisstjómin myndi segja
af sér yrði fjárlagafrumvarpið ekki
samþykkt en talið var að einhverjir
flokksmanna forsætisráðherrans
myndu greiða atkvæði gegn því.
Vændi Papandreou aðstoðarmenn
sína og ráðgjafa um óheilindi og
sagði stjóm sína hafa tekið með
festu á þeim fj'ölmörgu spillingar-
málum sem upp hafa komið í Grikk-
landi að undanfömu en fimm ráð-
herrar hafa sagt af sér sökum
þeirra. Svo fór að lokum að allir
þingmenn Sósíalistaflokksins,
flokks Papandreous, greiddu at-
kvæði með frumvarpinu og var það
því samþykkt með 156 atkvæðum
en 300 menn sitja á þinginu í
Aþenu.
Stathis Votas, aðstoðarvamar-
málaráðherra Grikklands, sagði af
sér á miðvikudag í síðustu viku. í
afsagnarbréfi sínu til Papandreous
sagðist hann ekki kæra sig um að
sitja í ríkisstjóm sem væri rúin
trausti og sökuð um að vera viðrið-
in fjármálahneyksli.
Votas sagði jafnframt að einn
af ráðgjöfum forsætisráðherrans,
George Katiforis að nafni, hefði
þrýst á hann um að samþykkja
vopnaútflutning frá Grikklandi sem
í raun hefði jafngilt vopnasmygli.
í síðasta mánuði lagði Votas
fram ákæru á hendur fyrrverandi
stjómarmönnum ríkisrekna vopna-
fyrirtækisins EVO. Hann sakar þá
um að hafa greitt sex milljónir jerúsaJem, Vfa. Reuter.
Bandaríkjadala, 276 milljónir ísl. BÚIST var við, að Likudflokkur-
kr., í umboðslaun til gervi-fyrirtæk- inn í ísrael samþykkti að halda
segja að afsögn Votas sé vitnis-
burður um þá miklu sundrungu sem
ríki innan ríkisstjómar Papandr-
Leysa 281 pólitísk-
an fanga úr haldi
Seoul. Reuter.
STJÓRNVÖLD í Suður-Kóreu
tilkynntu í gær að 281 pólitískur
fangi, sem tekinn var höndum á
átta ára valdatíma Chuns Doo
Hwans, fyrrum einræðisherra
landsins, yrði leystur úr haldi.
Kang Young-hoon forsætisráð-
herra sagði að alls yrðu 2.015
manns leystir úr haldi, veitt þegn-
réttindi að nýju eða sakaruppgjöf.
Stjómvöld hefðu ákveðið þetta eftir
viðræður við stjómarandstæðinga.
Meðal þeirra sem leystir verða
úr haldi eru Kim Hyon-jang og Mun
Bu-shik,. sem sakaðir eru um að
hafa skipulagt íkveikju á banda-
rískri menningarmiðstöð í borginni
Pusan árið 1982, og Chang Ki-Pyo,
sem dæmdur var í sjö ára fangelsi
fyrir að hafa staðið fyrir óeirðum
í borginni Inchon árið 1986. Annar
atkvæðamikill andófsmaður, Kim
Kun-tae, sem hlaut mannréttinda-
verðlaun kennd við Robert Kennedy
árið 1987, er á meðal þeirra sem
fá þegnréttindi að nýju. Hann var
dæmdur í fimm ára fangelsi árið
1986, sakaður um að hafa gert til-
raun til að steypa suður-kóresku
stjóminni af stóli og dreift áróðri
frá kommúnistum í Norður-Kóreu.
Hann var leystur úr haldi í apríl,
þegar stjómvöld veittu fjölda
manna sakaruppgjöf.
Reuter
Jólaskraut í tískustræti
Þessi glæsilega ljósakróna, sem endurspeglast í leigubflsþaki, er með-
al jólaskreytinganna í Montaigne-stræti í París og hangir uppi fyrir
framan eina af verslunum Christian Diors. Við þessa götu em fleiri
fræg nöfti úr tískuheiminum og ekki á allra færi að kaupa jólagjafim-
ar þar.
*
Israel:
Sharon hamast gegn sam-
starfi við Verkamannaflokk
NAME
COSMETICS
Custom Creation
ilp
Onýttir litir úr sögunni
Augnskuggar sem þú velur sjálf
í þitt eigió box
26 litir
Ofnæmisprófaó
Frábær gæÓi - gott verð
Utsölustaðir:
Reykjavík
NN - Laugavegi 27
Brá - Laugavegi 74
Snyrtistofan Líf - Gerðubergi
Gimli - Miðleiti 7
Hafnarfjörður
Snyrtistofan Yrja
Snyrtilínan - Fjarðarkaupum
Garðabær
Snyrtihöllin
Kópavogi
Gott útlit
Dalvík
Sól og snyrtistofan - Mímisvegi
Vestmannaeyjar
Anita - Skólavegi
áfram stjórnarsamstarfi við
Verkamannaflokkinn en Ariel
Sharon, viðskipta- og iðnaðar-
ráðherra og fyrrverandi varn-
armálaráðherra, hefur snúist
hatrammlega gegn því. Telur
hann, að breið samsteypustjórn
sé líkleg til að láta undan og
samþykkja stofiiun sjálfstæðs,
palestínsks rikis.
Innan Likudflokksins eru margir
óánægðir með samvinnuna við
Verkamannaflokkinn en Yitzhak
Shamir forsætisráðherra hefur
hótað að skila af sér umboði til
stjómarmyndunar verði hún ekki
samþykkt. Ætlaði miðstjóm
flokksins að greiða um hana at-
kvæði í nótt er leið og var almennt
búist við, að Shamir hefði sitt fram.
í útvarpsviðtali við Sharon sagði
hann, að á „þessum örlagaríku
tímum í sögu þjóðarinnar" væri
samsteypustjómin mistök og gæti
leitt til þess, að ríki Palestínu-
manna yrði komið á fót í „Júdeu
og Samaríu", þ.e. Vesturbakkan-
um, og í Gaza. Eftir aðstoðarmönn-
um Shamirs forsætisráðherra er
það hins vegar haft, að hann telji
samstarf við Verkamannaflokkinn
einu leiðina til að hindra stofnun
palestínsks ríkis og frekari fram-
gang PLO, Frelsissamtaka Pa-
lestínumanna, á alþjóðavettvangi.
í samstarfssamningi flokkanna
er kveðið á um, að komið verði upp
nýjum byggðum gyðinga á her-
numdu svæðunum og ókyrrðin
meðal Palestínumanna bæld niður.
Þá er þvertekið fyrir nokkrar við-
ræður við PLO. Shamir verður for-
sætisráðherra allt kjörtímabilið,
Shimon Peres, formaður Verka-
mannaflokksins, verður fjármála-
ráðherra, Yitzhak Rabin úr Verka-
mannaflokki áfram vamarmála-
ráðherra og Moshe Arens úr Likud-
flokki utanríkisráðherra. Hvor
flokkur fær tíu ráðherra og verða
tveir án ráðuneytis.
Danmörk:
Jacobsen hættír þingmennsku
Kaupmannahö&i. Frá N. J. Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins.
FORSETI danska þingsins,
jafnaðarmaðurinn Svend
Jacobsen, skýrði frá í ræðustól
á föstudag, að hann ætlaði að
láta af þingmennsku 31. janúar
nk. og af forsetastörfunum
nokkru fyrr eða þann 10.
Jacobsen nefndi þá ástæðu, að
hann hefði verið kjörinn fram-
kvæmdastjóri fyrir Landssam-
bandi danskra sparisjóða en Ritz-
au-fréttastofan segir, að lengi
hafi verið vitað, að hann væri
orðinn þreyttur á pólitíkinni. Hef-
ur hann verið forseti þjóðþingsins
síðan í desember 1981 þegar hann
tók við af flokksbróður sínum,
K. B. Andersen.
Þingmaður gagnrýndur
fyrir fiármálavafstur
Mogens Camre, þingmaður
jafnaðarmanna, mun að líkindum
þurfa að hætta afskiptum af
stjómmálum um sinn. Þingmað-
urinn fékk 5 milljónir d. kr. (rúm-
ar 30 milljónir ísl.kr.) að láni í
banka og keypti skuldabréf með
það fyrir augum að selja þau aft-
ur með hagnaði þegar þau hækk-
uðu í verði. Hagnaður af slíkum
viðskiptum er skattfijáls í Dan-
mörku. Málið hefur vakið nokkra
eftirtekt sökum þess að Camre
starfar í þeirri deild innan fjár-
málaráðuneytisins sem hefur eft-
irlit með vöxtum á skulaabréfa-
markaðnum.
Hjónaréttindi
samkynhneigðra?
Svo virðist sem meirihluti sé
fyrir því á danska þinginu, að
samkynhneigðir geti í raun fengið
að njóta þeirra réttinda og
skyldna, sem hjónabandi fylgja.
Það eru jafnaðarmenn og sósíal-
ískir þjóðarflokksmenn, sem
frumvarpið flytja, en í því er þó
ekki gert ráð fyrir, að samkyn-
hneigðir geti gengið formlega í
hjónaband eða ættleitt böm. Um
þá eiga hins vegar að gilda sömu
lög og um gagnkynhneigða hvað
snertir arf, framfærslueyri, eftir-
laun og húsaleigu. Stjómarflokk-
amir eru andvfgir frumvarpinu
og sagði Erik Ninn Hansen dóms-
málaráðherra, að það væri atlaga
að hjónabandinu og skaðaði
orðstír Dana á erlendri gmnd.
Faxi seldur
Faxa-brugghúsin, þau næst-
stærstu í Danmörku, verða seld
og lfklega em kaupendumir út-
lendingar. Segir frá þessu í Politi-
ken og jafnframt að ástæðan sé
sú, að illa hafí gengið í mörg ár
og aldrei sem nú. Faxi hefur aldr-
ei hagnast neitt, sem heitið getur,
nema þegar Carlsberg og Tuborg
em Iokuð vegna verkfalla.