Morgunblaðið - 21.12.1988, Blaðsíða 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21..DESEMBER 1988
Grammið Hagkaup Mikli- Músik Plötubúðin Skifan Skífan Skífan Hljóð- Steinar, Steinar Taktur A Taktur Hæsta Lægsta Mism.
Lauga- Kringl- garður ogsport Lauga- Borgar- Kringl- Lauga- færa- Álfh.74 Austur- Lauga- Ármúla verð verð í% vegi
vegi 17 unnl og Rvk.vegi vegi20 túni24 unni vegi33 húsið Rauðar- strœti 22 vegi24 17
Skeifunni 60 Hfj. Lauga- árstig 16
vegi96 Strand-
Hljómplötur götu37
Síðan skein sól — Siðan skein sól 1199 1140 1199 1199 1190 1199 1199 1199 1199 1199 1199 1190 1190 1199 1140 5,2%
Tunglið tunglið taktu mig (bamaplata) 950 999 990 990 999 999 999 999 999 999 999 999 999 950 5,2%
Bítlavinafélagið — 12 íslensk bítlalög 1199 1099 1199 1199 1190 1199 1199 1199 1199 1199 1199 1190 1190 1199 1099 9,1%
Bubbi og Megas — Bláir draumar Guðmundur Ingólfs — Þjóðlegur fróðleikur 1199 1099 1199 1199 1190 1199 1199 1199 1199 1199 1199 1190 1190 1199 1099 9,1%
Jólaballið — Ýmsir 1199 1199 1199 1190 1199 1199 1199 1199 1199 1199 1190 1190 1199 1190 0,8%
U2 — Rattle and Hum 1299 1299 1299 1199 1190 1299 1299 1299 1299 1299 1299 1290 1290 1299 1190 9,2%
Proclaimers — Sunshine on Leith 899 809 899 899 790 899 899 899 899 899 899 899 899 899 790 13,8%
Brother Beyond — Get Even 899 899 899 790 899 899 899 899 899 899 899 899 899 790 13,8%
Kim Larsen — Yummi Yummi 899 899 899 899 890 899 899 899 899 899 899 899 899 899 890 1,0%
Grammið Hagkaup Mikli- Músik Plötubúðin Skífan Skífan Skífan Hljóð- Steinar, Steinar Taktur Taktur Hæsta Lægsta Mism.
Lauga- Kringl- garður ogsport ■ Lauga- Borgar- Kringl- Lauga- feera- Álfh.74 Austur- Lauga- Ármúla verð verð í% vegi
vegi17 unni og Rvk.vegi vegi20 túni 24 nnni vegi 33 húsið Rauðar- stræti22 vegi24 17
Skeifunni 60 Hfj. Lauga- árstfg 16
vegi96 Strand-
Geisladiskar götu 37
Síðan skein sól — Síðan skein sól Tunglið tunglið taktu mig (bamaplata) 1699 1640 1699 1599 1690 1699 1699 1699 1699 1699 1699 1690 1690 1699 1599 6,3%
Bítlavinafélagið — 12 íslensk bltlalög 1699 1599 1699 1599 1690 1699 1699 1699 1699 1699 1699 1690 1690 1699 1599 6,3%
Bubbi og Megas — Bláir draumar 1699 1599 1699 1690 1699 1699 1699 1699 1699 1699 1690 1690 1699 1599 6,3%
Guðmundur Ingólfs — Þjóðlegur fróðleikur Jólaballið — Ýmsir 1499 1499 1490 1499 1499 1499 1499 1499 1499 1490 1490 1499 1490 0,6%
U2 — Rattle and Hum 1499 1499 1599 1399 1490 1499 1499 1499 1499 1499 1499 1490 1390 1599 1390 15,0%
Proclaimers — Sunshine on Leith 1599 1499 1499 1499 1490 1599 1599 1599 1599 1599 1599 1590 1590 1599 1490 7,3%
Brother Beyond — Get Even 1599 1499 1499 1499 1599 1599 1599 1590 1590 1599 1499 6,7%
Kim Larsen — Yummi Yummi 1499 1499 1499 1399 1490 1499 1499 1499 1499 1499 1499 1490 1390 1499 1390 7,8%
Diskar frá Deutsche Grammaphon Mozart: Eine kleine nachtm. — 400-034-2 1499 1499 1499 1390 1390 1499 1390 7,8%
Mussgorsky: Pictures at.. -410-033-2 1499 1499 1290 1290 1499 1290 16,2%
Beethoven: Symphony no 3 — 415-845-2 1499 1090 1090 1499 1090 37,5%
Vladimir Horowitz -419-217-2 1499 1499 1499 1699 1490 1490 1699 1490 14,0%
Ýmsarseríur Philips Digital Classics 1399 1499 1499 1490 1490 1499 1399 7,1%
Deutsche Grammophon — Galleria 1199 1199 1090 1090 1199 1090 10,0%
Cadensa Collection 899 899 899 899 0,0%
Feítletraðar tölur eru lœgsta verð.
Dé Longhi djúp-
steikingarpotturinn
er byltingarkennd
nýjung
Hallandi karfa, sem snýsl
meOan á steikingu stendur:
* jafnari steiking
*notaraðeins 1,2 Itr. afolíu
ístað 3ja Itr. í "venjulegum"
pottum
*styttri steikingartími
*50% orkusparnaður
Potturinn er lokaður meðan á
steikingu stendur. Fitu- og
kolsía tryggja hreinlæti og
eyða lykt. Hægt er að fylgjast
meO steikingunni gegnum sjálf-
hreinsandi glugga.
Hitaval 140-190 C. -20mín.
timarofi meO hljóðmerki.
(DeLonghi)
Dé Longhi erfallegur
fy rirferbarlítill ogfljótur
/rOniX
HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420
Verðkönnun á hljómplötum:
Islenskar hljómplötur eru
50-100 kr. ódýrari í Hagkaup
Verðlagsstofnun gerði verðkönnun á hljómplötum og geisladiskum
í 14 verslunum í Reykjavík og Hafiiarfirði fostudaginn 16. desem-
ber. Algengast er að nýjar islenskar hljómplötur kosti 1.199 kr.
Hagkaup er eina verslunin í
könnuninni sem víkur frá því verði
sem hljómplötuútgefendur hafa
ákveðið. Verðið á mikið seldum
íslenskum hljómplötum er þar
50—100 kr. lægra en í öðrum versl-
unum.
Útgefendur íslenskra geisladiska
hafa ákveðið verð þeirra 1.699 kr.
þó dæmi séu um að þeir séu verð-
Iagðir á 1.499. Tvær verslanir í
könnuninni, Hagkaup og Músík og
sport í Hafnarfirði, selja vinsæla
diska á 50—100 kr. lægra verði.
Hlutfallslegur munur á lægsta
og hæsta verði er heldur meiri á
erlendum hljómplötum og geisla-
diskum en innlendum og fleiri versl-
anir víkja frá því verði sem innflytj-
endur ákveða.
Plötubúðin Laugavegi 20 selur
ýmsar erlendar hljómplötur á 109
kr. lægra verði en því sem innflytj-
endur ákveða og ýmsar verslanir
selja vinsæla geisladiska á lægra
verði en verði innflytjenda.
Verslanirnar Taktur við Ármúla
og Taktur við Laugaveg eru með
lægra verð á geisjadiskum með
klassískri tónlist en það sem að
jafnaði var í öðrum verslunum.
Nemur verðmunur allt að 409 kr.
á einum geisladisk en það eru 37,5%
af lægsta verði.
Með þessari könnun vill Verð-
lagsstofnun benda á að nokkur
verðmunur er á vörum sem almennt
eru taldar vera á sama verði alls
staðar. Vert er því að gera verðsam-
anburð áður en innkaup eru gerð
fyrir jólin.
(Frétt firá Verðlagsstofnun).
Samtök fiskvinnslustöðva:
Laun hafa ekki hækkað minna en
aðrir kostnaðarliðir ftystingar
Laun hafa hækkað um 16,5% en útflutningstekjur um 1,6%
SAMTÖK fiskvinnslustöðva segja að samkvæmt gögnum Þjóð-
hagsstofiiunar hafi launakostnaður við framleiðslu í frystingu
hækkað um 16,5% á milli áranna 1987 og 1988, hráefiii um 4,1%
og annar rekstrarkostnaður um 12,4% en útflutningstekjur um
1,6%. Það sé því ekki rétt að laun hafi hækkað minna en aðrir
kostnaðarliðir frystingar, eins og Alþýðusambands íslands hafi
gert tilraun til að sýna fram á. ASÍ segir að fjármagnskostnaður,
sem hlutfall af tekjum fiskvinnslufyrirtækja, hafi hækkað um
150% á milli áranna 1987 og 1988 en á sama tíma hafi hlutfall
launa af tekjum fyrirtækjanna hækkað um 4%.
„Þegar á heildina er litið er Þar sé byggt á upplýsingum um
launakostnaður frystingarinnar laun á fyrstu þrem ársfjórðungum
rúm 50% af útflutningstekjum
þeirra. Auk launa við framleiðsl-
una er launakostnaður verulegur
þáttur í hráefnisverði og ýmsum
öðrum kostnaðarliðum fisk-
þessa árs en gert ráð fyrir Iitlum
breytingum á launum á milli þriðja
og fjórða ársfjórðungs. Ástæðan
fyrir þessum mun á hækkun dag-
vinnulauna annars vegar og launa-
vinnslufyrirtækja," segir í frétta-
tilkynniningu frá Samtökum físk-
vinnslustöðva.
Samtökin segja að laun físk-
vinnslufólks hafí hækkað mun
meira en launakostnaður fyrir-
tækjanna. Samkvæmt upplýsing-
um kjararannsóknanefndar hafi
meðaldagvinnukaup fiskvinnslu-
fólks hækkað um 22% á milli ára.
kostnaðar hins vegar skýrist með-
al annars af minni yfírvinnu á
þessu ári en í fyrra og hagræðingu
sem átt hafí sér stað í greininni á
þessu tímabili.
I fréttatilkynningunni segir orð-
rétt: I rekstraráætlun Þjóðhags-
stofnunar fyrir árið 1988 er ekki
gerð grein fyrir raunverulegum
fjármagnskostnaði, heldur er
reynt að nálgast hann með svokall-
aðri árgreiðsluaðferð og því ekkert
hægt að fullyrða um hækkun fjár-
magnskostnaðar milli áranna
1987 og 1988 út frá gögnum Þjóð-
hagsstofnunar. Hvað fjármagns-
kostnaði viðvíkur er þó rétt að
hann hefur hækkað verulega á
þessu ári. Er það í samræmi við
útreikninga SF, sem birtir hafa
verið með reglulegu millibili.
Þá sýna milliuppgjör endur-
skoðenda fyrstu 8-9 mánuði þessa
árs, fyrir 30 fiskvinnslufyrirtæki
víðs vegar um land, að fjármagns-
kostnaður er að sliga fískvinnsl-
una. Þar veldur annars vegar, að
bæði nafnvextir og raunvextir eru
háir á íslandi og nokkuð hærri í
ár en í fyrra og hins vegar það
að fiskvinnslan hefur verið rekin
með verulegum og sívaxandi halla
undanfarið rúmt ár sem fjármagn-
aður er með dýrum lánum. Afleið-
ingar þessa eru að eigið fé er nán-
ast horfið úr atvinnugreininni."
Bændahöllin
Búnaðarfélag íslands:
Uppsagnir
afturkallaðar
STJÓRN Búnaðarfélags íslands
hefur ákveðið að afturkalla allar
uppsagnir starfsmanna Búnaðar-
félagsins, sem taka áttu gildi um
næstu áramót. Orsök uppsagn-
anna á sinum tíma var óvissa um
tekjuöflun félagsins, en með því
að verulega hefiir ræst úr um
fjárveitingar til starfsemi Bún-
aðarfélags íslands á árinu 1989
hefur stjórn þess tekið fyrr-
nefiida ákvörðun.
Að sögn Hjartar E. Þórarinsson-
ar formanns Búnaðarfélags íslands
telur stjóm félagsins tryggt að það
fjármagn sem ætlað er til reksturs
Búnaðarfélagsins samkvæmt fjár-
lögum fyrir næsta ár nái fram að
ganga.
„Við höfum í skjóli þessa sent
öllum ráðunautum Búnaðarfélags-
ins bréf þar sem uppsagnimar eru
afturkallaðar. Við höfum safnað á
okkur skuldahala undanfarin þijú
ár og það getur auðvitað ekki hald-
ið áfram, en við treystum því að
við munum ekki þurfa að lengja
hann á næsta ári. Við munum gera
allt sem við getum til að spara í
rekstrinum, og höfum þarna fengið
ákveðinn frest, en við höfum enga
tryggingu fyrir því að jafngóð af-
greiðsla fáist þegar lengra er litið
fram í tímann. Við munum því ör-
ugglega leita allra leiða til að spara
reksturskostnað stofnunarinnar, og
vinna að þeirri endurskipulagningu
sem hægt verður að koma við,“
sagði Hjörtur.