Morgunblaðið - 21.12.1988, Side 46
46
fjölskyldunnar
J2255**
A*SÖr“
I2ger5’»r
Toshiba ER5420 17 lítra
9 orkustillingar. 45 mín. klukka.
Hvítur eða brúnn.
Mál: 45 x 31 x 33.
Kr. 19.900,-Kr. 18.900, - stgr.
Toshiba ER 5720 17 lítra
Tölvustýring. 9 orkustillingar.
Hraðþýðing. Hvítur eða brúnn.
Mál: 45 x 31 x 33. Hvítur eða
brúnn
Kr. 25.900,- Kr. 24.600,- stgr.
Toshiba ER 7720 27 lítra
Tölvustýring. Deltawave dreifing.
9 orkustillingar. Hraðþýðing.
Mál: 55 x 38 x 37.
Kr. 35.900,- Kr. 34.100,- stgr.
Toshiba ER 8730 28 lítra
Nýja línan - Glæsilegur ofn.
Mál: 49 x 35 x 48. Hvítur.
Kr. 32.900,- Kr. 31.250 stgr.
Toshiba ER 7820 27 lítra
Tölvustýring. 9 orkustijlingar.
Hraðþýðing. Getur kveikt á sér
sjálfur. Hvítur eða brúnn.
Mál: 55 x 38 x 37.
Kr. 38.900,-Kr. 36.950, * stgr.
Mjög góð greiðslukjör.
Einar Farestveit&Co.hf.
Borgartúni 28 Sími 16995
Leið 4 stoppar við dyrnar.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 21. DESEMBER 1988
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Jólatónleikar Tónlistarskólans á Blönduóai voru haldnir sl. fímmtu-
dag. Hér má mjá hóp nemenda spila á tónleikunum.
Tónlistarskóli Austur-Húnvetninga:
Jólatónleikar
á Blönduósi
Blönduósi.
Jólatónleikar Tónlistarskólans
á Blönduósi voru haldnir í hús-
næði skólans sl. fimmtudag. Fjör-
utíu og þrír nemendur komu
firam á þessum tónleikum og var
leikin fjölbreytileg tónlist á ýmis
hljóðfæri. Á þessum árlegu tón-
leikum sem er nokkurs konar
uppskeruhátíð á fyrstu önn skól-
ans er ávallt húsfyllir og góð
stemmning og var engin breyting
þar á í ár.
í flestum tilfellum eru það for-
eldrar og systkini sem koma til að
fylgjast með árangri bamanna í
tónlistamáminu en þó em nokkur
dæmi u}n það að afkvæmin komi
til að fylgjast með árangri pabba
eða mömmu og er þessi þróun vax-
andi.
Að sögn Jóhanns Gunnars Hall-
dórssonar skólastjóra Tónlistar-
skóla Austur-Húnvetninga stunda
núna um 110 einstaklingar nám við
skólann og eru þeir allt frá fimm
ára aldri til sextugs. Jóhann sagði
ennfremur að kennt væri á þremur
stöðum í sýslunni þ.e.a.s. á Húna-
völlum, Skagaströnd og Blönduósi
og sinna fimm kennarar kennsl-
unni. Samskonar tónleikar eins og
á Blönduósi eru einnig haldnir á
hinum kennslustöðunum.
Jón Sig.
ÞÓRIR S. GUÐBERGSS0N
Táningar
togstreita
Höfundur: Þórir S. Guðbergsson
„Saga þessi er mjög athyglisverð," sagði gagnrýnandi
Morgunblaðsins.
„Þeir sem vilja helst lesa um englablak og dirrindí finna
lítið við hæfi," skrifaði „Jón granni" í Velvakanda.
„Sagan er vel gerð og byggír að sögn höfundar á raun-
verulegum atburðum, þannig að ekki er um að villast," •
sagði gagnrýnandi DV.
Athyglisverð skáldsaga.
Útgefandi Virkni.
Við þörfnumst jólanna
, Til eru þeir sem eru alls ekkert
hrifnir af jólunum og telja þau
kalla fram hræsni. Jólin um-
turni daglegu lífi, þau séu fjár-
frek og í raun aðeins þriggja
daga yfirborðskennd og tauga-
spennt tjáning kærleika til
vandamanna. Þeir hafa fengið
nóg af öllum þessum gaura-
gangi og eru andvígir þeim
gervitilfinningum sem þeim
finnst ráða ríkjum á jólunum.
Margir þeirra sem orðnir eru
þreyttir á jólastandinu grípa til
þess ráðs að halda sig flarri
heimilum sínum. Litríkir bækl-
ingar með myndum af erlend-
um skíðabrekkum, mjallhvítum
sandi á sólarströnd eða
skemmtiferðaskipi á siglingu á
Qarlægum höfum freista
þeirra.
Vissulega má telja margt til
sem bendir til þess að jólin séu
ekki lengur sú „hátíð kærleikans"
sem þau ættu að vera. En af ein-
hverjum ástæðum er það samt svo
að jafnvel þeir sem mest afneita
jólunum komast fyrr eða síðar í
sitt jólaskap. í síðasta lagi á að-
fangadagskvöld þegar búðum hef-
ur verið lokað, ljósin kveikt á
heimilunum og kirkjuklukkunum
hringt. Eða þegar hátíðarmatur-
inn er fram reiddur um borð í
skemmtiferðaskipinu og dvalar-
staðnum á sólarströnd. Þá komast
jafnvel þeir sem andvígastir eru
jólunum í jólaskap. Því það er
sama þótt reynt sé að snúa baki
við hefðum og trú. Það fær eng-
inn skotið sér undan endurminn-
ingunum* Og öll eigum við
ánægjulegar bernskuminningar
frá jólunum.
Um þessar bemskuminningar
skrifar þýzki rithöfundurinn Her-
mann Hesse eitthvað á þessa leið:
„Þrátt fyrir allar andstæðar og
innibyrgðar tilfinningar verð ég
að viðurkenna að margt desem-
berkvöldið, að loknum drungaleg-
um degi, þegar ljósin loga á götum
úti, marglitur bjarminn frá búða-
gluggunum fellur á blautt eða
snævi þakið malbikið og götumar
taka að iða af lífi, þá fagna ég
þrátt fyrir allt öllu þessu gífurlega
umstangi og þeirri ljósadýrð sem
því fylgir. Þá kemst ég að því að
það sem mér líkar og það sem
gleður mig nú er svo til það sama
og var þegar ég var drengur og
unglingur. Á sama hátt og bóka-
búðimar minna mig á eldmóð og
ástríður unglingsáranna færa
endurminningamar mig nú enn
lengra aftur í fortíðina. Með
bamslegri aðdáun og einfaldri
eftirvæntingu skoða ég freistandi
framboð á öllu því sem í sig má
láta, sérstaklega því sem bama-
legast er — sælgæti...“
Voru jólin í raun betri hér áður
fyrr? Ja, heimur okkar hefur tekið
breytingum. Menn em ekki jafn
sáttir við kenningar jólanna um
kærleika og frið. Þeir em ekki
lengur jafn opnir fyrir dularfullum
töfrum jólanna. Ef til vill em það
aðeins bömin sem í reynd geta
staðið fyrir framan jólatréið og
sungið „Heims um ból, helg em
jól“-
En við þörfnumst hátíðar á
borð við jólin. Við ættum að leggja
meiri rækt við innri tilgang þeirra,
en minni rækt við umbúðimar.
Við eigum að líta á jólin sem hátíð
kærleika og sátta. Vemm opin
fyrir mannlegu samlyndi og gef-
um okkur á vald hins rétta hugar-
fars jólanna. Opnum hjörtu okkar
fyrir kærleika og skilningi gagn-
vart meðbræðrum okkar.
Þá geta jólin endurheimt sína
gömlu merkingu.
Gleðileg jól,
Jórunn.