Morgunblaðið - 21.12.1988, Qupperneq 69
88ei aaaMaaaa .xs auoAauaivaiM .aiaAjaMuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDÁGUR 21. DESEMBER 1988
80
69
Þessir hringdu . .
Ljótur leikur
Stefania Jónasdótti hringdi:
„Mér ofbauð að sjá í fréttum
sjónvarps fyrir nokkru að stofna
ætti til keppni í ijúpnaveiði. Að
mínu áliti getur svona dráp ekki
flokkast undir veiðimennsku.
Sannur veiðimaður hlýtur að bera
virðingu fyrir bráð sinni og lífínu
og höfða ég til allra sannra veiði-
manna um að taka ekki þátt í
þessum leik, því þetta er leikur
fundinn upp af einhveijum versl-
unareiganda tii að gærða á. Eða
á lff ijúpunnar að vera undir því
komið að einhveijum kaupmönn-
um detti í hug að nú þurfí leik
til að drepa sem flestar? Þvílíkt
virðingarleysi gagnvart lífínu og
náttúrunni. Þetta er til skammar
og ég get ekki séð að hér á landi
þurfí menn að veiða sér til matar.
Vona ég að enginn taki þátt í
þessu.“
Góður upplestur
Hafsteinn hringdi:
„Ég heyrði Guðmund J. lesa
upp í þætti sr. Bemharðs í útvarp-
inu 11. desember. Upplestur hans
var svo frábær að ég vil stinga
uppá því að hann verði fenginn
til að lesa Passíusálmana í vetur."
Sjóður vegna
læknamistaka
Gísli Halldórsson hringdi:
„Guðmundur Bjamason heil-
brigðisráðherra ætti að koma á
fót nefnd til að stofna sjóð sem
greiddi bætur fyrir mistök lækna.
Það ætti að láta lækna taka þátt
í þessum sjóði, það mætti t.d. taka
ákveðna prósentu af launum
þeirra og ættu tannlæknar að
taka þátt í þessu líka. Borgin
ætti að reka Kvennathvarfíð.
Gaman væri að vita hvað borgin
fær mikið í aðstöðugjöld og eign-
arskatta- af ríkiseignum í
Reykjavík og hvað hún tekur
mörg rúm á ríkisspítölum. Svo tel
ég að Reykjavíkurborg ætti að sjá
um allan rekstur og viðhald á
Þjóðleikhúsinu, það er ekki fyrir
landsbyggðarmenn sefn þurfa að
leggja í kostnaðarsöm ferðalög til
að sjá sýningar þar.“
Kötturinn Kolur týndur
Kolur er svartur sex mánaða
fressköttur og var með svarta
flauelsól um hálsinn er hann fór
að heiman frá sér í Bústaðahverfí
að kvöldi 14. desember. Ef ein-
hver hefur orðið hans var eða ef
til vill annast hann núna, mundi
sá hinn sami geta fært litlum 9
ára dreng gleðilegri jól með því
að láta vita í síma 37920.
Góðbók
S.Þ. hringdi:
„Ég var að lesa bókina Leynd-
armálið í Engidal eftir Hugrúnu.
Það er mjög góð bók og ætti að
vera til ’a hveiju heimili. Ég vil
benda fólki á að lesa þessa bók
því hún er mjög skemmtileg."
Vasatölva
Casio vasatölva fannst í Hlíðun-
um í síðustu viku. Upplýsingar í
síma 18613 eftir kl. 19.
Gullarmband
Gullarmband tapaðist einhvers
staðar á leiðinni frá Ánanaustum
suður í Hafnarfjörð. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 51949.
Raunsæ unglingabók
Bryndís Sigurðardóttir-
hringdi:
„Fyrir skömmu birtist pistill í
Velvakanda þar sem kvartað var
yfir því að unglingabækur skorti
raunæsæi. Ég vil benda á bókina
Táningar og togstreita eftir Þóri
S. Guðbergsson. Þar er fjallað um
unglinga á mjög raunsæjan hátt
og ættu sem flestir unglingar að
lesa hana.“
Grár köttur
Grár köttur er í óskilum í Selás-
hverfí. Upplýsingar í síma
673964.
Budda
Budda með strætómiðum o. fl.
fannst við Reykjavíkurhöfn fyrir
nokkru. Upplýsingar í síma
697112.
Gullúr
Gullúr með svartri ól tapaðist
í síðustu viku á leið frá Sólheimum
út á Langholtsveg. Finnandi vin-
samlegast hingi í síma 36741.
Úr
Pier Point úr fannst við Blóm-
vang í Hafnarfírði fyrir nokkru.
Upplýsingar í síma 53375.
Xenófón, ekki Xenófanes!
Ágæti Velvakandi.
Ég er ekki þrasgjam maður. En
nú er svo komið að ég get ekki leng-
ur orða bundist. Með einhveiju
móti verður að stemma stigu við
þeirri ónákvæmni, að ég ekki segi
subbuskap, sem hitt og annað fjöl-
miðlafólk er sýknt og heilagt að
gera sig sekt um. Dropinn sem
minn mæli fyHti féll 11. desember.
Ungur maður, raunar orðlagður
fyrir fróðleik um óskyldustu efni,
þrástagaðist á því í miðnæturþætti
á rás 1 í Ríkisútvarpinu að ritið
Anabasis eftir gríska sagnritarann
Xenófón væri samið af allt öðrum
manni. Vildi umsjónarmaðurinn
ungi ólmur eigna frásögnina um för
hinna tíu þúsund einhveijum Xenó-
fanesi (farandskáldinu frá KÓlófón
í Litlu-Asíu?). Þetta stenst engan
veginn, m.a. af því að sá Xenófan-
es, sem við þekkjum, var og hét
einum tveimur öldum áður en þeir
atburðir gerðust sem greint er frá
í Anabasis. Um þetta leyti var
Xenófón hins vegar á besta aldri
og var aukinheldur einn hinna tíu
þúsund málaliða sem réðust til her-
fararinnar. Verður því að teljast
líklegt að Xenófón hafi ritað Ana-
basis en ekki Xenófanes, nema
umsjónarmaðurinn liggi á áður
óþekktum upplýsingum um þetta
efni. Ég vil geta þess hér að end-
ingu að það er hlálegt en engu að
síður satt: umræddur umsjónar-
maður húðskammaði eitt sinn hér
í Velvakanda einhvem aumingja
plötusnúð fyrir vanþekkingu á
grískri sögu og landafræði. Hafði
sá velt vöngum upphátt í útvarpi
yfir því hvort Arkadía væri ekki
bara bull (en ekki hérað á Pelops-
skaga). En sá skammar oft best
sem síðast skammar. Til að fyllstu
sanngimi sé þó gætt tek ég fram
að miðnæturþátturinn var — fyrir
utan þetta með Xenófanes fyrir
Xenófón, sem er hneyksli — ekkert
ónotalegur undir svefninn, þar voru
kveðnar armenskar rímur af nokk-
urri íþrótt o.s.frv. Hreint alls ekki
óviðeigandi núna þegar hið marg-
hijáða land, Armenía, er svo ofar-
lega á baugi, allt í einu.
Fyrst ég er nú farinn af stað
vildi ég beina tvennu til Morgun-
blaðsins. Hið fyrra er að gaman er
að sjá að höfundur Helgispjalls (11.
des.) er ekki síður vel að sér um
kínversk ævintýr fom en eitt átrún-
aðargoð hans, Borges. Hið síðara
snertir endalaus skrif Hrólfs
Sveinssonar og attaníossa hans.
Hættið þessu, eru vinsamleg til-
mæli mín og fleiri Morgunblaðsles-
enda, sem ég veit af, til þessara
mætu manna.
Skuggi
HEILRÆÐI
Slysalaus
jólaundirbúningur
Gæta verður þess að höldur og sköft ílátanna á eldavélinni
snúi til veggjar þannig, að stuttir handleggir geti ekki teygt sig
í þau og steypt yfir sig sjóðandi og brennheitu innihaldinu.
Alltof oft hefur það hent að börn hafa stungið sig og hlotiö
djúp sár á eggjárnum sem skilin hafa verið eftir í hirðuleysi
að aflokinni notkun.
Njótum undirbúnings jólanna með slysalausum dögum.
«Viftu b\c5a.efb\ranr\ari lyftu f"
Vínandamælinn sió út við
verðum að fara með hann
til blóðtöku ...
HÖGNI HREKKVÍSI
„ PA€> ER (SOTT AS> SJÁ A£> EIMH\/Eí?
ER KO/VUNN i' JÓLASKAP. "