Morgunblaðið - 21.12.1988, Page 70
70
ÍHémR
FOLK
■ LÖGREGLAN í Hollandi hef-
ur kyrrsett danska landsliðsmann-
inn Sören Lerby á meðan mál
hans og Ajax er í rannsókn. Lög-
reglan tók vegabréf Lerby, þannig
að hann komst ekki til Danmerk-
ur. Lögfræðingur Lerbys sagði í
gær að hann væri saklaus. Sagði
að Lerby hefði aðeins fengið pen-
ingalán hjá Ajax, sem hann hefði
borgað aftur þegar hann fór til
Bayem Mtinchen.
■ MAURICE „Mo“ Johnston,
sem á eftir ár af samningi sínum
við Nantes í Frakklandi, hefur
ekki almennilega náð fótfestu hjá
liðinu og svo getur farið að hann
verði seldur á næstunni. Mörg félög
hafa sýnt áhuga á skoska landsliðs-
miðheijanum, en aðeins Borussia
Dortmund hefur gert ákveðið til-
boð og er rætt um tæplega 150
milljónir íslenskra króna.
■ GYOERGY Mezey, sem tók
við ungverska landsliðinu í knatt-
spymu fyrir fimm mánuðum hefur
sagt starfi sínu lausu vegna þess
að hann taldi að stjóm knattspymu-
sambands landsins væri ekki starfi
sínu tfaxin. Báðir aðstoðarþjálfarar
hans sögðu upp um leið sem og
læknir liðsins og nuddari. „Þetta
er hræðilegt. Staða ungverskrar
knattspymu hefur aldrei verið eins
slæm og nú,“ sagði landsliðsmaður-
inn Imre Garaba.
■ JOHN Brophy var rekinn frá
Toronto Maple Leafs á mánudag.
Liðið hafði þá leikið 10 leiki í röð
í NHL án sigurs og því var þjálfar-
inn látinn fara. George Arm-
strong, sém var fyrirliði íshok-
kíliðsins hér á. árum áður, tók við
og um kvöldið vann Torontó St.
Louis Blues 4:3.
■ JUAN Lozano, fyrrum fyrir-
liði Anderlecht, hefur verið frá
keppni í 20 mánuði, en hann tvífót-
brotnaði í leik gegn Waregem í
apríl 1987 og hefur níu sinnum
verið skorinn upp vegna meiðsl-
anna. Yvan Desloover sparkaði í
fyrirliðann með fyrrgreindum af-
leiðingum og nú hefur Lozano
höfðað mál gegn þeim brotlega.
■ VRENI Schneider frá Sviss
' er ósigrandi í heimsbikarkeppni
kvenna þessa dagana. í gær sigraði
hún í fjórða sinn, að þessu sinni í
svigi í Courmayeur á Ítalíu —
fékk samanlagðan tíma 1:37,53.
Blanca Femandez Ochoa frá
Spáni var 0,01 sekúndu á eftir
svissnesku drottningunni og hafn-
aði í öðm sæti.
■ VIV Anderson og John Fas-
hanu voru dæmdir í leikbann í gær
og sektaðir fyrir slagsmál eftir að
Wimbledon hafði unnið Manc-
hester United 2:1 í byijun nóvem-
ber. Fashanu fékk þriggja leikja
bann og tvö þúsund punda sekt, en
Anderson fékk eins leiks bann og
750 punda sekt. Þá þurftu þeir að
greiða málskostnað. Bannið tekur
gildi 9. janúar.
■ MARY Decker Slaney sagði
á blaðamannafundi í gær að lyfja-
próf hefðu verið af skomum
skammti á Ólympíuleikunum í
Seoul. „Ég veit að í mínum grein-
um var maðkur í mysunni," sagði
bandariska stúlkan, sem keppti
í 3.000 m og 1.500 m hlaupi en
vann ekki til verðlauna. „Ben
Johnson var ekki eini gullhafínn,
sem var á ólöglegum lyfjum," bætti
hún við en vildi ekki nefna nein
nöfn. Hún sagði ennfremur að lyfja-
notkun væri mun meiri en fólk gerði
sér grein fyrir og nefndi sérstaklega
íþróttafólk frá Evrópu í því sam-
bandi. Hún vildi herða viðurlög og
dæma þá sem féllu á lyfjaprófí í
æfílangt bann. „Hvers vegna á fólk
að fá annað tækifæri til að svindla,"
spurði hún.
MORGUNBLAÐŒ) IÞROTHR MIDVIKUDAGUR 2?. PESEMBER 1988
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA
„Mótherjar við hæfi“
- sagði Stanisiaw Modrowski þjálfari Vals, sem mætir Magdeburg. Framstúlkurtil Sovétríkjanna
„VIÐ þurfum að leika við sterk
lið til að halda okkur við efnið
og því má með sanni segja að
leikmenn Magdeburg séu mót-
herjar við hœfi,“ sagði Stan-
islaw Modrowski, þjálfari Vals,
aðspurður um dráttinn í átta
liða úrslitum Evrópukeppni
meistaraliða.
Modrowski sagði að sennilega
hefði verið auðveldast að
lenda gegn ítalska liðinu. „SKA
Minsk er sigurstranglegast í keppn-
inni, en Steaua og Barcelona eru
einnig mjög sterk. Hins vegar má
ætla að við séum á svipuðu róli og
hin þijú — Magdeburg, Drott og
„Verður
erfitt"
- sagði Viggó Sig-
urðsson, þjálfari FH,
sem mætir Krasnodar
„ÞAÐ eina sem ég veit um
SKIF Krasnodar er að liðið er
frá Sovétríkjunum, þar sem
handknattieikurinn er sá besti
í heimi, og markverðirnireru í
landsliðinu. En liðið átti í erfið-
leikum með austurríska liðið í
síðustu umferð, sem bendir til
að ekki sé um ofurmenni að
ræða. Þetta verður erfitt en er
ekki vonlaust" sagði Viggó Sig-
urðsson, þjálfari FH, um leiki
liðsins i átta liða úrslitum IHF-
keppninnar.
Dusseldorf var óskalið Viggós,
en eins hafði hann ekkert á
móti að leika gegn Hellerup. „Vor-
wart frá Austur-Þýskalandi er
sennilega með besta liðið í keppn-
inni, en þetta eru samt allt góð lið.
Sjálfstraust okkar er allt annað og
meira eftir að hafa slegið Evrópu-
meistara Baia Mare frá Rúmeníu
út og því eru sigurmöguleikar FH
alveg eins fyrir hendi, þó báðir
markverðir SKIF Krasnodar séu í
sovéska landsliðinu,“ sagði Viggó.
Viggó sagði ennfremur að FH
ætti erfíða og dýra ferð fyrir hönd-
um, en hann vonaði að liðið þyrfti
ekki að fara í ámóta rútuferð og í
Rúmeníu á dögunum. „En það er
langt í leikina — þeir verða ekki
fyrr en í mars og við eigum heima-
leik á undan, sem getur verið
sterkt," sagði Viggó.
Dukla Prag,“ sagði hann, en það
er ekki þar með sagt að leiðin í
undanúrslit sé greið," bætti þjálfar-
inn við.
Með Magdeburg leika sex til sjö
landsliðsmenn og sagði Modrowski
að þess vegna kæmi sér vel fyrir
Val að landslið Austur-Þjóðveija
leikur hér í janúar. „Þá getum við
fylgst með þeim, en eins mun ég
rejma að fá upplýsingar um liðið
frá vini mínum í Póllandi. Við und-
irbúum okkur sem best við getum
og ég kvarta alls ekki yfír drættin-
um,“ sagði þjálfari Vals.
Framstúlkur til Sovétríkanna
„Það er ekki fysilegur kostur að
fara til Sovétríkjanna, en ekki verð-
ur á allt kosið. Við leikum gegn
sterkasta kvennaliði heims og því
gefst kærkomið tækifæri til að bera
okkur saman við það besta — við
sjáum hvar við stöndum," sagði
Steindór Gunnarsson, þjálfari
Fram, í samtali við Morgunblaðið.
Stúlkumar í Fram drógust gegn
sovésku meisturunum og Evrópu-
meisturum Spartak Kiev í 16 liða
úrslitum Evrópukeppni meistara-
liða. í sovéska liðinu eru níu stúlk-
ur, sem léku með landsliði Sov-
étríkjanna á Ólympíuleikunum í
Seoul, en 10. landsliðskonan var
meidd!
„Ekki er raunhæft að við gemm
stóra hluti, en við fömm í þessa
leiki af mikilli grimmd. En auðvitað
em stelpumar hræddar við skell og
þær hafa sagt að best væri að semja
um að leika báða leikina úti, því
þá fréttist ekki af þeim! En að öllu
gamni slepptu þá verður þetta mik-
il lífsreynsla fyrir stúlkumar í Fram
því ég efa að íslenskt kvennalið
hafí leikið gegn svo sterku liði.
Möguleikarnir á pappírnum em
samt nánast engir, en við gemm
okkar besta,“ sagði Steindór.
Fram á fyrst heimaleik og á hann
að fara fram 9. - 15. janúar, en
seinni leikurinn skal leikinn 16. -
22. janúar.
LANDSLEIKUR
Morgunblaðiö/Einar Falur
Konrád Olavson var með 100% skotnýtingn gegn Svíum og skoraði tvívegis.
„Uppskorið
eins og til
var sáð“
- sagði Hilmar
Björnsson
„Það er lítið um þennan leik
að segja og raunar best að
segja sem minnst annað en að
uppskeran hafi verið eins og
tii var sáð,“ sagði Hilmar
Björnsson fyrrum landsliðs-
þjálfari í handknattleik eftir
leikinn í gær. Og hann hélt
áfram:
Hvemig á öðm vísi að fara þeg-
ar svona er dembt á landsliðs-
menn, að koma saman óundirbúnir
inni í miðri hrinu deildar- og Evr-
ópuleikja og leika landsleiki Það er
fáránlegt. Að mínum dómi er ekki
hægt að dæma liðið af þessum leik
og úrslitunm."
„Vantaði stemmingu"
Annar fyrmm landsliðsþjálfari, Jó-
hann Ingi Gunnarsson var einnig
þama á ferðinni. Hann sagði m.a.
þetta: „Ég vonaðist til þess að sjá
þokkalegan landsleik, en hann var
það alls ekki, að minnsta kosti ekki
hjá okkar mönnum. Sænska liðið
var mun betra og átti sigurinn fylli-
lega skilið. En það var einkenn-
andi, að það vantaði alla stemmingu
í íslenska liðið og manni virtist það
alltaf vera svolítið á hælunum. Það
er óeðlilegt, því í landsleik eiga
menn að keyra á fullu og gefa allt
í leikinn."
EVROPUKEPPNIN í HANDBOLTA
í gær var dregið í átta liða úrslit Evrópumótanna í hand-
knattleik. Fyrri leikirnir eiga að fara fram 6. mars til 12.
mars, en seinni leikirnir 13. - 19. mars 1989.
Keppnl meistarallða
Ortigia Siracusa (Italíu) - Steaua Búkárest (Rúmeníu)
Valur - Magdeburg (A-Þýskalandi)
Drott (Svíþjóð) - Barcelona (Spáni)
SKA Minsk (Sovétríkjunum) - Dukla Prag (Tékkoslóvakíu)
Keppnl bikarhafa
Bramac Veszprem (Ungveijalandi) - TUSEM Essen (V-Þýskalandi)
„Crvenka" (Júgóslavíu) - US Créteil (Frakklandi)
Dinamo Bukarest (Rúmenfu) - Empor Rostock (A-Þýskalandi)
Stavanger (Noregi) - Bidasoa (Spáni)
IHF-keppnln
FH - SKIF Krasnodar (Sovétríkjunum)
Dusseldorf (V-Þýskalandi) - Politehchnica (Rúmeníu)
Vorwart Frankfurt/O (A-Þýskalandi) - Pelister (Júgóslavíu)
Hellemp (Danmörku) - Cajamadrid (Spáni)
„Mikilvægir fjár-
öflunarleikirf<
sagði Bogdan landsliðsþjálfari
Bogdan landsliðsþjálfari sagði
í viðtali við Sjónvarpið á
laugardag að liðsins vegna væri
slæmt að leika núna. Eftir leikinn
útskýrði hann hvers vegna. „Það
er tvennt ólíkt að leika deildarleik
eða landsleik. í deildinni þekkja
menn mótheijana og vita að
hveiju þeir ganga, en öðru máli
gegnir í landsleik. Því þarf liðið
að æfa saman, sama hve leikreynt
það er. Við æfðum ekkert fyrir
þennan leik og uppskárum sem
til var sáð. En þetta eru fjáröflun-
arleikir og mikilvægir sem sl$kir.“
Bogdan sagðist velja liðið fyrir
leikinn í kvöld eftir hádegisæf-
ingu. „Ég veit ekki hveijir mæta
eða hvort einhver eða einhveijir
eru meiddir. Því get ég ekki sagt
hveijir verða vaidir en víst er að
annar eða báðir markverðimir fá
að hvíla," sagði landsliðsþjálfar-
inn.