Morgunblaðið - 23.12.1988, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1988
21
Klúkuskóli, Bjarnarfirði:
Tölva aflient á
litlujólunum
Börnin kringum nýju tölvuna: Hlynur, Harpa, Valgeir, Ragnheiður, Viktor, Steinar og Bjarki.
Laugarhóli, Bjamarfírði.
LITLU jólin í Klúkuskóla I
Bjarnarfirði voru að venju
haldin í skólanum helgina fyrir
jól og til þeirra boðið íbúum
BjarnarQarðar og Bassastaða.
Þar fluttu bömin ljóð, sögur
og söng, auk þess sem þau
höfðu samið nýtt leikrit um
Mjallhvít og dvergana sjö, sem
þau frumfluttu undir stjórn
Arnlínar Þ. Óladóttur. Há-
punktur jólagleðinnar var að
afhjúpuð var tölva sem skóUnn
hafði keypt og sýnd foreldrum
og gestum, en tölvukaupasjóð-
ur var stofnaður á þessu ári
tilefni þess að 80 ár eru Uðin
frá því að skólastarf hófst í
Kaldrananeshreppi.
Þess var minnst sérstaklega við
skólaslit í vor, að 80 ár eru liðin
á þessu ári frá því að skólastarf
hófst í Kaldrananeshreppi. Lítill
ellefu nemenda skóli átti ekki von
á fjárveitingu til tölvukaupa og því
var stofnaður sérstakur tölvu-
kaupasjóður af þessu tilefni. Lions-
menn á Hólmavík gáfu fyrstu upp-
hæðina í þennan sjóð. Síðan var
stofnun hans tilkynnt við skólaupp-
sögn og lögðu þá margir hönd á
plóginn. Nokkur fyrirtæki réttu
Morgunblaðið/Sigurður H. Þorsteinsson
Hrönn Magnúsdóttir sem drottn-
ingin við spegilinn.
einnig hjálparhönd, þeirra á með-
al: Búnaðarbanki íslands á
Hólmavík, Hólmadrangur hf. á
Hólmavík, Sparisjóður Kirkjubóls-
og Fellshrepps á Kirkjubóli og
Kaupfélag Steingrímsfjarðar á
Hólmavík. Það sem á vantaði hafa
svo einstaklingar gefið, heima-
menn og aðrir. Var svo tölvan af-
hjúpuð og skoðuð við upphaf litlu
jóla.
Þá fluttu börnin ýmislegt efni
fyrir gesti og höfðu auk þess
skreytt sal og önnur húsakynni
skólans. Jólasveinar komu í heim-
sókn og útbýttu ávöxtum og sæl-
gæti og skemmtu allir sér hið
besta.
Mesta athygli vakti nýtt leikrit,
sem bömin höfðu sjálf samið um
hið alkunna ævintýri um Mjallhvít
og dvergana sjö. Höfðu þeir nú
fengið ýmis nútímalegri nöfn og
hegðuðu sér samkvæmt því. Var
leikritið flutt undir stjóm Amlínar
T. Óladóttur, sem verið hefir for-
fallakennari við skólann í vetur.
Þá höfðu nemendur byggt
sveitabæ, kirkju og vitanlega póst-
hús til að koma jólapóstinum til
skila, sem gat að líta í sal skól-
ans. Einnig settu þau upp jólajötu
með tilheyrandi viðhöfn. Sóknar-
presturinn, séra Baldur R. Sigurðs-
son á Hólmavík, hafði svo helgi-
stund með viðstöddum.
Loks var dansað kringum jóla-
tréð og tveir jólasveinar komu í
heimsókn. - SHÞ
1
'L ■■ ■ •• •
LOÐFÓÐRAÐUR
SNjÓSLEÐAGALLI
með tvöfaldri ísetu og
ytra byrði úr vatnsheldu
nylonefni. Hlýr, þægi-
legur, sterkur og end-
ingargóður.
STIL
ULLARNÆRFÖTIN
stinga ekki og þau má
þvo í þvottavél. STIL er
framleitt úr 85% ull og
15% nylon. Veldu STIL,
þú færð varla ákjósan-
legri nærfatnað á alla
fjölskylduna á vetrum.
Litur: Dökkblátt.
Síðar buxur og bolir.
• •
KAPP
KLÆÐNAÐURINN
er prjónaður úr poly-
ester/polyamid garni.
Að innan er silkimjúk
loðna. Einstaklega létt-
ur og þjáll fatnaður,
einn sér eða undir öðr-
um fatnaði, s.s. vinnu-
galla eða sjógalla.
VATTERAÐU R
VINNUGALLI
Þægilegur, hlýr og
sterkur. Litir: Dökkblátt
og appelsínugult.
ÞÆGILEGUR
FLOTVINNUGALLI
sem eykur öryggi sjó-
mannsins. Gallinn er úr
vatnsheldu nylonefni
sem er auðvelt að þrífa.
Einangrar mjög vel
gegn kulda. Framleidd-
ur samkvæmt ströng-
ustu kröfum.
• •
..........................'■..........
Gagnlegar gjafir á góðu verði
hjá EUingsen
13.996 -
Dæmi um verð:
Dömubuxur
kr. 1.244,-
kr. 16.348,-
7.490,-
Dæmi um verð:
herrabuxur
kr. 1.683,-
ríri ri sendum um allt land
Verslun athafnamannsins L^L^[^fr[JjLJJvy|V^lj^lJ Jj Grandagarði 2, Rvík, sími 28855