Morgunblaðið - 23.12.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1988
33
Utanríkisráðherra:
Ríkíssljórnin ætlar ekki að
bregðast skyldum við NATO
NOKKRAR umræður urðu um utanríkismál og samskiptin við varnar-
liðið í kjölfar fyrirspurnar frá Geir H. Haarde (S/Rvk) til utanrikis-
ráðherra um hvað átt væri við í stjórnarsáttmálanum þegar sagt
væri að skipti við varnarliðið yrðu endurskipulögð. Utanríkisráð-
herra sagði að ríkisstjórnin hefði ekki hug á að breyta né bregðast
þeim skyldum sem íslendingar hefðu tekið á sig með aðildinni að
Atlantshafsbandalaginu sem væri einn hornsteinn islenskrar utanrik-
isste&iu en vildi tryggja islenska hagsmuni.
Geir H. Haarde sagði í fyrir-
spumartíma í sameinuðu þingi í
gær að þegar Alþýðubandalagið
væri í stjóm vöknuðu ávallt upp
spumingar um samskipti okkar við
Atlantshafsbandalagið. Um þau
mál væri ekki orð í stjómarsátt-
mála ríkisstjómarinnar og því eðli-
legt að menn hefðu velt þeim fyrir
sér þangað til utanríkisráðherra
hefði tekið af skarið. Las Geir síðan
upp úr stjómarsáttmálanum þar
sem segir að skipti íslendinga við
vamarliðið verði endurskipulögð.
Hvaða skipti er verið að tala um?
spurði Geir. Viðskipti? Almenn sam-
skipti? Bað þingmaðurinn um skýr-
ingar á því hvemig skilja bæri þessa
grein.
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, sagði að ætlunin
væri að fram færi úttekt á öllum
skiptum við vamarliðið_ sem ein-
hveiju máli skiptu fyrir íslendinga.
Væri þetta starf þegar hafíð.
í fyrsta lagi væri unnið að athug-
un á tilhögun verktöku fyrir vamar-
liðið. Þar væri fyrst og fremst um
að ræða starfsemi Aðalverktaka en
jafnframt yrði unnið að athugun á
þætti annarra verktaka og gerðar .
tillögur um breytingar ef niðurstöð-
ur athugana gæfu tilefni til þess.
Tryggt yrði að íslenskum reglum
yrði fylgt í öllum framkvæmdum á
vegum vamarliðsins.
I öðm lagi að verslun og við- .
skipti við vamarliðið yrðu skoðuð
vandlega meðal annars í því skyni
að vamarliðið keypti meira af
íslenskum landbúnaðar- og iðnaðar-
vörum en nú væri.
í þriðja lagi þá væru viðræður
hafnar og vinnuhópur að störfum
með aðild sveitarfélaga og vamar-
liðsins um frambúðarlausn á vatns-
bólum fyrir svæðið vegna yfírvof-
andi mengunarhættu. Forhönnun
þeirra mannvirlqa væri langt kom-
in. Þetta mál hefði m.a. verið til
umræðu á fundum utanríkisráð-
herra íslands og Bandaríkjanna.
í flórða lagi væm viðræður hafn-
ar við vamarliðið um afhendingu
vamarsvæða neðan þjóðvegarins
að nýju flugstöðinni til sveitarfélaga
á svæðinu.
í fimmta lagi væm samningar
um aukna hlutdeild vamarliðsins í
rekstri heilbrigðiseftirlits og meng-
unarvömum langt komnir.
í sjötta lagi þá yrði áhersla lögð
á að draga úr umhverfisspjöllum
af völdum vamarliðsins og flugvall-
arins og yrðu holræsa- og sorpeyð-
ingarmál sérstaklega athuguð í því
sambandi.
í sjöunda lagi yrði haldið áfram
athugunum á því með hvaða hætti
og að hvaða marki væri rétt og
skynsamlegt að íslendingar tækju
sjálfír yfír ýmis eftirlitsstörf svo
sem þegar hefði verið ákveðið með
rekstur ratsjárstöðva.
í áttunda lagi væri hafin úttekt
á vegum fjármála- og utanríkis-
ráðuneytis á starfsemi lögreglu-
stjóraembættisins á Keflavíkurflug-
velli.
í níunda lagi yrði haldið áfram
umræðum sem reyndar væru stöð-
ugt í gangi um ýmsa þætti flug-
öryggismála á Keflavíkurflugvelli
og miðuðu að því að tryggja að flug-
völlurinn uppfyllti ýtmstu kröfur
um öryggisbúnað.
Utanríkisráðherra sagðist vona
að þessi dæmi gæfu ákveðna hug-
mynd um það sem fælist í ákvæðum
stjómarsáttmálans um skipti ís-
léndinga við vamarliðið. Ríkis-
stjómin hefði ekki í huga að breyta
né bregðast þeim skyldum sem ís-
lendingar hefðu tekið á sig með
aðildinni að Atlantshafsbandalag-
inu sem væri einn homsteinn
íslenskrar utanríkisstefnu en vildi
tryggja íslenska hagsmuni sem best
í samskiptum við vamarliðið.
Geir H. Haarde sagði að þarna
væri það komið sem vantaði í stjóm-
arsáttmálann sjálfan. Vonandi væri
þetta einnig sá skilningur sem ráð-
herrar Alþýðubandalagsins legðu í
hann. Um væri að ræða ýmsa þætti
sem snertu dagleg samskipti við
vamarliðið en ekki aðildina að Atl-
antshafsbandalaginu.
Ólafur Ragnar Grímsson, fjár-
málaráðherra, sagði að „fulltrúar
kaldastríðsviðhorfanna" héldu
áfram uppteknum hætti. Væntan-
lega hefði það farið fram hjá þeim
að stórt skref hefði nýlega verið
stigið í afvopnunarmálum þegar
forseti Sovétríkjanna kynnti ein-
hliða afvopnun. Þessi einhliða af-
vopnun myndi halda áfram og því
þyrftu íslendingar að endurskoða
samskipti sín við vamarliðið svo
þessi þjóð myndi ekki daga ein
uppi í kaldastríðinu.
Matthías Á. Mathiesen (S/Rn)
sagði svar utanríkisráðherra eitt-
hvað hafa farið í taugamar á fjár-
málaráðherra. Hann hefði heldur
ekki svarað þeirri fyrirspum sem
til hans var beint frekar en venju-
lega. Matthías sagði að það væri
sú stefiia sem vestrænar þjóðir
hefðu fylgt sem hefðu leitt til þess
að Sovétríkin breyttu sinni stefnu.
Hann hefði heldur ekki heyrt betur
en utanríkisráðherra vildi halda
áfram þeirri stefnu, það væri hann
sannfærður um.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði
að ef Matthías Á. Mathiesen myndi
kynna sér ummæli forystumanna
Bandaríkjanna þá myndi hann kom-
ast að því að afvopnunartillögur
Gorbatsjovs hefðu komið þeim á
óvart. Þetta hefði verið stórt skref
sem komið hefði öllum á óvart.
Geir H. Haarde sagði fjármála-
ráðherra beita sömu aðferðum og
í öðrum málum þ.e. að þyrla upp
moldviðri um eitthvað sem kæmi
málinu ekki við. Hlyti hann að túlka
viðbrögð Ólafs Ragnars sem óbein
mótmæli við orð utanríkisráðherra.
Ekki hefði verið hægt að skilja þau
öðruvísi. Við slíku heimilisböli væri
ekkert að segja.
Jón Baldvin Hannibalsson, ut-
anríkisráðherra, sagði að þótt stefti-
an í utanríkismálum væri hér ekki
á dagskrá þá gæfí þetta honum til-
efni til að taka af allan vafa um
að utanríkisráðherrafundur NATO
í Brussel hefði einhliða lýst yfír
fognuði með ákvörðun Gorbatsjovs.
Á fundinun hefði einnig legið fyrir
tillögugerð sem unnið hefði verið
að síðasta hálfa árið og ætti að
vera grundvöllur bandalagsins fyrir
afvopnunarráðstefnuna í Vínar-
borg. Þar væri gengið enn lengra
og m.a kveðið á um að ekkert eitt
ríki mætti vera með meiri vopn en
eðlilegt gæti talist vegna vamar-
sjónarmiða. Sama gilti um herafla
í öðrum ríkjum. Utanríkisráðherra
sagði að með þessum tillögum hefði
NATO stigið stórt skref fram á vid^.
í afvopnunarmálum og sagðist
binda vonir við að árið 1989 yrði
ár sem skipti sköpum í friðarmálum.
Eyjólfur Konráð Jónsson (S/Rvk)
sagði þetta vera athyglisverða um-
ræðu. Fjármálaráðherra hefði kall-
að utanríkisráðherra kaldastríðs-
mann undir rós. Eyjólfur Konráð
sagðist hafa verið sammála hveiju
einasta orði utanríkisráðherra.
Þingmaðurinn sagði að það hefði
verið hemaðarmáttur vestrænna
ríkja sem hefðu stöðvað útþenslu
Rússa. Þó hann væri innilega ósam-
mála mörgu í efnahagsstefnu
stjómarinnar sagðist hann gleðjast
yfir staðfestu utanríkisráðherra f '**'
utanríkismálum.
Atvinnutryggingarsj óður:
Hver er ábyrgð
slj ór nar manna?
MATTHÍAS Á. Mathiesen hef- ábyrgð sem hvílir á bankaráðs-
ur lagt fram fyrirspurn til for-
sætisráðherra um ábyrgð stjóm-
armanna í Atvinnutryggingar-
sjóði. í fyrsta lagi spyr Matthías
hvernig háttað er ábyrgð stjóm-
armanna Atvinnutryggingar-
sjóðs vegna setu þeirra í stjóm
sjóðsins. í öðra lagi spyr Matth-
ías hvort forsætisráðherra telji
að ábyrgðin sé sambærileg þeirri
mönnum.
Karl Steinar Guðnason spyr flár-
málaráðherra um upplýsingaöflun
Kjararannsóknanefndar. Þingmað-
urinn spyr hvers vegna Kjararann-
sóknanefíid fái ekki aðgang að upp-
lýsingum um launagreiðslur ríkis-
sjóðs er varða félagsmenn Alþýðu-
sambands íslands.
Morgunblaðið/Einar Falur
Bubbi og Megas takast í hendur er þeir fengu afhentar platínuplötur
í gær fyrir góða sölu á „Bláum draumum". Til hægri stendur útgef-
andi þeirra, Ásmundur Jónsson í Gramminu.
Bubbi og Megas:
Þorláksmessutón-
leikar á Borginni
Viðskiptaráðherra boðar „valfrelsi í verðtryggingu“:
Geri ráð fyrir þremur láns- -
kjaravísitölum um áramót
Kemur ekki til greina nema í mjög
stuttan tíma, segir forsætisráðherra
JÓN Sigurðsson, viðskiptaráðherra, segist gera ráð fyrir að þijár
lánskjaravísitölur verði auglýstar um áramótin; núgildandi visitala,
gengisviðmiðun og hin nýja lánskjaravísitala sem ríkisstjórnin hefúr
boðað um áramótin. Steingrimur Hermannsson, forsætisráðherra,
segir að ekki komi til greina nema i mjög skamman tima að hafá
fieiri en eina lánskjaravísitölu i gangi; verið geti að einhvem aðlögun-
artima þurfi þegar nýja visitalan á að taka gildi. Aðspurður um
hvort deilur séu innan ríkissijómarinnar um lánskjaravisitöluna sagði
Steingrímur: „Ég vona ekki.“ Lánskjaravisitalan verður á dagskrá
BUBBI Morthens og Megas halda
árlega Þorláksmessutónleika
sína í kvöld, föstudagskvöld, á
Hótel Borg. Húsið opnar kl. 21
en tónleikamir heQast kl. 22.
Bubbi og Megas hafa gert
víðreist um landið að undanfömu
og haldið tónleika víða til að fylgja
eftir útgáfu plötu sinnar „Bláir
draumar". Platan hefur selst í yfír
7.500 eintökum, telst því til
„platínuplatna," og fengu þeir við-
urkenningu sína afhenta á blaða-
mannafundi á Rás 2 í gær. Bubbi
fékk einnig afhenta platínuplötu
fyrir „Dögun“, sem seldist í yfir
18.000 eintökum og gullplötur fyrir
„56“ og „Serbian Flower".
„Bláir draumar" kom út 1. des-
ember í tilefni 70 ára fullveldis ís-
lands. Tónleikamir í kvöld verða
lokatónleikar Bubba og Megasar í
bili.
á ríkisstjómarfúndi í dag.
Fulltrúar stjómvalda miða við
óbreytta lánskjaravísitölu í nýgerð-
um samningi sínum við lífeyrissjóð-
ina um vaxtakjör af skuldabréfum
Húsnæðisstbfnunar. Ólafur Ragnar
Grímsson, fjármálaráðherra, sagði
að það stafaði af þeirri einföldu
ástæðu að engin önnur lánskjara-
vísitala væri í gildi nú og því væri
ekki tæknilega hægt að semja um
aðra viðmiðun. ólafur Ragnar neit-
aði því að deilur væm innan ríkis-
stjómarinnar um lánskjaravísi-
töluna. Það væri enn verið að vinna
að því máli undir forystu Jóns Sig-
urðssonar og ekki hægt að segja
mikið um það á þessu stigi. Ákvörð-
un ætti að liggja fyrir fyrir áramót.
Rætt var um drög að frumvarpi
um nýja launavísitölu á ríkisstjóm-
arfundi á mánudag og gert er ráð
fyrir að frumvarp þess efnis verði
lagt fram á Alþingi fljótlega, að
sögn Jóns Sigurðssonar. Launa-
vísitala á að vega helming i hinni
nýju lánskjaravísitölu sem ríkis-
stjómin heftir boðað. Fyrst um sinn
verður miðað við gömlu launavísi-
töluna, að sögn Jóns, vegna þess
að hin nýja vísitala útheimtir mikla
tæknivinnu, sem verið er að ljúka.
Launavísitalan nú er byggð á
taxtakaupi, en nýja vísitalan á að
taka yfirborganir, ákvæðisvinnu-
kaup og fleiri slík atriði með í reikn-
inginn. „Hin nýja launavísitala
verður reist á miklu nákvæmari
rannsóknum á heildarlaunum fyrir
ákveðið vinnuframlag fyrir allt
launafólk á landinu," sagði Jón.
„Það er ekki ný hugmynd að
hafa fleiri en eina lánskjaravísitölu.
Samkvæmt Ólafslögum er heimilt
að miða verðtrygginguna við opin-
berlega skráðar og birtar verðvísi-
tölur. Þetta er þá á vissan hátt við-
urkenning á valfrelsi á verðtrygg-
ingarkjömm. Ég minni á að einn
af þingmönnum Sjálfstæðisflokks-
ins, Geir H. Haarde, flutti þings'-
alyktunartillögu um þetta efni í
fyrra, ásamt Jóni Braga Bjamasyni
úr Alþýðuflokki; að mig minnir með
kjörorðunum „valfrelsi til verð-
tryggingar“,“ sagði Jón Sigurðsson.
Þröstur gerði
jafiitefli
ÞRÖSTUR Þórhallsson gerði
jafútefli við Júgóslavann Kontic
í fjórðu umferð Evrópumeistara-
móts 20 ára og yngri i Arahem
í Hollandi í gær. Tefld var hol-
lensk vörn og samið jaftitefli eft-
ir 41 leik og talsverðar svipting-
ar.
Þröstur hefur nú 3,5 vinninga
og var einn efstur þegar ólokið var
innbyrðis skák tveggja helstu
keppinauta hans, Sovétmannsins
Dreev og Norðmannsins Rune Djur-
huus. Dreev var talinn með væn-
legri stöðu. Hvor þeirra hafði fullt
hús vinninga eftir 3 umferðir.
Fimmta umferð verður tefld í dag
og taldi Gunnar Bjömsson, aðstoð-
armaður Þrastar, mestar líkur á að
Þröstur mundi tefla við Dreev.