Morgunblaðið - 23.12.1988, Side 38
38_________.______MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1988_
Verður áfram ljós í
gluggum höfuðbólsins?
Rætt um fyrirhugaða breytingu á skipan prestakalla og talað við séra Ólaf
Hallgrímsson á Mælifelli og séra Hjálmar Jónsson prófast í Skagafírði
Víða í prestaköllum landsins
hafa að undanfornu staðið yfir
heitar umræður vegna þess að
til stendur að hnika til þeirri
skipan sem verið hefur á kirRj-
unnar málum hvað snertir
prestaköU. A nýafstöðnu kirkju-
þingi var samþykkt að sameina
nokkur prestaköU á landinu. Að
undanförnu hafa prófastar verið
að halda fundi heima í héruðum
um þessi mál. í kjölfár þessara
funda tekur kirkjuráð ákvörðun
um hvort finunvarpið verður lagt
fyrir Alþingi eftir nýár eða vísað
aftur tU kirkjuþings í haust tU
fi-ekari umræðna. Að sögn bisk-
upsritara Magnúsar Guðjónsson-
ar ræðst ákvörðun kirkjuráðs af
viðbrögðum heimamanna, sem
prófastarnir munu greina firá í
ályktunum sem þeir eiga að hafa
sent biskupi nú.
Mælifell í Skagafirði er eitt þeirra
prestakalla sem frumvarpið gerir
ráð fyrir að sameina öðru presta-
kalli. Þessi hugmjmd hefur mætt
mikiili andstöðu sóknarbama og
prestsins, séra Ólafs Hallgrímsson-
ar, sem blaðamaður Morgunblaðs-
ins ræddi við fyrir skömmu. Blaða-
maður talaði einnig við séra Hjálm-
ar Jónsson prófast um þetta mál.
Viðtöl þessi voru tekin áður en
fundur prófasts með prestum og
sóknamefndarmönnum var haldinn
þann 9. desember sl. Á þeim fundi
var komist að þeirri niðurstöðu að
prestar vestan Héraðsvatna ykju
samvinnu sína og þannig yrði því
einnig háttað með presta austan
Vatna. Séra Hjálmar Jónsson er
prestur á Sauðárkróki, séra Ólafur
á Mælifelli mun samkvæmt niður-
stöðum presta og sóknamefndar-
manna hafa nokkra vinnuskyldu á
Sauðárkróki auk starfa í sinni sókn
og presturinn í Glaumbæ mun ann-
ast afleysingaþjónustu á Sauðár-
króki.
í spjalli sem blaðamaður átti við
nokkur sóknarböm Mælifellsprests
kom fram að fólk lítur á þessi mál
ekki aðeins sem kirkjuleg heldur
einnig sem byggðarmál á öðram
þræði. Kirkjuleg yfirvöld munu
hinsvegar líta á þetta fyrst og
fremst sem hagræðingu á starfsemi
kirkjunnar. Blaðamanni virtust
sjónarmið beggja athyglisverð og
líkleg til þess að varpa nokkra ljósi
á aðstæður fámennra sveitapre-
stakalla í landinu og svo þeirra
staða þar sem fjölmenni er meira.
í viðtölunum við séra Ólaf Hallgrí-
msson á Mælifelli og séra Hjálmar
Jónsson á Sauðárkróki kemur fram
ýmislegt um það hvers vegna menn
era mótfallnir þessari sameiningu
og svo hitt hvað talið að vinnist við
hana.
Vaktaþínnfót . . .
Mælifell er_ fomt höfuðból og
kirkjustaður. í kaþólskum sið var
kirkja á Mælifelli helguð heilögum
Nikulási. Á Mælifelli hafa setið
margir merkis klerkar t.d. Nikulás
Vilhjálmsson sem var annar tveggja
presta sem neituðu að hlýðnast
Ógmundi Pálssyni Skálholtsbiskupi
þegar hann þröngvaði norðlenskum
prestum til þess að taka aftur kosn-
ingu þeirra á Jóni Arasyni til bisk-
ups sumarið 1524. Séra Jón Kon-
ráðsson, mikilhæfur fræðimaður,
sat á Mælifelli frá 1772 til 1850
og skömmu fyrir aldamót ólust upp
á Mælifelli þeir Magnús Jónsson
guðfræðiprófessor og Þorsteinn
bróðir hans, sem tók sér skálda-
nafnið Þórir Bergsson. Árið 1972
varð prestur á Mælifelli séra Ágúst
Sigurðsson frá Möðravölium. Hann
hefur lagt stund á fræðistörf og
skrifað bækur um foma kirkjustaði
og prestsetur. Jörðin Mælifell er
mjög landmikil og þótti sérlega góð
fjáijörð þar sem afréttir era víðlend-
ir.
Lítil steinsteypt kirkja er á Mæli-
felli. Hún var vígð árið 1925, tæp-
um fjórum áram áður hafði gömul
timburkirkja sem þar var brannið
og með henni allir gamlir kirkju-
munir nema slitur úr altarisklæði
frá 1857 og gamalt tréskorið spjald
með áletraninni: „Vakta þinn fót
nær þú gengur til Guðs húss.“
Það verður hart baríst
í þessu máli
Séra Ólafur Hallgrímsson hefur
verið prestur á Mælifelli í fímm ár.
Blaðamaður heimsótti hann þangað
í byrjun desember og spurði hann
um viðbrögð manna við þeim hug-
myndum frumvarps kirkjuþings að
sameina þijár sóknir Mælifells-
prestakalls Glaumbæjarprestakalli,-
Mælifells-, Reykja- og Goðdala-
sókn. Ábæjarsókn, þar sem era
tveir bæir, á að sameinast Mikla-
bæjarprestakall ef að þessari breyt-
ingu verður. Séra Ólafur sagði það
sína skoðun að ekki hefðu komið
fram nein skynsamleg rök fyrir því
að leggja Mælifellsprestakall niður.
Hann sagði að mikill einhugur væri
í sókninni gegn þessum ráðagerðum
og bað menn minnast þess að
Mælifell væri eitt af elstu presta-
köllum á landinu og þar hafi nán-
ast alltaf verið setinn staður. „Okk-
ur finnst óeðlilegt að ráðast á þetta
gamalgróna prestkall sem svo lengi
hefur verið hluti af þessari sveit og
er enn,“ sagði Ólafur. „Mönnum
finnst að sveitina setji mjög ofan
ef af þessari ráðagerð verður, hún
missi mikið en fái ekkert í staðinn.
Það er vert að gefa því gaum að í
fámenninu er presturinn þýðingar-
mikil persóna. Hann þekkir venju-
lega öll sín sóknarbörn persónulega
og þess má geta að löngum var
presturinn eini menntaði maðurinn
í sveitinni."
Mælifell er fremur fámennt
prestkall, 1. desember 1987 vora
þar 285 íbúar. Tvö önnur presta-
köll í Skagafirði era lítið eitt fjöl-
mennari. Sagði Ólafur að fámenni
væri því ekki gild rök fyrir breyting-
um í augum hans eða sóknarbama
hans. „Við lítum á þetta mál sem
byggðarmál, ekki síður en kirkjunn-
ar mál. Við teljum að dreifbýli eigi
sinn rétt hvað þjónustu kirkjunnar
snertir, ekki síður en ijölmennari
staðir, við teljum að það eigi að
vera hægt að leysa vanda þéttbýlli
MælifeU í Skagafirði.
Séra Ólafiir Hallgrímsson
á MælifeUi.
staða án þess að ganga á rétt dreif-
býlisins. Þetta er spuming um hvort
það verður áfram ljós í gluggum
höfuðbólsins.
Menn hafa varpað fram hug-
mynd um að einn 6 presta í Skaga-
firði yrði farprestur. Yrði slíkri skip-
an komið á þá tel ég ljóst vera að
sá prestur yrði staðsettur á Sauðár-
króki. Þetta er því togstreita milli
dreifbýlis og þéttbýlis," sagði Ólaf-
ur. „Hér hefur verið niðurskurður
í búskap og fólki hefur heldur fækk-
að. Fólk hefur séð að allt sem lagt
er niður kemur ekki aftur. Þetta
hleður svo utan á sig. Þegar eitt
fer fylgir annað á eftir og nú finnst
mörgum sem mælirinn sé fullur.
Ég hygg að það gæti haft slæmar
afleiðingar ef prestakallið á Mæli-
felli yrði lagt niður án samþykkis
sóknarbama. Heyrst hafa raddir
um að segja sig úr þjóðkirkjunni
ef af þessari ráðagerð verður. Mín
skoðun sú er að það sé hættulegt
að leggja prestaköll niður með vald-
boði, þetta eru jafnan viðkvæm
mál.“
Séra Ólafur gat þess að prestar
í héraðinu og prófastur hefðu rætt
um samkomulagsleiðir. Hann sagð-
ist sjálfur hafa lýst því yfir að hann
væri fús til samstarfs við aðra
presta og þar með að bæta á sig
vinnu. „Við höfum þegar nokkurt
samstarf t.d. í sambandi við sjúkra-
húsið á Sauðárkróki, þar þjónum
við prestamir í sveitinni á móti séra
Hjálmari Jónssyni. Þar er kominn
vísir að samstarfi sem gæti orðið
mun meira og á fleiri sviðum. „Ég
er opinn fyrir öllum slíkum hug-
myndum," sagði Ólafur. „En auð-
vitað þarf þá að setja um slíkt sam-
starf fastmótaðar reglur í samráði
við viðkomandi sóknarprest, en á
það finnst okkur skorta í fram-
varoinu."
Ólafur kvað vera mikinn hita í
mönnum í sveitinni út af þessu
Umdeild afgreiðsla í hreppsnefiidinni á Höfíi:
Verktaki úr Keflavík bygg-
ir flórtán kaupleigníbúðir
Höfn, Hornafírði.
MÁL, sem trúlega á eftir að verða hitamál í litlu sveitarfélagi, var
afgreitt á ftindi hreppsnefiidar Haftiarhrepps 5. desember. Gengið
var að tilbði Húsaness hf. úr Keflavík um byggingu 14 kaupleiguí-
búða í hreppnum, en alls bárust 24 tilboð í verkið frá 6 verktökum.
Húsanes sendi inn eitt tilboð en verktakar á Höfin áttu 23 tilboð.
Þegar kom til afgreiðslu tilboða var fjallað um 4 tilboð, en hin höfðu
ekki þótt koma til álita.
Forsaga þess að farið var út í
að leita tilboða er sú að viðræður
við verktaka á Höfn gáfu ekki þær
niðurstöður er forsvarsmenn Hafn-
arhrepps höfðu vænst. Tilboð Húsa-
ness sf. hljóðar upp á 57.035.000
krónur og er verð á fermetra í því
42.500 krónur en heildarstærð
1.342 fm. Sambærilegt tilboð frá
Smíðastofu Sveins Sighvatssonar á
Höfn hljóðaði upp á 62.805.000
krónur en verð á fermetra í því á
43.344 kr. og heildarfermetraíjöldi
er 1.449. Þessi tvö tilboð miðast
við fjórar 2ja, 3ja og 4ra herbergja
íbúðir og tvær 5 herbergja. Hin til-
boðin tvö hljóðuðu upp á
66.977.444 eða 43.039 krónur á fm
og 60.833.000 kr. og 43.175 kr.
meðalverð á fermetrann.
Greinilegt ’er að afgreiðsla
hreppsnefndar á máli þessu veldur
hér ýmsum áhyggjum og undrun.
Þegar hafa verið haldnir tveir fund-
ir um málið. Verkalýðsfélagið Jök-
ull hélt félagsfund um þetta mál
fimmtudaginn 8. desember og hjá
Iðnaðarmannafélagi Austur-
Skaftafellssýslu var opinn fundur
föstudaginn 9. desember. Á þeim
fundi skýrðu allmargir hrepps-
nefndarmenn hvers vegna tilboði
Húsaness var tekið. „Það þarf mjög
sterk rök til að taka ekki lægsta
tilboði," sagði Sturlaugur Þor-
steinsson oddviti. Stefán Ólafsson
skýrði hvemig samningatilraunir
við Höfðaverk hf. og Smíðastofu
Sveins Sighvatssonar hefðu farið
út um þúfur og sveitarstjóri Hafnar-
hrepps, Hallgrímur Guðmundsson,
rakti það enn nánar á fundinum og
síðar í grein í Eystrahomi 15. des-
ember. í sama tölublaði Eystra-
homs birtist grein Áma Kjartans-
sonar arkitekts á Höfn þar sem
hann véfengir m.a. að lægsta til-
boði hafi verið tekið.
Fréttaritari innti Bjöm Grétar
\
Morgunblaðið/Jón G. Gunnarsson
Hreppsnefiid Hafiiarhrepps hefiir tekið tilboði verktaka í Keflavík
um byggingu 14 kaupleiguíbúða á Höfii.
Sveinsson, formann verkalýðsfé-
lagsins Jökuls um afstöðu hans og
félagsins. „Verkalýðsfélagið telur
að hreppsnefnd Hafnarhrepps
skuldi sér mjög greinargóðar skýr-
ingar á afgreiðslu málsins. Viðræð-
ur hafa verið í gangi um stofnun
framkvæmdafélags um kaupleigu-
íbúðir, með hugsanlegri aðild verka-
lýðsfélagsins. Þeir sem hafa staðið
í þeim viðræðum standa frammi
fyrir því að hafa ekki haft nein
áhrif á t.d. þessa afgreiðslu. Þvi
hljótum við að spyrja okkur, hvort
við séum ekki æskilegir sem aðilar
að þessu félagi? Telja menn að auð-
velt sé fyrir stéttarfélag að vera
aðili að framkvæmafélagi, þar sem
verkþátturinn hefur verið látinn
íhendur aðila úr öðrum landshluta?
Til að fá svör við þessum spuming-
um ásamt fleiram skoram við á