Morgunblaðið - 23.12.1988, Side 44
MORGUNBLABIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1988
Hjalti Jónsson járn-
smiður - Minning
Frændi minn, Hjalti Jónsson
jámsmiður, er íátinn. Hann var
fæddur hér í borg 23. mars 1923
og var því rúmlega 65 ára er hann
lést. Foreldrar hans voru hjónin
Sigurborg Jónsdóttir og Jón Sig-
urðsson jámsmiður. Hjalti átti við
langvarandi veikindi að stríða, sem
síðar drógu hann til hinstu hvfldar
27. nóvember síðastliðinn.
Hjalti nam jámsmíði hjá föður
sínum, Jóni Sigurðssyni, einum
minnisstæðasta jámsmið þess tíma.
- Einkum var hann með afbrigðum
góður eldsmiður og mun Hjalti hafa
erft þá hæfíleika foður síns. Það
að vera góður eldsmiður er að vera
skapandi listamaður. Það verður að
kunna að meta hversu mikið jám
fer í þann hlut sem búa á til, svo
er að hamra jámið meðan það er
heitt, ákveða stærðina, lögunina og
formið. Þessa hæfíleika átti Hjalti
í ríkum mæli — hann var listasmið-
ur í þessarí grein jámiðnarinnar.
Að loknu námi hóf hann störf
hjá Vélsmiðjunni Héðni. Þar vann
hann um árabil aðallega úti á landi,
var til dæmis við byggingu sfldar-
verksmiðjunnar á Skagaströnd, við
virkjun Irafoss, Grímsár og við
byggingu Steingrímsfjarðarverk-
smiðju. Á þessum árum kynnist
hann fegurð landsins, varð mikill
náttúruunnandi og naut þess að
ferðast og kynnast töfrum islenskr-
ar náttúra.
Það var löng og innileg vinátta
sem varð á milli þeirra frændanna
Hjalta og Guðmundar bróður míns,
enda báðir miklir útiveraunnendur
og einkum var veiðiáhugi mikill hjá
báðum. Þeir áttu saman margar
góðar stundir við veiðar og ferða-
lög, en ein eftirminnilegasta ferð
þeirra vinanna var er þeir einn góð-
an dag tóku rútuna til Búðardals
og fóra gangandi þaðan inn
HvammsQörð um Fellsströnd,
Skarðsströnd og til Saurbæjar.
Ætlunin með þessari ferð var að
kanna aðstöðu til veiða í einhverri
á eða vatni. Þeir sögðu að víða
hefði verið barið dyra og alls staðar
hefðu þeir fengið hinar bestu við-
tökur. I þessu ferðalagi sömdu þeir
við bændur á Skarðsströnd að gera
tilraun með laxeldi í Krossá. Það
varð stór hópur frænda, vina og
kunningja sem urðu síðar þátttak-
endur í þessu ævintýri sem þeir
Hjalti og Guðmundur vora upphafs-
menn að. í mörg ár var unnið að
uppeldi Iaxaseiða og síðar farið til
veiða í þessari fallegu á. Veiðihús
reis upp í fögram hvammi við ána
og áttu þeir vinimir og aðrir f veiði-
félaginu, sem stofnað var í kringum
„Aldrei er svo bjart yfír öðlingsmanni
að eigi geti syrt eins sviplega og nú
og aldrei er svo svart í sorgarranni
að eigi geti birt fyrir eilífa trú.“
Þessar ljóðlfnur komu mér í hug,
þá er ég frétti af andláti míns ágæta
vinar, Sigmars Stefáns Pétursson-
ar, enda var hann öðlingur hinn
mesti, sem vildi hvers manns vanda
leysa og lét þá ekki standa við orð-
in tóm. Sigmar var umsvifamikill
veitingamaður og rak skemmtistað-
þetta, þar margar góðar stundir.
Halti og Jón Rafn, bróðursonur
hans, vora miklir vinir og áttu sam-
eiginlegt áhugamál þar sem útivist
inn Sigtún í áraraðir. Eflaust hefur
gengið á ýmsu í þeim rekstri í ár-
anna rás, eins og gengur, en lengst
af átti Sigmar mikilli velgengni að
fagna og kom þá ósjaldan í ljós
hvem mann hann hafði að geyma.
Oftsinnis var hann stórtækur í
stuðningi sínum til líknarmála og
til íþróttahreyfíngarinnar. Er mér
kunnugt um að hann hlaut sérstaka
viðurkenningu íþróttabandalags
Akraness fyrir þátt hans í þeim
og náttúraskoðun var. Þeir fengu
sér land við Þingvallavatn og undu
þar mörgum stundum í fögru um-
hverfi. Þeir byggðu þar saman sum-
arhús og Jón Rafn segir að Hjalti
hafí verið með afbrigðum sterkur
og þolinn enda þétt vaxinn. Hjalti
var maður fríður sýnum eins og
hann á kyn til.
Síðustu árin sem heilsan var
sæmileg hóf hann störf hjá Vél-
smiðju Jóns Sigurðssonar. Faðir
hans var hættur störfum og Ög-
mundur bróðir hans tekinn við
stjóm hennar. Vegna vanheilsu
hætti hann störfum árið 1978 og
fékk aðstöðu með hjálp góðra
manna til búsetu og aðhlynningar
hjá Öryrkjabandalaginu. Þar mun
Honum hafa líkað vel að vera og
liðið þar vel eftir því sem heilsan
leyrfði.
Hjalti var góður drengur og mun
ég ávallt minnast hans sem góðs
og vammlauss manns. Við hjónin
sendum systkinum hans og öðram
aðstandendum samúðarkveðjur.
Sæmundur Sigurðsson
efnum. Einnig kom hann fram af
mikiili rausn við starfsfólk sitt.
Sigmar var mikill vinur vina
sinna og mikið tryggðatröll. Þó lét
hann lítið yfír því sjálfur og taldi
alla þá vináttu vera í sína eigin
þágu. Hann og þau hjón vora höfð-
ingjar heim að sækja og var oft
glatt á hjalla á heimili þeirra. Þar
tvinnaðist sáman góðvild og gest-
risni.
Sigmar átti við vanheilsu að
stríða hin síðari ár og ef til vill
varð því hvfldin líkn lúnum manni.
Trú mín er sú, að það ljós kærleik-
ans, sem lýsir sálum okkar á heilög-
um jólum, tendrist einnig í þeim,
sem famir era.
Vinur
Sigmar Pétursson veitingamaður
var dyggur stuðningsmaður knatt-
spymumanna á Akranesi. Hann
eins og fleiri utanbæjarmenn byij-
aði að styðja gullaldarlið Skaga-
manna á sjötta áratugnum. Hann
sótti leiki liðsins og hélt þeim stuðn-
ingi áfram þegar nýjar kynslóðir
tóku við af hinum fraeknu köppum
gullaldarliðsins.
Á kveðjustundu vilja knatt-
spymumenn á Akranesi þakka
Sigmari stuðninginn. Þeir vilja líka
þakka allan þann hlýhug sem Sig-
mar sýndi þeim í verki. Á hveiju
ári hafði hann samband upp á Akra-
nes og bauð fram aðstoð sína og
húsakost. Þau era ófá skiptin sem
hann hélt liðinu glæsilegar veislur
eftir kappleiki í Reykjavík.
Aldrei bar skugga á þetta sam-
starf og sérstaklega er minnisstæð
keppnisferð Akumesinga til Lissa-
bon árið 1986. Sigmari var boðið
með í þessa keppnisferð. Hann var
skemmtilegur ferðafélagi og hrókur
alls fagnaðar. Þessi ferð hnýtti enn
betur þau bönd sem tengdu Sigmar
og knattspymumenn á Akranesi.
Knattspymumenn á Akranesi
votta aðstandendum innilega sam-
úð.
F.h. Knattspyrnufélags ÍA.
Gunnar Sigurðsson
t
INGIBJÖRG VESTMANN,
Hringbraut 24,
Reykjavfk,
andaðist í Landspítalanum að morgni fimmtudags 22. desember.
Stefán Bjarnason
Elsa Stefánsdóttir,
Birgir Sigurðsson.
SigmarS. Péturs■
son - Minning
t
Móðir okkar,
ÞÓRUNN ÚLFARSDÓTTIR
frá Fljótsdal,
lóst á Droplaugarstöðum 21. desember.
Njáll Haraldsson,
Úlfar Haraldsson,
Björn Haraldur Sveinsson.
t
íslandsvinurinn,
EBBE WALTHER,
Vester Nebel, Kolding,
Danmörku,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 14. desember sl. Þeim, sem
vildu minnast hans er bent á Skógræktarfólag Reykjavíkur.
Vinir.
t
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
VALGERÐUR MAGNÚSDÓTTIR,
andaðist í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri að morgni 15. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á Dvalarheimilinu Hlíð og B-deild FSA.
Magnús Jónsson, Sigríður Loftsdóttlr,
Valgerður Magnúsdóttir, Jón Magnússon,
Haukur Magnússon, Hildur Magnúsdóttir,
og barnabarnabörn.
t
Móöir okkar, systir, tengdamóöir og amma,
GUÐJÓNA JAKOBSDÓTTIR,
Meðalholti 7,
sem andaðist 18. desember í Borgarspítalanum, verður jarðsungin
frá Bústaöakirkju í dag, föstudaginn 23. desember, kl. 13.30.
Fyrir hönd aðstandenda.
Börnin.
t
GfSLI GUÐMUNDSSON,
frá Bjarnastaðahlfð,
Hraunbraut 4S,
Kópavogi,
sem andaðist á Vífilsstöðum 16. des. sl. veröur jarðsunginn frá
Fossvogskirkju miðvikudaginn 28. desember kl. 10.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jóhannes Gfslason,
Sveinn Gfslason.
Birting afmælis- og
minningargreina
Morgunblaðið tekur aftnælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Aktu'eyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
t
Útför föður okkar,
JÓNS PÁLSSONAR
fyrrv. héraðsdýralæknis,
fer fram frá Selfosskirkju miðvikudaginn 28. desember kl. 13.30.
Bílferð veröur frá Umferðarmiðstöðinni í Reykjavík kl. 12.00.
Garðar Jónsson,
Ólafur Jónsson,
Páll Jónsson,
Helgi Jónsson,
Steinunn Siguröardóttlr.
t
Móðir okkar, tengda- og fósturmóðir, amma og langamma,
SESSEUA KRISTÍN HALLDÓRSDÓTTIR,
Grænumörk 3,
Selfossi,
verður jarðsungin frá Selfosskirkju þriðjudaginn 27. desember kl.
13.30.
Jónas Magnússon, Aðalbjörg K. Haraldsdóttir,
Halldór Magnússon, Erla G. Krlstjánsdóttir,
Ragnar Reynir Magnússon, Guðleif Sveinsdóttlr,
Ragnheiður Jónasdóttir, Pálmar Vfgmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.