Morgunblaðið - 23.12.1988, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 23. DESEMBER 1988
Orðið sigrar
Bjartmar Guðlaugsson með vottorð í leikfimi
Bjartmar Guðlaugsson átti aftra söluhæstu plötu
síðasta árs, í fylgd með fullorðnum, og náði þá
fyrst verulegri almannhylli eftir að hafa verið mik-
ils metinn sem textahöfundur af gagnrýnendum
og öðrum tónlistarmönnum. Fyrir þessi jól sendir
Bjartmar frá sér aðra plötu, Með vottorð i leik-
fimi, og viðtökur þeirra plötu benda til þess að
tónlistarmaðurinn Bjartmar Guðlaugsson standi
traustum fótum á plötumarkaðnum.
Með vottorð í leikfimi gefur Bjartm-
ar sjálfur út í samvinnu við Sigurð
Rúnar Jónsson, Didda fiðlu, og
platan er reyndar orðin til í sam-
vinnu þeirra félaganna; Bjartmar
semur lög og texta en Diddi sér
um allar útsetningar og er tónlist-
arstjóri. Rokksíðan heimsótti
Bjartmar, sem býr í timburhúsi í
Skerjafirðinum.
f fylgd með fullorðnum seldist
f yfir 10.000 eintökum og Með
vottorð f leikfimi fer vel af stað.
Ég er mjög sáttur við þessa
plötu því á henni fékk ég tækifæri
til að fylgja mínum lögum eftir frá
því þau urðu til og þar til við Diddi
gengum frá þeim. Það má segja
að það hafi allt gengið mun betur
en ég átti von á, því ég átti alls
ekki von á því að hann myndi skilja
hvaö ég viidi fara eins vei og raun
ber vitni. Við erum báðir ákveðnir
og ég átti því eins von á að þetta
yrði stormasamt.
Ég er ánægður með það hvað
platan hefur selst vel og ég yrði
ekkert spældur þó hún seldist ekki
eins vel og síðasta plata, því
kannski hefði ég ekkert gott af
því. Aðalmáliö er að platan borgi
sig og þessi er búin að gera það
og gott betur.
Það hefur ekkert lag orðift eins
vinsælt af nýju plötunni og varð
í fyrra.
í fylgd með fullorðnum kom út
.5. nóvember í fyrra, en þessi er
svo að segja nýkomin út og það
má segja að þetta sé ekki sam-
bærilegt. Það er bara eitt lag af
þessari plötu sem hefur verið spil-
að í útvarpinu enn sem komið er,
en hin eiga eftir að skila sér á vin-
sældalistana.
Þú tekur eindregna pólitfska
stefnu f tónlistinni.
Það er staðreynd að hér á landi
búa tvær þjóðir og ég hef ekki
minnsta áhuga á yfirstéttinni í
þessu landi. Ég er sprottinn úr
verkalýðsstétt og stend með fólki
sem þarf að vinna fyrir sér hörðum
höndum. Ég er alinn upp við sjáv-
arsíðuna og þekkti því fátt annað
en fiskvinnu, en alla tíð var ég þó
að semja Ijóð og mig langaði alltaf
að semja lög við þau Ijóð. Eitt af
því fyrsta sem ég gerði í tónlist
var að ég textaði sólóplötu fyrir
Björgvin Gíslason fyrir löngu og
það má segja að hafi komið mér
a sporið í rokkinu. Um 1980 hreifst
ég af rokkbylgjunni og fór að vinna
texta fyrir aðra og fór síðan að
semja lögin sjálfur.
Ég fór því af stað í rokkbylgj-
unni og lengi vel langaði mig til
að semja harða rokktónlist. Eftir
því sem árin hafa liðið hefur mér
hinsvegar fundist textarnir skipta
meira og meira máli og þeir kæm-
ust ekki eins vel til skila í rokktón-
iist og í þeirri tónlist sem ég er
að semja í dag. Ég er bara trúbad-
úr, skáld með gítar, og ég kann
best við þaö.
Á Með vottorð f leikfimi eru
útsetningar mun fjölbreyttari en
á síðustu plötu og vfsast er það
mikið til Diddi, en hvað átt þú
mikið f tónlistinni?
Ég var náttúrulega á staðnum
og skipti mér af eftir þörfum, en
auðvitað var Diddi leiðandi með
sína kunnáttu í tónlist. Við sett-
urhst niður áður en við byrjuðum
á plötunni og ákváðum að gefa
hverju lagi sinn ákveðna karakter;
ákváðum hljóðfæraskipan og við-
líka, en allt byggðist á því sem ég
hafði sett saman einn með gítar-
inn. Niðurstaðan varð svo eftir því
sem mátti búast við af samstarfi
tveggja manna sem skildu hvorn
annan mjög vel.
Þú leggur mikið f textana en
þeir eru margir sem halda þvf
fram að textar f popp- og rokktón-
list eigi að vera sem marklausast-
ir.
Fyrir mér eru textar bara Ijóð í
nútímalegum búningi. Ég á í hand-
riti tvær Ijóðabækur sem ég hef
ekki komið frá mér, en um leið og
ég er búinn að setja saman lag
um Ijóðið, er það orðið aðgengilegt
fyrir alla. Ég held að sú skoðun
að textar eigi að vera marklausir
sé bara sprottin frá mönnum sem
hafa minnimáttarkennd af því að
geta ekki sett saman boðlega
texta. í gegnum tíðina hafa allt of
margar fallegar raddir góðra
söngvara sungið þvælu.
Ég tel að lagið eigi að undir-
strika Ijóðið og ég vona að ég verði
Bjartmar áritar f Mjóddinni.
Morgunblaðið/Sverrir
aldrei þaö músíkalskur að ég fari
að láta textana sæta afgangi.
Ertu þurrausinn eftir þessa
piötu?
Nei, ég er fyrst að vakna núna;
ég á svo margt eftir ósagt og mér
hefur aldrei gengið eins vei að
hugsa og nú.
Eg hef alltaf verið þeirrar skoð-
unar að það sé hlutverk þeirra sem
starfa við það aö setja saman lög
og texta, fjölmiðlaskálda, að reyna
að letta fólki Iffið að einhverju leyti
og um leið benda á hluti sem mið-
ur fara. í því finnst mér að mark-
aðssjónarmið eigi ekki að ráða
ferðinni. Salan á síðustu plötu gaf
mér grundvöll til að halda áfram
að semja lög og texta, en ég er
sáttastur við það að hafa getað
gert plötu eftir mínu höfði með þá
menn sem ég kaus helst að starfa
mér við hlið og að sú plata skuli
seljast jafn vel og hún gerir. í fram-
haldi af því vil ég bara óska öllum
risum í íslenskri plötuútgáfu, sama
hve stórir þeir eru, þess að þeir
gleymi sér ekki í sínum markaðs-
sjónarmiðum og traðki á þeim sem
eru að basla í þessu sjálfir.
Hverjum þykir sinn fugl fagur.
Ert þú með bestu plötuna á mark-
aðnum f ár?
Ég er vitanlega mjög ánægður
með mína plötu, en ef ég stend
utan við þetta þá gleður það mig
mest eru það þegar skáldin selja
sínar plötur og besta platan á
markaðnum í ár er Bláir draumar
Bubba og Megasar og þar á eftir
kemur Rauði þráðurinn hans Harð-
ar Torfasonar. Ég er glaður yfir
þessum plötum því þær sanna það
að þeir hafa tilverurétt sem eru
að syngja Ijóð; orðið sigrar.
Sogblettir og
Fyrsti kossinn
Sogblettir voru lengi ein af öndvegisrokksveitum fslensks tónlei-
kalífs og enginn fór af tónleikum sveitarinnar ósnortinn. Sveitin hóf
tónleikahald f ársbyrjun 1987 og sendi frá sór sfna fyrstu plötu stuttu
fyrir sfðustu jól. Eftir þá plötu urðu söngvaraskipti f sveitinni og minna
tók að bera á henni. Nú er komin út önnur piata svertarinnar, Fyrsti
kossinn, sem er jafnframt sfðasta plata hennar, því Sogblettir eru
hættir.
- Rokksíðan leitaði til Gunna,
trommuleikara sveitarinnar, og
Arnars, gítarleikara, sem hafa þeg-
ar stofnað nýja sveit saman.
Hvers vegna hætta Sogblettir?
Aðaiástæðan er sú að Grétar
söngvari vildi fara að notfæra sór
leiklistarmenntun sína og Ari bas-
saleikari ákvað að gerast frægur
með Bless. Þetta er ákvörðun sem
tekin var fyrir löngu, við ætluðum
að hætta um áramótin, en flýttum
því bara aðeins.
Er það ekki út í bláinn aft gefa
út plötu, þegar engin hljómsveit
er til aft fylgja henni eftir?
Þegar platan var tekin upp vor-
um við ekkert að pæla í að fara
að hætta, en það er viðeigandi að
kveðja með plötu, enda stendur
plata alltaf fyrir sínu.
Er eftirsjá að Sogblettum?
Ekki fyrir okkur, en kannski eru
einhverjir sem sjá á eftir sveitinni.
Þetta er búið að vera mjög gaman,
en það var tímabært að fara að
reyna eitthvað nýtt og spila með
nýjum mönnum.
í upphafi voru Sogbtettir feiki-
lega kraftmiklir og drffandi, en
eftir að Jón hætti og Grótar tók
við fannst mörgum að hljómsveit-
in hefði breyst of mikið.
Um það leyti sem Nonni hætti
vorum við að breytast og vorum
farnir að spila þau lög sem síðar
urðu uppistaðan í tónleikadag-
skránni. Ég held að það sem hafi
helst farið fyrir brjóstið á mönnum
var að Grétar var miklu eldi en við
Sfðustu Sogblettirnir: Ari, Arnar, Gunni og Grótar.
Morgunblaðið/Bjarni
og fólk sætti sig ekki við það.
Þegar nýr söngvari kom inn í
hljómsveitina gekk það vitanlega
ekki að halda inni gömlu lögunum,
sem hefði boðið upp á enn ósann-
gjarnari samanburð. Við ákváðum
því að nota tækifærið og henda
út gömlu lögunum, enda vorum
við búnir að vera með sama pró-
grammið í næstum ár.
Er eitthvað um lögin á nýju
plötunni að segja?
Þetta eru sex kraftpopplög með
textum frá Ara, sem á þrjá texta,
Magneu Matthíasdóttur sem á
einn texta og Baldri Kristinssyni
sem á tvo. Þess má einnig geta
að Johnny Triumph syngur með
okkur í einu lagi. Annars er engin
ríótríósaga um hvert lag og því lítið
um þau að segja í sjálfu sér.
Platan verður gefin út í takmörk-
uðu upplagi og alls verða til sölu
499 eintök og síðan ekki meir.
Ljósmynd/BS
Risaeðlur
áTunglinu
Rokksveitin Risaeðlan heldur tónleika íTunglinu í kvöld, 23. desem-
ber, Þorláksmessukvöld, og hefjast tónleikarnir kl. 23.23.
Risaeðlan er nýkomin úr tónleikaferð með Sykurmolunum, en sveitin
lék á þrennum tónleikum með Molununum, í Belgíu, Hollandi og á Bret-
landi. Aðaltónleikarnir í förinni voru í London, en það lék Risaeðlan fyr-
ir um 3.000 áheyrendur, sem tóku hljómsveitinni vel skv. heimildum
Rokksíðunnar.