Morgunblaðið - 04.05.1989, Side 27

Morgunblaðið - 04.05.1989, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAI 1989 Ein vatnslitamynda Karólínu Eiríksdóttur. Mynd þessi hefiir jafii- framt verið valin sem „andlit" hátíðarinnar. Kir kj ulistahátí ð í Hallgrímskirkj u Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju verður haldin í annað sinn dag- ana 5.-15. maí í vor. Fyrsta hátíðin var haldin í júní 1987 í nývígðri kirkjunni. Stefiit er að því að halda slíka hátíð annað hvert ár, þeg- ar ekki er Listahátíð í Reykjavík. Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir þessari hátíð, en vegna vaxandi umfangs verður leitað eftir samstarfi við fleiri kirkjur um framkvæmd næstu hátíða og yrðu þá fleiri kirkjur Reykjavíkurprófastsdæmis notaðar. Dagskráin í ár er fjölbreytt og koma þrjár listgreinar við sögu, tónlist, leiklist og myndlist, auk þess sem helgihaldið verður með hátíðarbrag sem_ nær hámarki á hvítasunnunni. Á fjórða hundrað manns kemur fram á hátíðinni. Kostnaður við kirkjulistahátíðina í ár er áætlaður um 5 milljónir króna og vegur langþyngst flutningur ór- atoríunnar Elfa eftir Mendelssohn, með fjórum einsöngvurum, Mót- ettukór Hallgrímskirkju og Sin- fóníuhljómsveit íslands og flutning- ur þriggja einþáttunga eftir dr. Jakob Jónsson. Þegar hafa fengist vilyrði fyrir góðum styrkjum, bæði frá kirkjum, ríki, Reykjavíkurborg og fyrirtækjum, en samt vantar þó nokkuð á að endar nái saman. Við setningu kirkjulistahátíðar- innar verður opnuð myndlistarsýn- ing í forkirkju Hallgrímskirkju. Sýndar verða tíu vatnslitamyndir eftir Karólínu Lárusdóttur, en hún er búsett skammt frá Cambridge í Englandi. Myndirnar hefur Kar- ólína gert sérstaklega fyrir þessa sýningu, en þær tengjast allar lífi Krists, sagði Karólína í stuttu sam- tali við Morgunblaðið. Karólína kemur hingað til lands í dag til að vera viðstödd opnun sýningarinnar og jafnframt til að halda upp á 25 ára stúdentsafmæli sitt frá Mennta- skóla Reykjavíkur, eins og hún orð- aði það. Karólína málaði allar myndirnar á síðasta ári. „Eg bara bíð eftir að sjá hvernig þessar myndir mínar líta út í römmum því ég sendi_ þær allar rammalausar heim til Islánds," sagði Karólína. Fjöldi sjálfboðaliða í söfnuðinum, Listvinafélaginu og Mótettukórnum vinnur ötullega að undirbúningnum, en þeirra framlag er forsenda fram- kvæmdarinnar. Stjórn Listvinafé- lags Hallgrímskirkju skipa: Dr. Þór Ásmundarsalur: Sýning Péturs framlengd Ákveðið hefur verið að fram- lengja sýningu Péturs Bjarna- sonar í Ásmundarsal við Freyjugötu og lýkur henni n.k. sunnudagskvöld. Pétur sýnir þarna 23 höggmyndir, flestar úr bronsi. Sýningin er opin klukkan 14 til 20. Góð aðsókn hefur verið að sýningunni. Jakobsson formaður, Hörður Áskelsson framkvæmdastjóri, Málfríður Finnbogadóttir gjaldkeri, dr. Hjalti Hugason ritari, Snorri Sveinn Friðriksson, Sigríður Jó- hannesdóttir og dr. Sigurbjörn Ein- arsson meðstjórnendur, en Hrólfur Ölvisson stjórnmálafræðinemi hefur verið ráðinn í hlutastarf sem fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar. Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, er verndari hátíðarinnar. Míele ryksugur eru sterkar liðugar hljóðlátar kraftmiklar hreinlegar áreiðanlegar fallegar SUNDABORG 1 S. 68 85 88 - 68 85 89 Helgi Þorgils Friðjónsson sýnir á Kjarvalsstöðum Eitt verka Helga Þorgils Friðjónssonar á sýningunni „Grár dag- ur“. LAUGARDAGINN 6. maí kl. 16.00 verður opnuð að Kjarv- alsstöðum sýning á nýjum verk- um eftir Helga Þorgils Frið- jónsson, í boði menningarmála- nefndar Reykjavíkurborgar. Þetta er önnur boðsýning Lista- safns Reykjavíkur á þessu ári og stendur hún fram til 21. maí. Sýningin mun síðan fara til útlanda, fyrst til Norrænu lista- miðstöðvarinnar í Sveaborg, þar sem hún verður opnuð 16. júní. Þá til Gallerí Nemo í Eckemförde og loks til Rovaniemi-listasafnsins í Finniandi. Helgi Þorgils Friðjónsson hefur á undanförnum árum haldið einkasýningar bæði hér heima og erlendis, ennfremur sem hann hefur tekið þátt í fjölda samsýn- inga, eins og t.d. sýningunni Nordanad í Musée des Arts Décor- atifs í París 1986, Scandinavian Art í Seibu-safninu í Tokyo 1987 og í Rooseum-safninu í Malmö 1988. Verk Helga Þorgils er m.a. að finna í Rooseum-safninu í Malmö, Statens Museum for Kunst í Kaupmannahöfn og Kunsthalle í Kiel í Þýskalandi. Sýningin á verkum Helga Þorg- ils verður opin daglega klukkan 11 - 18.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.