Morgunblaðið - 04.05.1989, Page 27
27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 4. MAI 1989
Ein vatnslitamynda Karólínu Eiríksdóttur. Mynd þessi hefiir jafii-
framt verið valin sem „andlit" hátíðarinnar.
Kir kj ulistahátí ð
í Hallgrímskirkj u
Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju verður haldin í annað sinn dag-
ana 5.-15. maí í vor. Fyrsta hátíðin var haldin í júní 1987 í nývígðri
kirkjunni. Stefiit er að því að halda slíka hátíð annað hvert ár, þeg-
ar ekki er Listahátíð í Reykjavík. Listvinafélag Hallgrímskirkju
stendur fyrir þessari hátíð, en vegna vaxandi umfangs verður leitað
eftir samstarfi við fleiri kirkjur um framkvæmd næstu hátíða og
yrðu þá fleiri kirkjur Reykjavíkurprófastsdæmis notaðar.
Dagskráin í ár er fjölbreytt og
koma þrjár listgreinar við sögu,
tónlist, leiklist og myndlist, auk
þess sem helgihaldið verður með
hátíðarbrag sem_ nær hámarki á
hvítasunnunni. Á fjórða hundrað
manns kemur fram á hátíðinni.
Kostnaður við kirkjulistahátíðina
í ár er áætlaður um 5 milljónir króna
og vegur langþyngst flutningur ór-
atoríunnar Elfa eftir Mendelssohn,
með fjórum einsöngvurum, Mót-
ettukór Hallgrímskirkju og Sin-
fóníuhljómsveit íslands og flutning-
ur þriggja einþáttunga eftir dr.
Jakob Jónsson. Þegar hafa fengist
vilyrði fyrir góðum styrkjum, bæði
frá kirkjum, ríki, Reykjavíkurborg
og fyrirtækjum, en samt vantar þó
nokkuð á að endar nái saman.
Við setningu kirkjulistahátíðar-
innar verður opnuð myndlistarsýn-
ing í forkirkju Hallgrímskirkju.
Sýndar verða tíu vatnslitamyndir
eftir Karólínu Lárusdóttur, en hún
er búsett skammt frá Cambridge í
Englandi. Myndirnar hefur Kar-
ólína gert sérstaklega fyrir þessa
sýningu, en þær tengjast allar lífi
Krists, sagði Karólína í stuttu sam-
tali við Morgunblaðið. Karólína
kemur hingað til lands í dag til að
vera viðstödd opnun sýningarinnar
og jafnframt til að halda upp á 25
ára stúdentsafmæli sitt frá Mennta-
skóla Reykjavíkur, eins og hún orð-
aði það. Karólína málaði allar
myndirnar á síðasta ári. „Eg bara
bíð eftir að sjá hvernig þessar
myndir mínar líta út í römmum því
ég sendi_ þær allar rammalausar
heim til Islánds," sagði Karólína.
Fjöldi sjálfboðaliða í söfnuðinum,
Listvinafélaginu og Mótettukórnum
vinnur ötullega að undirbúningnum,
en þeirra framlag er forsenda fram-
kvæmdarinnar. Stjórn Listvinafé-
lags Hallgrímskirkju skipa: Dr. Þór
Ásmundarsalur:
Sýning
Péturs
framlengd
Ákveðið hefur verið að fram-
lengja sýningu Péturs Bjarna-
sonar í Ásmundarsal við
Freyjugötu og lýkur henni n.k.
sunnudagskvöld. Pétur sýnir
þarna 23 höggmyndir, flestar
úr bronsi. Sýningin er opin
klukkan 14 til 20. Góð aðsókn
hefur verið að sýningunni.
Jakobsson formaður, Hörður
Áskelsson framkvæmdastjóri,
Málfríður Finnbogadóttir gjaldkeri,
dr. Hjalti Hugason ritari, Snorri
Sveinn Friðriksson, Sigríður Jó-
hannesdóttir og dr. Sigurbjörn Ein-
arsson meðstjórnendur, en Hrólfur
Ölvisson stjórnmálafræðinemi hefur
verið ráðinn í hlutastarf sem fram-
kvæmdastjóri hátíðarinnar. Biskup
íslands, herra Pétur Sigurgeirsson,
er verndari hátíðarinnar.
Míele
ryksugur eru
sterkar
liðugar
hljóðlátar
kraftmiklar
hreinlegar
áreiðanlegar
fallegar
SUNDABORG 1 S. 68 85 88 - 68 85 89
Helgi Þorgils Friðjónsson
sýnir á Kjarvalsstöðum
Eitt verka Helga Þorgils Friðjónssonar á sýningunni „Grár dag-
ur“.
LAUGARDAGINN 6. maí kl.
16.00 verður opnuð að Kjarv-
alsstöðum sýning á nýjum verk-
um eftir Helga Þorgils Frið-
jónsson, í boði menningarmála-
nefndar Reykjavíkurborgar.
Þetta er önnur boðsýning Lista-
safns Reykjavíkur á þessu ári og
stendur hún fram til 21. maí.
Sýningin mun síðan fara til
útlanda, fyrst til Norrænu lista-
miðstöðvarinnar í Sveaborg, þar
sem hún verður opnuð 16. júní.
Þá til Gallerí Nemo í Eckemförde
og loks til Rovaniemi-listasafnsins
í Finniandi.
Helgi Þorgils Friðjónsson hefur
á undanförnum árum haldið
einkasýningar bæði hér heima og
erlendis, ennfremur sem hann
hefur tekið þátt í fjölda samsýn-
inga, eins og t.d. sýningunni
Nordanad í Musée des Arts Décor-
atifs í París 1986, Scandinavian
Art í Seibu-safninu í Tokyo 1987
og í Rooseum-safninu í Malmö
1988.
Verk Helga Þorgils er m.a. að
finna í Rooseum-safninu í Malmö,
Statens Museum for Kunst í
Kaupmannahöfn og Kunsthalle í
Kiel í Þýskalandi.
Sýningin á verkum Helga Þorg-
ils verður opin daglega klukkan
11 - 18.