Morgunblaðið - 04.05.1989, Blaðsíða 45
kostnaði, en fé í fjárlögum brúar
bilið.Á hveiju námskeiði eru tveir
námstjórar á vegum MFA auk leið-
beinenda, en Félagsmálaskólinn
hefur starfað síðan 1975. Það er
ríkjandi skoðun að þetta starf eigi
að efla og talsmenn þess innan
vébanda ASÍ vilja að sett verði lög
um skólann vegna þess að það sé
eðlilegt að samfélagið standi að
skóla fyrir launafólkið í landinu
rétt eins og staðið er á bak við
ýmsar skólastofnanir samfélagsins.
Lögbundinn skóli gæti boðið upp á
mun breiðara nám fyrir fólk sem
af ýmsum ástæðum fór ekki í frek-
ara nám að loknu skyldunámi.
Tryggvi Þór sagði að vonir stæðu
til að frumvarp til laga um skólann
kæmi fram á Alþingi í vetur, slíkar
hugmyndir væru að vísu ekki nýj-
ar, því þær hefðu oft komið fram
áður, en nú væri vonandi byr. Und-
anfarna vetur hafa verið 4-5
tveggja vikna námskeið að vetrin-
um og einnig væri tölvunám í skól-
anum með sérstökum námskeiðum
á svokölluðum tölvudögum í apríl-
maí. Menningar- og fræðslustofnun
Alþýðusambands íslands hefur
möguleika á að standa fyrir marg-
þættu starfi á vettvangi félagsmála.
Starfsmenntunarnámskeið eru
skipulögð. Hafin er ritun sögu ASÍ
undir ritstjórn Stefáns F. Hjartar-
sonar sagnfræðings og ritnefndinni
stýrir Helgi Skúli Kjartansson. Von
er á fyrra bindinu árið 1991. Þá
kom það fram í samtalinu við
Tryggva Þór að norrænt samstarf
á vettvangi verkalýðssamtakanna
fer vaxandi bæði með námskeiðum
og menningardagskrám. Tryggvi
Þór er nú formaður Norrænu fram-
kvæmdanefndarinnar, en á þessum
vettvangi opnast ýmsir möguleikar
fyrir námskeið á Norðurlöndunum.
Á vettvangi þessa starfs mun
íslenskur sönghópur ferðast um öll
Norðurlöndin í september og koma
fram á vegum norrænu samtak-
anna.
Mikil þörf fyrir öflun
þekkingar
Fjórir starfsmenn eru í fullu
starfi hjá MFA og einnig eru ráðn-
ir menn til einstakra verkefna. Fyr-
ir skömmu kom út á vegum MFA
bókin Umheimurinn og áhrif okkar,
þar sem eru greinar um umhverfis-
mál, úttekt á norðrinu og suðrinu
og eitt og annað fróðlegt og
skemmtilegt. Segja má að starfsemi
MFA sé hluti af fullorðinsfræðslu.
Oft greiða verkalýðsfélögin vegna
námskeiðanna en Tryggvi Þór sagði
að í miklu meiri mæli en menn
gerðu sér almennt grein fyrir tækju
atvinnurekendur þátt í kostnaði og
launatapi starfsmanna sinna sem
sæktu þessi námskeið. Helgar- og
kvöldnámskeiðin eru íjölsótt og
Tómstundaskólinn dregur að sér
fjölda fólks sem fyrr getur þannig
að þörfin virðist vera mikil fyrir það
hjá fólki að afla sér þekkingar eða
lífsfyllingar á ýmiskonar námskeið-
um. Þá er það eftirtektarvert að
hlutur kvenna í þessu starfi fer
hraðvaxandi. í öldungadeildinni í
MH og Fjölbrautaskóla Breiðholts
eru konur um 80% nemenda og í
fræðsíustarfi MFA eru konur að
jafnaði um helmingur, en á nám-
skeiðinu sem við Morgunblaðsmenn
heimsóttum voru konur í meirihluta.
Tækifæri til þess að
kynnast ólíkum
sjónarmiðum
Við ræddum við nokkra þátttak-
endur Félagsmálaskólans og feng-
um álit þeirra á starfseminni. „Eg
hef ekki farið áður á svona nám-
skeið hjá MFA,“ sagði Kjartan
Kjartansson úr Reykjavík. „Eg hef
hins vegar farið á ræðunámskeið
hjá Dagsbrún og innan fyrirtækis-
ins sem ég starfa hjá eru námskeið
af þessu tagi, en það hefur komið
mér á óvart hvað þessi breiði aldurs-
hópur sem hér er hefur opnað sig.
Sigtryggur Jónsson, sá „Kæri sáli“,
hefur brotið hópinn vel upp til sam-
vinnu. Ég fæ meiriháttar út úr þjálf-
uninni í ræðumennsku, að geta tjáð
sig og sagt sína meiningu. Maður
lærir að móta betur og leggja fram
skoðanir sínar og það er mikilsvert
að fá tækifæri til þess að kynnast
ólíkum sjónarmiðum fólks hvað-
rí ÍAM .!> aKTOAQUTMDMTí ©SSUSÍíaOtfQW
MÖRGUNBLAÐIÐ 'fÍMMTUDAGUR 4. MAÍ 1989
45
anæva af landinu, fólks sem spann-
ar breitt svið innan verkalýðshreyf-
ingarinnar. Ef seinna námskeiðið
er eins öflugt og þetta ættu þeir
sem þau sækja að vera vel gjald-
gengir fyrir sín félög til þess að
koma hagsmunamálum þeirra á
framfæri.
Hvert félag er fólkið sjálft
Jóhanna Pétursdóttir er frá
Grindavík. Hún vann í rækjuverk-
smiðju sem nú er búið að loka vegna
átakanna við Greenpeace-menn að
hennar sögn. „Ég hef lítið sótt nám-
skeið áður,“ sagði Jóhanna, „sótti
svokallaðan kvennaframa hjá
Kaupfélögunum, en það var þriggja
kvölda námskeið í Keflavík og fimm
dagar í Bifröst. Mér fínnst þetta
námskeið mjög gott,“ sagði hún,
„maður kemst meira inn í félags-
málin og álit mitt á sálfræðingum
hefur gjörbreyst eftir tveggja daga
kennslu eins slíks þar sem dregið
var fram margt í okkur sjálfum sem
þarf til þess að halda jafnvægi í
hópvinnu og koma rétt fram gagn-
vart öðrum samferðamönnum. Þá
er félagsandinn hér mjög góður
þótt aldurinn sé alveg frá 19 ára
og upp í módel 1927.“ Jóhanna fór
á sínum tíma á nokkrar síidarver-
tíðir á hringnót. Það fannst henni
líflegt starf, en hún og systir henn-
ar urðu fyrstu kvenkokkar á togara
þegar þær sóttu í karfann á Jóns-
mið á Jóni Baldvinssyni, en þær
systur voru í fríi þegar togarinn
strandaði við Reylqanes og þar með
endaði þeirra togaraferill. „Á þessu
námskeiði er ekkert kynslóðabil,"
sagði Jóhanna, „og það er mér
mikill akkur í að sækja hingað, en
mér finnst að það þyrfti að kynna
þetta starf betur innail félaganna,
leggja áherslu á að félagið er fólkið
sjálft og félagsstarfið og afl þess
fer eftir fólkinu."
Maður er orðinn útlærður
Sigríður Pálsdóttir er frá Pat-
reksfírði. „Námskeiðið er frábært,“
sagði hún, „mjög fróðlegt og það
hefur komið mér á óvart hvað það
er létt yfír þessu, en ég hef aldrei
verið á svona námskeiðum áður.
Þetta er bæði skemmtilegt og fróð-
legt, maður er orðinn útlærður,"
sagði Sigríður og hló hressilega.
„Leiðbeindurnir eru meiriháttar
góðir og sama er að segja um hóp-
inn allan. Auðvitað eru skiptar
skoðanir og það er stór liður í starf-
inu að rökræða, veija og sækja sitt
mál með tilliti hver til annars. Fyrst
voru allir feimnir, en nú fara allir
hiklaust í ræðupúltið og þruma
þar. Ég vissi satt að segja allt of
lítið um MFA áður en ég kom hing-
að og ég vil hvetja fólk til þess að
sækja Félagsmálaskóla alþýðu, það
verður enginn svikinn af því.“
ALÞJÓDLEG
MATVÆLASÝNING
IAIþjóölega matvælasýningin lcefood '89 hefst á morgun,
föstudag 5. maí kl. 18.00. Sýningin stendurtil 12. maí n.k.
Hér er á ferðinni átta daga fjölskylduveisla þar sem bryddaö verður
m.a. upp á skemmtilegu kynningarefni, bragöbætt meö Ijúffengum
mat og drykk frá fjölmörgum innlendum og erlendum fyrirtækjum.
Á sýningunni kennir ýmsra grasa. Meðal annars sér Klúbbur
matreiðslumeistara um sýnikennslu í sérstöku sviðseldhúsi alla
sýningardagana frá kl. 18.30 til 21.30 (1/2 klst. í senn). Þar verða
daglega uppákomur og m.a. koma þar fram tveir heimsþekktir
matreiðslumeistarar, þeir Roland Czekelius og Bent Stiansen.
Einnig bregða ýmis þekkt andlit úr íslensku þjóðfélagi á sig betri
svuntuna og kenna landanum t.d. að sjóöa velling á nýstárlegan máta.
Á hverjum degi verður dreginn út veglegur vinningur sem er kvöldverður
fyrir tvo á góðu hóteli eða veitingastað fyrir upphæð allt að kr. 6.000,-.
í lok sýningar verður dregið úr öllum seldum aðgöngumiðum og er í
verðlaun stórkostleg sælkeraferðtil Parísar fyrir tvo.
(tengslum við sýninguna verða eftirfarandi hótel og veitingastaðir meö sérstaka
sjávarréttahátíð sem nefnist 'lceland seafood festival". Þau eru: Hótel Holt,
Hótel Saga, Café Ópera, Livingstone Mávur, Gaukur á Stöng, Arnarhóll og
Vetrarbrautin.
Þess skal getið að Flugleiðir bjóða sérstakan afslátt á innanlandsflugi
fyrir sýningargesti utan af landi (aðgöngumiði innifalinn). Nánari
upplýsingar fást hjá ferðaskrifstofunum, söluskrifstofum og umboðs-
mönnum Flugleiða um land allt.
Sýningin er opin almenningi sem hér segir:
Föstudaginn 5. maí frá kl. 18.00 - 22.00.
Laugardaginn 6. maí og sunnudaginn 7. maí frá kl. 14.00 - 22.00.
Frá og með mánudeginum 8. maí til föstudagsins 12. maí verður
sýningin opin almenningi frá kl. 18.00 - 22.00.
„Et, drekk ok ver glaðr!“