Morgunblaðið - 25.07.1989, Side 1
56 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
166. tbl. 77. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 25. JULI 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Thatcher stokkar upp stjórn sína:
Howe víkur úr stöðu
utanríkisráðherra
London. Reuter.
MARGARET Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti í gær um
mikla uppstokkun í ríkisstjórn sinni. Sir Geoflrey Howe, sem annast
hefiir utanríkismálin um sex ára skeið, tekur nú við embætti aðstoðar-
forsætisráðherra en John Major, áður aðstoðarfjármálaráðherra, verð-
ur nýr utanríkisráðherra. George Younger varnarmálaráðherra hverf-
ur úr stjórninni og við stöðu hans tekur Tom King sem fór með mál-
efni Norður-írlands. Verkamannaflokkurinn hefúr skákað íhaldsflokki
Thatcher í skoðanakönnunum að undanförnu auk þess sem íhaldsmenn
töpuðu mikfu fylgi í kosningum til þings Evrópubandalagsins fyrir
skömmu.
Staða aðstoðarforsætisráðherra
hefur verið auð í meira en ár eða
síðan William Whitelaw lét af henni
fyrir aldurs sakir. Howe mun verða
leiðtogi íhaldsmanna í neðri deild
þingsins og formaður nokkurra mik-
ilvægra nefnda ríkisstjórnarinnar.
Young lávarður, sem farið hefur með
Sovétmenn:
Tilvist leyni-
ákvæða 1939
viðurkennd
Bonn. Reuter.
VALENTÍN Falín, sem er
háttsettur, sovéskur embætt-
ismaður, staðfesti í sjónvarps-
þætti í Vestur-Þýskalandi á
sunnudagskvöld, að enginn
vafi léki á að við griðasátt-
mála Sovétríkjanna og naz-
istastjórnar Adoffs Hitlers
árið 1939, hefði verið leynileg-
ur viðauki um skiptingu Aust-
ur-Evrópu milli einræðisríkj-
anna tveggja.
Fram að þessu hafa Kreml-
verjar staðfastlega neitað tilvist
slíkra leyniákvæða, en talið er
að í þeim hafi þeir Jósef Stalín
og Adolf Hitler orðið ásáttir um
skiptingu Póllands og innlimun
Eystrasaltslýðveldanna; Eist-
lands, Lettlands og Litháens, í
Sovétríkin.
málefni viðskipta og iðnaðar, hverfur
úr stjórninni og Cecil Parkinson tek-
ur við stöðu Pouls Channons sam-
göngumálaráðherra er sætt hefur
harðri gagnrýni vegna tíðra slysa í
járnbrautakerfinu, flugsamgöngum
og á olíuborpöllum. Kenneth Baker,
áður menntamálaráðherra, tekur nú
við áhrifamikilli stöðu formanns
íhaldsflokksins.
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra er staddur í London þar
sem hann hyggst ræða við breskan
starfsbróður sinn. í samtali við Morg-
unblaðið sagðist hann gera ráð fyrir
að eiga viðræður við Major, arftaka
Howe, á morgun.
Reuter
Þingmenn ræða við Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseta er hlé var gert á umræðum í Æðsta ráðinu í gær.
Sjónvarpað var beint frá umræðunum sem þóttu mjög opinskáar.
Þjóðernisólgan í Sovétríkjunum:
Tugir þúsunda kreflast
fulls sjálfstæðis Georgíu
Moskvu. Reuter.
ÖLL vinna var lögð niður í helstu
fyrirtækjum Tíflis-borgar í Sovét-
lýðveldinu Georgíu þegar tug-
þúsundir manna gengu um göt-
urnar, veifandi gömlum þjóðfána
landsins, og kröfðust fulls sjálf-
stæðis. „Lifí frjáls Georgía, niður
með rússneska heimsveldið!"
hrópuðu göngúmenn þegar þeir
nálguðust torgið þar sem KGB-
herliðar drápu a.m.k. 20 friðsama
þátttakendur í mótmælaaðgerðum
í apríl. Undanfarnar tvær vikur
hafa tugir manna fallið í átökum
Georgíumanna og Abkhaza, sem
byggja lítið sjálfstjórnarhérað í
Georgíu og heimta að héraðið
verði sjálfstætt Sovétlýðveldi.
Yfirmaður KGB-herliða í landinu
sagði að komið hefði til bardaga
sem hefðu minnt sig á átökin í
Japan:
Uno segir af sér eft-
ir kosninsraósigur
Tókíó. Reuter. *—7 '—*
SOSUKE Uno, forsætisráðherra Japans, sagði í gær tárvotur af sér
eftir að flokkur hans hafði beðið mesta kosningaósigur sinn frá upp-
hafi. Ósigur Fijálslynda lýðræðisflokksins, sem hefur setið óslitið við
völd frá stofnun hans árið 1955, er helst rakinn til söluskatts, sem flokk-
urinn kom á á kjörtímabilinu, en fjörlegt kynlíf forsætisráðherrans og
íjármálahneyksli ráðamanna eru einnig talin hafa spillt fyrir.
Bent hefur verið á að bændur, sem
taldir eru í íhaldssamara lagi, hafi
kosið sósíalista fremur en Fijálslynda
lýðræðisflokkinn til þess að mótmæla
tilslökunum flokksins gagnvart inn-
flutningi á matvælum. Recruit-fjár-
málahneykslið hefur auk þess valdið
mikilli reiði í garð stjórnarflokksins.
Fréttaskýrendur telja að japanskir
kjósendur hafi viljað veita stjórnar-
flokknum áminningu, en telja ólík-
legt að hér sé um varanlegt fylgistap
að ræða, enda gleymi Japanir því
varla í bráð, að undir stjórn flokksins
komst landið úr þriðja heiminum og
er nú annað auðugasta ríki heims.
Fijálslyndi lýðræðisflokkurinn
tapaði meirihluta í efri deild, en held-
ur enn meirihluta í neðri deild og
verður því áfram við völd fram að
kosningum. Vegna ósigursins kunna
þær að verða haldnar í september
næstkomandi.
Sósíalistaflokkur Japans fékk
verulega fylgisaukningu og hefur nú
66 sæti í efri deild þingsins í stað
20 áður. Formaður hans, Takako
Doi, er fyrsta konan í flokksleið-
togasæti í Japan og þykir það vera
til marks um breytta þjóðfélagshætti
í Japan, að kona skuli ná svo langt.
Sjá ennfremur fréttir á bls. 21.
Reuter
Japanskar stúlkur virða fyrir sér dagblað þar sem skýrt er frá af-
sögn Unos. Kvennamál ráðherrans áttu þátt í falli hans.
Afganistan en mörg þúsund
óbreyttir borgarar hafa náð sér í
skotvopn.
Æðsta ráð Sovétríkjanna ræddi í
gær verkföll námamanna sem enn
halda áfram í Úkraínu þrátt fyrir
endurteknar áskoranir Míkhaíls Gor-
batsjovs forseta og fleiri ráðamanna.
Sögðu sumir ræðumanna að þetta
væri aðeins byijunin; fleiri stéttir
myndu á næstunni leggja niður störf
og krefjast bættra kjara. Gorbatsjov
forseti sagði að verkföllin væru
hættulegasta ógnunin við umbóta-
stefnuna, perestrojku, frá upphafi
og bað verkfallsmenn að sýna stjórn-
völdum meiri skilning. Annar ræðu-
maður sagði verkföllin vera „örvænt-
ingaróp" vegna þess að kommúnista-
flokknum og opinberum verkalýðs-
félögum hefði mistekist að tryggja
réttindi verkamanna. Annar þing-
maður sagði að ekki væri um að
ræða verkföll námamanna heldur
mótmæli heillar þjóðar sem komin
væri á barm örvæntingar og sætti
sig ekki lengur við loforðin ein.
Leoníd Abalkín, aðstoðarforsætis-
ráðherra og þekktur hagfræðingur,
sagði fréttamönnum í gær að sam-
komulag við námamenn í Síberíu um
kjarabætur hefði lýst pólitísku hug-
rekki. Hins vegar sagði hann það
óskynsamlegt og óraunhæft, séð með
augum hagfræðings. „Það er einfald-
lega ekki til neitt fyrir þessu, meðan
hallinn á ríkisbúskapnum er svona
mikill," sagði Abalkín. Fjárlagahalli
ríkisins er talinn vera um 7% af þjóð-
artekjum landsmanna.