Morgunblaðið - 25.07.1989, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2I5. JÚLÍ 1989
Sjóflugvél fór á
hvolf í Skerjafírði
SJÓFLUGVÉL af gerðinni Cessna 185, sem lá við festar í Skeija-
firði, hvolfdi skömmu fyrir miðnætti síðastliðið laugardagskvöld.
Engin vitni voru að atvikinu og eru tildrög þess ekki kunn.
Flugmaðurinn er Bandaríkjamaður og ætlaði hann að verða
fyrstur til að fljúga umhverfis hnöttinn án þess að lenda á flug-
velli.
Hnattferð sjóflugvélarinnar
hófst í Seattle á vesturströnd
Bandaríkjanna þann 30. júní
síðastliðinn. Vélin kom hingað að
vestan fyrir helgi og segir flug-
maðurinn, Tom Casey, að hann
hafi talið sig eiga auðveldari hluta
ferðarinnar eftir. Héðan ætlaði
hann að fljúga á sunnudaginn til
Bretlandseyja, að Miðjarðarhafi,
yfir Sovétríkin til Alaska og þaðan
til aftur til Seattle.
Talið er að sjóflugvélin hafi ol-
tið á tólfta tímanum á laugardags-
kvöldið. Enginn varð vitni að
óhappinu og segist Casey ekki
vita hvernig það bar að. Líkur
hafa hins vegar verið leiddar að
því, að snörp vindhviða hafi feykt
vélinni á hvolf.
í gær fóru kafarar úr björgun-
arsveit vamarliðsins á Keflavíkur-
flugvelli að sjóflugvélinni, könn-
uðu aðstæður og björguðu ýmsu
heillegu úr henni. Þá var ætlunin
að reyna að snúa vélinni við, en
kafararnir töldu það óráðlegt
vegna grynninga.
Tom Casey telur vélina ónýta
og býst við fá hana að fulla bætta
af tryggingafélagi sínu. Þrátt fyr-
ir þetta óhapp ætli hann ekki að
gefast upp, heldur gera aðra til-
raun til hnattflugsins, sennilega
strax næsta sumar.
Morgunblaðið/Gunnar Vigfússon
Vígslubiskup vígður í Skálholtsstifti
Sr. Jónas Gíslason prófessor var vígður vígslu-
biskup í Skálholtsstifti á Skálholtshátíð á sunnu-
dag. Fjórir biskupsvígðir menn tóku þátt í at-
höfninni og eru þeir frá vinstri, dr. Sigurbjöm
Einarsson, herra Pétur Sigurgeirsson, herra
Ólafúr Skúlason, séra Jónas Gíslason nývígður
vígslubiskup í Skálholtsstifti og séra Sigurður
Guðmundsson vígslubiskup i Hólastifti.
VEÐURHORFUR í DAG, 25. JÚLÍ
YFIRLIT í GÆR: Yfir Skandinavíu var 1.027 mb hæð en skammt
austan af Hvarfi er 1.000 mb iægð sem hreyfist lítið og grynnist.
Um 1.300 km suður í hafi var vaxandi 1.005 mb lægð á hreyfingu
norður. Hiti breyttist lítið.
SPÁ: í dag verður austlæg átt á landinu, víðast kaldi. Rigning verð-
ur víða um land, þó verður líkiega þurrt um norðvestanvert landið
fram eftir degi. Fremur hlýtt verður áfram.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG:Norðaustiæg átt, skýjað en sennilega
þurrt norövestanlands en suðvestanátt í öðrum landshlutum. Skúr-
ir suðvestanlands en léttskýjað á Austurlandi. Hiti 9-15 stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG:Hæg vestan- eða norðvestlæg átt. Smá-
skúrir við noröur- og vesturströndina en þurrt og bjart á Austur-
og Suðausturlandi. Hiti 9-17 stig.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ^ Vindörin sýnir vind- 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius
* stefnu og fjaðrirnar • V Skúrir
-í \ Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. * Él
w A V
Léttskýjað / / / / / / / Rigning IZZ boka
£ / / / Þokumóða
Hálfskýjað * / * 5 Súld
A Skýiað / * / * Slydda / * / oo Mistur
* * * -1* Skafrenningur
jluVgl) Alskýjað * * * * Snjókoma * * * K Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hlti veður
Akureyri 18 léttskýjað
Reykjavik 12 skýað
Bergen 24 lóttskýjað
Helsinki 12 hálfskýjað
Kaupmannah. 25 skýjað
Narssarssuaq 10 léttskýjað
Nuuk 3 þokuruðningur
Osló 25 hélfskýjað
Stokkhólmur 27 hálfskýjað
Þórshöfn 12 súld
Algarve 27 heiðskírt
Amsterdam 25 mistur
Barcelona 29 skýjað
Berlin 18 alskýjað
Chicago 21 mistur
Feneyjar 28 þokumóða
Frankfurt 23 þrumuveður
Glasgow 25 mistur
Hamborg 17 þokumóða
Las Palmas 27 léttskýjað
London 29 hólfskýjað
Los Angeles 18 hálfskýjað
Lúxemborg 26 léttskýjað
Madríd 31 hálfskýjað
Maiaga 31 léttskýjað
Mallorca 30 léttskýjað
Montreal 23 heiðskírt
New York 25 mistur
Orlando 26 léttskýjað
París 25 rign. á sið. klst.
Róm vantar
Vin 28 skýjað
Washíngton 27 mistur
Winnipeg vantar
Tíu tonna plastbátur
sekkur á Breiðafirði
BÁTURINN Elsa Lund frá Stykkishólmi sökk nálægt Höskuldsey á
Breiðafirði um klukkan 11 á laugardagskvöldið. Leki kom að bátnum
og fylltist hann af sjó á skömmum tíma. Tveir menn vom á bátnum
og var þeim bjargað um borð í vélbátinn Hafstein frá Gmndarfirði.
Elsa Lund var tíu tonna enskur
plastbátur í eigu Björgvins Guð-
munÖssonar og Hinriks Axelssonar
í Stykkishólmi. Á laugardaginn
höfðu þeir lagt lóðir ekki langt frá
Höskuldsey og um klukkan ellefu
um kvöldið urðu þeir þess varir að
vélarrúmið var að fyllast af sjó.
Sendu þeir þá út neyðarkall og fóru
um borð í björgunarbát. Örfáum
mínútum síðar variiáturinn sokk-
inn. Þegar mennirnir höfðu verið í
björgunarbátnum í um það bil
klukkustund kom vélbáturinn Haf-
steinn frá Grundarfirði til aðstoðar
og flutti þá í land.
í samtali við Morgunblaðið sagði
Björgvin Guðmundsson að erfítt
væri að segja til um orsakir þess
að Elsa Lund sökk. Hér væri um
að ræða tilfinnanlegt tjón, ekki síst
vegna þess að þeir hefðu verið að
selja bátinn. Ganga hefði átt form-
lega frá kaupunum í byrjun ágúst.
Grænlendingar hættir
skuldasöfnun erlendis
Grænlendmgar em hættir skuldasöfnun í útlöndum og hafa akveð-
ið að greiða á næstu ámm erlend lán að upphæð 3 milljarða dan-
skra króna, eða um 28 milljarða íslenskra króna, að sögn staðgeng-
ils Jonathan Motzfeldts, formanns
Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra sagði á fréttamanna-
fundi í síðustu viku, að ef ísland
hætti ekki að reka ríkissjóð með
halla og fjármagna hallann með
erlendum lánum, endaði landið í
sömu stöðu og Grænland og Fær-
eyjar, skuldum vafið með takmark-
aða möguleika á sjálfstæðum
ákvörðunum.
Þegar þetta var borið undir Per
Henriksen, staðgengil Motzfeldts
hjá grænlensku landstjóminni,
sagði hann að Grænlendingar væru
hættir skuldasöfnun.
„Andstætt ýmsum öðrum þá ger-
um við okkur ljóst hvert vandamál
okkar er og við höfum ákveðið að
grænlensku landstj órnarinnar.
greidd verði lán að upphæð 3 millj-
arða danskra króna á næstu 10
árum. Það er rétt að við áttum við
mikinn lausaijárskort að stríða fýr-
ir nokkrum árum og urðum að leysa
þau með því að taka lán erlendis.
Áður höfðum við ekki tekið nein lán
í útlöndum. Við erum hræddir við
erlendar lántökur; lítum aðeins á
þær sem bráðabirgðaúrræði," sagði
Henriksen.
Þegar hann var spurður hvort
honum þætti viðeigandi að íslenskur
ráðherra nefni Grænland sem víti
til varnaðar í efnahagsmálum,
sagðist hann ekki vita hvenær ráð-
herrann hefði verið í Grænlandi og
kynnt sér málefni landsins.
Eignir þrotabús Sigló tif sölu:
Brunabótamatið um
170 milljónir króna
EIGNIR þrotabús Sigló hf. á
Siglufírði eru nú til sölu. Um er
að ræða verksmiðjuna við Norð-
urgötu ásamt vélum og tækjum
og fímm herbergja íbúð á Hóla-
vegi 16. Brunabótamat verk-
smiðjunnar er 165 milljónir
króna en íbúðarinnar 3,7 milljón-
ir króna.
Bústjóri þrotabúsins er Guð-
mundur Kristjánsson hdl. Hann
segir að hann sé fyrst og fremst
að leita tilboða í eignirnar. Enn
hafi enginn fyrirspurn borist um
hugsanleg kaup enda nýbúið að
auglýsa söluna.
Siglunes hf. hefur eignir þrota-
búsins á leigu frá 10. apríl sl. til
sjö mánaða. Þeir sem hug hafa á
kaupunum geta því ekki fengið
eignirnar afhentar fyrr en eftir
þann tíma.