Morgunblaðið - 25.07.1989, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ '989
9
HVERVANN?
Vinningsröðin 22. júlí:
X21 -X21 -111 -112
Heildarvinningsupphæð: 205.652 kr.
12 réttir = 143.992 kr.
1 var með 12 rétta - og fær 143.992 kr. í sinn hlut.
11 réttir = 61.660 kr.
17 voru með 11 rétta - og fær hver 3.627 kr. í sinn hlut.
Hann er kominn
aftur til að kenna
í Stúdioi
Jónínu og Ágústu!
Vita Chipembere er frábær kennari frá Kali-
forníu, sem hefur fengiö ótrúlegasta fólk til þess
að „festast“ í líkamsrækt.
Hann er örugglega einn fremsti kennari í líkams-
rækt sem komið hefur til Islands.
Magi, rass og læri — eróbikk — fitumæling og
ráðgjöf um breytta lifnaðarhætti — þrekhringur
— einkatímar — kennaratímar — morgun-, há-
degis-, síðdegis- og kvöldtímar.
Meðan Qórir af kennurum okkar eru á ráðstefnu
(I.D.E.A) og í tímum í Los Angeles verður Vita,
Anna Borg, Arnór, Mark, Ágústa Kr., Soffía,
Halldóra, María ogjónína á sínum stað.
Þú kemst í sumarskap hjá okkur, þar sem líkams-
rækt er orðin lífsstíll hjá ótal, ótal mörgum ár
Skeifan 7, 108 Reykjavík, S 689868
SÍMINN ER 689868
Laugardagur 22. )úll 1009
Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra, í viðtali
um árangur og horfur í stjórnun efnahagsmála:
Stöndum á tímamótum
Hvað kostar Borgaraflokkurinn allur?
Það hefur gengið illa að koma Borgaraflokknum inn í ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar, þótt mikið sé talað. Forsætisráð-
herra gerir sér vonir um að borgaraflokksmenn komist „inn úr
kuldanum" fyrir haustið. Spurningin er aðeins um það hvað
núverandi stjórnarflokkar treysta sér til að bjóða Borgaraflokkn-
um, eins og fram kemur í viðtali Tímans síðastliðinn laugardag
við forsætisráðherra. í Staksteinum í dag er fjallað um umrætt
viðtal, þar sem kemur í Ijós að stjórnmál á íslandi snúast frem-
ur um embætti en hugmyndir.
Ráðherra-
sósíalismi
Fæstum kemur það á
óvart að helstu vandamál
vinstri stjómar skuli snú-
ast um ráðherraembætti.
Sagan gefur okkur mörg
dæmi um slíkt. Vanda-
málið nú er liins vegar
annars eðlis en oft áður,
þar sem vinstri flokkam-
ir virðast ekki geta kom-
ið sér saman um hvaða
eða hversu mörgum ráð-
herraembættum eigi að
fóma fyrir fjórða stjóm-
arflokkinn, — Borgara-
flokkinn.
Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráð-
herra segir í viðtali við
Tímann um helgina að
lítill málefiialegur
ágreiningur sé á milli
stjómarflokkanna og
Borgaraflokksins og að
það yrði styrkur fyrir
ríkisstjómina ef Borg-
araflokkurinn kæmi til
liðs við hana. Og forsæt-
isráðherra svarar eftir-
farandi þegar hann er
spurður um það hvort
hann telji að samkomu-
lag náist um þátttöku
Borgaraflokksins í ríkis-
stjóminni fyrir haustið:
„Eg geri mér vonir um
það og held að það vanti
aðeins herslumuninn þar
á. Kannski strandar þessi
málaleitan á stjómar-
flokkunum, að þeir geti
ekki orðið samstíga um
það hvað Borgaraflokkn-
um verður boðið upp á.
Ég viðurkenni þó að þijú
ráðuneyti fyrir fimm
manna þingflokk er mik-
ið, en mér sýnist dæmið
ekki ganga upp öðruvísi,
því miður.“
Stólar í stað
málefiia
Það er greinilegt að
forsætisráðherra þykir
Borgaraflokkurinn dýr,
a.m.k. allur. Hann sér þó
ekki aðra leið en þrjá
ráðherrastóla, en mál-
efhaágreiningurinn er
enginn. í huga hans virð-
ist sem borgaraflokks-
menn geri ekki aðra
kröfu en þá að fá þijá
stóla. Fáist þeir ekki
verði ekkert úr því að
fimm þingmenn gangi til
liðs við ríkisstjómina,
með formlegum hætti.
Það strandar því ekki á
málefiium heldur nokkr-
um stólum og titlum, sem
hægt er slá um sig í
framtíðimii. Er hægt að
lá mörgum íslendingum
sem telja stjómmál
ómerkilega baráttu milli
einstaklinga en ekki hug-
mynda? Hvað þá hug-
sjóna!
Og forsætisráðherra
er spurður að því hvað
honum finnist vinnast
með þvi að fá Borgara-
flokkinn inn í ríkissljóm-
ina frekar en hafa hlut-
leysi hans: „Það hefúr
ekki verið um það rætt
að tryggja hlutleysi
þeirra. Þeir hafa að vísu
sýnt vi\ja til samstarfs og
það höfúm við einnig
gert. Við létum þá til
dæmis fá fúlltrúa í sljóm
Áburðarverksmiðjunnar.
Mér finnst eðlilegt að
Borgaraflokkurinn vifji
hafa meiri áhrif gegnum
þátttöku í ríkisstjóm."
„Það sagði
mér maður“
„Það sagði mér mað-
ur,“ „mér hefúr verið
sagt," era orðatiltæki,
sem koma stjómmála-
mönnum í góðar þarfir.
„Menn sem þekkja vel
til,“ er annað orðalag
sem hægt er að nota.
Forsætisráðherra er
gjamt að visa til ein-
hverra ónafiigreindra
huldumanna, ekki aðeins
þegar hann þarf að koma
ákveðnum skoðmium á
framfæri og vill hafa vað-
ið fyrir neðan sig, heldur
einnig þegar finna þarf
sökudólga. Þetta kom
ekki síst fram í Timavið-
talinu, þar sem forsætis-
ráðherra segir að einn
helsti þrándur i götu
ríkisstjómarinnar séu
aðilar sem ekki vijja
lækka vextina: „Það em
mjög valdamiklir meim í
þessu sjálfstæða peninga-
kerfi sem virðast trúa á
kreppuna til að leysa
vandamálin. Þessir menn
hafa sagt að það sé ekki
um annað að ræða en
fyrirtækin verði að fara
á hausiim."
Um hveija ætli forsæt-
isráðherra sé að tala?
Atvinnurekendur? Sam-
tök launþega? Hveijir
em það sem vifja að fyrir-
tæki fari á hausinn? Þeir
sem lána þeim peninga?
Um hvaða fyrirtæki er
verið að ræða? Hvaða
valdamiklu menn em það
sem standa i vegi fyrir
því að vextir lækki? Á
forsætisráðherra við
Stefan Valgeirsson,
formann bankaráðs Bún-
aðarbankans, eða Krist-
inn Finnbogason, vara-
formann bankaráðs
Landsbankans? Eða er
forsætisráðherra að tala
um sjálfan sig og samráð-
herra sína vegna ásóknar
í innlent sparifé og
óstjómar í efiiahagsmál-
um?
Þetta er nú meira hall-
ærið. En er á það bæt-
andi með merkingalaus-
um orðaleppum?
jóðra kaupenda að
rasteignaveðbréfum.
Veitum ráðgjöf
við kaup og sölu skuldabréfa.
I verdbréfamarkaður Alþýöubankans hf
| SUÐURLANDSBRAUT 30 PÓSTHÓLF 453 121 REVKJAVÍK SÍMI 91-680670