Morgunblaðið - 25.07.1989, Side 10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
10
Bergljót Leifsdóttir skrifar frá Flórens
Heimsmeistarakeppn-
in í knattspymu 1990
"■ '
Sýnishorn úr söluskrá:
★ Rafmagnsverkstæði, vélar, áhöld og vinna.
★ Leikföng og gjafavörur, þekkt verslun.
★ Bóka- og ritfangaverslun í íbúðahverfi.
★ Myndbandaleiga með mikilli sælgætissölu.
★ Lítil prentsmiðja fyrir 1-2 menn.
★ Heildverslun með byggingarvörur. Þekkt umboð.
★ Veitinga- og hótelrekstur á miklum ferðamannastað.
★ Pítu- og pizzustaður, lágt verð.
★ Ein þekktasta pizzugerð landsins.
★ Kaffi- og matsala í miðborginni.
★ Þekkt tískufataverslun fyrir börn.
★ Sérverslun með tískuvörur úr leðri.
★ Leikföng, gjafavörur og verslun fyrir hrekkjusvín.
★ Sérverslun með eldhúsáhöld.
★ Vélar til sælgætisframleiðslu.
★ Hárgreiðslustofa, falleg, vinsæl og þekkt.
★ Bónstöð. Tekur þrjá bíla í einu.
Fyrirtækjasalan, Suðurveri,
símar 82040 og 84755,
Reynir Þorgrímsson.
r"núsvAX(»un
Heimsmeistarakeppnin í knatt-
spyrnu hefst á leikvanginum „Gius-
eppe Meazza,, í Mílanó 8. júní 1990.
Fyrsti leikurinn verður á milli Arg-
entínu, sem vann Heimsmeistara-
keppnina í knattspyrnu í Mexíkó árið
1986, og liðs sem verður dregið út
í desember. Heimsmeistarakeppnin
stendur yfir í einn mánuð og hafa
þá 15 milljarðar sjónvarpsáhorfenda
í 170 löndum möguleika á að fylgj-
ast með henni. Framkvæmdastjóri
skipulagsnefndar keppninnar er lög-
fræðingurinn Luca di Montezemolo
og var hann áður framkvæmdastjóri
íþróttasviðs Ferrari.
Heimsmeistarakeppnin verður
ekki einungis íþróttaviðburður heldur
mun hún auka mjög ferðamanna-
straum til Ítalíu og verður sérstak-
lega mikilvæg auglýsing fyrir borg-
irnar 12 þar sem leikið verður. Borg-
irnar eru: Bari, Bologna, Cagliari,
Flórens, Genova, Mílanó, Napoli,
Palermo, Róm, Tórínó, Udine og
Verona. Skipulagsnefndin hefur ráð-
ið 8 fyrirtæki, sem eru öll fremst á
sínu sviði, til að taka þátt í skipulagn-
ingu keppninnar. Þau eru: Flugfélag-
ið „Alitalia“, bankinn „Banca Nazi-
onale del Lavoro“, tryggingarfélagið
„Ina-Assitalia“, ríkisjámbrautirnar,
Fiat, Olivetti, ítalska ríkissjónvarpið
„RAI“ og símafyrirtækið „Stet“.
Þessi fyrirtæki sjá ekki einungis um
tæknilegu hliðina heldur útvega þau
einnig starfsfólk og þjónustu.
Marino Quadrino, einn af yfir-
mönnum Fiat, hefur mikla reynslu á
sviði ferðamála, íþrótta og stjórnun-
ar. Hann og samstarfsmenn hans
eiga að sjá til þess að tekið verði
sérstaklega vel á móti knattspyrnu-
mönnunum, stjómendum liðanna og
blaðamönnum, alls um 1.2000
manns. Þeim verði veitt góð aðstoð,
gisting og flutningar. Meðal þess,
sem þarf að útvega eru 2.500 stúlk-
ur, sem vinna eiga við upplýsingar
og þjónustu og þegar eru fengnir
1.000 langferðabílar og 600 minni
bílar til að flytja þessa gesti á milli
staða. Olivetti sér um upplýsinga-
þjónustuna, Stet sér um símasam-
bandið, Banca Nazionale del Lavoro
sér um íjármálasviðið og miðasöluna.
En stærsta hlutverkið er í höndum
RAI því það sér um sjónvarpsútsend-
ingarnar. Til að mynda vissa leiki
mun RAI nota 16 sjónvarpsmynda-
tökuvélar, en nú eru tvær til þijár
vélar notaðar fyrir mikilvæga leiki í
ítölsku meistarakeppninni. A undan
hveijum leik mun RAI kynna borgina
þar sem leikurinn fer fram, og um
gerð kynningarmyndanna sjá frægir
leikstjórar fyrir hveija borg. Til
dæmis sér Bernardo Bertolucci um
gerð hennar fyrir Bologna, Federico
Fellini fyrir Róm og Franco Zeff-
irelli fyrir Flórens.
Knattspyrnuvellirnir
Öll vitum við hve öryggi á knatt-
spyrnuvöllum er mikilvægt. Flestir
knattspyrnuvellir borganna sem hýsa
Heimsmeistarakeppnina voru byggð-
ir á 3. og 4. áratugnum, t.d. í Tórínó,
Genova, Bologna, Flórens og Pal-
ermo. Þessir vellir verða nú gerðir
upp, þannig að eftir Heimsmeistara-
keppnina mun Italía eiga nýtísku-
lega, þægilega og örugga knatt-
spymuvelli einungis með sætum.
Vellimir rúma færri áhorfendur en
áður nema San Siro í Mílanó þar sem
hefur verið ákveðið að byggja 3.
hringinn. Sú ákvörðun var ekki tekin
með Heimsmeistarakeppnina sér-
staklega í huga heldur fyrir lið borg-
arinnar, Milan og Inter. Italía verður
fyrsta landið í heiminum þar sem
einungis verða sæti á knattspyrnu-
völlunum og eru þau einnig númer-
uð. Hvað öryggi snertir er þetta stórt
skref fram á við.
Aðstaða íyrir fjölmidla
Nú þegar hefur aðsetur fyrir fjöl-
miðlafólk verið vígt í Bologna. Er
það í laginu eins og stærðar bolti,
og að Heimsmeistarakeppninni lok-
inni verður það notað til að skýla
tennisvöllum og sundlaugum. I öðr-
um borgum verða ijölmiðlahúsin not-
uð sem lítil ráðstefnuhús.
RAI er að láta byggja „bæ“ í Róm
til að hýsa alla sjónvarpsaðstöðuna
og upptökusalina til að geta veitt sem
fullkomnasta þjónustu og aðstoð.
Miðasalan
Á fyrstu 2h mánuðum miðasölunn-
ar höfðu verið seld 47% af miðunum
og er þessi sala einungis tií einstakl-
inga. Óvænt atvik hafa komið upp.
Til dæmis hafa Japanir, einu ári fyr-
ir keppnina, keypt fyrir meira en 320
milljónir ísl. kr. „pakkaferðir“, það
er gistingu og miða á leikina saman
í pakka. Þessi mikli áhugi Japana
hefur vakið undrun þar sem Japanir
eru engin knattspymuþjóð.
Drátturinn
9. desember næstkomandi verða
liðin dregin í riðla og hefur RAI feng-
ið fyrirspurnir frá 60 löndum um
beina útsendingu frá drættinum.
Luciano Pavarotti tekur þátt í þeirri
útsendingu og að öllum líkindum
mun Sofia Loren verða heiðursgest-
ur. Einnig verða 200 hljóðfæraleikar-
ar úr hljómsveitum RAI valdir í eina
hljómsveit til þess að leika við það
tækifæri. Þá verður kynnt og spilað
lag Heimsmeistarakeppninnar og
munu sjö til átta þúsund sýningar-
gestir mynda kór sýningarinnar.
Undirbúningurinn í Flórens
Þann 12. maí sl. kom Havelange,
forseti FIFA, til Flórens til að skoða
hvemig endurbygging knattspymu-
vallarins gengi. Völlurinn mun geta
hýst 45.000 áhorfendur í sætum.
Havelange sagðist vera ánægður
með hvemig endurbyggingin gengi
og þá sérstaklega með öryggiskerfin.
Endurbyggingunni ætti að vera lokið
í janúar 1990. Við þetta tækifæri
var Flórens valin til að halda al-
þjóðafund um Heimsmeistarakeppn-
ina.
í tilefni af keppninni verða haldn-
ar margar sýningar. Einnig verða
gefnar út bækur, settar upp högg-
myndir og nýjar götulýsingar. Þessar
framkvæmdir munu kosta í kringum
200 milljónir ísl. kr. Ferðamálaráðu-
neytið leggur sitt af mörkum en Flór-
ensborg borgar afganginn.
Gefin verður út bók með 1.500
ljósmyndum af Flórens. Önnur bók
verður um sögu knattspyrnuvallarins
í Flórens (Campo di Marte) og sú
þriðja samansafn af hagnýtum upp-
lýsingum um borgina. Einnig gefur
Flórensborg út bók um knattspyrnu-
menn Fiorentina-liðsins sem hafa
tekið þátt í heimsmeistarakeppnum
í knattspymu.
Áætlað er að setja gosbrunn rétt
hjá knattspymuvellinum og högg-
mynd hjá hraðbrautinni Firenze-
Nord (Norður-Flórens). Borgar-
stjórnin hefur falið frægum lýsinga-
tæknifræðingi að finna nýja lýsingu
fyrir borgarbrýmar og gömlu turn-
ana. Á einu af aðaltorgunum, Piazza
Signoria, stendur yfir fomleifa-
uppgröftur og ætti torgið að vera
komið í eðlilegt horf fyrir Heims-
meistarakeppnina. Fyrirhugað er að
við það tækifæri verði sýndur ballett
á torginu. Einnig verður komið þar
upp nýrri lýsingu.
Lögð verður áhersla á að söfnin
verði opin eftir kvöldmat og jafnvel
til kl. 23.30. Verið er að kanna mögu-
leika á að setja upp sýningu í sam-
ráði við Ferrari-bílaverksmiðjuna,
þar sem sameina á list og tækni.
Ákveðið hefur verið að óperan „II
Trovatore" verði á dagskrá Maí-
hljómlistarmánaðarins, sem verður
kallaður „Maggio Mundial" á næsta
ári. í aðalhlutverki verður enginn
annar en Luciano Pavarotti, og einn-
ig verðu'r flutt „II Don Giovanni“.
Markmiðið er að halda einnig tón-
leika undir bemm himni víðs vegar
um borgina. Einnig er áætlað að
hafa jassdagskrá.
9. júní vom kynntar í Flórens kök-
ur og ísar Heimsmeistarakeppninnar
og er í þeim mjólk, ijómi, jarðaber
og kiwi. Einnig var haldin í júní sam-
keppni um bestu útstillinguna í versl-
unum fyrir Heimsmeistarakeppnina
þar sem tákn keppninnar, sem hlaut
nafnið Ciao, var í aðalhlutverki.
BORGARTÚNI29,2. HÆÐ.
# 62-17-17
Stærri eignir
Einb. - Digranesv. Kóp.
Ca 130 fm einbhús við Digranesveg á
besta stað. Parket. Fallegur garður.
Bílsk. Mikið útsýni. Verð 8,9 millj.
Einbýli - Vesturbergi
Ca 200 fm glæsil. einb. við Vesturberg.
5-6 svefnherb. Bílsk. Ákv. sala. Laust
fljótl.
Lóð - Seltjnesi
Vorum að fá til sölu 830 fm einbhúsa-
lóð. Verð 4,2 m.
Einb. - Víðihvammi Kóp.
Ca 225 fm fallegt vel staðsett hús, tvær
hæðir og kj. Arinn í stofu. Mögul. á
séríb. í kj. Ákv. sala. Laus strax. Hagst.
lán áhv.
Raðhús - Engjaseli
Ca 200 fm gott raðh. við Engjasel með
bílageymslu. Vönduð eign. V. 9,2 m.
Raðhús - Völvufelli
119 fm nettó raðhús á einni hæð með
bílsk. Vandaðar innr. Mikið endurn.
eign. Snjóbræðsla í stéttum. Húsið
getur losnað fljótl.
Grafarvogur - nýtt
Vorum að fá í sölu 14 4ra herb. rúmg.
íbúðir í tveimur stigahúsum á góðum
stað við Rauðhamra. Allar íbúðirnar
með sérþvherb. Mögul. á að kaupa
bílskúr. íb. afh. tilb. undir tréverk í
mars 1990.
Parh. Suðurhl. - Kóp.
166 fm parh. á tveimur hæðum.
Mögul. á bílsk. Húsiö skilast fokh. að
innan, fullb. aö utan u. máln. Afh. 4
mán. frá samn. Traustur byggaðili.
Vesturborgin - nýtt
Fjórar 3ja herb. íb. á 2. og 3.
hæð. Selst tilb. u. trév. að innan,
fullb. að utan. Frág. lóð. Afh. í
mars '90.
Fífuhjalli - Kóp.
Ca 215 fm falleg hæð og jarðhæð meö
bílsk. Selst fullb. að utan, fokh. að inn-
an. Verð 6,9 millj.
Sérh. - Langholtsv.
Ca 155 fm vönduö hæö og ris auk hluta
í kj. Mikið endurn. eign. Suðursv. V. 8,3 m.
Sérh. - Grundum Kóp.
130 fm nettó falleg efri sérh. í tvíb.
Gott útsýni. Parket. Bílsk. V. 8,5 m.
Sérh. - Ásbúð Gb.
205 fm falleg efri sérh. í parh. Tvöf.
bílsk. Blómaskáli og verönd í suður frá
stofu. Skipti mögul. á minni sérh. í Rvík.
V. 9,7 m.
4ra-5 herb.
Laugarnesv. - 4ra-5
127 fm nettó falleg jarðh. m. sérinng.
Sérhiti. Suðurverönd frá stofu. V. 7,2 m.
Fífusel - suðursv.
Kelduland/ákv. sala
Ca 80 fm nettó falleg íb. á 2.
hæð. Suðursv. V. 6,2-6,4 m.
Framnesvegur - 4ra-5
Ca 107 fm nettó glæsil. íb. á Bráðræðis-
holti. Nýtt bað. 3-4 svefnherb. o.fl.
Parket. Sérhiti. Þvottaherb. innan íb.
Grettisgata - laus
Ca 109 fm falleg íb. á 2. hæð. Ekkert
áhv. Hátt brunabótamat.
Kaplaskjv. 60% útb.
Ca 117 fm nettó glæsil. endaíb.
í lyftuhúsi (KR-blokkin). Parket.
Vandaðar innr. Verð 8,2 millj.
Útb. 4,9 millj.
Sigtún
Ca 76 fm nettó 4ra-5 herb. gullfalleg
jarðh./kj. Sérhiti. Fallegur garður.
Hagst. lán áhv. Verð 5,5 millj.
Barmahlíð
Ca 92 fm falleg rishæð í þríb. Manng.
ris yfir allri íb. Verð 4,9 millj.
3ja herb.
Blöndubakki - 3ja-4ra
90 fm nettó falleg íb. á 1. hæð. 12 fm
herb. í kj. m. aðg. að snyrt. Suðursv.
Gott útsýni. Verð 5,0 millj. Áhv. 1,7
millj. Útb. 3,3 m.
Álftamýri
Góð 3ja herb. íb. m. suðursv. Áhv. 2,0
millj. hagst. lán.
Austurbrún/ákv. sala
Ca 83 fm gullfalleg íb. á jarðh. í þríb.
Sérinng. Sérhiti. Verð 4,8 millj.
Vantar eignir með
nýjum húsnlánum
Höfum fjölda kaupenda að 2ja,
3ja og 4ra herb. íb. með nýjum
húsnæðislánum og öðrum lán-
um. Mikil eftirspurn.
Langholtsvegur
Ca 104 fm björt og falleg neðri hæð í
tvíb. Ný eldhúsinnr. o.fl. Aukah. í kj.
Verð 5,3 millj.
Grensásvegur
Ca 80 fm mjög góð íb. Ný eldhúsinnr.
Gott útsýni. Vestursvalir. Verð 4,7 millj.
2ja herb.
Skógarás - nýl. íb.
Rúmg. 2ja herb. íb. á jarðh. Vandaðar
innr. Sérþvh. S.uðurverönd. Bílsk. Góð lán
áhv.
Hrísateigur/ný uppg.
Glæsil. 62 fm nettó 2ja herb. kjíb. Sér-
inng. Sérþvh. Parket og nýjar innr. Verð
3,9 millj.
Snorrabraut - ákv. sala
50 fm góð íb. á 1. hæð. Áhv. veðdeild
650 þús. Verð 3,1 millj.
Efstaland - jarðh.
Sérl. falleg íb. á jarðh. Suðurverönd frá
stofu. Sérgarður í suður. Verð 4,0 millj.
Laugavegur - laus
0HCA 01Q70 LÁRUSÞ.VALDIMARSSOIMframkvæmdastjori
L I I V/U B L I 0 I U KRISTINIM SIGURJÓNSSON, HRL. lógg. fasteignas.
Til sýnis og sölu auk annarra eigna:
Við Lyngás í Garðabæ
nýl. steinh. tvær hæðir á um 1250 fm hornlóð. Útsýnisstaður.
Efri hæðin er glæsil. séríb. rúmir 200 fm með 50 fm sólsvölum og um
45 fm bílsk. Hæðin er nú tvær séríb.
Á neðri hæðinni eru tvær 2ja herb. íbúðir rúmir 100 fm hvor. Full-
búnar undir tréverk og málningu. Frábær greiðslukjör.
Vinsæll staður - góð lán fylgja
3ja herb. rúmgóð íb. á 3. hæð 86,4 fm við Rofabæ. Góð sameign.
Langtímaián 1,6 millj. Laus í sept. nk.
Ennfremur góðar 3ja herb. íbúðir við Dúfnahóla (bílsk. í smíðum) og
Brávaliagötu (mjög stór, mikið endurnýjuð). Henta m.a. þeim sem
hafa lánsloforð.
í smíðum - frábær greiðslukjör
3ja og 4ra herb. óvenju rímgóðar íbúðir í byggingu við Sporhamra í
Grafarvogi. Fullbúnar undir trév. og máln. i byrjun næsta árs. Byggj-
andi Húni sf. Fullgerð sameign.
Hafnarfjörður
Einbýlishús með 4ra herb. íb. óskast til kaups í gamla bænum. Má
vera sérh. Eignaskipti möguleg.
Grindavík
Einbýlishús eða raðh. af meðalstærð óskast til kaups. Skipti mögul.
á mjög góðri 2ja herb. íb. við Dúfnahóla í Reykjavík.
Þorlákshöfn
Nýl. steinhús ein hæð 130 fm nettó, næstum fullgert. Tvöf. bílsk. með
geymslu samt. 54 fm. Ýmiskonar eignaskipti mögul.
Sandgerði
Til sölu fasteignirnar Valiargata 1 og Vallargata 9. Seljast á vægu verðí.
Heimar, nágrenni:
Góð 3ja herb. íbúð
óskasttil kaups
gegn góðri útborgun,
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150-21370
ALMENNA
FASTMGHtSAlAH
103 fm nettó falleg íb. á 3. hæð. Þvotta-
herb. innaf eldh. Verð 6,0 millj.
Snotur risíb. Vestursv. Verð 2,2 millj.
■
Fiiinbogi Kriitjáníison, Guðmundur Bjom Steinþórsson, Kristin Pctursd.,
GuðmundurTómasson, ViðarBöðvars9on,viðskiptafr. - fasteignasali.
m taripttww
| Meim en þú geturímyndað þér!