Morgunblaðið - 25.07.1989, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
13
I tilefiii réttarhalda á Kúbu
o g fjöldamorða í Kína
Leiðrétting og viðbætur
eftir Sigurlaugu S.
Gunnlaugsdóttur
Það er mikilvægt eins og sakir
standa bæði alþjóðlega og hér
heima að gera sér grein íyrir að
rangar og villandi upplýsingar eru
algengar í ijölmiðlum. Hér varðar
það tvö mikilvæg mál:
Réttarhöldin á Kúbu
Kúbanski herforinginn Arnaldo
Ochoa var leiddur fyrir rétt á Kúbu
25. júní ásamt Antonio La Guardia,
deildarstjóra í innanríkjsráðuneyt-
inu og nokkrum samstarfsmönnum
þeirra. Þeir voru sakaðir um fjár-
drátt og eiturlyfjasmygl. Ég vil
leyfa mér að rekja nokkur atriði
ákærunnar og viðhorfs miðstjómar
Kommúnistaflokks Kúbu, sem birt-
ust í leiðara í kúbanska dagblaðinu
Granma 22. júní sl., endurprentað
í enskri útgáfu þess 26. júní.
Nauðsynlegt er að hafa í huga
að Kommúnistaflokkurinná Kúbu
er ekki valdaaðili í stjórnsýslulegum
skilningi þess orðs, heldur vettvang-
ur fyrir þróun hugmynda. Ábyrgð
og framkvæmd mikilvægra verk-
efna hvílir oft í veigamiklum atrið-
um á almennum borgurum, eins og
glöggt kemur fram í tilhöfðunum
hér neðar.
í Granma segir að Ochoa og La
Guardia hafi aðstoðað kólumbíska
eiturlyíjasala við að smygla kókaíni
til Bandaríkjanna á ámnum 1986-
1989, og þegið mikið fé fyrir. Ochoa
var mikilsmetinn herforingi. Hann
var í Angólu er kúbanskir og ang-
ólskir herir unnu sigur á Suður-
Afríkuher veturinn 1988. LaGuard-
ia var yfirmaður deildar sem sér
um að útvega tölvur, lyf og annað
sem Kúba getur ekki keypt frá
Bandaríkjunum vegna viðskiptaein-
angrunar af þeirra hálfu. Varnings-
ins er aflað gegnum sambönd við
bandaríska ríkisborgara og aðra.
Allt samband við einstaklinga sem
tengjast eiturlyfjum á einhvern hátt
er bannað. Deildin heyrir undir inn-
anríkisráðuneytið, en hefur beint
samstarf við landhelgisgæslu og
flugmálayfirvöld.
I apríl sl. hófst rannsókn á því
hvort einhverjir fulltrúar ríkisins
tengdust flutningi eiturlyfja. Ekk-
ert var vitað um mennina tvo, sem
hættu þegar í stað öllum slíkum
framkvæmdum. Samstarfsmenn
þeirra gerðu annars samninga af
því tagi. Granma skýrir frá að ör-
yggi ríkisins hafi verið stefnt í
hættu er náinn samstarfsmaður
Ochoa hitti höfuðpaur Medellín-
eiturlyfjahringsins í Kólumbíu árið
1988. „Ef aðstoðarmaður jafn
þekkts og mikilsmetins manns og
„Hegðan Ochoa, La
Guardia og samstarfs-
manna þeirra sýnir
hvernig glampandi
glingur neyslusamfé-
lags getur haft áhrif á
suma menn, segir enn-
fremur í Granma.“
Ochoa hefði verið handtekinn á
slíkum fundi og kynntur alþjóðléga
sem fulltrúi landsins, hefði róg-
burðarhríð brostið á gagnvart bylt-
ingunni, sem erfitt hefði verið að
bægja frá,“ segir blaðið.
Þá segir í Granma að Kúba sé
eitt örfárra landa í álfunni, þar sem
eiturlyf séu ekki framleidd, þau séu
„krabbamein“. Bandaríkin hafi ekki
getað spornað við neyslu og dreif-
ingu eiturlyfja innan eigin landa-
mæra. Allar aðgerðir þeirra gagn-
vart framleiðslulöndunum í róm-
önsku Ameríku séu kúgunaraðgerð-
ir, án skilnings á því að efnahags-
leg og félagsleg kreppa hafi hrakið
milljónir manna útí að rækta og
framleiða eiturlyf. Bæði Bandaríkin
og ríkisstjórnir í rómönsku Ameríku
eyði milljónum dala í að uppræta
þetta, án árangurs.
Blaðið lýsir hvernig flugvélar og
bátar hafa verið teknir í kúbanskri
land- og lofthelgi og eiturlyfjasendl-
ar stöðvaðir i viðleitni til að „gegna
alþjóðlegum skyldustörfum“.
Tengsl Ochoa og La Guardia við
smyglara séu fyrsta áfallið, og jafn-
framt mikið áfall. Ætlunin sé að
uppræta algerlega umferð með eit-
urlyf. Kú'ba sé eina landið í þeim
heimshluta sem geti það, og verkið
muni ekki reynast erfitt kúbönskum
borgurum, starfsmönnum landhelg-
isgæslunnar, hers og innanríkis-
ráðuneytis. Eiturlyfjasalar megi
vita að flugvélar verði jafnvel skotn-
ar niður ef neitað er að Jenda.
Bent er á að bandarísk yfirvöld
hafi vitað um smyglþátt kúbönsku
embættismannanna, en hvorki látið
kúbönsk yfirvöld vita né aðhafst
neitt. í leiðara Granma er talið
hugsanlegt að ætlunin hafi verið
að notfæra sér þessar aðstæður,
og afhjúpun embættismannanna sé
áfall fyrir slíkar áætlanir.
Hegðan Ochoa, La Guardia og
samstarfsmanna þeirra sýnir hvern-
ig glampandi glingur neyslusam-
félags getur haft áhrif á suma
menn, segir ennfremur í Granma.
Mennirnir svertu orðstír Kúbu og
siðferðisviðmiðanir á alþjóðavett-
vangi. „Orðstír okkar er grundvöll-
ur þess hvemig við veijumst árás-
um Bandaríkjanna og að raust okk-
ar heyrist um allan heiminn. Þeir
stefndu ekki aðeins orðstír okkar í
voða, heldur öryggi landsins, því í
dag getur lítil þjóð ekki varið sig,
njóti hún ekki virðingar og hafi sið-
ferðisvitund. Að vanvirða hetjulega
alþýðu jafngildir því að grafa undan
styrk hennar. Það er að grafa und-
an baráttuviljanum," segir blaðið.
Kína
í Morgunblaðinu (og víðar) hafa
birst frettir þess efnis að ríkisstjórn-
ir Kúbu og Nicaragua styðji fjölda-
morðin í Kína. Það er rangt.
Skömmu eftir atburðina í Kína
birtust fréttir í Bandaríkjunum þess
efnis, að sijórnir Kúbu, Nicaragua
og Víetnam styddu aðgerðir yfir-
valda í Kína til að bæla þár niður
lýðræðissinnaða hreyfingu. Ekki
sættu allir fréttamenn sig við heim-
ildirnar fyrir þessu. Meðal þeirra
er blaðamaður „Wall Street Joum-
al“, Cockburn að nafni. Hann gerði
grein fyrir því í blaðinu 15. júní að
það sem varðar afstöðu Nicaraguá
megi rekja til fréttar útsends blaða-
manns í Japan, en breyting var
gerð á grein hans af ritstjórn blaðs-
ins sem hún birtist í. Það sem varð-
ar Kúbu má rekja til skrifstofu
Reuter í Havana á Kúbu. (Skömmu
síðar kom fram í Mbl. að starfs-
manni hjá Reuter í Havana hefði
verið vísað úr landi. Er það nokkuð
undarlegt?)
Fulltrúi Víetnam hjá Sameinuðu
þjóðunum og fulltrúi Kúbu hjá
hagsmunanefnd Kúbu í Washington
upplýstu vegna þessa, að yfirlýsing
eða viðhorf hefðu ekki komið fram
hjá ríkisstjórnum landa þeirra um
málið. Sendiherra Víetnam á íslandi
bar fréttina einnig til baka í viðtali
við Morgunblaðið nýlega. Daníel
Ortega, forseti Nicaragua, hafði þá
þegar lýst yfir (9. júní): „Við fögn-
um ekki ofbeldi eins og beitt er í
Kína.“
Áðurnefndur blaðamaður segir:
„Sérhvem fréttamann, sem ekki
er innstilltur á að trúa öllu illu uppá
toppliðið á haturslista Bandaríkja-
stjórnar, gmnaði að þetta væri til-
búningur." Og hann bætir við eftir-
farandi skýringu á þeim hluta fals-
fréttarinnar er varðar Nicaragua:
„CIA [leyniþjónusta Banda-
ríkjanna] hefur leyfi stjórnarinnar
til að skipta sér af kosningaundir-
búningnum í Nicaragua með frjálsri
aðferð. Fulltrúar Bandaríkjastjóm-
ar breiða út allan þann óþverra um
Nicaragua sem þeim dettur í hug.“
Höfundurerí Vin&ttufélngi
íslands ogKúbu.
POTTÞÉTT
PÚSTKERFI!
Pústkerfi frá Bosal og Stuölabergi.
í allar gerðir bifreiða.
Straumur bíleigenda liggur í Borgartún 26.
Þar er úrvalið mest í bílinn! Láttu sjá þig sem
fyrst. Þú og bíllinn þinn njótið góðs af
heimsókninni.
BORGARTÚNI 26, SÍMI 62 22 62
Stórmarkaður bíleigenda
Mezzoforte-
menn og
söngvarar
á Mallorka
ÞEIR Mezzofortemenn Eyþór
Gunnarsson, Jóhann Ásmunds-
son og Gunnlaugur Briem
skemmta farþegum Samvinnu-
ferða-Landsýnar á Mallorka um
þessar mundir.
Efnt verður m.a. til skemmtunar
þar sem söngvararnir Pétur Kristj-
ánsson, Ellen Kristjánsdóttir og
Erna Þórarinsdóttir koma fram með
Mezzoforte. Farþegar Samvinnu-
ferða-Landsýnar á Mallorka eru vel
á fímmta hundrað og tónlistarfólkið
dvelst þar til sér til hvíldar og
skemmtunar fyrir landa sína.
ssindola Vent-Axíá
LOFTRÆSIVIFTUR
GLUGGAVIFTUR - VECGVIFTUR
BORÐVIFTUR - LOFTVIFTUR
Ensk og hollensk gæðavara.
Veitum tæknilega ráðgjöf við
val á loftræsiviftum.
Það borgar sig að
nota það besta.
Þekking Reynsla Þjónusta
{FALKINN'
SUÐURLANDSBFIAUT 8 SÍMI84670
ARGUS/SlA