Morgunblaðið - 25.07.1989, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JUU 1989
15
GÖTUDANS
Kvikmyndir
Arnaldurlndriðason
Dansinn dunar (,,Tap“). Sýnd í
Sljörnubíói. Leikstjóri: Nick
Castle. Aðalhlutverk: Gregory
Hines, Sammy Davis jr.
Dansmyndir skapa æði og hafa
gert síðan Ginger og Fred liðu
um tjaldið. „Saturday Night Fe-
ver“ og „Grease" gerðu ekki bara
stjörnu úr Travolta heldur hveij-
um einasta unglingi sem nældi sér
í taktana hans í dansskóla. „Dirty
Dancing" fyllti ekki aðeins Regn-
bogann heldur danskennslustof-
urnar líka. Michael Jackson er
ekki aðeins söngvari heldur frá-
bær dansari eins og allir litlu Jack-
synirnir hér þekkja.
Svo eru dansmyndir sem skapa
ekki æði þótt þær séu í sjálfu sér
ekkert verri og Dansinn dunar er
dæmi um eina slíka. Hún er um
dans sem orðið hefur talsvert
homreka eftir að rokkið kom eins
og sagt er í myndinni, stundaður
nú orðið að því er virðist eingöngu
á meðal svertingja í fátækrahverf-
um, dans sem finnur taktinn í
lífinu á götunnni, steppdans.
Gregory Hines, sem fer með
aðalhlutverk myndarinnar, var
steppdansari áður og á meðan
hann fikraði sig inn í bíómyndirn-
ar („The Cotton Club“) og er
greinilega eins og heima hjá sér
í umhverfi og steppsögu og stepp-
hefð myndarinnar.
Hann leikur smákrimma sem
veit ekki hvort hann á að velja
veginn breiða á glæpabrautinni
eða hina þröngu stíga steppdans-
ins, sem hann er alinn upp í en
hefur orðið fráhverfur með árun-
um í og með vegna þess að dans-
inn er ekki virtur að verðleikum
frekar en svertingjamir sem
stunda hann.
Áhrifamesta atriði myndarinn-
ar er þegar hvítur söngleilqastjóri
á Broadway, sem þekkir ekki mun
á steppi og beikoni, vill beisla
Hines, sem sótt hefur um hlut-
verk, og ætlar að gera hann að
sirkusdýri með ömurlega barna-
legum steppsporam og til að und-
irstrika niðurlæginguna skipar
hann honum að brosa með. í þessu
eina einfalda atriði speglast al-
dagömul óvirðingin við svarta
listamenn og list þeirra.
Því Dansinn dunar er líka part-
ur af svörtum vakningarmyndum
- andstætt svörtu hasarmyndum
áttunda áratugarins vestanhafs
(Spike Lee hefur gert mjög umtal-
aða mynd um kynþáttahatur) og
gegnir sínu hlutverki vel. En að
öðra leyti er varla hægt að tala
um að hún sé mikill bógur. Nick
Castle, sem gert hefur krakka-
myndir hingað til, leikstýrir með
hreyfanlegum myndatökum og
sparar ekki reyk og mjúka birtu
í innitökum svo manni þykir nóg
um. Hann brýtur myndina líka
regluiega upp með tónlistarmynd-
bandagerð sem er full augljós til
að renna saman við frásögnina
og nálgast tilgerð.
Það sama er að segja um leikar-
ana — það er stutt í tilgerð. En
hér býr einlægni og metnaður að
baki og heilindi.
HjáVIB starfa nú 9 ráðgjafar og
hver og einn þeirra getur gefið þér
nánari upplýsingar um Verðbréfa-
bókina og alla aðra þjónustu VIB. Þú
getur komið við á skrifstofunni í
Armúla 7 eða hringt og fengið upp-
lýsingabæklinga um þjónustu okkar
senda heim.
Verið velkomin í VIB.
Hvemig er hægt að bæta
við lífeyrisrétdndin?
Halda raruivextir áfram að lækka?
Veita öll verðbréfafyrirtækin sömu
þjónustu? Er hagstætt að fjárfesta í
hlutabréfum? Hvað þýða vaxtabætur
fyrir húsbyggjendur?
Mánaðarfréttir VIB flytja þér í
- hveijum mánuði ítarlegar upplýsing-
ar um það sem efst er á baugi í fjár-
málum hveiju sinni. Þar er einnig
yfirlit um verðbréf, verðbréfasjóði og
ávöxtun þeirra sem og upplýsingar
vu.
um verðbólgu. Reglulega eru send
fylgiblöð með Mánaðarfréttunum
þar sem t.d. er Ijallað um almenn-
ingshlutafélögin og hlutabréf þeirra.
Mánaðarfréttimar fást í áskrift hjá
VIB og kosta 65 kr. á mánuði.
Verðbréfabókin fæst í afgreiðslu
VIB að Armúla 7 og henni fylgir
áskrift að Mánaðarfréttum VIB fram
til áramóta.
VERÐBRÉFAMARKAÐUR IÐNAÐARBANKANS HF
Ármúla 7, 108 Reykjavik. Simi 68 15 30
Jeffrey Archer
Tólf sögur
Archers
Erlendar bækur
Jóhanna Kristjónsdóttir
Jeffrey Archer: A Twist in the
Tale
Útg. Hodder & Stoughton 1988
Jeffrey Archer er án efa ýmsum
íslenskum lesendum kunnur. í þess-
um dálkum hefur fyrr verið getið
nokkurra skáldsagna hans, til dæm-
is „First among equals“ og „A
Matter of Honour“.
„A Matter of Honour“ er ósvikin
en haglega gerð spennusaga og
mjög ólfk fyrstu bókinni sem ég las
eftir Archer, „First among equals“,
þar sem hann skrifar af þekkingu
og kunnáttu og mikilli ritleikni um
baráttu fjögurra ungra manna til
að ná frama innan flokka sinna,
Verkamannaflokksins og íhalds-
flokksins. Fyrir Archer voru að
sönnu hæg heimatökin, j>ví að hann
var kosinn á þing fyrir Ihaldsflokk-
inn 1969. Hann skrifaði fyrstu
skáldsögu sína „Not a penny more,
not a penny less“ þegar hann hvarf
af þingi 1974. Samt hélt hann
starfi áfram fyrir flokkinn og var
um tíma varaformaður flokksins,
en flæktist í hneykslismál og hefur
síðustu ár ekki þótt æskilegur full-
trúi flokksins.
Eftir að Archer reit fyrstu sögu
sína náði hann strax mikilli frægð
og bækur hans seldust eins og heit-
ar lummur bæði í Bretlandi og
víðar. Hann hefur áður sent frá sér
eitt smásagnasafn og í þessari nýj-
ustu bók sem kom út fyrir örfáum
vikum era tólf sögur. Archer segir
að tíu þeirra séu byggðar á raun-
veralegum atburðum og aðeins
tvær séu algerlega tilbúningur
hans. Hann getur ekki um hvaða
sögur það era.
Á hinn bóginn fannst mér sög-
umar ákaflega misjafnar að gæðum
og misjafnlega skemmtilegar af-
lestrar. Sú fyrsta er hvað haganleg-
ust og segir þar frá virðulegum
manni í góðu starfi sem kemur að
hjákonu sinni með öðram manni.
Hann fyllist heiftarlegri afbrýði-
semi og endar með því að hann
verður konunni að bana. Miklar
sálarkvalir fylgja í kjölfarið, en loks
sér hann leiðina út úr þessu og tekst
að beina grunsemdum lögreglunnar
að hinu viðhaldinu. Með athyglis-
verðum árangri. Framvinda sög-
unnar, er hann fylgist með réttar-
höldunum, er býsna spennandi og
niðurlagið er snjallt og kemur á
óvart.
Það virðist á stundum í þessum
sögum vera það sem Archer stefnir
að frá upphafi: að hafa endi hverr-
ar sögu sem ótrúlegastan og þó
trúverðugan. Þetta tekst honum í
sumum sagnanna mæta vel, en
stundum verður þessi viðleitni full-
áreynslukennd. Almennt verða sög-
urnar ekki eftirminnilegar, en þær
era snoturlega gerðar.
Ég hallast eindregið að þvi'að
þetta sé auðveld og þægileg bók
aflestrar en mér finnst Archer hafa
sett mikið ofan frá því hann skrif-
aði Fremstan meðal jafningja.