Morgunblaðið - 25.07.1989, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ 1>RIDJUI)AGUR 25. JÚLÍ 1989
Islandsmótið í hestaíþróttum;
Rúna Einarsdóttir á
Dimmu sigraði í töltinu
íslandsmeistari í tölti og fiórErangi unglinga, Halldór Viktorsson
TÓLFTA íslandsmótið i hesta
íþróttum var haldið í Borgar-
nesi um helgina og var það §öl-
mennasta mótið sem haldið
hefur verið til þessa. Félagar í
þróttadeildum Faxa í Borgar-
firði og Dreyra á Akranesi sáu
um framkvæmd mótsins, sem
tókst vel að flestu leyti. Miklar
endurbætur höfðu verið gerðar
á mótssvæðinu, sem er í eigu
hesteigandafélagsins Skugga í
Borgarnesi.
Flestir bestu hestar landsins og
knapar háðu harða keppni um
hina ýmsu íslandsmeistaratitla og
gilti þar einu hvort um var að
ræða unglinga, börn eða full-
orðna. Meðal helstu úrslita voru
þau að Rúna Einarsdóttir sigraði
í tölti fullorðinna á Dimmu frá
Gunnarsholti sem er án efa eftir-
sóttasti titillinn sem keppt er um
á Islandsmótum. Er það án efa
eftirsóttasti íslandsmeistaratitill-
inn sem keppt er um íslandsmót-
unum og þetta mun í annað skip-
tið sem kona vinnur hann. í fjór-
gangi sigraði Sigurbjöm Bárðar-
á Herði frá Bjarnastöðum.
son á Skelmi frá Krossanesi, auk
þess sigraði hann í gæðingaskeiði
á Snarfara frá Kjalarlandi og varð
stigahæsti keppandinn í íslenskri
tvíkeppni, skeiðtvíkeppni og stiga-
hæsti keppandinn í flokki fullorð-
inna. Guðni Jónsson sigraði í
fimmgangi á Atlasi frá Gerðum
og Reynir Aðalsteinsson sigraði í
hlýðnikeppninni á Tvisti frá Smá-
hömrum. María Dóra Þórarins-
dóttir sigraði í hindrunarstökki á
Y1 frá Hemlu.
I tölti unglinga sigraði Halldór
Viktorsson á Herði frá Bjama-
stöðum en þeir unnu einnig fjór-
ganginn og urðu stigahæstir í
Islenskri tvíkeppni. í hlýðnikeppni
unglinga sigraði Edda Sólveig
Gísladóttir á Seifi frá Hafsteins-
stöðum og Hjömý Snorradóttir
varð stigahæst unglinga.
í tölti bama sigraði Daníel
Jónsson á Geisla frá Kirkjubóli
og einnig vann hann það ágæta
afrek að sigra fimmgang unglinga
á Glettu frá Gýgjarhóli þar sem
hann keppti við sér eldri krakka.
Guðmar Þór Pétursson vann fjór-
ganginn og hlýðnikeppni barna á
Vin frá Sauðárkróki en hann varð
einnig stigahæstur keppenda í
barnaflokki. Edda Rún Ragnars-
dóttir varð stigahæst í íslenskri
tvíkeppni barna á Örvari frá Ríp.
Þá var keppt í 150 metra skeiði
á mótinu sem er aukagrein og
reiknast ekki til stiga en þar sigr-
aði Börkur frá Kvíabekk og Tóm-
as Ragnarsson á 13.99 sek.
Fimm Eyfirðingar kepptu á ís-
landsmótinu að þessu sinni sem
gestir, en sem kunnugt er standa
þeir utan Landsambands hesta-
mannafélaga og er vonast til að
þetta gæti orðið fyrsta skrefið að
inngöngu þeirra í samtökin.
MorgunblaðiðA'aldimar Kristinsson
Reynir Aðalsteinsson sigraði annað árið í röð í hlýðnikeppni-B á
Tvisti frá Smáhömrum, Þórður Þorgeirsson varð í öðru sæti á
Berki frá Vallanesi og Sigurbjöm Bárðarson þriðji á Skjanna frá
Kýrholti.
Að loknum úrslitum i tölti ríða keppendur heiðurshring í breið-
fylkingu og fer hér fremstur Baldvin Guðlaugsson á Trygg frá
Vallanesi, Erling Sigurðsson á Snjall frá Gunnarsholti, Sigurbjöm
Bárðarson á Skelmi frá Krossanesi, Trausti Þór Guðmundsson á
Muna frá Ketilsstöðum og Islandsmeistarinn Rúna Einarsdóttir á
Dimmu frá Gunnarsholti.
Þær stöllur Rúna Einarsdóttir og Dimma frá Gunnarsholti skutu
karlpeningnum ref fyrir rass og sigraðu í töltkeppninni.
Guðni Jónsson hampar hér sigurlaunum fyrir fimmgang á hesti
sínum Atlasi, næstir honum koma Sigurbjöra Bárðarson á
Skjanna, Einar Öder á Fálka, Eiríkur Guðmundsson á Þráni og
Tómas Ragnarsson á Snúði.
Austur-Eyj afjöll:
Fært um Fimmvörðuháls frá
Skógum yfír í Þórsmörk
Holti.
HIN VINSÆLA leið ferðamanna úr Þórsmörk að Skógum og frá
Skógum yfir í Þórsmörk um Fimmvörðuháls er loksins orðin greið-
fær. Vegna snjóalaga fram undir göngubrúna á Skógá hefiir leiðin
verið þungfær fram að þessu og munar næstum mánuði miðað við
meðalárferði hvað þessi leið opnast seint. Fjalla-hestar heíja um
næstu helgi sínar vinsælu ferðir á hestum og með bíl frá Skógum
yfir Fimmvörðuháls upp með Skógá þar sem fossarnir falla fram
hver af öðram og heilla ferðamenn.
tveimur árum. Reiknað hafi verið
með að þessar ferðir hæfust fyrir
um mánuði en snjóþyngslin uppi á
Fimmvörðuhálsi hefðu komið í veg
fyrir það, þar til nú.
- Fréttaritari
Morgunblaðið/Páll Dagbjartsson
Nýir búningsklefar vora fyrir skömmu teknir í notkun við sundlaug-
ina í Varmahlíð.
Varmahlíð:
Laugin opnuð eftir viðgerðir
Helgina 22. og 23. júlí fóru tveir
flugbjörgunarsveitarmenn Austur-
Eyfellinga, þeir Ásbjörn Óskarsson
og Þorsteinn Jónasson, að kanna
aðstæður á Fimmvörðuhálsi. Flug-
björgunarsveitin hefur þrisvar
byggt og endurreist göngubrúna
yfir Skógá hjá vaðinu sem oft er
ófært. Mikil snjóalög hafa hvað eft-
ir annað eyðilagt brúna. Þá reistu
flugbjörgunarsveitarmenn skála við
jaðar jökulsins sem þeir hafa eftir-
lit með. í því eftirliti er mikil þjón-
usta veitt ferðafólki sem gistir í
skálanum, hitar mat og hvílir sig.
Aðspurður sagði Ásbjöm að snjó
hefði tekið mikið upp á stuttum
tíma og væri orðin mörkuð braut
yfir jökulinn eftir ferðafólk. Það
væri stöðug aukning frá ári til árs
útlendra ferðamanna, sem færu
þessa leið. Leiðin væri orðin vel fær
en að vísu væri ekki orðið akfært
stórum bílum upp að Skála. Vænt-
anlega myndi Vegagerð ríkisins
opna leiðina á næstunni.
Fjalla-hestar hafa boðið upp á
ferðir, einkum um helgar, á hestum
og með bíl upp að Skála og síðan
með fylgd yfir í Þórsmörk og dvöl
þar eða keyrslu til baka að Skógum.
Guðmundur Viðarsson i Skálakoti,
leiðangursstjóri þessara ferða,
sagði að nú fyrst myndu þessar
ferðir heijast, en töluverð eftirspurn
væri eftir þessum ferðum frá Is-
lendingum, sem myndu eftir mynd
Sjónvarpsins, sem gerð var fyrir
Varmahlfð.
NÝIR búningsklefar voru teknir í
notkun við sundlaugina í
Varmahlíð fyrir skömmu. Þá um
leið var laugin opnuð almenningi
eftir viðgerðir og endurbætur sem
unnið hefiir verið að undanfarið.
Þessir nýju búningsklefar leysa
af hólmi eldri byggingu, sem hefur
verið í notkun með undanþágum,
m.a. frá heilbrigðiseftirliti.
Klefarnir eiga einnig að þjóna
íþróttasal sem fyrirhugaður er síðar.
Áðstaða er m.a. fyrir ljósalampa og
sjúkranudd getur einnig farið þama
fram.
Sundlaugin í Varmahlíð var byggð
á árunum 1937 til 1939 og tekin
formlega í notkun síðla árs 1939.
Það er því 50 ára afmæli laugarinn-
ar á þessu ári. Laugin sjálf er hið
traustasta mannvirki og hefur mikið
til staðist tímans tönn. Hún var upp-
haflega 33% m x 12,5 m en í þeim
framkvæmdum sem lokið er, var
steyptur milliveggur sem afmarkar
djúpa 25 m laug og litla kennslulaug
í grynnri enda.
Sundlaugin í Varmahlíð er opin
almenningi alla daga frá kl. 8.00-
22.00 og verður svo fyrst um sinn;
- P.D.