Morgunblaðið - 25.07.1989, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
19
Eru
þeir að
fá 'ann
■?
■
1100 laxar í Kjós
Um 1100 laxar eru komnir
úr Laxá í Kjós og á hádegi í gær
hóf þar þriggja daga törn hópur
afar duglegra veiðimanna sem
þekkja ána út og inn. Ásgeir
Heiðar, staðarleiðsögumaður,
sagði í samtali við Morgunblaðið,
að það myndi ekki koma sér á
óvart þótt hollið veiddi meira en
nokkurt holl til þessa, skilyrðin
væru öll hins bestu, laxinn hefði
tekið fluguna grannt og frekar
illa hjá Bandaríkjamönnunum
síðustu vikuna, en nú yrði rennt
maðki í stórum stíl og laxamag-
nið væri afar mikið í ánni. Ekki
nóg með það, heldur sagði Heið-
ar að feiknagöngur hefðu komið
inn allra síðustu daga, eftir
stærsta strauminn og væri nú
hver pollur og hver breiða í ánni
full af fiski.
Forsætisráðherran fékk
19-pundara
Steingrímur Hermannsson lenti
heldur betur í honum kröppum í
fyrradag í Laxá í Aðaldal. Hann
setti þá í stórlax á Hagabökkum
nyrðri, fyrir neðan brú, en það
er erfiður staður til að glíma við
stórlaxa. Enda lauk leiknum ekki
fyrr en hálfri fimmtu klukkustund
seinna, tveimur kílómetrum neðar
í ánni, á Álfthyl neðan Grá-
straums. Laxinn reyndist vera 19
punda hængur, nýlega genginn í
ána og tók hann Þingeying á ein-
krækju númer 8. Taumurinn 11
punda.
Menn sem voru ráðherra til
aðstoðar segja þetta hafa verið
hið mesta ævintýri, þegar veiði-
menn fóru austur, fór laxinn vest-
ur og öfugt, hann gerði þeim allt
til miska og svo festi hann línuna
hvað eftir annað í hraunbotni
Laxár. En með ráðherra voru
engir aukvisar, Þórður Pétursson
veiðivörður, Orri Vigfússon for-
maður Laxárfélagsins og þeir óðu
ána að festum á stöðum sem áður
voru taldir óvæðir, en Ingvi Hrafn
fréttamaður hljóp við fót niður
hinn bakkann með spónstöng og
losaði úr sumum festunum með
þvi að kasta spæni á línu ráð-
herra og toga í úr öfugri átt.
Ekki mátti laxinn við margnum
og hlaut hann að láta í minni
pokann um síðir, en Steingrímur
taldi sig aldrei hafa att kappi við
harðari andstæðing á bökkum
laxveiðiánna.
Orri Vigfússon sagði í gær, að
það væri sér mikið gleðiefni að
tilkynna að veiðin hefði tekið mik-
inn kipp í Laxá að undanförnu,
þannig hefði holl sem hann var
aðili að dregið 110 laxa og um
500 fiskar væru komnir úr ánni
allri. Ekki hafa þó verið sérlega
líflegar göngur, heldur hefur
veiðst um alla á og virst sem nokk-
ur lax sé undir. Stærstu laxarnir
úr Laxá í sumar hafa vegið 20
pund, en stærri laxar hafa haft
betur í viðureignum við veiðimenn
sem endranær.
í BMW 3-línunni eru annarsvegar 2ja og 4ra
dyra bílar og hinsvegar 5 dyra Touring skutbíl-
ar. Þú borgar minnst fyrir BMW í 2ja dyra út-
færslunni, en hann kostar álíka og lítill jap-
anskur bíll meö sérútbúinni vél. Munurinn er
mikill milli BMW og japanskra bíla, og dæmi
þá hver fyrir sig.
Einkenni BMW eru þau sömu í öllum útfærsl-
um. Hann er aflmikill, hefur frábæra akstureig-
inleika og snerþu sem þú getur treyst þegar
mest á reynir. Fjöörunin og annar tæknilegur
útbúnaður er fyrsta flokks enda hér á ferðinni
bíll sem er gerður fyrir kröfuharöa kaupendur.
Þaö er eftirsóknarvert aö eiga og aka BMW,
þess vegna viljum viö gera okkar ítrasta til aö
þú njótir þess besta, og eignist BMW. Þér er
hér meö boðið að koma og reynsluaka BMW
3-línunni eða öðrum BMW bílum, þiggja hjá
okkur veitingar og ræða við sölumenn um
hagstæöa greiösluskilmála. Viljir þú aö viö
tökum gamla bílinn sem greiöslu uþþ í nýjan
BMW, skaltu hiklaust notfæra þér skiptitilboðið
okkar sem auöveldar þér aö eignast BMW á
góöum kjörum.
BMW 3161, 3fa dyra kostar frá kr. 1.227 þúsund.
Bílaumboðið selur einnig notaða BMW.
Leitaðu upplýsinga hjá sölumönnum.
Njóttu þess besta, — eignastu BMW.
ÞAÐ ER EINFALT MÁL
AÐ SEMJA VIÐ OKKUR.
Bílaumboðið hf
Krókhálsi 1, Reykjavik, sími 686633
Einstakur bill
fyrir
kröfuharða.
Einstaklega ánægjulegt
að heimsækja Sólheima
- segir Olafiir Skúlason, biskup Islands
HR. ÓLAFUR Skúlason biskup
og frú Ebba Sigurðardóttir kona
hans, heimsóttu Sólheima í
Grímsnesi á laugardag. í tilefhi
heimsóknarinnar var messað í
íþróttahúsinu og tóku flórir
prestar þátt í athöfhinni ásamt
biskupi. Þá afhenti Lionsklúbb-
urinn Ægir heimilinu gjafir, sam-
tengt brunavarnarkerfi að verð-
mæti um 1,7 milljónir króna auk
500 þúsund króna efnisgjöf
veg^na fyrirhugaðrar nýbygging-
ar á staðnum.
„Þessi heimsókn var alveg ein-
staklega _ ánægjuleg," sagði hr.
Ólafur. „Ég hef varla komið á heim-
ili, þar sem ríkti jafn mikil gleði
og einlægni eins og hjá vistmönnun-
um. Það lagðist allt á eitt, frábært
veður og móttökurnar slíkar að það
er ekki hægt að gera það betur.
Bæði í viðmóti starfsfólks og viður-
gjörningi að ógleymdum vistmönn-
unum sem kepptu við sólina hvað
brosið var bjart.“ Að sögn Halldórs
Júlíussonar forstöðumanns, var í
upphafi heimsóknarinnar gengið
um staðinn og heilsuðu biskups-
hjónin upp á vistmenn á heimilum
þeirra um leið og þeim var sýnd
starfsaðstaðan og hvernig búið er
að heimilisfólkinu. Hádegisverður
var snæddur í boði stjórnar og full-
trúaráðs Sólheima með þátttöku
gesta frá stjórn Foreldra- og vinafé-
laga Sólheima og Lionsklúbbnum
Ægi. Að loknum hádegisverði var
messað í íþróttahúsinu, þar sem
biskupinn predikaði og sagði Hall-
dór að ræða biskups hefði verið
Morgunblaðið/Þorkell
Hr. Ólafhr Skúlason biskup predikar við messu í Sólheimum í
Grímsnesi.
Morgunblaðið/Þorkell
Jón Snorrason formaður Lionsklúbbsins Ægis afhendir Halldór Jú-
liusson forstöðumanni Sólheima í Grímsnesi, skjöld klúbbsins og að
auk brunavarnarkerfi sem sett hefur verið upp og fé til efniskaupa
vegna fyrirhugaðrar nýbyggingar.
persónuleg og ánægjuleg, þar sem
hann tengdi hana því starfi sem
fram fer í Sólheimum. Auk biskups
tóku þátt í athöfninni Sr. Guðmund-
ur Þorsteinsson dómprófastur, Sr.
Rúnar Þór Egilsson, auk Sr. Gylfa
Jónssonar og Sr. Valgeirs Ástráðs-
sonar úr fulltrúaráðinu. Að sögn
Halldórs sóttu rúmlega 130 manns
messuna.
Að lokinni messu tók biskup
fyrstu skóflustunguna að nýju 200
fermetra íbúðarhúsi fyrir fimm vist-
menn, sem verður reist á næsta ári
í tilefni af 60 ára afmæli heimilis-
ins. í kaffisamsæti að því loknu
afhenti Jón Snorrason formaður
Lionsklúbbsins Ægis heimilinu
formlega gjöf, samtengt bruna-
varnarkerfi, sem sett var upp á
síðasta ári og er útlagður kostnaður
um 1,7 milljón króna. Enn fremur
afhenti hann fyrir hönd klúbbsins
byggingarefni vegna fyrirhugaðra
byggingaframkvæmda á næsta ári,
að verðmæti kr. 500.000.
Tannverndarráð:
Drykkjarlindir í
skóla og stofiianir
TANNVERNDARRÁÐ hefur skrifað bréf til sveitarstjórna
og beðið um að kannað verði hvort ekki sé hægt að setja
upp útbúnað til vatnsdrykkju í skóla, íþróttahús, á sundstaði
og víðar.
Þetta kemur fram í nýjasta
tölublaði tímaritsins Heilbrigðis-
mál. Þar segir enn fremur, að í
bréfi sínu bendi Tannverndarráð
á, að á mörgum þessara staða
séu komnir sjálfsalar fyrir gos-
drykki. Mælst er til þess að sala
á gosdrykkjum verði takmörkuð
sem mest, en í staðinn boðið upp
á hreint, íslenskt vatn.
I Heilbrigðismálum segir, að
þessum tilmælum Tannverndar-
ráðs hafi verið vel tekið, meðal
annars í Kópavogi.
Drykkjarlindir er víða erlendis
að finna í opinberum byggingum