Morgunblaðið - 25.07.1989, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
EB
BÚU
AB
SKOBA
BILINN
MNN?
BIFREIÐASKOÐUN
ÍSLANDS HF.
Hægt er að panta skoöunartíma,
pöntunarsími í Reykjavík
er 672811
Síðasta tala
númersins segir
til um
skoðunarmánuðinn.
Láttu skoða í tíma
- öryggisins vegna!
Frakkland:
Stríðandi fylkingar í
Kambódíu ræðast við
París. Reuter.
HUN Sen, forsætisráðherra Kambódíu og Sihanouk prins, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar, hittust í gær til að leita leiða til að koma á
friði í landinu. Viðræður þeirra fara fram í París en þær eru undan-
fari ráðstefnu 20 rikja sem hefst um næstu helgi og á að fjalla um
málefni Kambódíu.
Þetta er fimmti fundur þeirra
Huns Sens og Sihanouks á síðustu
átján mánuðum. Hun Sen er forsæt-
isráðherra stjómarinnar í Phnom
Penh sem nýtur stuðnings Víet-
nama en Sihanouk prins, sem áður
var einvaldur í landinu, er nú leið-
togi bandalags þriggja skæruliða-
hópa. Hinir vinstri sinnuðu Rauðu
Khmerar sem njóta stuðnings
Kínverja og skæmliðasveit undir
stjórn Son Sanns, fyrmm forsætis-
ráðherra Kambódíu, taka þátt í við-
ræðunum í dag.
Stjórnvöld í Víetnam hafa til-
kynnt að þau muni draga herlið
sitt til baka frá Kambódíu í septem-
ber. Viðræður hinna stríðandi afla
í landinu miða að því að tryggja
frið og veita stjómarandstöðunni
hlutdeild í stjórn landsins. Það sem
helst stendur í vegi fyrir að svo
megi verða er krafa Rauðu Khmer-
anna um stjómarþátttöku. Þeir
stjórnuðu landinu frá 1975 til 1979
og talið er að stjórn þeirra hafi lát-
ið myrða um eina milljón manna.
Eftir viðræður sínar í gær sögðu
Hun Sen og Sihanouk að þeir hefðu
ekki náð samkomulagi um hvort
Rauðu Khmerarnir ættu að fá að
taka þátt í stjórn landsins. Stjóm
Huns Sens í Phnom Penh og stjóm-
völd í Hanoi hafa neitað að sam-
þykkja að Rauðu Khmerarnir kom-
ist aftur til valda.
Bandalag skæmliðahópanna
þriggja vill að Sameinuðu þjóðirnar
hafi eftirlit með brottflutningi her-
liðs Víetnama nú í september en
Víetnamar vilja engin afskipti S.Þ.
þar sem þær viðurkenna ekki
stjórnina i Phnom Penh heldur út-
lagastjóm Sihanouks prins. Perez
de Cuellar, aðalritari Sameinuðu
þjóðanna, mun taka þátt í alþjóð-
legri ráðstefnu um málefni
Kambódíu sem hefst í París á
sunnudaginn. James Baker, ut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna,
mun einnig fara til Parísar um
næstu helgi og vera við upphaf
ráðstefnunnar. I síðustu viku sam-
þykkti Bandaríkjaþing að veita and-
kommúnískum skæruliðasveitum
Reuter
Flóttamaður frá Kambódíu flytur barn sitt og aleiguna frá flótta-
mannabúðum Rauðu Khmeranna í Tælandi yfir í aðrar flóttamanna-
búðir eftir að stórskotahríð frá Kambódíu varð átta manns að bana.
Nærri 40.000 flóttamenn þurftu að flytja sig um set.
Sihanouks prins og Son Sanns,
hemaðaraðstoð en talið var að það
myndi styrkja stöðu þeirra í samn-
ingaviðræðunum í París. Hun Sen
sagði í gær að þessi hernaðaraðstoð
Bandaríkjamanna hvetti Rauðu
Khmerana til að fara í stríð og yki
líkumar á borgarastyijöld í landinu.
Hann endurtók kröfu sína um það
að Rauðu Khmeramir fengju ekki
nein tök í stjórn landsins, nema
þeir féllust á að taka þátt í kosning-
um og hlytu þar stuðning þjóðarinn-
ar.
Reuter
Dauðadómur staðfestur
Afrýjunardómstóll staðfesti á laugardag dauðadóm yfir 27 ára
gamalli norður-kóreskri stúlku, Kim Hyun-hui, sem játaði að-
hafa með samsærismanni. sínum grandað suður-kóreskri far-
þegaþotu með 115 manns innanborðs í nóvember 1987. Komu þau
sprengju fyrir í þotunni. Kim á nú þann möguleika að áfrýja til
hæstraréttar Suður-Kóreu.
Ungveijaland:
Nyers vill að mynduð
verði samsteyjjustj óm
París. Reuter.
REZSO Nyers, leiðtogi ungverska kommúnistaflokksins, sagði í gær
að hugsanlegt og æskilegt væri að mynduð yrði samsteypusljórn
miðju- og vinstrimanna í Ung 'eijalandi eftir þingkosningar fyrir lok
þessa árs.
Nyers sagði í samtali við franska
dagblaðið Le Monde að kommún-
istaflokkurinn myndi ekki mynda
stjórn án samstarfs við önnur
stjómmálaöfl. „Samsteypustjórn er
hugsanleg og æskileg," sagði hann
og bætti við að stjórnin þyrfti að
njóta víðtæks stuðnings þar sem
hún þyrfti að grípa til erfiðra efna-
hagsaðgerða.
Nyers sagði að kommúnista-
flokkurinn væri að ræða við önnur
stjómmálaöfl landsins um fyrir-
hugaðar þingkosningar í landinu.
„Hægt væri að boða til kosninga
fyrir lok þessa árs ef samkomulag
næst. Ef ekki verða þær á næsta
ári,“ bætti hann við.
Ungverski kommúnistaflokkur-
inn beið ósigur í tveimur kjördæm-
um af þremur í aukakosningum á
laugardag, en þetta vom fyrstu
fijálsu kosningamar í landinu í fjóra
áratugi. Frambjóðendur stærstu
hreyfingar stjórnarandstæðinga,
Lýðræðisvettvangs Ungveijalands
(HDF), fengu flest atkvæði í öllum
kjördæmunum þremur, en tveir
þeirra náðu ekki kjöri þar sem þeir
fengn ekki tilskilinn meirihluta at-
kvæða. Verður gengið til atkvæða
að nýju í þeim kjördæmum 5.
ágúst. 35 ára gamall prestur, Gab-
or Roszik, fékk hins vegar 69 pró-
sent atkvæða og er hann fyrsti
stjórnarandstæðingurinn sem
kemst á ungverska þingið frá því
kommúnistaflokkurinn komst til
valda fyrir fjórum áratugum.
ísraelsstjórn staðfestir friðaráætlun sína án breytinga:
Slianiir sagður hafa átt í við-
ræðum við Palestínumenn
Jerúsalem, Túnis, Washington. Reuter.
ÍSRAELSKA stjórnin staðfesti á sunnudag friðaráætlun sína, þar sem
gert er ráð fyrir kosningum á hernumdu svæðunum í ísrael, og kom
hún þar með í veg fyrir yfirvofandi stjómarkreppu í landinu. Stjóm-
in samþykkti áætlunina án nokkurra breytinga með 21 atkvæði gegn
ijórum. Leiðtogar Verkamannaflokksins höfðu lagt til að flokkurinn
sliti stjórnarsamstarfínu eftir að Líkud-flokkurinn hafði lagt fram
ströng skilyrði fyrir kosningum á hernumdu svæðunum. Yitzhak
Shamir, forsætisráðherra landsins, hefiir átt í leynilegum viðræðum
við háttsetta leiðtoga Palestínumanna á hernumdu svæðunum til að
Ieita eftir stuðningi þeirra við friðaráætlunina, samkvæmt ísraelskum
og palestínskum heimildarmönnum. Yasser Arafat, leiðtogi Frelsis-
samtaka Palestínumanna (PLO), sagði í gær að Shamir hefði boðið
Palestínumönnum á hernumdu svæðunum „hálfgildings sjálfstæði".
ísraelskir og Palestínskir heim-
ildarmenn sögðu að Shamir hefði
rætt við fjóra atkvæðamikla Pal-
estínumenn frá Gaza-svæðinu og
Vesturbakkanú'.H á undanförnum
tveimur vikum og að Palestínu-
mennirnir hefðu allir sent skýrslur
um viðræðurnar til höfuðstöðva
PLO í Túnis. Enginn mannanna
vildi staðfesta að viðræðurnar hefðu
farið fram.
Yasser Arafat, Ieiðtogi PLO,
sagði í samtali við fréttaritara
bandaríska dagblaðsins Hearst að
samkvæmt skýrslu eins þeirra, sem
átt hefðu í viðræðum við Shamir,
hefði forsætisráðherrann boðið Pa-
lestínumönnum „hálgildings sjálf-
stæði“. „í tilboðinu er gert ráð fyr-
ir tveimur áföngum. Fyrst fái Pa-
lestínumenn sjálfstjórn en síðan
hálfgildings sjálfstæði," sagði Ara-
fat. Hann kvaðst ekki vita hvað
Shamir ætti við með „hálfgildings
sjálfstæði". Hann sagðist ánægður
með að viðræðurnar skyldu hafa
farið fram, þótt hann væri ekki
ánægður með tilboð Shamirs.