Morgunblaðið - 25.07.1989, Qupperneq 22
22
S
JUT, .ðg fiUOA
M4 UKLAJSKUOHÓM
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
Heildarupphæð vinninga
22.07. var 3.752.604.
Enginn hafði 5 rétta, sem
var kr. 1.727.811.
Bónusvinninginn fengu 7
og fær hver kr. 42.910.
Fyrir 4 tölur réttar
fær hver kr. 4.585
og fyrir 3 réttar tölur
fær hver um sig kr. 321.
Sölustaðir loka 15 mínútum
fyrir útdrátt í Sjónvarpinu.
Sími685111.
Upplýsingasímsvari 681511.
Lukkulína 99 1002
Þú svalar lestrarþörf dagsins
Tékkóslóvakía:
Dubcek fær
ekki að fara
til Spánar
Madrid. Reuter.
Alexander Dubcek, fyrrum
formaður tékkneska kommún-
istaflokksins, fær ekki vega-
bréfsáritun til að fara úr landi
en honum var boðið að taka
þátt í ráðstefhu um glasnost og
sósíalískar umbætur í Madrid á
Spáni.
Eiginkona Dubceks sagði að
stjómvöld hefðu gefið þá skýringu
að ferðin væri ekki til hagsbóta
fyrir tékkneska ríkið. Spænsk
stjórnvöld hafa mótmælt ákvörðun
stjórnarinnar í Prag og krafist
skýringa.
Dubcek var gerður valdalaus
eftir innrás Sovétmanna í Tékkó-
slóvakíu árið 1968 en hún batt
enda á umbótahreyfinguna „Vorið
í Prag“ sem hann kom á fót. Hon-
um var leyft að fara til Italíu í
nóvember sl. en þá gagnrýndi
hann tékknesk stjórnvöld harð-
lega.
Nokkrir þingmenn Samstöðu
eru nú staddir í Tékkóslóvakíu og
þeir hafa opinberlega lýst stuðn-
ingi sínum við andófsöfl í landinu.
Reuter
Stjórnarandstöðuþingmenn á Indlandi halda sigurtákni Churchills á lofti eftir að hafa sagt af sér þing-
mennsku í mótmælaskyni við aðild ríkisstjómar að Bofors-vopnakaupamálinu. Mikil mannfjöldi fagnaði
þmgmönnnum þegar þeir komu út úr þinghúsinu.
Indlandsþing:
Stj órnarandstaðan segir
af sér vegna Bofors-málsins
MERKI UM GÓÐAN ÚTBÚNAÐ
Nýju Delí. Reuter.
FLESTIR stjórnarandstöðuþingmenn á Indlandi sögðu af sér í gær
til þess að mótmæla spillingu, sem þeir segja alltumlykjandi og sam-
gróna ríkissfjóm Rajivs Gandhis, forsætisráðherra. Þingmennirnir
heita því að gefast ekki upp við svo búið og hyggjast taka upp bar-
áttu sína gegn stjóminni á götum úti, þar sem vonlaust sé að heyja
hana innan þingsins. Síðastliðna viku vom árekstrar í þinginu tíðir
vegna skýrslu opinbers endurskoðanda um Bofors-málið svonefiida.
í henni var stjómin harðlega gagnrýnd fyrir að hafa gert vægast
sagt vafasaman vopnakaupasamning við sænska fyrirtækið Bofors
upp á 1,4 milljarð Bandaríkjadala, en stjómarandstæðingar segja
fyrirtækið hafa greitt milljónir Bandarikjadala í mútur til þess að
liðka fyrir samningum, enda þótt Indlandsher hefði margsinnis látið
í yós óskir um viðskipti við önnur fyrirtæki.
Gandhi virtist furðu lostinn þegar
69 stjórnarandstöðuþingmenn
gengu að púlti þingforsetans og
afhentu afsagnarbréf sín. Að sögn
leiðtoga sijórnarandstöðunnar
munu 37 þingmenn aðrir, sem gátu
ekki verið viðstaddir þingfundinn,
afhenda afsagnarbréf sín seinna í
vikunni.
Stjómarandstaðan krefst af-
sagnar Gandhis, þinglausna og
nýrra kosninga hið fyrsta.
Nú standa yfir lokafundir þings-
ins fyrir kosningar, sem fara eiga
fram fyrir árslok. Afhendi þing-
mennirnir 37 afsagnarbréf sín
munu aðeins 438 þingmenn af 544
í neðri deild sitja það sem eftir er
þingsins: þingmenn Kongress-
flokks Gandhis og stuðningsflokka
stjórnarinnar.
„Baráttan er hafin,“ segir Lal
Kishen Advani, sem er þingmaður
hægriflokksins Bharatiya Janata,
eins 12 stjórnarandstöðuflokka,
sem hafa sameinast gegn stjórninni
vegna vopnakaupamálsins.
Vishwanath Pratap Singh, sem
er leiðtogi stjórnarandstöðubanda-
lagsins, sem nú er í myndun, segir
að skýrsla endurskoðandans stað-
festi að Gandhi hafi logið að þing-
inu með því að segja að engir milli-
göngumenn hafi komið nálægt
samningnum og að Bofors hefði
engar „þóknanir“ greitt vegna
hans.
„Við reyndum allar lausnir aðrar,
en við munum nú snúa okkur beint
til þjóðarinnar. Við tökum barátt-
una upp á götum úti,“ segir Singh.
Sameiginlegir mótmælafundir
stjórnarandstöðunnar eru fyrir-
hugaðir og ætlar hún að krefjast
tafarlausra þinglausna og kosn-
inga.
Þingmálaráðherra Gandhis,
H.K.L. Bhagat, segir afsagnirnar
vera út í bláinn og kosningabragð
eitt, en einn samstarfsmanna hans
tók dýpra í árinni: „Þeir eiga skilið
að vera lúbarðir,“ sagði C.P.N.
Singh, fyrrverandi varnarmálaráð-
herra.
Stuðningsmenn Kongress-
flokksins réðust á sunnudag inn á
fund helstu leiðtoga stjórnarand-
stöðunnar, en lögreglu tókst að
skakka leikinn og henda þeim út.
Pratap Singh segir að Bofors-
samningurinn hafi stefnt varnar-
hagsmunum landsins í voða, en það
kann að þjappa kjósendum að baki
stjórnarandstöðunni. „Þetta er mun
alvarlegra en venjuleg spilling. Ör-
eiginn kann að vera allslaus, en
hann hefur föðurlandsást.“
VEIÐIHJÓL OG
STANGIR
Fást í nœstu sportvöruverslun.
ERLENT