Morgunblaðið - 25.07.1989, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSHVTI/AIVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
Fundir
Nýjar leiðir við
lausn fjárlagahallans
Dr. Walter Goldstein á hádegis-
verðarfundi
STJÓRNUNARFÉLAG íslands í
samvinnu við Fjárlaga- og hag-
sýslustofiiun býður til hádegis-
verðarfiindar fimmtudag 27. júlí
næstkomandi með dr. Walter
Goldstein, stjórnsýslufræðingi,
þar sem hann mun ræða um nýj-
ar leiðir til að leysa flárlagahalla
Bandaríkjanna.
í frétt segir að dr. Walter Gold-
stein hefi lengst af verið prófessor
við Rockefelier College of Public
Policy hjá Fylkisháskólanum í Al-
bany, New York. Jafnframt hefur
hann verið ráðgjafi við fjölmörg
ríkisverkefni og hjá fyrirtækjum,
t.d. IBM, AT&T og Shell.
Dr. Walter Goldstein lauk B.Sc.
gráðu í hagfræði frá London School
og Economics, MA prófi frá North-
western University og doktorsprófi
frá Chicagoháskóla. Hann hefur
skrifað margar bækur um hagfræði
og skyldar greinar auk þess samið
fjölda tímaritsgreina.
Hádegisverðarfundurinn verður
haldinn í Kristalsal Hótels Loftleiða
og hefst kl. 12:15 og stendur til
kl. 14:00.
Handbók á ensku
um íslenskan útflutning
Morgunblaðið/Sverrir
SORPPRESSA — Sett hefur verið upp til prufu hjá Eimskip í Sundahöfn sorppressa af gerðinni
Bergmann. Innfiytjandi pressunnar er Sveinsson heildverslun. A myndinni sést Sveinn Kjartansson fram-
kvæmdastjóri Sveinssonar við sorppressuna. Sveinn telur að pressur sem þessi muni verða hagkvæmar fyr-
ir aðila sem mikið rusl fellur til hjá er tekið verður að innheimta gjald fyrir sorphreinsun eftir rúmmáli.
Sveinsson flytur einnig inn minni sorppressur.
Framsýn hf. hefur gefið út handbók á ensku um íslenskan útflutning
og ferðamál. Þetta er í annað sinn sem fyrirtækið sendir frá sér
handbók sem þessa, sú fyrri var fyrir árin 1987 til 1988 en þessi
fyrir 1989 til 1990. Bókin nefhist Éxport Directory of Iceland and
Tourism Guide 1989—90.
Breytingar frá fyrri útgáfu eru
helst fólgnar í því að uppsetning
bókarinnar og uppröðun íslenskra
útflutningsfyrirtækja hefur verið
einfölduð til að gera bókina þægi-
legri í notkun. Einnig fá ferðamál
meira rými en áður og er Reykjavík
til dæmis kynnt sem sérlega góður
kostur sem ráðstefnuborg að því
er segir í tilkynningu frá Framsýn.
Þá er sagt frá þeim ferðaskrifstof-
um sem bjóða upp á ferðir um
landið og tilboðum þeirra lýst. Að
auki eru í bókinni ýmsar tölfræði-
legar upplýsingar um Island, sam-
göngur til landsins, reglur um gjald-
eyrisviðskipti og fleira. Ráðherrar
utanríkismála, sjávarútvegs og iðn-
aðar skrifa formála í bókina.
Fyrri bókinni var dreift í gegnum
sendiráð og konsúlöt íslendinga
erlendis auk skrifstofa flug— og
skipafélaga. Þá aðstoðuðu Islend-
ingafélög, námsmenn og aðrir Is-
lendingar búsettir erlendis við dreif-
inguna. í ár er ætlunin að senda
bókina til sömu aðila og fengu fyrra
ritið. Auk þess verður henni dreift
til erlendra ferðaskrifstofa og versl-
unarráða.
Töskur
Pennin með einkaumboð
fyrir Delsey ferðatöskurnar
PENNINN sf. hefiur tekið við
einkaumboði fyrir Delsey ferða-
töskur á íslandi af Snyrtivörum
hf.
Delsey ferðatöskurnar eru
framleiddar í Frakklandi og í frétt
frá Pennanum segir að þær fáist
í verslunum um land allt. Delsey
var stofnað árið 1916 og fram-
leiddi í fyrstu aðeins töskur fyrir
ljósmyndavélar. Það var ekki fyrr
en 1970 sem fyrirtækið hóf fram-
leiðslu á ferðatöskum. Delsey mun
vera annað stærsta fyrirtækið í
Metsölublad á hwrjum degi!
töskuframleiðslu
er velta þess
dollara á ári.
um
heiminum og
100 milljónir
Fræðsla
Hugmyndir um stóreflmgu
innlends atvinnulífs
Upplýsingaþjónusta H.í. vill virkja miklu fleiri aðila í nýsköpun
UPPLÝSINGAÞJÓNUSTA Há- hefur verið lögð áhersla á upplýs-
skóla íslands hefur undanfarin ingar um fjármögnun og eflingu
tvö ár unnið að yfirgripsmikilli
upplýsingaöflun með það að
markmiði að stuðla að eflingu
atvinnulífs á Islandi. Aherslan í
þessu sambandi er einkum á ný-
sköpun er tengist hátæknigrein-
um og greinum á borð við upplýs-
ingaiðnað en önnur svið eru einn-
ig til athugunar. Hugmyndin að
baki þessu er sú að gera megi
stórátak í að efla innlent atvinnu-
líf með því að gera miklu fleiri
aðila virka í nýsköpun en nú er.
í frétt frá Upplýsingaþjónustu
Háskólans kemur fram að einkum
nýsköpunar, framtakssemi og ný
atvinnutækifæri. Hugmyndin er sú
að tengja þá upplýsingaöflun við
nám í HÍ í samvinnu við nemendur
og kennara allt eftir áhuga þeirra
og tilefni. Þá segir í fréttinni að
með þessu móti megi efla þekkingu
nemenda á því hvernig finna megi,
skapa, skilgreina, þróa og hrinda í
framkvæmd nýjum tækifærum til
framfara og nýsköpunar. Með því
að virkja þá sem búi yfir verulegri
sérþekkingu og hæfileikum til að
tileinka sér erlendar upplýsingar
megi örugglega efla til mun fjöl-
Fólk í atvinnulífinu
Breytingar á
yfírstjóm VíGlfells hf.
LÝÐUR Á. Friðjónsson hefiir
verið ráðinn framkvæmdastjóri
Verksmiðjunnar Vífilfells hf. en
nýlega voru gerðar nokkrar
Tölvufræðslan
Onnur bók á tveimur árum
um Macintosh
TÖLVUFRÆÐSLAN hefiir sent frá sér bókina „Macintosh" sem er
fjölþaítt handbók um notkun Macintosh-tölva og algengasta hug-
búnað sem notaður er við þær. Þetta er önnur bók Tölvufræðslunn-
ar um Macintosh, en vegna hraðra framfara í tölvuheiminum hefur
sú fyrri úrelst á tveimur árum. Bókin skiptist í 16 kafla sem hver
um sig Qalla1, um ema gerð hugbúnaðar og grunnþætti í notkun
hans. Þeirra á meðal eru forritin Hyper Card, Microsoft Word 3.0,
PageMaker 3.0, Microsoft Excel, Omnis og MacDraw II.
Höfundar bókarinnar eru tólf
talsins. í inngangsorðum segir Jón
R. Gunnarsson að tölvan Macintosh
hafi markað tímamót í sögu einka-
tölva þegar hún kom fram á sjónar-
sviðið árið 1984. Þau fólust fyrst
og fremst í því hversu auðvelt var
að læra að nota hana. Myndræn
framsetning kom í stað skipanaruna
og flókin handtök voru gerð auð-
veld með því að fela þau mús og
nýta myndtákn til hins ýtrasta.
Segir Jón það von útgefanda að
bókin gefi lesendum vísbendingu
um hentugt hugbúnaðarval, auð-
veldi byijendum verk við tölvuna
og veki áhuga þeirra sem ekki hafa
enn haft kynni af Macintosh.
breytingar á yfirsljórn fyrir-
tækisins.
Aðalfundur var nýlega haldinn
í Vífilfelli hf. og tengdum félögum,
að því er fram kemur í tilkynn-
ingu. Þar voru teknar ákvarðanir
um breytingar á yfirstjórn fyrir-
tækisins, samfara ákvörðun um
útgáfu jöfnunarhlutabréfa. Kristj-
án G. Kjartansson lætur af starfi
aðstoðarforstjóra Vífilfells hf. en
mun framvegis gegna formennsku
í stjórn Bjöms Olafssonar hf. sem
er eignarhaldsfyrirtæki Vífiifells
hf. Kristján sinnir einnig sérstök-
um ráðgjafarverkefnum á stjórn-
unarsviði.
Pétur Björnsson, sem verið hef-
ur forstjóri Vífilfells um árabil og
stjórnarformaður, verður nú
stjórnarformaður í fullu starfi.
Lýður Á. Friðjónsson, hefur eins
og áður segir verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
breytni þeirra atvinnutækifæra sem
menn muni skapa og nýta á kom-
andi árum.
Verslun
Frístundsf.
kaupir
vöruumboð
Nesco hf.
FRÍSTUND Rafeindatækni sf.
keypti nýlega vöruumboð sem
áður tilheyrðu NEsco hf. Þar
með yfirtók Frístund sf. þjónustu
við viðskiptavini Nesco svo og
ábyrgðarþjónustu sem Nesco
hafði með höndum og fleira.
Frístund Rafeindatækni er til
húsa að Skútuvogi 11 í Reykjavík
og í frétt segir að þær vörur sem
Nesco flutti inn, séu allar hjá
Frístund sf. Þá segir að Frístund
sf. verði fyrst og fremst heildversl-
un en verði með sýningarbás fyrir
vörurnar í Skútuvoginum.
Geisli hf. - nýtt
útgáfufélag
stofhað
ÚTGÁFUFÉLAGIÐ Geisli hf. var
stofiiað 25. apríl síðastliðinn. í
frétt frá félaginu segir að til-
gangurinn sé útgáfiistarfsemi og
innflutningur á hljómplötum.
Geilsi hefur keypt allan útgáfu-
rétt Gramm hf. og þegar liggur
fyrir útgáfusamningur við Bubba
Morthens. í tilkynningu segir að
Geisli vinni í samvinnu við Steinar
hf., sem sér um dreifingu á inn-
lendu sem erlendu efni Geisla.