Morgunblaðið - 25.07.1989, Síða 30
30*
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
Mikill Qöldi fólks fylgdist með flugdeginum á Akureyri, í blíðskap-
arveðri.
Flugdagurinn
heppnaðist vel
3-4 þúsund áhorfendur fylgdust með
GÍFURLEGA mikill mannfjöldi fylgdist með flugdeginum á Akur-
eyri, sem haldinn var á laugardag, og giskuðu aðstandendur
hans á, að um 3.000-4.000 gestir hefðu lagt leið sína á flugvallar-
svæðið milli klukkan tvö og sex, meðan dagskráin stóð yfir. Þótti
dagurinn heppnast alveg einstaklega vel, en sjö ár eru nú liðin
síðan flugdagur var síðast haldinn á Akureyri.
„Það komu miklu fleiri heldur
en við bjuggumst við, og eigum
við góða veðrinu það að þakka,“
sagði Bragi Snædal, einn forkólfa
flugdagsins, í samtali við Morgun-
blaðið í gær. Hann sagði hins
vegar að ekki væri alveg búið að
gera dæmið upp, og því ekki vitað
með vissu hver tekjuafgangurinn
yrði, þegar uppi væri staðið.
„Tekjuafgangur rennur svo í sjóð
Flugídúbbs Islands, sem stóð að
flugdeginum, og verður varið til
þess að byggja upp Melgerðismela
sem miðstöð sportflugs á Norður-
landi,“ sagði Bragi.
Á dgskrá flugdagsins voru fjöl-
mörg atriði; svo mörg að Bragi
sagði að í raun og veru hefði ver-
ið um yfirfulla dagskrá að ræða.
„Við tjölduðum öllu sem til var
og fengum m.a. Landhelgisgæsl-
una, Landgræðsluna og varnarlið-
ið til að vera með atriði. Ein-
hveijir gerðu það að gamni sínu
að giska á hvert verðmæti allra
véla og tælqa á svæðinu hefði
verið, og var niðurstaðan sú að
það væri líklega í kringum fjóra
milljarða króna. Þá var áhorfend-
um boðið upp á að sjá listflug,
fallhlífarstökk, módelflug og svif-
flug, auk þess sem sýnt var flug
á heimasmíðuðum flugvélum, og
Ómar Ragnarsson mætti til leiks
á Frúnni sinni,“ sagði Bragi að
lokum.
MorgunDiaoio/ iaua
Þessi gamla sviffluga vakti óskipta athygli á flugdeginum.
(Ó)fögnuð-
ur í Göngri-
götunni
ÝMSIR árar og púkar, ásamt
höfðingja sínum, fengu líf í
göngugötunni í gærdag, þegar
samnorræni leikhópurinn Fenris
var þar á ferð til að lífga upp á
bæjarlífíð. Munduðu þeir
„þríforka" sína að nokkrum ves-
ai’ingum, sem á vegi þeirra urðu,
og notuðu jafhframt tímann til
að auglýsa. Fenris sýnir í kvöld
í íþróttaskemmunni klukkan
20.30.
Morgunblaðið/KJS
Dalvík:
Loðdýra-
búið aug-
lýst til sölu
LOÐDÝRABÚIÐ á Böggvistöð-
um, sem tilheyrir þrotabúi Þor-
steins Aðalsteinssonar, hefur
verið auglýst til sölu. Þar á með-
al eru um 27.000 minnkar; 5.000
fullorðin dýr og 22.000 hvolpar.
Auk þess eru til sölu fasteignir
á Dalvík.
Helstu eignimar sem um er að
ræða eru 4.500 fermetra refaskáli
við Ytraholt og 300 fermetra kart-
öflugeymsla, svo og fimm minnka-
skálar ásamt aðstöðuhúsi að
Böggvistöðum. Þá eru einnig til
sölu tvær húseignir á Dalvík;
Mímisvegur 17 og Bjarkarbraut 3.
Brunabótamat þessara eigna var
um síðustu áramót um 180 milljón-
ir króna, en talið er að kröfur í
búið nemi um 190 milljónum.
Stærstu kröfuhafarnir eru Fram-
kvæmdasjóður íslands og Byggða-
stofnun, sem hvor um sig á vfir 20
milljón króna kröfu í búið, en þar
að auki á Landsbanki íslands vem-
legar inneignir í þrotabúinu. Aðrir
stórir kröfuhafar eru Fóðurstöðin á
Dalvík og Dalvíkurbær.
Blásara-
sveitin
hlaut gull-
verðlaun
í Hollandi
BLÁSARASVEIT Tónlistarskól-
ans á Akureyri hlaut gullverð-
laun í fyrsta flokki áhugamanna
á heimsmóti blásarasveita, sem
haldið var í Kerkrade í Hollandi
og lauk um helgina. Þátttakend-
ur í mótinu, sem haldið er á §ög-
urra ára fresti, voru frá 28 lönd-
um, en þetta er í fyrsta sinn sem
islensk blásarasveit er á meðal
keppenda.
„Þetta er mesta viðurkenning
sem Blásarasveit Tónlistarskólans
hefur hlotnast, og er ég ákaflega
stoltur af henni,“ sagði Jón Hlöð-
ver Áskelsson, skólastjóri Tónlist-
arskólans á Akureyri, þegar hann
var inntur eftir hlut íslensku kepp-
endanna í heimsmótinu. Sagði
hann að sveitin hefði fengið 291
stig af 350 mögulegum, fyrir flutn-
ing sinn, en sveitin flutti mjög er-
fitt verk, og hafði einungis tvo
mánuði til að æfa það.
íslenska sveitin var eina skóla-
hljómsveitin sem þátt tók í mótinu,
og auk þess var hún skipuð yngstu
keppendum mótsins, en uppistaðan
í henr.i em krakkar og unglingar
á aldrinum 12-20 ára, sem em við
nám í skólanum. Einnig vom
nokkrir af eldri nemendum skólans
með í för, svo og kennarar, og léku
þeir með sveitinni.
„Þessi árangur er viðurkenning
fyrir margra ára vinnu og jafn-
framt hvatning fyrir skólann. Þá
er þetta ekki síður mikil hvatning
fyrir nemendur, sem allir hafa lagt
mikið á sig, en allir eiga þeir að
baki yfir fjögurra ára nám við
Tónlistarskólann," sagði Jón Hlöð-
ver Áskelsson, skólastjóri, að lok-
um.