Morgunblaðið - 25.07.1989, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JULI 1989
Stjörnu-
speki
Umsjón: Gunnlaugur
Guðmundsson
Merkúr
I dag er röðin komin að Merk-
úr í lokayfirliti okkar um
helstu þætti stjörnuspekinnar,
afstöður, hús, plánetur og
merki.
Hugsun og
hreyfileikni
Merkúr er táknrænn fyrir rök-
hugsun, máltjáningu og margs
konar miðlun. Hann stjórnar
taugakerfinu og taugaboðum
og tengist því á vissan hátt
hreyfileikni og líkamlegri
snerpu. Hendur og handlagni
og líkamleg fimi, ekki síður
en vitsmunaleg, einkennir þá
sem hafa Merkúr sterkan í
korti sínu.
• Umferðarskilti
Merkúr er táknrænn fyrir þau
tæki sem við notum til tjá-
skipta, s.s. tungumálið, ritmál
og alls konar táknkerfí og
táknmyndir, m.a. auglýsinga-
spjöld og umferðarskilti.
Tvíburi/Meyja
Merkúr stjómar Tvíbura og
Meyjarmerkinu og 3. og 6.
húsi. Þegar sagt er að ákveðin
pláneta stjómi merki eða húsi
er átt við að eðli hennar sé
líkt og samsvarandi eðli merk-
isins og hússins. Þessa líkam-
legu og vitsmunalegu snerpu
sem getið var um hér að fram-
an má því oft sjá hjá fólki í
Tvíbura' og Meyjarmerkinu.
Merkúr er einnig sterkur þeg-
ar hann er Rísandi í stjömu-
korti eða á Miðhimni. Ef allar
eða flestar spennuafstöður í
ákveðnu korti myndast við
Merkúr er einnig hægt að
segja að hann sé sterkur.
Sendiboði guðanna
í goðafræðinni er Merkúr
sendiboði guðanna. Hann var
einnig guð vega, ferðalanga
og stigamanna.
Gagnrýni og
tungumál
Hæfileikar Merkúrs liggja á
sviði rökhugsunar. Það táknar
að fólk sem hefur hann sterk-
an hefur tungumálahæfileika
og á auðvelt með að sundur-
greina mál í einingar, era
ágætir gagnrýnendur og geta
notið sín í fræðimennsku
margs konar.
Handverk
Iðnaðarmenn og aðrir sem
nota hendumar mikið við
vinnu sína, s.s. teiknarar, hafa
Merkúr einnig sterkan.
Upplýsingamiðlun
Önnur hlið á Merkúr tengist
tjáskiptum og upplýsingamiðl-
un. Blaðamenn, rithöfundar,
túlkar, þýðendur og þeir sem
svara í slma hafa sterkan
Merkúr.
Flutningar og
akstur
Fólk sem vinnur við flutninga
og akstur flokkast einnig und-
ir áhrifasvið Merkúrs. Það má
segja að miðlun hans sé
víðtæk, nái frá flutningi
taugaboða og hugmynda yfir
í það að flytja t.d. píanó eða
stóra vöragáma. En alls staðar
er það sama að baki, eða
hreyftng. Merkúri fylgir því
eirðarleysi og þörf fyrir stöð-
uga hreyftngu. í einstaka til-
vikum leiðar það • til tauga-
veiklunar. Fólk sem hefur
hann sterkan þarf því að
hugsa vel um taugakerfi sitt.
Verslun og viðskipti
Að lokum má síðan geta þess
að öll verslun og viðskipti
margs konar falla undir Merk-
úr, enda byggir kaup og sala,
á miðlun vöru frá einum stað
til annars. Bílasalinn málgefni
er að sjálfsögðu með sterkan
Merkúr, sem og sölumaður
hljómflutningsgræjanna sem
útskýrir fjálglega öll nýju
tækniundrin sem hin stórkost-
lega vara hans býr yfir.
GARPUR
LJÓSKA
FERDINAND
I UKE TO UIATCH THE>
BIRP5 FLYIN6 50UTH
FOK THE
Mér fínnst gaman að sjá fuglana
fljúga suður fyrir veturinn.
Ég dáist að því hvemig þeir fljúga
allir saman.
BRIDS
Umsjón: Guðm. Páll
Arnarson
Þegar aðeins er horft á spil
NS lítur út fyrir að það sé góður
sigur í sögnum að stansa í
spaðabút. Geimið er vont, því
sagnhafi má engan slag gefa á
tromp og aðeins einn á hjarta.
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
♦ 4
¥ G7654
♦ ÁG1063
*D3
Vestur
♦ 106
¥ D82
♦ KD52
♦ K1087
Austur
♦ D52
¥ K3
♦ 974
♦ Á9642
Suður
♦ ÁKG9873
¥ Á109
♦ 8
+ G5
En það er freistandi að reyna
geimið og það gerðu flest NS-
pörin á EM í Turku,_ almennt
með góðum árangri. í leik Is-
lands og Austurríkis spiluðu
Þorlákur Jónsson og Guðm. P.
Arnarson 2 spaða og töldust
góðir, allt fram að samanburði.
Hinum megin höfðu Austurríkis-
mennimir keyrt í flóra spaða.
Útspilið var hjarta, sem leysti
hálfan vandann, og síðan þurfti
aðeins að svína fyrir spaða-
drottningu.
í leik Finna og Svía spiluðu
bæði pörin 4 spaða. Tígulkóng-
urinn kom út gegn Sundelin.
Hann valdi bestu leiðna þegar
hann spilaði strax hjarta á tíuna
og reyndi svo að fella spaða-
drottninguna. Sem gekk ekki.
Hinum megin hafði Flodquist
í austur skotið inn laufsögn og
því kom vestur þar út. Flodquist
leist ekki á tígullitinn í blindum,
táldi nauðsynlegt að hirða slagi
varnarinnar strax og spilaði
hjartakóng. Einni svíningu síðar
gátu NS skrifað 620 í sinn dálk.
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
Á alþjóðlegu kvennaskákmóti f
Sochi í Sovétrfkjunum í vetur kom
þessi staða upp f skák þeirra önnu
Akhsharumovu, sem hafði hvftt
og átti leik, og Heintze, A-Þýzka-
landi.
1S. RcxdSI? - cxd5, 16. Rxd5 -
Dc6 (Tapar strax, en 16. — Dd6,
17. Bxf5 - Dxd5, 18. Bxc8 var
einnig vonlaust) 17. Bb5! og
svartur gafst upp, þvf hann tapar
drottningunni. Akhsharumova
hefur nú flutst til vesturlanda-
ásamt eiginmanni sfnum Boris
Guljko. Má búast við þvf að þau
verði tiðir gestir á skákmótum á
næstunni, því fyrir austan fengu
þau fátækifæri.