Morgunblaðið - 25.07.1989, Síða 37
MORGUNBLÁÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
H37
Svava Þórarins-
dóttir — Minning
Fædd 29. maí 1917
Dáin 17. júlí 1989
Mig langar að segja nokkur
kveðjuorð um tengdamóður mína,
Svövu Þórarinsdóttur, sem lagt hef-
ur í ferðina löngu til feðra sinna
eftir að hafa háð baráttu við sjúk-
dóm þann sem bar hana ofurliði.
Svava var sú manngerð sem-aldr-
ei kvartaði og gerði alla tíð lítið úr
sínum veikindum því hún viidi ekki
ónáða aðra með því sem að henni
steðjaði.
Hún lifði fyrir það að hugsa um
aðra og taka vel á móti þeim sem
sóttu hana heim og það geta þeir
tekið undir sem henni kynntust.
Svava fæddist í Kollsvík í Rauða-
sandshreppi, Barðastrandarsýslu,
þann 29. maí 1917, dóttir hjónanna
Guðmundínu Einarsdóttur og Þór-
arins Bjarnasonar sem bæði eru
látin. Hún var sjöunda í röðinni af
tólf systkinum.
Ári áður en hún fermdist fluttist
hún með fjölskyldu sinni til Patreks-
fjarðar þar sem hún bjó þar til hún
fór, 17 ára gömul, til Reykjavíkur
vegria þess að litía vinnu var að
hafa fyrir vestan, nema þá á sumr-
in.
Hún hóf störf sem stofustúlka,
sem kallað var, hjá Jónasi Sveins-
syni lækni sem hún bar mikla hlýju
til enda reyndust þau hjónin henni
mjög vel, sem er mjög mikilvægt
fyrir unga stúlku sem fer langt frá
föðurhúsum til vinnu. Þar næst hóf
hún störf hjá Dósaverksmiðjunni
sem móðurbræður hennar ráku.
í Reykjavík kynntist Svava eftir-
lifandi eiginmanni sínum, Valgeiri
Sveinssyni skósmið frá Seyðisfirði.
Með honum eignaðist hún fjögur
börn sem eru Olafía Eva, var gift
Sveinbimi Ársælssyni, sem látinn
er, og eignaðist með honum soninn
Hlyn Þór. Næstur í röðinni er
Sveinn, kvæntur Ásdísi Sigurðar-
dóttur og eiga saman fimm börn,
Ægi Örn, Valgeir, Helga Frey og
tvíburadætumar Öldu Mjöll og Evu
Dögg. Þar næst Þórarinn sem
kvæntur var Stellu Meyvantsdóttur
og eiga þau saman soninn Sigurð,
og síðust í röðinni er Guðlaug, gift
undirrituðum og á soninn Stefán
Baldvin og dótturina Hildi. Svava
eignaðist því níu barnabörn sem
hún unni miklum ástum. Þau fundu
því vel hversu góða ömmu þau áttu
og er því missirinn mikill fyrir þau
sem alltaf voru velkomin til henn-
ar, en það er mikil huggun fyrir
þau að hafa áfram Valgeir afa sem
hefur ekki síður reynst þeim góður
og ástkær afi.
Seinustu árin hrakaði heilsu
Svövu en hún reyndi að láta ekki
mikið á því bera, slíkur var dugnað-
ur hennar.
Svava lést á heimili sínu, eins
og ósk hennar hafði verið, þann 17.
júlí.
Valgeir minn, sem var henni stoð
og stytta og hlúði vel að henni
veikindum hennar, missir þinn er
mikill en styrkur þinn og ást barna
þinna og barnabama til þín munu
styðja þig á ókomnum árum.
Með þessum orðum kveð ég ást-
kæra tengdamóður mína og ég
þakka henni fyrir þau ár sem ég
þekkti hana. Megi hún hvíla í friði.
Stefán Andrésson
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðal-
stræti 6, Reykjavík og á skrif-
stofú blaðsins í Hafharstræti
85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara.
Nokkur kveðjuorð til okkar hjart-
kæru systur, sem svo snögglega var
hrifin á brott frá okkur. Hún hafði
um tveggja ára skeið gengið með
þann sjúkdóm er nú lagði hana af
velli. Þó hún hafi oft verið illa hald-
in bar hún sjúkdóm sinn með ein-
stöku æðruleysi.
Svava fæddist í Kollsvík í Rauða-
sandshreppi, dóttir hjónanna Guð-
mundínu Einarsdóttur frá Stekka-
dal og Þórarins Bjarnasonar frá
Kollsvík. Þar bjuggu foreldrar okk-
ar til ársins 1930 en fluttu þá til
Patreksfjarðar. Tólf vorum við
systkinin, en þijú dóu ung, fjögur
eru enn á lífi.
Við systkinin eigum svo ótal-
margar kærar minningar um Svövu
sem aldrei gleymast. Þó fátækt
hafi verið mikil á æskuheimili okk-
ar, hrannast nú upp hugljúfar
myndir af foreldrum okkar sem
gáfu okkur svo mikið af andlegum
auð. Sú sparsemi, nýtni og nægju-
semi sem okkur var kennd reyndist
ekki síst Svövu gott veganesti, því
hennar starfsvettvangur í lífinu var
heimili hennar. Heimilið var hennar
heimur og ætíð var hún til staðar
að hlúa að sínu fólki. Oft átti hún
við vanheilsu að stríða, en ekki var
kvartað, slíkt var æðruleysið. Hún
naut þess að eiga hjálpsaman eigin-
mann, Valgeir Sveinsson, skósmið,
frá Seyðisfirði. Þau eignuðust fjög-
ur mannvænleg börn, þau eru Ólaf-
ía Eva, Sveinn, Þórarinn og Guð-
laug. Barnabörnin eru átta og voru
öll stolt ömmu sinnar og er söknuð-
ur þeirra því mikill. Heppin var hún
með börnin sín og sýndu þau henni
mikla alúð og hlýju í veikindum
hennar.
Við eigum mikið að þakka þeim
hjónum Svövu og Valgeiri. Heimili
þeirra stóð okkur alltaf opið og
börnum okkar, sem gjarnan færðu
sér í nyt gestrisni þeirra og um-
hyggju á uppvaxtarárum sínum.
Þau minnast nú Svövu með mikilli
hlýju.
Við biðjum Guð að blessa minn-
ingu Svövu systur okkar og þökkum
samfylgdina. Valgeiri, börnum,
tengdabörnum og barnabömum
sendum við okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Systkini
HIMINN, HAF OG CAF
Café Noir er kaffið sem þú nýtur á unaðsstundum, með þeim
sem þér er annt um.
Café Noir er kaffi með mýkt og fyllingu.
Café Noir er blandað úrvalskaffi frá bestu kaffisvæðum heims.
Café Noir frá Merrild
Kaffið fyrir lífsins stjörnustundir.