Morgunblaðið - 25.07.1989, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR *25’. JÚLÍ 1989
39
Minning:
Þórdís Einarsdóttir
Fædd5. janúarl912
Dáin 16. júlí 1989
Fréttin af andláti ástvinar slær
mann hljóðan. Jú, víst var aðdrag-
andi en þegar fréttin svo kom þá
stóð tíminn í stað.
Hún Dísa amma er farin. Fyrst
kom dofinn og allar minningarnar.
Söknuður, tregi og gleði í bland.
Já, gleði yfir því að nú er þjáning-
um ömmu lokið.
Hjá ömmu var alltaf gott að
vera og það var jafnan mikil til-
hlökkun að fá að koma til hennar.
Við frænkurnar áttum margar
gleðistundirnar hjá Viggó afa og
Dísu ömmu í Hrannargötunni og
seint gleymast hlátrasköllin úr eld-
húsinu. Amma átti nóg hjartarúm
fyrir alla og mátti ekkert aumt sjá
og sást það best á því að alltaf
átti amma matarbita handa hrafn-
inum sem settur var á „steininn“
niðrí fjöru. Já, „Guð launar fyrir
hrafninn" var sagt og það er víst
að nú fær amma sín laun.
Það voru alltaf börn í kringum
afa og ömmu því þau voru barn-
góð mjög eins og flest börn þeirra
tima á Isafirði muna.
Eftir að afi svo dó fluttist amma
í Kópavoginn og áttum við þar
margar góðar helgar áður en
heilsu hennar fór að hraka fyrir
alvöru. Við mælum örugglega fyr-
ir hönd þeirra sem til þekktu að
það er mikill missir að þeim hjón-
um.
Guð blessi ömmu okkar.
Anna Þórdís og Ásta Þórdís
Jóna Þórdís Einarsdóttir var
fædd á Hafrafelli í Skutulsfirði.
Foreldrar hennar voru húshjón
þar, Einar Jensson og kona hans
Guðrún Ámadóttir.
Þórdís var snemma tekin í fóst-
ur af sæmdarhjónunum Sigríði
Jónatansdóttur og Sigurði Árna-
syni er þá munu hafa búið í Engid-
al en bjuggu á Kleifum í Seyðis-
firði 1921—1925 er- Sigurður
veiktist snögglega og lést viku
síðar á sjúkrahúsinu á ísafirði.
Eg sem þessar línur rita var smali
hjá þessum hjónum á Kleifum og
voram við Dísa jafnaldra. Við átt-
um því margar stundir saman,
bæði í námi og við störf. Dísa var
einstaklega geðprúð og góður fé-
lagi. Stundum sátum við yfir fé
eftir fráfærar, undum við sól og
regn úti í grænum hlíðum. Stund-
um var veður risjótt og regnið
vætti hveija spjör svo ekki var
þurr þráður á smölunum, en ef
sólin skein og ijöllin spegluðust í
lygnum firðinum var einhver ólýs-
anleg fegurð í allri tilverunni og
ilmur af grasi og blómum, lyngi
og fjalldrapa fyllti vitin og jarm-
andi ær dreifðu sér um grænan
hagann. Margt annað veitti berns-
kunni unað og saklausa gleði. All-
ir sem lifað hafa börn í sveit, hafa
kynnst hamingjunni. '
Sigríður ekkja Sigurðar á Kleif-
um, gat ekki til þess hugsað að
dvelja á Kleifum eftir lát Sigurðar
og flutti því um haustið 1925 til
Péturs bróður síns er þá bjó með
móður sinni í Neðri-Engidal í
Skutulsfirði. Þangað fór Þórdís
með Sigríði ásamt undirrituðum
og tveim ungum kjörbörnum hjón-
anna. Var þá nokkuð þröngt í
baðstofunni þar. Þórdís var svo á
vegum Sigríðar til 16 ára aldurs
en eftir það sá hún um sig sjálf,
átti þá lengi heima hjá Þórunni
móðursystur sinni í Krók á ísafirði.
Þórunn var gift Sveinbimi Helga-
syni íshússtjóra á ísafirði. Ung
eignaðist Þórdís dóttur með Guð-
mundi Franklín Gíslasyni skip-
stjóra í Reykjavík. Foreldrar Guð-
mundar vora frá Breiðafirði og af
Arnardalsætt, bæði. Dóttir þeirra
er Sveinbjörg, f. 8. júlí 1931 gift
Gunnari Guðna Sigurðssyni vél-
virkja í Kópavogi. Sveinbjörg á 5
börn.
10. desember 1942 giftist
Þórdís á ísafirði Viggó Guðjóns-
syni netamanni og síldarútvegs-
manni, áttu þau lengi heima á
Hrannargötu 10 á ísafirði og ólu
þar upp börn sín fjögur. Þegar
Þórdís var orðin húsmóðir kom
fljótt í ljós hversu góð kona hún
var og svo gestrisin var hún að
segja mátti að þar væri jafnan
opið hús gestum og gangandi.
Annaðist Þórdís börn sín með
mestu prýði og kenndi þeim
mannasiði svo að jafnan hafa þau
borið móður sinni góðan orðstír.
Strax í bernsku bar á því að
Þórdís væri skyggn og fengi ýmis-
legt augum litið er öðram var
hulið. Þegar hún varð eldri hvarf
þetta og var hún því fegin því
sumt er hún sá var ekki geðfellt.
Ég var stundum með henni á Kleif-
um og I Engidal þegar hún sá
fólk sem ég sá ekki utan einu
sinni, en ekki skal þess getið hér.
Þórdís var lagvís og söng oft við
vinnu sína, enda jafnan mikil ró
yfir henni og svipurinn lýsti innri
sálarró.
Á ísafirði bjuggu þau hjón þar
til Viggó veiktist alvarlega og varð
að fara suður til að leita sér lækn-
inga. Flutti Þórdís í Kópavog og
bjó þar síðan í Skólagerði 61. Þar
átti hún íbúð í húsi bama sinna.
Börn Þórdísar og Viggós era:
Guðjón búsettur í Keflavík, á 2
börn, Guðmundur búsettur í Hafn-
arfirði kvæntur Öldu Garðarsdótt-
ur, eiga 4 börn, Guðrún gift í
Kópavogi, sjúkraliði. Maður henn-
ar er Jóhann Ólafsson, eiga 2 börn.
Sælaug sjúkraliði gift Viðari
Magnússyni frá Miðfelli í Hrana-
mannahreppi. Þau eru búsett í
Gnúpveijahreppi, eiga 4 börn.
Viggó Guðjónsson maður
Þórdísar var fæddur 10. desember
1902, dáinn 24. október 1976.
Foreldrar hans voru Guðjón Luð-
vig Jónsson gullsmiður og hafn-
sögumaður á Isafirði af Arnardals-
ætt og kona hans Helga Valgerður
Ólafsdóttir Magnússonar af
þekktri ætt í Önundarfirði. For-
eldrar Einars, föður Þórdísar, vora
Jens Kolbeinsson frá Galtarhrygg
í Mjóafirði og konu hans Sigríðar
Bjarnadóttur frá Minni-Bakka í
Skálavík. Foreldrar Kolbeins vora
Magnús Kolbeinsson húsmaður á
Garðsstöðum í Ögursveit og kona
hans Friðlaug Ingimundardóttir.
Kona Kolbeins á Galtarhrygg var
Guðbjörg Einarsdóttir frá
Þernuvík, Jónssonar Bárðarsonar
ríka í Arnardal. Frá Bárði er Arn-
ardalsætt.
Guðmundur Guðni
Guðmundsson
í dag er ég kveð ástkæra
tengdamóður mína er mér efst í
huga þakklæti fyrir að hafa kynnst
henni og þeim hjónum, en tengda-
faðir minn lést 24. október 1976.
Þær samverustundir sem við átt-
um og sá kærleikur ást og um-
hyggja sem hún bar fýrir fjöl-
skyldu sinni og vinum er okkar
öllum dýrmætur sjóður og þá
tryggð sem hún hélt við ísafjörð
þótt henni auðnaðist ekki að fara
þangað oft vegna heilsubrests. Við
geymum minninguna um móður,
tengdamóður, ömmu og
langömmu í hjörtum okkar. Ég
kveð hana með þessum fallega
sálm:
Kallið er komið,
komin er nú stundin,
vinaskilnaður viðkvæm stund.
Vinimir kveðja
vininn sinn látna
er sefur hér hinn síðsta blund.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregátárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og ailt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
Blessuð sé minning hennar.
Tengdadóttir
Legg ég nú bæði líf og'önd,
ljúfí Jesús í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(H. Pétursson)
Nú hefur elsku Dísa amma sem
okkur þykir svo vænt um, kvatt
þennan heim, eftir langa sjúkra-
legu. Söknuðurinn er mikiil, en við
vitum að þetta var best. fyrir hana
og nú líður henni vel.
Við minnumst hennar helst fyr-
ir hversu iðjusöm og gefandi hún
var. Alltaf þurfti hún að vera að
og kunni þá best við sig í eld-
húsinu. Ávallt þegar við komum í
heimsókn biðu okkar nýsteiktar
kleinur og ástarpungar eins og
henni einni var lagið.
Við minnumst hennar með mikl-
um söknuði og þökkum fyrir þær
stundir sem við höfum átt með
henni.
Hin langa stund er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans' nótt.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er gengin,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir. þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja,
og gott er allt, sem Guði’ er frá.
i
Nú héðan lík skal hefja,
ei hér má lengur tefja
í dauðans dimmum val.
Ur innri harms og hryggða
til helgra ljóssins byggða
far vel í Guðs þíns gleðisal.
(V. Briem.)
Guð blessi Dísu ömmu okkar.
Vigdís og Helga Björk
Póstur og sími selur aðeins það besta og
vandaðasta og er jafnframt ávallt til taks
þegar þú þarft á þjóriustu að halda. Nýi
farsíminn og myndsenditækin frá Pósti og
síma eru frábrugðin öðrum tækjum, bæði í
útliti og tæknilegum eiginleikum og svo er
verðið alveg ótrúlegt.
CETELCO er farsími sem með ótal
nýjungum sannar yfirburði sína á flestum
sviðum. CETELCO farsímann er einnig
hægt að nota sem venjulegan borðsíma.
NEFAX myndsenditækin fást í tveimur
mismunandi stærðum og bjóða upp á
fjölmarga tæknilega möguleika sem flest
önnur myndsenditæki geta ekki státað af
eins og innbyggðum símsvara.
Komdu og kynntu þér þessi harðskeyttu
hörkutól nánar. Það á margt eftir að koma
þér á óvart.
PÓSTUR OG SÍMI
Póst- og símstöðvar um land allt og söludeildir
Kringlunni, Kirkjustræti og Ármúla 27
Ný horhutól
með traustan
bohhjarl
Farsími:
Verð frá 95.800 kr. stgr.
Nefax:
Verð frá 99.800 kr. stgr.