Morgunblaðið - 25.07.1989, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
45
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
u. JrW ’U If
Þessir hringdu ..
Fækka verður sel
G.S. hringdi:
„Það er mikið áhyggjuefni hve
sel fjölgar ört við landið og er
þetta mikil ógnun við aðal auðlind
okkar. Ég tel að gera verði ráð-
stafanir til að fækka selnum veru-
lega ef ekki á illa að fara. Ekki
verður annað séð en nú sé hér í
uppsiglingu mikill samdráttur og
er ástæðan fyrst og fremst sú að
minni afli berst á land en áður.
Eins og ástandið er duga engin
vetlingatök heldur verður að gera
allt sem í mannlegu valdi stendur
til að vemda fiskinn í sjónum.“
Talnaleikur
Á.F. hringdi:
Fyrir skömmmu barst mér
skrautprentaður bæklingur. frá
hinu nýstofnaða Vátryggingafé-
lagi íslands hf. sem varð til við
sameiningu Samvinnutrygginga
og Brunabótafélagsins. Þar er
gefið í skyn að viðskiptavinir
hagnist á sameiningunni en rök-
semimar fyrir því virðst mér út í
hött. Lagður er saman sá afslátt-
ur sem viðskiptavinir geta notið
í 11 ár og sagt að þeir fái 525
prósenta afslátt samanlagt! Hvað
þýðir svona talnaleikur? Við-
skiptavinir Samvinnutrygginga
munu að minnsta kosti tapa á
sameiningunni því nú fá þeir ekki
tíunda árið iðgjaldsfrítt lengur
nema þeir sem tryggt hafa þar í
ifíu ár eða lengur. Þessi skraut-
prentaði bæklingur hlýtur að hafa
verið dýr. Hefði ekki verið nær
að sleppa þessari útgáfu og reyna
frekar að lækka iðgjöldin eitt-
hvað? Það hefði áreiðanlega kom-
ið sér betur fyrir viðskiptavinina.“
Köttur
Svartbröndóttur köttur hefur
verið í óskilum í Seli í Grímsnesi
síðan í vor. Eigandi hans er beð-
inn að hringja í síma 98-64441.
Rúskinnsjakki
Svartur rúskinnsjakki tapaðist
í Tunglinu laugardaginn 1. júlí.
Finnandi er vinsamlegst beðinn
að hringja í síma 83847.
Hjól
Gyllt BMX hjól með svörtum
plastbrettum og bláum lás festum
á stýrið var tekið af dreng við
Iðanaðarbankann í Breiðholti.
Þeir sem kynnu að hafa orðið vitni
að atvikinu eða vita hvar hjólið
er niður komið em vinsamlegast
beðnir að láta lögregluna vita.
FjallalúfTur
Fjallalúffur töpuðust í göngu-
ferð á Esju 10. júní, annað hvort
á fjallinu eða í bíl sem eigandinn
fékk far með í bæinn. Finnandi
er vinsamlegast beðinn að hringja
í Sigurð í síma 83839.
Kettlingur
Gullfallegur vel vaninn sjö
vikna gamall kettlingur fæst gef-
ins í Keflavík. Upplýsingar í síma
14520.
Sérstak-
ar brautir
fyrir hjól-
reiðafólk
Kæri Velvakandi.
Ég vil taka undir með þeim sem
skrifað hafa um hjólreiðar og bent
á hversu lítið hefur verið gert fyrir
hjólreiðafólk hér í borg. I borgum
erlendis em víða sérstakar brautir
með akvegum sem eingöngu em
ætlaðar hjólandi vegfarendum. Er
ekki tímabært að leggja slíkar
brautir hér eða finnst mönnum
mengunin frá bílunum bæta and-
rúmsloftið eða hávaðinn frá þeim
láta vel í eyrum? Minna yrði um
slys ef bílum fækkaði og hjólreiða-
mönnum fjölgaði. Það er rétt að
stórhættulegt er að hjóla í umferð-
inni og hef ég reynslu fyrir því.
Grímur
Skrifið eða hringið til
Yelvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til — eða
hringja miili kl. 10 og 12, mánu-
daga til föstudaga, ef þeir koma
því ekki við að skrifa. Meðal efnis,
sem vel er þegið, eru ábendingar
og orðaskiptingar, fyrirspumir og
frásagnir, auk pistla og stuttra
greina. Bréf þurfa ekki að vera
vélrituð, en nöfn, nafnnúmer og
heimilisföng verða að fylgja öllu
efni til þáttarins, þó að höfundur
óski naftileyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina þvi til lesenda blaðsins utan
höfuðborgarsvæðisins, að þeir láti
sinn hlut ekki eftir liggja hér i
dálkunum.
Höfum opnað tannlæknastofu á HELLU, Suður-
landsvegi 3.
Viðtals- og tímapantanir þriðjudaga og fimmtu-
daga frá 09-17 í síma 75311.
Jóhann Guðmundsson tannlæknir,
Jónas B. Birgisson tannlæknir.
■ I LD *
STAÐREYND!
stórkekkað verð á
takmörkuðu magni...
180 Itr. kælir + 70 Itr. frystir 285 Itr. kælir + 70 Itr. frystir
B: 59,5 cm D: 62,1 cm B: 59,5 cm D: 62,1 cm
H: 126,'5-135,0 cm (stillanleg) H: 166,5-175,0 cm (stillanleg)
198 Itr. kælir + 146 Itr. frystir
B: 59,5 cm D: 62,1 cm
H: 166,5-175,0 cm (stillanleg)
iiú aðeins nú aðeins nú aðeins
43.900 54.900 59.900
(stgr. 41.705) (stgr. 52.155) (stgr. 56.905)
GÓÐIR SKILMÁLAR, TRAUST ÞJÓNUSTA
3JA ÁRA ÁBYRGÐ
>FOniX
HÁTÚNI 6A SÍMI (91)24420
Pústkerfi úr
Iryðfríu gæöastáli
í flest ökutæki
Nýtt
Islandi
Framleiðsla er nú hafin á pústkerfum úr
ryðfríu gæðastáli í flestar gerðir ökutækja
og bifreiða. Komið eða hringið og kynmð
ykkur pústkerfin sem endast og endast.
5 ára ábyrgð
á efni og vinnu.
Hljoúdeyfikerfi hí
STAPAHRAUNI 3 HAFNARFIRÐI
SÍMI 652 777
EB. NÝR DAGUR- SÍA