Morgunblaðið - 25.07.1989, Síða 46
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
46
Að vera firjáls eins og fuglinn
marga valmöguleika í jöklaferð-
um. Hægt er að fá ferðir sem taka
nokkra tíma og upp í nokkra daga.
í styttri ferðunum er farið á jökul-
inn að morgni, farið í stutta ferð
inn á jökulinn þar sem ferðalöng-
um gefst kostur á að virða stór-
brotið útsýnið fyrir sér og síðan
er haldið til baka seinni hluta dags.
Margra mannhæða háir ísdrang-
ar fljóta um á jökullóninu.
7Í ferð um ævintýraheim Skálafellsjökuls
ÞAÐ ER erfitt að ímynda sér það að óreyndu hversu hrikalegt
og töfrandi það er að stíga fæti sínum á Vatnajökul. Finna fyrir
þeim ógnarmætti sem í honum býr og hversu smár maðurinn er
í raun. Tíminn flýgur og allt tímaskyn brenglast. Þú verður einn
en þó í félagi við jökulinn, sólina og landslagið í kring. Það er
óskaplega afslappandi að þeysast eftir hjarnbreiðunni á kraftmikl-
um vélsleða, framundan er endalaus jökullinn, að því er njanni
virðist, en til beggja handa hrikaleg Qöll og dalir, stórfenglegt
útsýni. Hreint loftið leikur um vitin og það hvín örlítið í á ferð-
inni. Tíguleg hjarnbreiðan veltur undir sleðann og það er líkast
því að maður svífi á skýjabreiðu, frjáls eins og fúglinn. Það er
stórkostlegt, eftir að hafa þeyst um ísbreiðuna, að drepa á vél
'^sleðans og hlusta á þögnina sem ríkir þarna uppi. Ekkert rýfúr
kyrrðina nema andvarinn sem leikur um. Enginn fúglasöngur,
sjávar- eða árniður, ekkert vélahljóð eða neitt annað truflar. Þögn-
in er allt að því ógnvekjandi, en hún er mál jökulsins og það er
það mál sem ferðalangurinn er kominn til að tala ef hann heimsæk-
ir jökulinn. Blaðamaður Morgunblaðsins fékk að kynnast þessum
ævintýraheimi fyrir skömmu þegar Ferðamálaráð Islands bauð til
ferðar á jökulinn með Jöklaferðum hf. á Höfh í tilefni af 25 ára
aftnæli ráðsins. <
^ Stórbrotin náttúra
Að morgni var haldið áleiðis til
Hafnar í Hornafirði með vél frá
Leiguflugi Sverris Þóroddssonar.
Lágskýjað var þar til komið var
austur fyrir Fagurhólsmýri. Þá
' -flugum við mót sól og heiðum
himni. Frá Höfn var haldið ra-
kleitt í átt til Skálafellsjökuls, sem
er skriðjökull úr Vatnajökli, en á
hann var ferðinni heitið. Ekið var
með rútu, stórbrotna leið, upp að
jökulröndinni í 850 metra hæð.
Þar biðu farartæki þau sem nota
átti í ferðinni um jökulinn, snjó-
bílar og snjósleðar.
Haldið var að skála þeim sem
Jöklaferðir hf. hafa reist á jöklin-
jim. Þar var snæddur hádegisverð-
'Tfr, „kalt borð“, en síðan var hald-
ið í skoðunarferð á jökulinn. Farið
var á Birnudalstinda en stórbrotið
útsýni blasti við þegar þangað var
komið. Strandlengjan frá Ingólfs-
höfða að Eystra Homi á aðra
hönd, Hvannadalshnjúkur, um-
vafinn skýjaslæðu, fjöll og dalir
að ógleymdri endalausri snjóbreið-
unni á hina. Útsýni sem hrífur
hvem þann er sér. Undur og feg-
urð stórbrotinnar, óspilltrar nátt-
úru íslands í sinni bestu mynd.
Eftir dvölina á Birnudalstindum
var ekið áfram um jökulinn. Um
hæðir og dali og stoppað annað
veifið til þess að njóta þeirra und-
ursamlegu náttúrufegurðar sem
fyrir augu bar. Sólin baðaði jökul-
inn og umhverfi hans og maður
fylltist orku á því að þeysast um
á vélsleðanum og fá tilfinningu
fyrir þeirri ósnortnu náttúru sem
maður var kominn í snertingu við
með dvölinni þama.
Eftir að hafa ferðast um hjam-
breiðuna daglangt var haldið að
skálanum að nýju, þar voru þá
fyrir bandarísk hjón sem dvalið
höfðu á jöklinum í þrjá daga við
skíðaiðkun. Sögðu þau dvölina
hafa verið stórkostlega og lofuðu
þá aðstoð og lipurð sem starfs-
menn Jöklaferða hefðu sýnt þeim.
„Kalt borð“ á jöklinum
Tryggvi Ámason, fram-
kvæmdastjóri Jöklaferða hf., sagði
að fyrir 9 árum hefðu skoðunar-
ferðir á jökulinn hafist og þá farið
á Breiðamerkuijökul. „Þeir sem
voru í þessu þá gáfust upp á ævin-
týrinu fyrir 5 ámm. Árið 1985
voru Jöklaferðir hf. stofnaðar og
hófum við þá ferðir á Skálafell-
sjökul. Síðan þá höfum við byggt
upp þessa starfsemi og unnið
markvisst að því síðan að gera
jöklaferð að álitlegum kosti fyrir
ferðamenn," sagði Tryggvi. Hann
sagði að þeir hefðu, með góðri
samvinnu við Vegagerðina, látið
gera vegarslóða að jökulröndinni.
Það hefði verið kleift að komast
með ferðalanga í rútum að jöklin-
um þar sem hægt væri að koma
þeim í snjóbíla til þess að feija inn
á jökulinn.
Jöklaferðir hf. bjóða upp á
Hús Jöklaferða hf.
Skálafellsjökli.
í lengri ferðunum er aftur á móti
farið lengra inn á jökulinn. Hægt
er að fá ferðir fyrir hópa yfir í
Kverkfjöll og Esjufjöll og taka þær
ferðir þá þijá til fjóra daga.
I öllum ferðum á jökulinn eru
leiðangursstjórar sem eru vanir
ferðum um jökulinn og leiðbeina
fólki um hann. Hægt er að fara
ferðir í snjóbíl eða á vélsleða eftir
því hvort fólk vill heldur. Á vel
afmörkuðu svæði í námunda við
skála Jöklaferða geta þeir er
áhuga hafa síðan tryllt um hjamið
á vélfákum án fylgdar leiðangurs-
stjóra.
Tryggvi Árnason sagði að
nokkrum sinnum hefðu hópar
pantað matarveislu á jöklinum.
Þá hefði verið útbúið kalt borð í
orðsins fyllstu merkingu. Hlaðið
hefði verið upp langborði og bekkj-
( 4.1, .1 1 >• ■ )
Ferðalangar njóta útsýnis og veðurblíðu á jöklinum með endalausar
hiarnbréiður í kringum sig.
! m-fl ilíji ■ . ( I ( i jS . \ií ,\í £C ( t!>ll Mf.f Sl
-----------------------(---------
um úr snjó og veisluföngum síðan
raðað á borðið og drykkj afföng
kæld með því að stinga þeim pfan
í borðið. Hann sagði að veislur
þessar hefðu tekist mjög velíog
hefðu gestir varla átt orð til þess
að lýsa ánægju sinni með þær.
Daglegar ferðir eru á jökulinn
og fer hópferðabíll frá Austurleið
hf. frá Höfn í Hornafirði upp að
jökulröndinni á hveijum morgni.
Við jökulröndina bíða síðan starfs-
menn Jöklaferða hf. og sjá um
skoðunarferðir um jökulinn. Veit-
ingar sem bornar em fram á jökl-
inum koma frá Hótel Höfn á
Hornafirði.
Stressið hverfiir og
tímaskynið brenglast
Að sögn Tryggva hafa um 5(j)0
ferðamenn farið á jökulinn það
sem af er sumri en síðasta sumar
fóm um 1.600 manns í ferð ájök-
ulinn, þrátt fyrir að veðurlag hafi
verið afar óhagstætt. Hann sagði
að það væri stígandi í þessu hjá
þeim. Þeir hefðu á liðnum vetri
farið á ferðakaupstefnur erlendis
til þess að kynna þennan mögu-
leika og hefðu fengið góðar undir-
tektir. Sú kynning væri að byija
að skila sér í sumar en með meiri
auglýsingu og kynningu þá vonuð-
ust þeir til þess að margfalda
íjölda þeirra er heimsæktu jökul-
inn á næstu ámm frá því sem nú
er.
Flestir þeir ferðamenn er fara
í jöklaferð era erlendir ferðamenn
en íslendingum hefur heldur farið
fjölgandi. Tryggvi sagði að þeir
vonuðust til þess að landinn færi
að sýna þessum ferðum meiri
áhuga því það væri einfalt fyrir
alla þá sem leið ættu um Höfn í
Homafirði að fara í dagsferð á
Skálafellsjökul með Jöklaferðum
hf. „Það er svo ótrúlegt ævintýri
að fara þarna upp að ég held að
ef fólk reynir það einu sinni þá
jafnvel komi það aftur og aftur.
Maður gleymir öllum erli hvers-
dagsins og tímaskynið brenglast
alveg, enda segja strákarnir sem
era að vinna uppi á jökli að þeir
hafi ekkert tímaskyn. Þeir eigi það
til að gleyma að næra sig og átti
sig stundum á því að það er farið
að líða á daginnn af því að þeir
era orðnir svangir. Þeir líta yfir-
leitt ekki á klukkuna fyrr því það
er ekkert sem rekur á eftir. Þú
ert fijáls þarna uppi og það sem
er ef til vill lang best, allt stress
hverfur út í veður og vind. Það
er hreinlega ekki hægt að hafa
áhyggjur og stress með sér þarna
upp, það gleymist bara alveg,“
sagði Tryggvi.
Kristallar og kynjamyndir
Eftir ferðina á Skálafellsjökul
var haldið að jökullóninu. Á lóninu
era bátar og er boðið þar upp á
bátsferðir allan daginn. Bátsferðin
tekur tæpa hálfa klukkustund og
er siglt innan um stóra og mikla
ísjaka sem era í lóninu. Við fóram
í siglingu um lónið og fengum að
kynnast þeirri fegurð sem þar er
að finna. ísjakarnir skapa alls
konar kynjamyndir og hægt er að
sjá hina ólíklegustu hluti ef ímynd-
unaraflinu er gefinn laus taumur-
inn. ísinn smá bráðnar í lóninu og
í sólinni verður hann eins og feg-
ursti kristall. Þegar komið er
svolítinn spöl inn á lónið þá er
umhverfið líkara því að verið sé
að sigla á Grænlandi frekar en á
litlu lóni við suðurströnd íslands.
Þetta er ótrúlegt og hálfgert ævin-
týri að kynnast þessu.
Það var eins og maður fylltist
einhveijum trega að kveðja jökul-
inn og þegar hann smám saman
hvarfúr augsýn út um litla glugga
flugvélarinnar gat maður ekki
annað en lofað sjálfum sér því að
heimsækja þessa paradís ein-
hvemtíma aftur. Jökullinn hafði
náð að grípa svo sterkt í sálina
með segli sínum að þau tök verða
ekki auðveldlega losuð.
Texti og myndir:
Grímur Gíslason
.&íí.l 10/11 iioj^ni/iiooia. i
.
íA,
«
4