Morgunblaðið - 25.07.1989, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
47 -
Gítartónleikar á
Kj arvalsstöðum
SÍMON H. ívarsson og Hinrik D. Bjarnason halda gítartónleika á
Kjarvalsstöðum í austursal fimmtudaginn 27. júlí nk. kl. 18.00. A
efnisskránni eru m.a. verk frá endurreisnartímanum, verk eftir Rob-
inson og Dowland, einnig verk eftir Vivaldi, Torroba og Sor, auk
Símon H. ívarsson fæddist í
Reykjavík 1951. Hann hóf gítamám
9 ára gamall hjá Gunnari H. Jóns-
syni við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar. Haustið 1973 hóf
hann nám við gítarkennaradeild
skólans og tók lokapróf frá skólan-
um vorið 1975. Um haustið hóf
hann nám í einleikaradeild próf.
Karls Scheit við Tónlistarháskólann
í Vínarborg. Þaðan lauk hann ein-
leikaraprófi vorið 1980. Símon
starfaði eitt ár sem gítarkennari
við Tónlistarskólann í Luzern í
Sviss. Frá 1981 hefur Símon starf-
að sem gítarkennari við Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar, en
kennir einnig kammertónlist og
kennslufræði við sama skóla. Símon
hefur farið í nokkrar námsferðir,
m.a. til José Tomas og Mario Gangi,
en einnig lagt stund á flamenco-
lugCX»
tónlist og tvívegis farið í náms-
ferðir til próf. Andreas Batista í
Madrid.
Hinrik Daníel Bjarnason fæddist
í Reykjavík 1964. Hann hóf
gítamám í ársbyijun 1982 hjá
Símoni H. ívarssyni við Tónskóla
Sigursveins D. Kristinssonar. Hin-
rik stundaði einnig nám við gítar-
kennaradeild skólans og lauk kenn-
araprófi vorið 1989, jafnframt lauk
hann fullnaðarprófí í gítarleik þetta
sama vor með einleiks- og hljóm-
sveitartónleikum. Hinrik hefur m.a.
sótt námskeið hjá José Luis Gonz-
ález, Siegfried Kobilza og Thorvald
Nilson. Hinrik fer í framhaldsnám
til próf. Per-Olof Johanson í Malmö.
Samhliða námi hefur Hinrik starfað
sem gítarleikari og kennari.
(Úr frcttatilkynningu)
Símon H. ívarsson gítarleikari. Hinrik Daniel Bjarnason gitar-
leikari.
Ólalúr Vignir Albertsson og Ólafiir Árni Björnsson.
Tónleikar í Hlégarði
ÓLAFUR Árni Bjamason tenór
heldur söngskemmtun í Hlégarði
í Mosfellsbæ fimmtudaginn 27.
júlí kl. 21.00. Við píanóið verður
Ólafúr Vignir Albertsson.
Þetta eru fyrstu^ sjálfstæðu tón-
leikar Ólafs Árna. Ólafur nam söng
hjá Guðrúnu Tómasdóttur og Sig-
urði Demetz Franzsyni, en stundar
nú framhaldsnám við tónlistar-
háskólann í Bloomington Indiana.
Á efnisskránni eru íslensk söng-
lög, m.a. eftir Sigvalda Kaldalóns,
Sigurð Þórarinsson, ítalskar antik-
aríur, m.a. eftir Giordani, Caccini
og óperuanur, m.a. eftir Wagner,
Donizetti og Puccini.
Aðgöngumiðar fást við inngang-
inn.
Tónleikamir verða endurteknir í
Húsavíkurkirkju miðvikudaginn 2.
ágúst kl. 20.30.
(Fréttatilkynning)
Guðrún Gunnarsdóttir, hótelstjóri Hótels Norðurlands í anddyri Morgunbiaðið/Agnes Bragadðttir
hótelsins.
Hótel Norðurland:
Reksturinn hefiir gengið vel
- segir Guðrún Gunnarsdóttir, hótelstjóri
HÓTEL Norðurland á Akureyri hefúr nú verið opið síðan 10.
júní sl. og að sögn Guðrúnar Gunnarsdóttur, hótelstjóra hefiir
reksturinn gengið mjög vel og fer enn batnandi. Hótel Norður-
land er til húsa þar sem Hótel Varðborg var áður og hafa miklar
og gagngerar breytingar verið gerðar á húsakynnum og innrétt-
ingum.
Guðrún hóf störf á Hótel Norð-
urlandi þann 1. maí sl. Gúðrún
kemur til Akureyrar frá
Reykjavík, þar sem hún var vakt-
stjóri á Holiday Inn, en áður var
hún í námi í París, þar sem hún
nam ferðamálafræði. Guðrún hef-‘
ur mikið unnið við hótelrekstur á
sumrin. Hún var tvö sumur sem
aðstoðarhótelstjóri á Hótel Eddu
og eitt sumar sem hótelstjóri.
Hótel Norðurland er í eigu Gísla
Jónssonar og Þórarins Jónssonar
sf, Flugfélags Norðurlands,
Ferðaskrifstofu Akureyrar og
Jóns Egilssonar.
Herbergin em 28 talsins, öll
tveggja manna herbergi, þannig
að Hótel Norðurland getur hýst
56 manns. Það var Birgir Ágústs-
son sem hannaði allar breyting-
amar innandyra. Guðrún segir að
nýtingin þann skamma tíma sem
hótelið hefur starfað hafi verið
góð og horfumar fyrir nýtingu
það sem' eftir lifir sumars séu-
einnig mjög góðar.
„Það var tvímælalaust þörf fyr-
ir hótel í þessum gæðaflokki hér.
Eg tel að herbergin hér séu svipuð
og á KEA, jafnvel betri, því þau
em stærri og bjartari. Aðstaða
okkar hér á jarðhæðinni er á hinn
bóginn ekki jafngóð, því það er
mun þrengra hjá okkur, en þeim
á KEA,“ sagði Guðrún.
Guðrún var spurð hvaða hug-
myndir hún gerði sér um nýtingu
á hótelinu að vetri tíl: „Á árs-
gmndvelli hafa hótelin komið vel
út hérna. Veturinn hér býður upp
á góða íþróttaaðstöðu, bæði inn-
anhúss og utan. Hér em góð
skíðasvæði, Pollurinn býður upp
á ýmislegt og jafnframt er verið
að reyna að byggja bæinn upp
sem funda- og ráðstefnustað.“
Guðrún sagði að hótelið væri
með ýmislegt í bígerð í samvinnu
við Ferðaskrifstofu Akureyrar, til
markaðsöflunar. Ætlunin væri að
bjóða upp á skipulagðar ferðir til
Akureyrar, t.d. fyrir aldraða, þar
sem boðið yrði upp á ýmislegt í
tengslum við gistingu á hótelinu.
■t____
NVSV:
Kvöldganga
um Hafnir
Náttúruverndarfélag Suð-x
vesturlands fer í náttúru-
skoðunar- og söguferð um
Hafnir í kvöld, þriðjudag 25.
júlí.
Farið verður frá Kirkjuvogs-
kirkju kl. 21.00 og gengið niður
að Kotvogi og með ströndinni
að Haugsendum, þaðan ofan
vegar að Kirkjuvogskirkju.
Göngunni lýkur um kl. 23.00.
Morgunblaðið/Ólafur Bemódusson
I sumar er unnið að endurbyggingu Hofskirkju í Skagahreppi.
Skagaströnd:
Hofskirkja endurbyggð í sam-
ráði við Þjóðminjasafnið
Skagaströnd.
MIKLAR endurbætur fara fram í sumar á Hofskirkju í Skaga-
hreppi. Er verkið unnið í samvinnu við og undir yfirumsjón hús-
friðunarnefúdar Þjóðininjasafiisins.
Hofskirkja var vígð árið 1870 og
kostaði þá samkvæmt gömlum
heimildum 927 ríkisdali og 72 skild-
inga. Kirlqan er úr timbri saman-
sett af svokölluðu bindingsverki úr
6 sinnum 6 tommu tijám og síðan
hefur verið klætt utan á það með
timbri. 1950 var kirkjan síðan múr-
húðuð að utan og hefur timbrið
fúnað mjög undir múmum.
Nú er verið að endurbyggja kirkj-
una í sinni upprunalegu mynd og
er öllu gömlu timbri úr útveggjum
hennar hent og nýtt sett í staðinn.
Timbrið í nýja bindingsverkið er
sagað af feðgunum í Víkum á
Skaga úr gömlum símastaurum
sem þykja mjög gott efni þar sem
þeir em tjörusoðnir og fúna því
ekki.
Byijað var á því að rétta kirkjuna
á sökklinum þar sem hún hafði sig-
ið nokkuð og var því steypt ofan á
gamla sökkulinn að hluta. Nú verð-
ur kirkjan einangrað með steinull
en hún var óeinangrað. Einnig
verða settir í hana nýir gluggar en
sumir þeirra gömlu eru ónýtir.
Þar sem ljóst er að endurbygging
kirkjunnar mun kosta meira en 927
ríkisdali nú, 119 árum eftir vígslu
hennar, og þrátt fyrir að Skaga-
hreppur leggi myndarlega fjárhæð
til verksins, vantar alltaf fé til fram-
kvæmda sem þessara. Því vill sókn-'
amefnd Hofskirkju láta velunnara
hennar vita að kirkjan á sparisjóðs-
bók númer 1584 í Landsbankanum
á Skagaströnd.
Endurbygging kirkjunnar er í
höndum vanra manna frá trésmiðj-
unni Borgum á Sauðárkróki en
menn frá henni hafa unnið að end-
urbótum á Hóladómkirkju að_ und-
anfömu. - Ó.B.