Morgunblaðið - 25.07.1989, Side 48
0SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VID MIKLAGARÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. JÚLÍ 1989
VERÐ í LAUSASÖLU 80 KR.
Suðurnes:
Ný vatns-
veita fyrir
"næsta haust
A 4. hundrað
milljóna í frum-
hönnun verksins
SAMNINGAR milli Vatnsveitu
Suðumesja annars vegar og
Vamarliðsins á Keflavíkurflug-
velli liins vegar um lagningu
nýrrar vatnsveitu em nú á loka-
stigi og að sögn Guðfinns Sigur-
vinssonar forseta bæjarstjórnar
Keflavíkur er hér um góða fram-
búðarlausn að ræða.
Þessir samningar eru vegna
mengunar í vatnsbólum á Suður-
nesjum sem rekja mátti til olíuleka
á svæðum varnarliðsins. Guðfinnur
sagði enn fremur að stefnt væri að
því að hin nýja vatnsveita yrði kom-
in í gagnið annað haust, eftir 14
til 15 mánuði.
* Að sögn Guðfinns er endanlegur
kostnaður ekki ljós, en frumhönnun
veitunnar kostaði á fjórðu hundruð
milljóna. Hönnun væri á lokastigi,
undirbúningsvinna hafin og samn-
’^ltígar í gangi við eigendur Lága-
svæðis, þar sem jarðvatnið er að
finna, en það er milli Njarðvíka og
Svartsengis.
Guðfinnur sagði einnig að um-
rædd olíumengun væri langt innan
hættumarka, en vegna möguleikans
á að hún gæti aukist hefði þótt
brýnt að ráðast í verkefnið. „Banda-
ríkjamenn leggja fram ákveðnar
umsamdar upphæðir og svo er það
okkar að vinna úr þeim. Þetta eru
ekki beint skaðabætur, heldur
miklu fremur samkomulag um að
leysa mál farsæilega," sagði Guð-
finnur Sigurvinsson.
Norðurlanda-
mótið í skák:
Margeir
í 2. sæti
MARGEIR Pétursson hefúr
unnið fjórar síðustu skákir
sínar á Norðurlandamótinu í
skák, og er í 2. sæti eftir sex
umferðir með 4%vinning.
Helgi Olafsson er með 4 vinn-
inga í 4. sæti, en Simen Agde-
stein frá Noregi er með _4 vinn-
inga og biðskák. Jón L. Árnason
hefur tapað þremur síðustu
skákum sínum og er með 2 vinn-
inga.
Finninn Jouni Yijöla er efstur
með 5 vinninga.
Margeir vann Bent Larsen í
4. umferð, Lars Karlsson í 5.
umferð og Heikki Westerinen í
þeirri 6. Helgi vann Westerinen
í 4. umferð, tapaði fyrir Tom
Wedberg í 5. umferð og vann
Erling Mortensen í 6. umferð.
Jón hefur tapað fyrir Östen-
stáad, Yrjölá og Harry Schiissl-
er.
í kvennaflokki er Guðfríður
Lilja Grétarsdóttir í 2. sæti eftir
3 umferðir með 2!4vinning. I
meistaraflokki er Lárus Jóhann-
esson með 2 vinninga eftir 3
umferðir.
Fjórar íslenskar stúlkur keppa
í unglingaflokki. Tvær þeirra,
ína B. Árnadóttir og Hrund Þór-
hallsdóttir eru með l‘A vinning.
Fiskvinnslan rekin með 4,2% lialla:
Heildartap fiskvinnslunnar
1988 var tæpir 3 milljarðar
Reykjavík:
Sílamávum
hefiir fjölgað
mjög mikið
SÍLAMÁVURINN er orðinn mjög
ágengnr i borginni, honum hefúr
flölgað mikið og hann hefur breytt
háttum sínum, að sögn Ólafs K.
Nielsen líffræðings.
„Þegar ég starfaði við Tjarnar-
gæslu árin 1973-79 voru þetta fáein-
ir tugir fugla sem sáust þarna á
daginn yfir hásumarið, en nú er um
3-400 fugla að ræða. Þeir sækja
fyrst og fremst í brauðið sem fólk
ætlar öndunum, en þeir eru miklar
veiðiklær og hirða andarunga í leið-
inni,“ sagði Ólafur við Morgunblaðið,
en sílamávagerið á Reykjavíkurtjörn
hefur vakið athygli borgarbúa.
Ólafur sagði enn fremur að vegna
ágengni sílamávsins væri farið að
skjóta þá og hefðu nú þegar 70 fugl-
ar verið skotnir.
„Þeir breyttu háttum sínum strax,
eru mun styggari og ekki eins ágeng-
ir. Áformað er að skjóta mávana út
þennan mánuð, eða á meðan að
síðustu kafendumar eru að koma
ungum sínum á legg,“ sagði Ólafur.
Hann bætti við að stokkandarvarpið
hefði nær algerlega misfarist, en
hrafnar ættu þar mestu sökina.
Æðarvarpið hefur aftur á móti geng-
ið vel, kollurnar enda duglegar að
veija unga sína.
Beindi hagla-
byssu að veg-
farendum
LÖGREGLUNNI á ísafirði barst
tilkynning snemma á laugar-
dagsmorguninn um að ölvaður
maður gengi um bæinn og beindi
haglabyssu að vegfarendum.
Er lögreglan fór að kanna málið
fann hún manninn fljótlega við
Hótel Isafjörð. Er byssu'maðurinn
sá lögregluna beindi hann byssunni
að henni og lét lögreglan sér þá
nægja að fylgjast með honum og
beina umferð frá honum.
Maðurinn hélt svo fljótlega út í
aðkomubát við höfnina, en hann
reyndist síðar skipveiji á honum.
Þar tókst lögreglunni að handtaka
manninn og ná af honum byssunni.
„Stefnir í algert óeftii verði ekkert gert,“ segir Arnar Sigurmundsson
FISKVINNSLAN er nú rekin með 4,2% tapi samkvæmt útreikningum
sem Sigurður Stefánsson endurskoðandi hefiir gert fyrir Samtök fisk-
vinnslustöðva. Miðað við ársreikninga 32 fiskvinnslustöðva, sem liggja
til grundvallar útreikingunum, varð meðaltap þeirra 9,5% af tekjum á
síðasta ári. Heildartekjur frystihúsa, saltfiskverkunarstöðva og skreið-
arverkenda á síðasta ári námu 30 milljörðum króna. Heildartap fisk-
vinnslunnar 1988 var því tæpir 3 milljarðar króna. Þetta eru nokkuð
hærri tölur en Þjóðhagsstofnun hefúr reiknað út. Þjóðhagsstofiiun taldi
tapið 5-6% í fyrra og telur vinnsluna nú rekna með 2% halla.
Arnar Sigurmundsson formaður
Samtaka fiskvinnslustöðva segir að
hvort sem útreikningar þeirra eða
Þjóðhagsstofr.unar séu skoðaðir
blasir sú staðreynd við að tap sé á
greininni í dag. Og verði ekki gripið
til ráðstafana til að koma rekstrinum
á núllið stefni í algert óefni á næstu
mánuðum.
Muninn sem er á fyrrgreindum
útreikningum segir Arnar liggja ein-
göngu í mati á fjármagnskostnaði
fiskvinnslunnar. Allar aðrar tölur í
útreikningunum séu þær sömu.
Þórður Friðjónsson forstöðumaður
Þjóðhagsstofnunar segir að munur-
inn á ijármagnskostnaðinum liggi í
því að samkvæmt hefðbundnum
reikningsskilaaðferðum sé fy'ár-
magnskostnaður þessara fyrirtækja
meiri á síðasta ári en fram komi í
uppgjörsaðferðum Þjóðhagsstofnun-
ar. „Við reynum að færa til bókar
langtímafjármagnskostnað og jafna
þannig út sveiflur sem mismunandi
þróun innlends verðlags og, gengis
mynda,“ segir Þórður.
„Þegar gengið var til kjarasamn-
inga í vor lofaði ríkisstjórnin því að
rekstrarskilyrði útflutningsatvinnu-
veganna yrðu viðunandi á samn-
ingstímanum. Ilvort sem skoðaðar
eru okkar tölur eða Þjóðhagsstofnun-
ar má sjá að við þetta hefur ekki
verið staðið," segir Arnar. „Ef svo
heldur fram sem horfir mun allt eig-
ið fé fiskvinnslunnar brenna upp á
skömmum tíma.“
í útreikningum Sigurðar Stefáns-
sonar kemur fram að við uppgjör hjá
vinnslustöðvunum 32 í lok september
á síðasta ári nam tapið 8,3% af tekj-
um en jókst síðan í 9,5% í árslok.
Amar segir að þarna komi einkum
tvennt til, erfiður tími til sjósóknar
og að nokkuð hafði gengið á kvót-
ann. Þar að auki hafi efnahagsað-
gerðir nýrrar stjórnar ekki skilað sér
í þeim mæli sem stefnt var að.
Fyrirtækin 32 voru valin í úttekt-
arhópinn með það fyrir augum að
þau sýndu sem gleggsta mynd af
ástandinu. Um er að ræða fyrirtæki
um allt land, bæði á vegum SH og
Sambandsins. Meðalfyrirtækið í
hópnum er með 315 milljón króna
árstekjur í fyrra. Arnar segir að í
hópnum séu fyrirtæki í stærri kantin-
um og telji samtökin að fyrrgreind
I úttekt sé mjög áreiðanleg.