Morgunblaðið - 12.09.1989, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. SEPTEMBER 1989
33
Guðrún Guðmunds-
dóttir - Minning,
Fædd 21. mars 1894 '
Dáin 27. ág’úst 1989
Látin er nýlega í hárri elli á
Borgarspítalanum Guðrún Guð-
mundsdóttir, Hólmgarði 6,
Reykjavík.
Frá því ég fyrst man eftir mér
var hún ein af nánustu heimilisvin-
um foreldra minna og síðar okkar
systkina frá Oddgeirshólum.
Tildrög þess að hún kom á heim-
ili foreldra minna voru þau að innan
við fermingu réðst hún þangað og
skyldi gæta ungs sonar þeirra. Var
hann elsta og þá hið eina barn
þeirra.
En ekki kom til barnagæslunnar,
því að drengurinn dó tæplega
tveggja ára. Ekki var þó brugðið
ráðningu telpunnar og er mér
tryggð og vinátta hélst með þessum
fjölskyldum um 80—90 ára skeið,
eða frá fyrstu kynnum til þessa
dags.
Guðrún fæddist 21. mars 1894
að Úlfarsá. Móðir hennar Sigríður
Jónsdóttir var frá Hörgsholti í
Hrunamannahreppi. Faðir hennar
Guðmundur Sigurðsson var síðari
maður Sigríðar. En ekki naut hún
lengi umhyggju föður. Hún missti
hann ung að árum og eina alsystur
unga.
Hálfsystkini hennar, allmiklu
eldri en hún, voru: Sigurður E.
Hlíðar dýralæknir á Akureyri, gift-
ur Guðrúnu Guðbrandsdóttur, Guð-
finna Einarsdóttir, sem gift var
Páli Magnússyni, Reykjavík og
Rannveig Einarsdóttir, gift Þorkeli
Þorkelssyni fyrsta veðurstofustjóra
íslands.
Góð frændsemi var með þeim
systkinum öllum. Meðal annars
dvaldi hún sem unglingur á heimili
Sigurðar bróður síns á Akureyri.
Minntist hún oft á þá veru sína
„fyrir norðan“ og var auðheyrt að
dvölin þar var henni hugstæð.
Guðrún, eða Gunna Guðmunds.
eins og okkur var tamast að nefna
hana, var lágvaxin og því stundum
nefnd litla Gunna til aðgreiningar
frá nöfnum sínum, sem jafnan eru
nokkuð margar hvar sem leið liggur
um landið. En það er eins og for-
sjónin hafi viljað bæta henni upp
lágan vöxt með því að gefa henní
lífsförunaut sem var með allra
hæstu mönnum og svaraði sér vel
á allan hátt. Hann hét Bjarni Þórð-
arson og höfðu þau kynnst í æsku
á heimili foreldra minna. Bjarni var
á yngri árum íþróttamaður eins og
fleiri ættingjar hans.
Bjarni var einn af þessum sam-
viskusömu mönnum sem í engu
máttu vamm sitt vita. Hjónin voru
samhent og heimilisbragur léttur
og glaðvær. Og ekkijjreyttist það
þótt húsmóðirin færi að vinna utan
heimilis, en hjá því varð ekki kom-
Fallegar
kristals- og postulínsvörur
fyrir falleg heimili frá
fallegri verslun.
Höfum opnað nýja verslun
að Álfabakka 14 í Mjóddinni.
Við erum að sjálfsögðu í hátíðarskapi
og bjóðum því viðskiptavinum okkar
sérstakan afslátt út þessa viku:
20% afslátt við staðgreiðslu og
10% afslátt af kortaviðskiptum.
SENDUM I PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT.
Veriö velkomin!
ÁLFABAKKA14 • MJÓDD • SlMI 76622 OG TEMPLARASUNDI 3 ■ SlMI 19935
ist vegna kreppunnar illræmdu um
og eftir 1930.
Guði'ún lét ekki standa á því að
fara í hverskonar vinnu ef með
þurfti, og allstaðar komu hinir góðu
hæfileikar hennar fram, svo að hún
eignaðist vini hvar sem hún fór.
Mestu réði þar lundarfar hennar
og velvilji til allra. Svo sem áður
segir var hún smávaxin, létt á fæti,
létt í Iund, kná til allra verka og
handlagin. Hún var vel greind og
þótt hún hefði aldrei á skólabekk
sest tileinkaði hún sér með sjálfs-
námi margt það sem nú tekur mörg
ár að koma til skila í skólum lands-
ins. Meðal annars las hún dönsku
og jafnvel fleiri Norðurlandamál.
Þakkað hún það dvölinni hjá bróður
sínum svo sem áður segir, en hann
hvatti hana og studdi til dáða.
Svo sem Guðrún var glöð á góðri
stund kunni hún líka að bregðast
við erfiðleikum. Minnisstæð er mér
ró hennar og æðruleysi, þegar son-
ur hennar ungur varð fyrir alvar-
legu slysi, sem hann bjó að æ síðan.
Þá má og minnast þess að Bjarni
eiginmaður hennar varð á efri árum
fyrir því að missa aðra höndina en
gat þó áfram stundað vinnu sína
en hann ók strætisvagni um árabil. -
Eins og flestir sem ná svo háum
aldri átti hún á bak að sjá vanda-
mönnum og nánum ættingjum.
Mann sinn missti hún 29. mars
1975. Börn eignuðust þau þijú.
Elst var Sigríður sem gift var Gunn-
ari Vagnssyni hann er látinn. Þá
Kristín kona Guðmundar Guðjóns-
sonar söngvara. Sonurinn Ásgeir
var yngstur, giftur Unni Helgadótt-
ir en þau eru bæði látin.
Börnum hennar, barnabömum
og öðrum ættingjum votta ég sam-
úð. Blessuð sé minning hennar.
Sigríður Árnadóttir
Tamura 5.16.
5 bæjarlínur og allt aö 16 innanhússiinur!
Níbsterk en édýr símkerfi frá
JAPAN
Vegna mjög hagstæðra samninga
beint við verksmiðju bjóðum við
Tamura símkerfi á frábæru verði.
Fjölmargir nútíma eiginleikar eins
og skammvalsminni, innanhússkall-
kerfi, símafundir innanhúss svo fátt
eitt sé nefnt. Tækin eru verkleg og
vel hönnuð og símtólið bæði létt og
meðfærilegt.
Tamura símkerftn kosta frá aðeins
58.400.- kr. ( móðufstöð + 3
símtæki.)
Athygli skal vakin á að sparnaður
getur hlotist af því að fjölga línum
inn í fyrirtækið séu umframskref stór
hluti símreiknings. Takmarkað magn
tyrirliggjandi á þessu tilboðsverði.
Hafíð því samband viö sölumenn
okkar strax. Við bjóðum að sjálfsögðu
uppá góð kjör auk þess sem upp-
setning getur farið fram með
skömmum fyrirvara á föstu verði.
Tamura símkerfin frá Transit, -
hagkvæm lausn fyrir vel rekin
fyrirtæki.
*
*
<
jmmkL. IM
Iransit hf.
TRONUHRAUNI 8 220 HAFNAFIRÐI SIMI 652501 TELEFAX 652507