Morgunblaðið - 05.12.1989, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.12.1989, Blaðsíða 15
MOKGUNBLAÐID ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1989 15 NOCTOSOME SVSTEME RENOVATEUR de M IT Starfsemi og orka húðarinnar gengur í sveiflum allan sólarhringinn. Þessar sveiflur eru einstaklingsbundnar og mynda svokallaðan bioryþma húðarinn- ar. Á daginn fer húðin ekki varhluta af því álagi, sem á okkur hvílir, auk þess sem hún þarf að verjast ýmsum skað- völdum í umhverfinu. Það er á nóttunni, á meðan við erum í hvíld, sem húðin vinn- ur að því að byggja sig upp; að end- urnýja sig. Hæfileiki húðarinnar til endurnýjunar fer hins vegar eftir því, hvernig hún er á sig komin. Ung og heilbrigð húð endurnýjar sig auðveldlega. En við vitum að með aldrinum hægist á endurnýjunarstarf seminni og þá fer húðin gjarnan að láta á sjá. NOCTOSOME er fyrsta nætur kremið á markaðinum, sem vinnur í takt víð bioryþma húðarinnar. Það er afar mikilvægur kostur. Auk þess sem það í sjálfu sér stuðlar að hraðri og öruggri endurnýjun, inniheldur kremið styrkjandi efni fyrir frumustarfsemina, sem byggir upp að nýju þann kraft, sem húðin þarfnast til eigín uppbyggingar. Og árangurinner stórkostlegur. a Aðmorgnier ;|| húðin stinnari, sléttari og áferðarfallegri. Ogþaðsem meira er, úthvíld og vel undir annriki dagsins b Kimmi ANCÖME PARIS Skútuvogi lOa - Sími 686700 Næturkrem sem endurnýjar húðina á meðan þú hvilist Lofta- plötur og lím Nýkomin sending Þ.ÞORGRÍMSSON&CO Ármúla 29. Reykjavík, sími 38640 Baráttusaga o g þjóðlífslýsing Bókmenntir Jóhann Hjálmarsson Guðrún P. Ilelgadóttir: HELGI LÆKNIR INGVARSSON. BAR- ÁTTUMAÐUR FYRIR BETRA LÍFI. Setberg 1989. I formála bókar sinnar skrifar Guðrún P. Helgadóttir: „Faðir minn var bjartsýnismað- ur, framfarasinni, vildi láta gott af sér leiða og var alltaf sjálfum sér samkvæmur. í trausti þess, að ævistarf hans og fordæmi eigi er- indi við samtímann, er þessi ævi- saga skrifuð." I 15. kafla þar sem Guðrún er m.a. að iýsa heimilislífinu, hvemig brugðið var á leik heima fyrir, kall- ar hún foður sinn „viðkvæmt þrek- menni“ og bætir við: „Glaðværðin og hlátrasköllin á heimilinu vom nauðsynlegt mótvægi þeirra hörm- unga, sem blöstu við á hælinu." Það er hið viðkvæma þrekmenni sem við kynnumst í bók Guðrúnar P. Helgadóttur. En bókin er ekki síst saga baráttunnar gegn hinum mikla vágesti, berklaveikinni, þjóðlífslýsing og ættarsaga um leið. Þegar skrifuð er ævisaga jafn mikilhæfs og vel gerðs manns og Helga Ingvarssonar er sá vandi fyrir hendi að ljóminn verði of mik- ill, skeri í augun. Þegar höfundur- inn er þar að auki dóttir þess sem fjallað er um er hættan enn meiri. Mér þykir Guðrúnu P. Helgadóttur hafa tekist piýðilega að sigla hjá skeijum í þessu sambandi. Hún forðast að setja föður sinn á stall, en hugar vel að samferðafólki hans og umhverfi, gerir öllum góð skil. Séu menn að leita að fordómum eða dómhörku í bók hennar ættu þeir að róa á önnur mið. Eins og lesendur Guðrúnar P. Helgadóttur þekkja (Skáldkonur fyrri alda og fleiri ritverk) er hún afar vandvirkur fræðimaður. Þetta kemur glögglega fram í ævisög- unni. í lok hvers kafla er nákvæm heimildaskrá og má ráða af henni að mikil vinna hefur verið lögð í verkið. Hér er því ekki á ferðinni nein venjuleg ,jólabók“ sem á að slá í gegn á jólamarkaði, heldur er líklegt að hún muni standa og til hennar verði leitað lengi. Guðrún hefur söguna með því að lýsa björtu júlíkvöldi árið 1893. í ferðahópi sem er að koma úr brúðkaupsveislu og er á heimleið að Keldum á Rangárvöllum er Júlía Guðmundsdóttir. Ungum presti, nýkomnum í Gaulveijabæ, séra Ingvari G. Nikulássyni, hefur orðið tíðlitið til hennar. Hérgerast amma Guðrúnar og afí söguhetjur og mætti halda að spennandi ástar- saga væri í vændum. En þrátt fyr- ir brot og kafla sem vel ættu heima í skáldsögu er Guðrúnu fræði- mennskan efst í huga. Frá lífinu á Skeggjastöðum við Bakkafjörð, æskuheimili Helga Ingvarssonar, en faðir hans var þar prestur, er sagt á skemmtilegan og lifandi hátt. Á Skeggjastöðum þurfti mörgu að sinna og verkin voru ófá. Það kemur snemma í ljós að Helgi er ólatur. Hann „er alla tíð þar, sem erfiðast er og mestur sent frá sér ljóðabækur og nýtur ævisagan skáldlegs innsæis henn- ar, einkum í frásögnum af gamla fólkinu og löngu liðnum tíma, en líka þegar tilfinningamál eru á dagskra. Þess er getið að Helgi lét sér annt um að fræða börn sín, hélt kvöldvökur fyrir þau og las þá upp og lék kafla úr bókmenntum: „Stundum skellti hann yfír sig dúk- um og gömlum flíkum, til þess að lesturinn yrði áhrifameiri, og kert- astjakarnir voru gripnir á borð- stofuskápnum, þegar hann las kafla úr Vesalingunum eftir Victor Hugo til þess að gera frásögnina lifandi." Enn eru margir á lífí sem eiga Helga Ingvarssyni lífgjöf að gjalda og hugsa að vonum hlýlega til hans og virða minningu hans. Sumir þeirra láta í sér heyra í bókinni. Saga Helga læknis er meira en persónusaga (þótt hún sé auðvitað góð og gild sem slík), hún er merk samtímasaga þar sem sigur vinnst. Vonandi verður unnt að skrifa fleiri slíkar sögur í framtíðinni. vandinn“, eins og móðir hans segir um hann. Þetta einkennir Helga Ingvars- son eftir að hann er orðinn læknir, en á Vífllsstöðum starfaði hann í 45 ár, þar af var hann 29 ár yfír- læknir. Umhyggja hans fyrir sjúkl- ingum var einstök og eru um það mörg dæmi í bókinni. Hann lagði ■ nótt við dag, gat verið strangur og vildi hafa reglu á öllu, en átti nóg til af mannlegri hlýju og skiln- ingi. Dæmi um harma og sára reynslu eru mörg í bókinni og ekki sluppu þau hjón, Helgi Ingvarsson og Guðrún Lárusdóttir, frekar en margir aðrir. En til gamans má vitna í orð sem einn kvensjúkling- Guðrún P. Helgadóttir anna lét falla eftir að Helgi hafði sest hjá henni og rætt við hana: „Almáttugur, það borgar sig bara að fá háan hita, ef hann Helgi sest hjá manni.“ Þegar samþykkt voru ný lög um vamir gegn berklaveiki árið 1921 taldi Helgi merkasta ákvæði lag- anna að efnalitlir sjúklingar máttu dveljast á hælum á opinberan kostnað. Dánartala berklasjúklinga náði hámarki 1925, en þá fór hlut- fall látinna upp í 217 manns miðað við 100.000 íbúa. Þessar upplýsing- ar em í bókinni og líka er skýrt frá því að margir biðu hælisvistar svo lengi að þeim entist ekki aldur til að njóta hjúkrunar. Barnadeild tók til starfa á Vífils- stöðum í upphafí þriðja áratugarins og var hún fljót að fyllast. Eftir- minnileg er saga af Helga og sveitadreng sem oft var dapur í bragði, en Helgi gaf sér tima til að sinna. Guðrún dregur upp minnisstæða mynd af móður sinni, ljóðelskri og draumlyndri stúlku, og hennar fólki. Það er hin ágætasta Reykjavíkurlýsing og koma skáld og gáfumenn þar við sögu. Athygl- isvert er að foreldrar Guðrúnar unnu bæði skáldskap og Helgi gat kastað fram stöku og em lagleg dæmi um þá íþrótt í bókinni. Sjálf hefur Guðrún eins og kunnugt er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.