Morgunblaðið - 05.12.1989, Síða 26

Morgunblaðið - 05.12.1989, Síða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBEfi 1989 ■ STOKK- HÓLMUR. Borgardómur í Uppsala kvað upp þann úr- skurð í gær að vísbendingar sem bendluðu Palestínu- manninn Mo- hamed Abu Talb við sprenginguna sem grandaði breiðþotu Pan Am- flugfélagsins yfir Lockerbie í Skotlandi fyrir ári væru nógu mikl- ar til þess að hefja formlega rann- sókn á meintri aðild hans að ódæðinu. Þotan splundraðist á flugi og týndu allir sem um borð voru, 270 menn, lífi. Talb er í haldi í Svíþjóð. ■ BELGRAÐ. Samkvæmt upp- lýsingum hagstofu Júgóslavíu hækkaði verðlag þar í landi að jafn- aði um 42,4% í nóvember-mánuði og 45,6% í október. Einnig að verðbólgan sé um 2.000 prósent því hækkanir á nauðsynjum frá nóvember 1988 nemi nálægt 1.975,7%. ■ MOSKVA. Petar Mladenov, hinn nýi leiðtogi Búlgaríu, sagði í viðtali sem birt var í gær að alræð- isvald kommúnistaflokksins yrði ekki afnumið. „Hann er hið eina afl sem tryggt getur stöðugleika og framfarir," sagði hann í viðtal- inu, sem birtist í Prövdu málgagni sovéska kommúnistaflokksins. ■ PITTSBURGH. Á sunnudag var hjarta, lifúr og nýra grætt í 26 ára konu á sjúkrahúsi Pres- byterian-háskólans í Pittsburg í Pensylvaníu og er talið að þetta sé í fyrsta sem þrjú Iíffæri séu grædd í sama sjúklinginn. Tók aðgerðin 21 klukkustund og var líðan sjúkl- ingsins góð í gær. ■ STOKKHÓLMUR. SÆNSKI hreindýraveiðimaðurinn Per Blind fannst í gærmorgun eftir að hafa verið týndur í fimm daga á fjöll- um. Hann fór til veiða við ljorða mann á Kvikkjokkfjalli en varð viðskila við félaga sína er þeir hrepptu fárviðri og blindbyl. í svartabyl ók hann vélsleða sínum fram af klettum og tvíbrotnaði á fótum. Gat hann gert vart við sig gegnum talstöð sem hann hafði meðferðis en fárviðri hamlaði leit í marga daga. Var hann kalinn og illa á sig komin er hann fannst og er talinn í lífshættu. Gat hann þó veifað til flugmanna björgunarþyrlu sem komu auga á yfirgefinn vél- sleða og athuguðu þá leitarsvæðið nánar. Kraftaverk þykir að hann skuli hafa fundist á lífi. ■ STOKKHÓLMI. Um 40.000 kennarar sem eru í samtökum háskólamanna, SACO, verða í verkfalli frá næstkomandi mánu- degi hafí samningar ekki tekist fyrir þann tíma. Nær helmingur kennara í SACO hefur verið í verk- falli undanfarnar vikur og hefur það truflað skólahald. Allsheijar- verkfall kennara hefur í för með sér að 700.000 nemendur geta ekki lokið jólaprófum: Bitnar það fyrst og fremst á nemendum níunda bekkjar sem vonast höfðu til að hefja menntaskólanám eftir ára- mót. Háskólamenntaðir kennarar kreijast þess að nám þeirra og starfsreynsla ráði launum en þeir verði ekki settir á bekk með kennur- um úr kennaraskólum sem hafa að jafnaði 5-6 ára minni menntun að baki. ■ MURCIA og LA CORUNA. Dómstólar í Murcia- héraði á Suð- ur-Spáni og Pontevedra 5 norðvest- urhluta landsins, hafa úrskurðað að kosið verði á ný í héruðunum vegna óvissu sem upp er komin um úthlutun þingsæta eftir þingkosn- ingarnar í síðasta mánuði. Hreinn meirihluti Sósíalistaflokksins á þingi veltur á einu sæti sem flokkur- inn var sagður hafa unnið í Murcia. í fyrstu var talið að sósíalistar hefðu unnið þingsætið umdeilda en eftir að atkvæði höfðu verið talin á ný þótti sýnt að kommúnistar hefðu borið sigur úr býtum. í Pontevedra reis upp ágreiningur vegna utan- kjörstaðaatkvæða og var ákveðið að endurtaka kosningar þar. Kosið verður á ný á báðum stöðum. Leiðtogakjör breska íhaldsflokksins: Thatcher á vísan yfirburðasigur St. Andrews. Frá Guðmundi Heiðari Frímannssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. TALIÐ er nær fiillvíst að Margaret Thatcher, forsætisráðheiTa Breta, vinni yfirburðasigur á Sir Anthony Meyer í leiðtogakjöri breska íhaldsflokksins í dag. Sir George Younger, fyrrum land- varnaráðherra, sem verið hefur kosningastjóri forsætisráðherrans, sagði um helgina að unnið hefði verið að því að vinna efasemdamenn- ina í þingliði íhaldsflokksins á band Thatcher. Younger gagnrýndi framboð Sir Anthonys Meyers og sagði Meyer hafa metið ástandið í flokknum rangt, og einnig í landinu. Það væri alls ekki almennur vilji fyrir að Thatcher hyrfi úr embætti. Þetta væru dæmigerðar áhyggjur þing- manna á miðju kjörtímabili og vel þekkt fyrirbæri. í skoðanakönnun sem birtist í The Sunday Times síðastliðinn sunnudag kom fram að nær tveir þriðju kjósenda væru óánægðir með Sameining Norður- og Suður-Jemens Aden. Reuter. frammistöðu Thatcher og einn þriðji af kjósendum íhaldsflokksins væri óánægður með hana. Þetta er svipað og árið 1986, árið fyrir síðustu kosningar. Almennt er talið að af ríflega 370 þingmönnum íhaldsflokksins séu um 20 staðráðnir í að greiða atkvæði gegn Thatcher. Talið er að um 300 muni styðja hana og um 50 séu beggja blands. Fari stuðningur við Thatcher mikið niður fyrir 300 þingmenn er það talið áfall fyrir hana. Reuter Filippeyskir uppreisnarmenn búa sig undir bardaga við stjórnar- hermenn á sunnudag, þremur dögum eftir að uppreisnartilraun þeirra hófst. Uppreisnartilraunin á Filippseyjum: Vilja vopnahlé vegna innlyksa ferðamanna Manila. Reuter. UPPREISNARMENN á Filippseyjum skutu í gær úr flugskeytabyss- um og vörpuðu sprengjum af þökum háhýsa í skrifstofúhverfi í höfúðborg landsins, Manila. Hundruð erlendra ferða- og kaupsýslu- manna urðu innlyksa í hótelum á átakasvæðunum og rlkisstjórnin hvatti uppreisnarmennina til þess að fallast á vopnahlé til að hægt yrði að flylja útlendingana á brott. Perestrojkan hefúr nú náð til suðurodda Arabíuskaga því ákveðið hefiir verið að sameina Norður- og Suður-Jemen. Viðræður um sameiningu Suður- Jemens, þar sem marxismi hefur verið við lýði, og Norður-Jemens, sem hallast að vestrænum stjómar- háttum, hafa staðið í 18 ár. Ekki er lengra síðan en einn mánuður að ferðafrelsi var innleitt í Suður-Jemen en ríkið er sárafátækt og lokað og hefur verið líkt við Albaníu. Gerð hafa verið drög að stjórnarskrá fyrir sameinað Jemen, sem kveður meðal annars á um fjölflokkakerfi, og verða þau nú lögð fyrir þing landanna. Rúmlega hundrað manns hafa fallið og 500 særst frá því uppreisn- artilraunin hófst á fimmtudags- kvöld. Hermönnum hollum Corazon Aquino, forseta landsins, tókst á föstudag að hrekja uppreisnar- mennina frá þremur herbúðum og tveimur sjónvarpsstöðvum, sem þeir höfðu náð á sitt vald. Um 400 vel- vopnaðir uppreisnarmenn náðu síðan 15 byggingum í Makati-skrif- stofuhverfinu og héldu áfram árás- um á stjórnarhermenn af þökunum. Fidel Ramos varnarmálaráðherra ítrekaði þó í gær að uppreisnartil- raunin hefði verið kveðin niður. Hundruð erlendra ferða- og kaupsýslumanna voru í fjórum lúx- ushótelum í hverfinu og komust ekki út vegna bardaganna. Banda- ríkjamaður særðist er hann varð fyrir skoti í hóteli sínu. Uppreisnar- mennirnir skutu á alla sem nálguð- ust þá. Tvær öflugar sprengingar urðu í öðrum hverfum borgarinnar og óttast var að bardagamir myndu breiðast út. Rafael Alunan aðstoðarferða- málaráðherra hvatti uppreisnar- mennina til þess að leggja niður vopn um stundarsakir til að hægt yrði að flytja hótelgestina í Makati á brott. „Við skulum ekki skapa spennu á meðal erlendra gesta okkar, sem tengjast á engan hátt baráttu ykkar,“ sagði hann í út- varpsávarpi, Austur-Þýskaland: Kommúnistaflokkur í upplausn vegna gífurlegrar spillingar Reuter Um 5.000 félagar í austur-þýska kommúnistaflokknum komu saman til fúndar sl. laugardag til að krefjast afsagnar allrar flokksforystunn- ar. Egon Krenz, sem sagði síðar af sér sem flokksleiðtogi ásamt allri miðstjórninni og stjórnmálaráðinu, reyndi að ávarpa fúndinn en var púaður niður. Austur-Berlín. Reuter. TVEIR fyrrum félagar í stjórn- málaráði austur-þýska kommún- istaflokksins voru handteknir um helgina og ýmsir fyrrverandi ráðamenn reknir úr flokknum, þar á meðal Erich Honecker, fyrrverandi flokksleiðtogi. Þá hefúr háttsettur embættismaður, sem fór með utanríkisviðskipta- mál í tíð fyrri stjórnar, flúið land til að komast hjá handtöku en i íjós hefúr komið, að ríkisfyrir- tæki, sem undir hann var sett, hefiir stundað ólöglega vopna- sölu i stórum stíl. Daglega berast nýjar fregnir um spillingu meðal fyrrum ráðamanna í Austur- Þýskalandi og á þingi hafa þeir verið sakaðir um að hafa sólund- að þjóðarauðnum í eigin þágu og flutt gífúrlegar flárhæðir á leynireikninga erlendis. Austur-þýska fréttastofan ADN skýrði frá því á sunnudag, að Gunter Mittag, fyrrum efnahags- málaráðherra, Harry Tisch, fyrrum formaður alþýðusambandsins, og að auki Gerhard Muller, fyrrum flokksformaður í Erfurt, hefðu verið handteknir fyrir að misnota stöðu sína og skaða efnahag lands- ins og ríkisútvarpið hafði það eftir Gunter Schabowski, talsmanni kommúnistaflokksins, að Erich Honecker, fyrrum leiðtogi, Erich Mielke, fyrrum yfirmaður öryggis- lögreglunnar, Horst Sindermann, fyrrum forseti þingsins, og Willi Stoph, fyrrum forsætisráðherra, hefðu verið reknir úr flokknum. Síðastliðinn laugardag kom til mikilla mótmæla í Austur-Berlín en þá hafði komið í ljós, að ekki var allt sem sýndist með eitt ríkisfyrir- tækið. Starfsemin reyndist ein- göngu vera ólögleg vopnasala til ýmissa landa og svo var ósvífnin mikil, að vopn, skotfæri og sprengj- ur voru geymd í vöruhúsum í bænum Kavelstorf í næsta nágrenni við íbúðarhús. Yfirmaður fyrirtækisins, Alex- ander Schalck-Golodkowski, sem fyrir aðeins mánuði þótti líklegur eftirmaður Gunters Mittags sem efnahagsmálaráðherra, hefur nú flúið land til að komast hjá hand- Alexander Schalk-Golodkowski töku en ekki er vitað hvar hann er staddur. Rétt fyrir helgi hringdi hann til Wolfgangs Vogels, eins helsta lögfræðings austur-þýskra stjómvalda, og bað hann ásjár en vildi ekki segja hvaðan hann hringdi. Þegar fréttist af flótta Schalcks lýsti Hans Modrow forsætisráð- herra honum sem landráðamanni og félagsmenn í Nýjum vettvangi,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.