Morgunblaðið - 05.12.1989, Page 27

Morgunblaðið - 05.12.1989, Page 27
MORGUNBLAÐÍÐ ÞRIÐJUDAGlÍR !5!. DESEMBER 1989 2S Tólf bíða bana í sprengingu í Belgíu Brussel. Reuter. TÓLF manns biðu bana og þrír slösuðust alvarlega í skotæfinga- húsi í Brussel á sunnudag er sprenging varð í skotfærageymslu í kjallara hússins. Ekki var vitað í gær hvað olli sprengingunni en fréttastofan Belga skýrði frá því að byssukúla gæti hafa endurkastast úr æfingasalnum í skotfæra- geymsluna. Um fjörutíu manns voru í húsinu þegar sprengingin varð. Ættingjar þeirra sem biðu bana söfnuðust saman fyrir framan húsið og á myndinni hughreysta tveir Belgar stúlku, sem misst hafði föður sinn í sprengingunni. 48. leikvika - 2.desember 1989 Vinningsröðin: 112-211-X2X-11X HVER VANN ? 4.629.319- kr. 7 voru meö 12 rétta - og fær hver: 530.521 - kr. á röð 11 voru með 11 rétta - og fær hver: 4.200- kr. á röð Lukkulínan 991002 - með allar nánari upplýsingar. Mesta banka- rán Noregs Ósló. Frá Kunc Timberlid, fréttaritara Morgunblaðsins. ÞRIR vopnaðir og grímuklæddir menn rændu í gær sex milljónum norskra króna, jafnvirði 60 millj- óna ísl. kr., úr peningaflutn- ingabíl stærsta banka landsins, Kreditkassen. Er það mesta bankarán í sögu Noregs. Ræningjamir óku stolnum vörubíl á bankabílinn, sem var sérstaklega útbúinn til peninga- flutninga og því mjög rammgerð- ur. Ökumenn bankabílsins slösuð- ust illa og gátu enga mótspyrnu veitt. Ræningjarnir fóru frá ráns- staðnum á Volvo-bifreið en hún fannst stuttu seinna skammt frá ránsstaðnum og stóð þá í ljósum logum. Þaðan fóru þeir á Ford- sendibíl en hann yfirgáfu þeir einn- ig, kveiktu í honum og enn öðrum flóttabíl. Ekki er vitað um ferðir þeirra eftir það. Kreditkassen hét í gær 200 þús- undum króna, um tveimur milljón- um ísl. kr. , fyrir upplýsingar er leitt gætu til handtöku ræningj- anna. stærstu samtökum stjórnarand- stæðinga í Austur-Þýskalandi, höfðu að því frumkvæði, að lögregl- an girti af heimili hans og skrifstof-> ur í utanríkisviðskiptaráðuneytinu til að ekki yrði unnt að koma undan skjölum og öðrum gögnum. Þá skoraði Nýr vettvangur á Modrow að sjá til, að aðrir embættismenn kæmust ekki burt yfir galopin land- amærin. í umræðum á austur-þýska þing- inu á föstudag var því haldið fram, að ýmsir austur-þýskir embættis- menn hefðu flutt gífurlegt fé, allt að 100 milljarða austur-þýskra marka (56 milljarða dollara), á leynireikninga í Sviss og einnig gull og platín. Gerhard Beil utanrík- isviðskiptaráðherra kvaðst þá ekki vita hvað hæft væri í ásökununum en á vegum þingsins fer nú fram ítarleg rannsókn á spillingunni í stjórnartíð Honeckers. Upplýsingar um spillinguna, sem þrifist hefur meðal ráðamanna í Austur-Þýskalandi, hefur valdið því, að kommúnistaflokkurinn er í upplausn. Á síðustu vikum hafa rúmlega 200.000 manns sagt sig úr flokknum og þeim fjölgar dag frá degi eftir því sem meira fréttist af óhófslifnaði alþýðuforingjanna. „Hvenær verður flórinn fullmokað- ur?“ spurði Austur-Berlínarblaðið Berliner Zeitung í gær en það lýsir best hug almennings til ráðamanna, að háskólamenn hafa nú skipulagt opinbert hlaup eða trimm um Wandlitz-hverfið þar sem „hin nýja stétt“ bjó út af fyrir sig á bak við háa múra í 30 ár. Sagði í frétt ADN-fréttastofunnar, að hlaupið um „Volvograd“ eins og hverfið var oft kallað vegna allra Volvo- bílanna, sem þar var að finna, væri til að fólk gæti séð með eigin augum lúxusinn og óhófið og til að minn- ast þeirra, sem hefðu þjáðst undir einræðisstjórninni. Komdu og njóttu litlu jólanna á Holiday Inn List og lostœti allan desember Allan desember eru sannkölluð litlu jól á Holiday Inn. Gimilegt kaffihlaðborð og jólahlaðborð með lostœti fyrir bragðlaukana. Einnig Desembergallerí íslenskra listamanna, glaðningur fyrir augað. Fallegar jólaskreytingar, stórt jólatré og starfsfólkið í jólaskapi. DesembergaUerí Opið allan daginn Ellefu þekktir listamenn sýna og selja grafík og teikningar í anddyri Holiday Inn. Þetta er engin venjuleg myndlistarsýning, því ef þér líst á eitthvert verkanna, þá færðu það strax í hendur. Engin bið eftir að sýningu ljúki. Listamennimir Aðalheiður Valgeirsdóttir, Björg Þorsteinsdóttir, Guðbjörg Ringsted, Ingibergur Magnússon, Jóhanna Bogadóttir, Jón Reykdal, Lísa Guðjónsdóttir, Ríkharður Valtingojer, Sigrún Eldjárn, Tryggvi Árnason og Valgerður Hauksdóttir. Jólahlaðborð Holiday Inn Hádegi og kvöld Lostæti fyrir bragðlaukana. Gamlar og góðar uppskriftir af jólaréttum frá ýmsum löndum. Þar á meðal má nefna danska rifjasteik, sænska síldarrétti, gljáð grísalæri, danska eplaköku, heitt og kalt hangikjöt, franskar jólakökur, laufabrauð o.fl. Kr. 1.560 fyrir manninn. KafShlaðborð Holiday Inn Eftirmiðdaga og síðkvöld Rjúkandi heitt kaffi, súkkulaði meða rjóma og meðlæti sem rifjar upp gamlar og góðar jólaminningar. Sérstaklega ber að nefna hið gamalkunna ,Jomfru með slör“ og heitar eplaskífur. Matreiðslumaður bakar vöfflur í salnum. Litlu jólin á Holiday Inn Frá 1. til 23- desember Verið hjartanlega velkomin. Sigtúni 38, sími 689000

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.