Morgunblaðið - 05.12.1989, Side 40

Morgunblaðið - 05.12.1989, Side 40
40 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1989 \ .chS Vie'u"" —I \ _ sere HÍ'dW9®5"eS^< »»* ‘^sfgSgi isga^ Leitið til okkar; SMITH&NORLAND NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300 JHMqpmlilfifrlfr Metsötublaó á hvetjum degi! Emkarekstur í heilbrigðismálum eftir Arna Ingólfsson Það mun hafa verið í apríl 1988 að ellefu læknar komu saman til að ræða möguleika á því að stofna fyrirtæki og aðstöðu sem hefði það að markmiði að gera „ambulant“ aðgerðir (án innlagna) og einnig aðgerðir sem þýddu stuttan leg- utíma (1-2 legudaga). Fyrirmynd- ina höfðum við fengið að utan en þar hefur verið mikil þróun í þessum málum allt frá árinu 1980. Reynsl- an erlendis sýndi að árangur fyrir sjúklingana var að minnsta kosti jafn góður ef þessi háttur var hafð- ur á miðað vð stóru spítalana og kostnaður helmingi minni fyrir sjúkling eða þjóðfélag. Og þar að auki miklu styttri biðtími fyrir við- komandi sjúkling. Við höldum að um leið og við bætum eigin starfs- aðstöðu þá sé þetta mál mjög í þágu sjúklinganna og jafnframt mikill sparnaður fyrir þjóðfélagið. Við leituðu.m fyrir okkur á nokkrum stöðum og gerðum eitt bindandi kauptilboð í húsnæði. Skurðdeild Borgarspítala (deild 55), staðsett í húsi Fæðingarheimil- is Reykjavíkur (FHR), átti að opna eftir sumarfrí kringum miðjan ágúst 1988 en á síðustu stundu var hætt við þá opnun og málin stóðu þannig í byijun september að alger óvissa var hvenær eða hvort skurð- stofan yrði' opnuð. Við læknarnir gerðum þá fyrirspurn til vissra að- ila í borgarstjórn um möguleikann á kaupum á 1. og 2. hæð hússins og var þeim málum vel tekið. Einn- ig síðar af formanni stjórnar sjúkra- stofnana Reykjavíkur og fram- kvæmdastjóra Borgarspítalans. Var þetta síðan áréttað með skriflegri beiðni til borgarstjóra. Á næstu mánuðum þróaðist af einhveijum orsökum andstaða gegn þessari ráðagerð hjá nokkrum áður upptöldum aðilum. Við mátum þó aðstæður þannig að aðeins væri um tímabundna andstöðu að ræða enda var læknahópurinn, þegar hér var komið sögu, orðinn það innstilltur á þessa lausn að fyrirsjáanlegt var að ef hún brygðist myndi hópurinn leysast upp og góðar fyrirætlanir verða að engu. Síðan höfum við rætt við marga æðstu menn í heil- brigðis- og fjármálum, bæði í ráðu- neytum og utan þeirra, um þessa nýju sparnaðarleið og alls staðar verið vel tekið og margir þeirra sýnt mikinn áhuga. Fyrir tæpum mánuði komust þessi mál aftur á góðan skrið hjá borgarstjórn og nú hefði mátt halda að hnútarnir væru leystir. En svo var þó ekki heldur var hafin ný sókn gegn fyrirætlun okkar frá óvæntum vígstöðvum. Allt í einu, án þess að nokkurt útlit sé fyrir fjölgun fæðinga á næstu árum, þá halda þessar nýju „stormsveitir" því fram að þörfin fyrir aukinn rúma- ijölda fyrir fæðandi konur sé svo geigvænleg að eitt neyðarástandið ennþá sé að skapast á landi okkar. Mikið er rætt og ritað um hugsan- lega hrömun íslenskrar tungu. Að minnsta kosti er það rétt að orðið „neyðarástand“ hefur algerlega breytt um merkingu í tímans rás og er nú hjómið eitt miðað við það sem áður var. Spurning dagsins er hvort þörf sé fyrir fleiri rúm fyrir fæðandi konur hér í dag. Ef við leitum svara við þessari spurningu þá þurfum við að líta nokkuð á þær tvær stofn- anir sem sinna þessu hlutverki í Reykjavík. Hvað varðar FHR, sem var fyrir nokkrum árum með 15 pláss á 2. hæð hússins, þá óskuðu yfirlæknir og fleiri eftir því árið 1986, að verða flutt upp á 3. hæð með starfsemina þar sem voru 10 pláss. Þessi beiðni kom vegna allt of lítillar nýtingar á plássum. Síðan Árni Ingólfsson „Ég held því fram að hér sé fyrst og fremst um að ræða vörn kerfis- ins fyrir sjálft sig. Kerf- ið sér ógn í slíkum eiukarekstri sem við hugsum okkur að heija. Það eru margs konar múrar í heiminum og kerfismúrinn er ekki bestur. Þegar höggvið er í hann láta þeir sem lifa á kerfinu öllum ill- um látum. Höggvum skörð í múrinn.“ þetta gerðist hefur aðsókn fæðing- arkvenna á Fæðingarheimili Reykjavíkur verið óbreytt, a.m.k. G llsjluðrún Ásmundsdóttir leikkona er íslending- um að góðu kunn. í bókinni Ég og lífið gefur hún lesendum innsýn í margbrolið líf sitt þar sem skipst hafa á gleði og sorg, sigrar og ósigrar, trú og efi. Hún ræðir á opinskáan hátt um bernsku sína, ást, hjónabönd, störf og list. Líf Guðrúnar er hlaðið andstæðum og miðlar hún reynslu sinni af mikilli einlægni og næmni. Inga Huld Hakonardottir hefur skrasett ahrifaríka og heillandi sögu Guðrúnar Ásmundsdóttur af miklu listfengi. Eg og lífið er einhver óvenjulegasta æviminningabók sem komið hefur út á íslandi. VAKA SÍÐUMÚLA 29 SÍMI688-300 III IC.AI 11 L

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.