Morgunblaðið - 05.12.1989, Side 47

Morgunblaðið - 05.12.1989, Side 47
og í honum voru líka þær þrjár stelpur sem sóttu ráðstefnuna. Þetta er að sjálfsögðu mjög við- kvæmt og erfitt umræðuefni og við höfðum öll svo mikið að segja að við gátum ekki skilað neinni niðurstöðu eftir klukkutímann sem við höfðum til að ræða þessi mál. Við vorum öli hrærð og dálítið bitur gagnvart því að geta ekki leyft okkur það sama og þeir sem ekki fara í próf leyfa sér og sár yfir því að þurfa ein að bera alla ábyrgð- ina í kynlífinu. Við höfum þegar tekið á okkur þá ábyrgð að fara í alnæmispróf og okkur fínnst óréttl- átt að þurfa að bera alla ábyrgðina ein. Það kom líka fram að það veldur gagnkynhneigðu fólki mikilli beiskju að þurfa að horfast í augu við það að geta ekki átt börn þó að samkvæmt sænskum tölum hafi einungis um þriðjungur barna smit- aðs fólks erft veiruna. Barnleysi eru aftur á móti mál sem við hommarnir erum löngu búnir að gera upp við okkur og höfum þurft að sætta okkur við. Sérstök áskorun til ríkisstjórna Islands og Finnlands A ráðstefnunni var lögð áhersla á að auka þyrfti samstarf jákvæðu hópanna á Norðurlöndunum og skorað á Norðurlandaráð og félags- málaráðherra Norðurlandanna að auka fjárhagslegan stuðning við jákvæða. í lokaályktun ráðstefn- unnar var einnig bent á nauðsyn þess að ríkisstjórnir Norðurland- anna láti ekki duga að bera ábyrgð á læknisþjónustunni heldur sjái einnig um félagslegan stuðning. í þessari ályktun var lögð sérstök áhersla á að ríkisstjórnir íslands og Finnlands styddu sína jákvæðu hópa. Við fundum áþreifanlega fyrir því þarna úti í Stokkhólmi hvað við hér heima erum fámenn. Það hefur enginn komið opinberlega fram hér á landi nema Sævar Guðnason, sem gerði mikið gagn, en niðurstaða okkar á ráðstefnunni var sú að það gerist ekkert raun- hæft héma fyrr en einhver stígur fram. MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1989 47 Frábær aðstaða í Svíþjóð Félagslegi aðbúnaðurinn og læknisþjónustan í Svíþjóð er frábær og það gladdi okkur ósegjanlega að sjá hvað mikið er gert þar fyrir jákvæða og sjúka þó að við fáum ekki að njóta slíkrar þjónustu hér heima. Þarna fundum við að það er ekki öllum sama um okkur. Á spítalanum sem við skoðuðum í Stokkhólmi eru tvær deildir fyrir jákvæða og sjúka, önnur er ein- göngu fyrir homma en hin er öllum opin, gagnkynhneigðu fólki og hommum. Þessar deildir eru ein- staklega heimilislegar með blómum, myndum á veggjum og púðum í sófum, borðstofu og eldhúsi þar sem fólk getur eldað sjálft ef það vill. Veggirnir eru málaðir í skemmtilegum litum og allt svo smekklegt að meira að segja hjóla- stólarnir eru fallegir, eins konar hægindastólar á hjólum. Félagslega þjónustan í Stokk- hólmi er einnig aðdáunarverð. Já- kvæði hópurinn í Svíþjóð fékk 15 milljónir sænskra króna eða um 150 milljónir íslenskra króna í styrk á síðasta ári og félag aðstandenda er líka styrkt af ríkinu. í Stokk- hólmi getur maður snúið sér til tveggja aðila. Sænska ríkið veitir ókeypis þjónustu og hefur lagt stórt hús í miðborginni undir þá starfsemi. Þar er meðal annars göngudeild fyrir þá sem greinst hafa jákvæðir og þangað geta þeir sótt ráðleggingar lækna og annars hjúkrunarfólks, næringarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa auk þess sem þar fer fram meðferð fyrir áfengissjúklinga og fíkniefna- neytendur. Örkin hans Nóa Annars staðar í borginni er svo annað stórt hús sem hýsir starfsemi Noas Ark, Arkarinnar hans Nóa. Þar er tekið á móti fólki sem er í tímabundnu húsnæðishraki og þeir sem eru að fara á spítala eða koma af spítalanurn fá þarna gistingu á meðan þeir þurfa. Þama fá að- standendur líka gistingu á meðan þeirra fólk er á spítalanum. í þessu húsi er tekið tillit til allra hugsan- Sjá næstu siðu Verð /r«2.2bU Hárblásari, 1200 w. Verð frá 1.159* Nuddtœki. Verð frá 2.775 RONNING Vöfflujám. Verð frá 4.390 Brauðrist. Verð frá 2.997 Miðað við staðgreiðslu Við erum ekki bara hagstœðir... KRINGLAN ...vió erum betrL S: 68 58 68 ALDREI HEFll IUFIR KOMIÐ ÞJÓDIMI JAFMIIKIÐÁ ÓVADI’! ILífsspegli Ingólfs Guðbrandssonar birtist ný og skýr mynd af þjóðkunnum manni sem hefur bæði verið umræddur og umdeildur. Hann hefur ótrauður farið eigin leiðir og margoft komið landsmönnum á óvart- en þó aldrei eins og í þessari bók. Ingólfur ræðir í Lífsspegli af fyllstu hreinskilni um líf sitt og einkamál, trú, ást og tilfinningar. Hann varpar einnig nýju ijósi á margvísleg störf sín og samferðafólk. Ingólfur segir í formála bókarinnar að hann greini hér frá sannleika sem ekki sé öllum ljós, skoðunum sem eru kjarni lífsreynsiu hans og lífsviðhorfi sem fæst við leitina að hreinum tóni. Texti Lífsspegils er í senn blæbrigðaríkur, skáldlegur, myndrænn og ástríðufullur. Þessi athyglisverða bók um Ingólf Guðbrandsson er á þriðja hundrað síður og prýða hana um áttatíu ljósmyndir. Lífsspegill cr cinstæð bók, nýtt og spennandi liibrigði við form minningabóka - annað og mcira en venjulcg ævisaga. HELGAFELL jmr SÍÐUMÚLA 29 SÍMI6-88-300

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.