Morgunblaðið - 05.12.1989, Side 58

Morgunblaðið - 05.12.1989, Side 58
58 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1989 ÞVOTTAVEL Topphlaðin með þeytivindu. (2800 sn./mín) (aðskilin) HafiiarQörður: Lögreglan heldur nám- skeið fyrir vélhjólamenn LÖGREGLAN í Hafiiarfirði hefiir undanfarið staðið fyrir námskeið- um fyrir ökumenn vélhjóla. Til þessa ráðs var gripið til að fækka réttindalausum vélhjólamönnum í bænum, að sögn Gissurar Guð- mundssonar, rannsóknarlögreglumanns. Verð aðeins kr. 59J90 KJÖLUR hf. X*1 ÁRMÚLA 30 S: 678890 - 678891 Fyrstu nemendurnir, átta piltar, voru útskrifaðir í gær og af því tilefni afhenti dómsmálaráðherra, Óli Þ. Guðbjartsson, piltunum prófskírteinin. „Okkur fannst til- gangslaust að vera alltaf að grípa sömu piltana réttindalausa á hjól- unum og sekta þá, svo við ákváð- um að halda námskeið,“ sagði Gissur. „Piltamir ljúka fyrst skrif- legum prófum og fá svo leyfi til að aka vélhjóli til reynslu í hálfan mánuð. Að þeim tíma liðnum taka þeir ökuprófið. Við höfum haldið tvö námskeið og hafa sextán piltar sótt þau. Öðru námskeiðinu er nú lokið og þriðja námskeiðið verður í byijun janúar.“ Gissur kvaðst ánægður með þann áhuga sem piltarnir hefðu sýnt námskeiðunum. „Við höfum orðið okkur úti um vélhjól, sem við lánum þeim piltum sem ekki eiga hjól sjálfir. Það hafa oft orð- ið slys þegar óvanir, réttindalausir piltar eru að reynsluaka hjólum kunningjanna. Með þessum nám- skeiðum emm við vonandi að vinna fyrirbuggjandi starf, sem skilar miklu betri árangri en sektirnar,“ sagði Gissur Guðmundsson. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Óli Þ. Guðbjartsson, dómsmálaráðherra, afhenti í gær átta vélhjóla- ökumönnum í Hafnarfirði prófskírteini. Piltamir era f.v.: Friðjón I. Guðmundsson, Kristján R. Þorsteinsson, Birgir Ö. Gylfason, Grímur V. Guðmundsson, Hörður Helgason og Heiðar Ö. Kristjánsson. Varði doktorsritgerð um gigtarlækningar Helgi Jónsson gigtarlæknir varði doktorsritgerð við háskól- ann í Lundi þann 9. nóvember, en þar hefur hann stundað sérnám og rannsóknir sl. 8 ár. Titill ritgerðarinnar er: „On systemic Iupus erythematosus: Jólagjafir sem sýna hlýhug Nú getur þú gefið krökkunum nærbol og nærbuxur úr hlýrri angóruull og þeim fullorðnu húfu, trefil og vettlinga í sérstökum gjafapökkum. Þeim verður án efa hlýtt til þín sem fá fatnað úr angóru- ull í jólagjöf frá þér. Angóruullin gefur átta sinnum meiri einangrun en aðrar ullartegundir og er auk þess fínni og létt- ari. Hún hleypir svita vel í gegnum sig og getur tek- ið í sig allt að fjór- falda þyngd sína af raka án þess að einangrun- argildið skerðist. Fyrir krakkana skiptir miklu máli að þá klæjar ekki í nærfatnaði úr angóruull og veturinn verður leikur einn. Mjúkir pakkar eru að koma í tísku aftur hjá krökkum og þegar þeir fara út að leika sér eftir jólin kunna þeir gott að meta í hlýrri angóruullinni. Fullorðnir þurfa ekki síður að verjast kulda og frosti og fatnaður úr angóruull er bæði glæsilegur og hlýr auk þess að vera léttur og þægilegur. Sýndu hlýjar til- finningar og gefðu fatnað úr angóruull í sérstökum gjafapökk- um í jólagjöf. sími 666006 ÚTSÖLUSTAÐIR: REYKJAVÍK Álafoubúðin Árbcejarapótek Borgar Apótek Brcidboltsapótek Ellingsen Garós-Apótek Uáaleitis Apótek Holts-Apótek Ingólfs Apótek Laugavegs Apótek Lyfjabúöin íðunn Rammagerðin Skátabúðin Sportval Ull og Gjafavörur Útilíf Veiðibúsið Veiðivon SELTJARNARNES Sportlíf KÓPAVOGUR Kópavogs Apótek GARÐABÆR Apótek Garðabcejar HAFNARFJÖRÐUR Apótek Norðurbœjar Hafnarfjarðar Apótek KEFLAVÍK Samkaup KEFLAVÍKURFLUGVÖLLUR íslenskur Markaður MOSFELLSBÆR Mosfells Apótek Verslunin Fell Verksmiðjuútsala Álafoss AKRANES Sjúkrabúsbúðin BORGARNES Kf Borgfirðinga ÓLAFSVÍK Söluskáli Einars Kristjánssonar STYKKISHÓLMUR Hólmkjör BÚÐARDALUR Dalakjör PATREKSFJÖRÐUR Versl. Ara Jónssonar TÁLKNAFJÖRÐUR BJarnabúð ÞINGEYRI Kf. Dýrfirðinga FLATEYRI Brauðgerðin BOI.UNGARVÍK F.inar Guöfinnsson ISAfJÖRDU* Sportblaöan HÓLMAVfK Kf. Steingrimsfjarðar HVAMMSTANGI Vörubúsið Hvammstanga BLÖNDUÓS Apótek Blönáuóss SAUÐÁRKRÓKUR Skagfiröingabúð VARMAHLÍÐ Kf. Skagfirðinga SIGLUFJÖRÐUR Versi. Sig. Fannáal ÓLAFSFJÖRÐUR Valberg DALVÍK Daivíkur-Apótek Versl. Kotra AKUREYRI Versl. Parfs HÚSAVÍK Bókav. Þórarins Stefánssonar MÝVATNSSVEIT Verslunin Sel . RAUFARHÖFN Snarllð VOPNAFJÖRÐUR Kf. Vopnfirðinga SEYÐISFJÖRÐUR Versl. E.J. Waage NESKAUPSTAÐUR Versl. S.Ú.N. EGILSSTAÐIR Kf. Héraðsbúa ESKIFJÖRÐUR Sportv. Hákons Sófussonar FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR Kf Fáskrúösfjarðar STÖÐVARFJÖRÐUR Kf. Stöðfirðlnga BREIÐDALSVÍK Kf Slöðfirðinga HÖFN Kf. A.-Skaftfellinga FAGURHÓLSMÝRl Kf. A.-Skaftfelllnga HELLA Rangár-Apótek SELFOSS Vörubús K.Á. HVF.RAGERÐI Ueilsubúö N.L.F.Í. Ölfus Apótek Clinical studies with special ref- erence to epidemiology, lung function and complement activ- ation.“ Ritgerðin er á ensku. Hún byggir á sex greinum, sem fjalla um sjúkdóminn rauða úlfa (SLE). Þessar greinar hafa ver- ið teknar til birtingar í alþjóð- legum læknaritum á sviði gigt- arlækninga, lyflækninga og ónæmisfræði. Andmælandi við vörnina var prófessor Peter Maddison í Bath í Englandi. í ritgerðinni er greint frá rann- sóknum er stóðu í sex ár. Helgi fylgdist, ásamt tveimur sænskum gigtartæknum, með öllum sjúkl- ingum með rauða úlfa í tveimur læknishéruðum í sunnanverðri Svíþjóð. Fylgst var með sjúkling- unum með læknisskoðun og blóð- prufum á tveggja mánaða fresti og oftar ef þörf krafði. Árangurinn virðist mjög góður. Dánartíðni og vinnugeta voru nánast sambæri- legar við sænskan viðmiðunarhóp á sama aldri. Höfundur telur að Stílhrein og vönduð hlaðrúm úr furu sem börnunum líkar. Henta vel í barnaherbergið og sumarbústaðinn. Þú færð ekki betri og ódýrari lausn. Vönduð íslensk framleiðsla - með góða reynslu FURU HÚSIÐ Grensásvegi 16 108 Reykjavfk Slmi687080 Helgi Jónsson, gigtarlæknir. hið stöðuga eftirlit hafi átt sinn þátt í þessum góða árangri, en hann leggur jafnframt áherslu á að reynt skuli að halda barkstera- meðferð (prednisólon) í lágmarki vegna hættu á aukaverkunum. I seinni hluta ritgerðarinnar er ijallað um starfsemi svokallaðs komplementkerfis við rauða úlfa. Þetta eru eggjahvítuefni, sem eru líkamanum nauðsynleg, m.a. til vamar gegn sýkingum, en þau geta þó stundum átt þátt í Iíffæra- skemmdum. Með rannsóknum á virkjun fyrsta komplementþáttar- ins (Cl) er leitað skýringa á því hvers vegna virkjun þessa kerfis getur verið skaðleg í vissum tilvik- um. Helgi lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1972. Hann lauk prófi í læknis- fræði frá Háskóla íslands árið 1978. Hann starfar nú á Lands- pítalanum og hjá Gigtarfélagi ís- lands. Helgi er sonur hjónanna, Guð- rúnar P. Helgadóttur fyrrverandi skólastjóra, og Jóns heitins Jó- hannessonar prófessors. Hann er kvæntur Kristínu Færseth félags- fræðingi, og eiga þau þijú börn. Síðustu förvöð að fá myndatöku fyrir jól Myndatökurfrákr. 7.500.- öllum myndatökum okkar fylgja tvær prufustækkanir 20x25 cm Ljósmyndastofan Mynd sfmi 5 42 07 Ljósmyndastofa Kópavogs sfmi 4 30 20 k&é'iíiéétiti&éii J

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.