Morgunblaðið - 14.12.1989, Qupperneq 1
88 SIÐUR B
286. tbl. 77. árg.________________________________FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1989_______________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter .
Jólasnjórí Washington
Vegfarandi með regnhlíf yfir höfðinu gengur fram hjá þinghúsinu í
Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, í gær. Mikill snjór er nú í
borginni og vona borgarbúar að hann haldist til jóla.
Reuter
Fyrsti varðturninn rifinn
Fyrsti varðturninn á landamærum Austur- og Vestur-Þýskalands var-
rifinn í gær, skammt frá austur-þýska bænum Stapleburg. Áformað
er að rífa 590 slíka turna á landamærunum. Austur-Þjóðveijar fylgd-
ust með atburðinum og fögnuðu honum ákaft.
Kosningarnar í Chile:
Sri Lanka:
við ekki sætt okkur við,“ sagði
Andres Zaldivár-, leiðtogi stjórnar-
andstæðinga í Kristilega demó-
krataflokknum.
Talið er að forsetaframbjóðandi
stjórnarandstæðinga, Patricio Ayl-
win, beri sigur úr býtum í kosning-
unum. Samkvæmt skoðanakönnun-
um fær hann mun meira fylgi en
keppinautar hans úr röðum íhalds-
manna, Hernan Buchi, fyrrum fjár-
málaráðherra, og kaupsýslumaður-
inn Francisco Javier Errazuriz. Hins
vegar ríkir mikil óvissa um' hvort
hann fái meirihluta atkvæða og nái
þar með kjöri án þess að kjósa
þurfi að nýju á milli tveggja efstu
frámbjóðendanna. Áformað er að
nýr forseti taki við völdunum af
Augusto Pinochet, leiðtoga herfor-
ingjastjómarinnar, 11. mars.
Nýjum lögum her-
foringja mótmælt
Santíago. Reuter.
Herforingjastjórnin í Chile setti á þriðjudagskvöld lög, sem banna
þingi landsins að rannsaka ákærur á hendur herforingjunum, er
hafa verið við völd í landinu í 16 ár. Andstæðingar herforingjastjórn-
arinnar gagnrýndu lögin harðlega í gær, en í dag verða fyrstu for-
seta- og þingkosningarnar í landinu frá valdaráni hersins árið 1973.
„Þetta er mjög alvarlegt þar sem
ekki verður hægt að refsa þeim sem
hafa verið við völd og slíkt getum
Pólland:
Fúlsa við
dilkakjötinu
Brussel. Reuter.
Evrópubandalagið (EB) hefur
veitt Pólveijum matvælaaðstoð
fyrir jafiivirði 120 milljóna Banda-
ríkjadollara (7.500 milljónir ísl.
kr.) á þessu ári og er varan seld
í verslunum landsins. Komið hefur
í ljós að Pólveijar vilja aðeins
svínalqöt og nautakjöt en fúlsa
við lambakjöti og líta jafiivel á
kjúklinga og fisk sem hvert annað
neyðarbrauð.
Pólsk yfirvöld hafa kurteislega
hafnað hlýlegu boði ítala um lamba-
kjöt en beðið EB um 60.000 tonn
af svínakjöti. Bandalagið á miklar
umframbirgðir af ólífuolíu og bauð
gnægð af henni fyrir ekki neitt en
nú hafa Pólveijar stöðvað þær send-
ingar; olian hentar ekki við pólska
matargerð.
Pólveijar hafa mikinn áhuga á
að flytja út sauðfé, kálfa og hross
á fæti til slátrunar í von um að auka
gjaldeyristekjurnar. „Þetta kemur
skringilega fyrir sjónir þar sem þeir
eiga ekki nóg kjöt fyrir heimamark-
aðinn,“ sagði embættismaður hjá
EB.
Drepa 1.000
manns á mán-
uði hverjum
Lundúnum. Reuier.
Mannréttindahreyfingin Amn-
esty International skýrði frá því
í gær að vinstrisinnaðir skærulið-
ar og hermenn eða stuðnings-
menn sfjórnarinnar á Sri Lanka
dræpu rúmlega 1.000 manns að
meðaltali á mánuði.
Fregnir af drápum öryggissveita,
dauðasveita og vinstrisinnaðra upp-
reisnarmanna hafa gerst æ tíðari frá
því lýst var yfir neyðarástandi í
landinu í júní. „Ofbeldisverkin eru
svo algeng að oft er erfitt að sanna
hveijir voru að verki í einstökum
tilfellum,“ segir í skýrslu Amnesty.
Hinar stríðandi fylkingar í landinu
sýna hvorartveggju limlest lík fórn-
arlambanna til að skapa skelfingu á
meðal landsmanna. „Lík fórnar-
lambanna eru oft brennd á hjólbörð-
um, kastað í kirkjugarða eða í árnar
til að þau fljóti til hafs,“ segir enn-
fremur i skýrslunni.
Að minnsta kosti hundrað manns
biðu bana í átökum stríðandi fylk-
inga tamíla í austurhluta landsins í
gær.
Búlgaría:
Todor Zhívkov rekinn
úr kommúnistaflokknum
Soflu. Reuter.
TODOR Zhívkov, fyrrum leið-
togi búlgarska kommúnista-
flokksins, var í gær rekinn úr
flokknum ásamt syni sínum,
Vladímír, og Mílko Balev, sem
báðir áttu sæti í stjórnmálaráð-
inu. Miðstjórn flokksins skýrði
einnig frá því að hún myndi
beita sér fyrir því að alræðis-
vald flokksins yrði afhumið sem
fyrst.
Vestrænir stjórnarerindrekar
sögðu að brottrekstur Zhívkovs
og tveggja nánustu samstarfs-
manna hans benti til þess að þeir
yrðu dregnir fyrir rétt. Petar Mlad-
enov, sem tók við leiðtogaembætt-
inu af Zhívkov, hefur sakað fyrir-
rennara sinn og nokkra af sam-
starfsmönnum hans um að hafa
valdið efnahagskreppu í landinu.
„Það er full ástæða til þess að
rannsaka nákvæmlega tekjur og
útgjöld Todors Zhívkovs og fjöl-
skyldu,“ sagði Andrej Loukanov,
sem á sæti í stjórnmálaráðinu, á
fundi miðstjórnarinnar, að sögn
búlgörsku fréttastofunnar BTA.
Miðstjórnin ákvað einnig að
fara þess á leit við þing landsins,
sem kemur saman í dag, að það
næmi úr gildi tvær málsgreinar í
fyrstu grein stjórnarskrárinnar,
sem kveður á um forystuhlutverk
kommúnistaflokksins. Mladenov
gaf til kynna á mánudag að alræð-
isvald flokksins yrði afnumið en
sagði ekki hvenær það yrði gert.
Hann tilkynnti einnig að efnt yrði
til fijálsra kosninga og hafnar
yrðu viðræður við stjórnarand-
stæðinga.
Um 60.000 manns tóku þátt í
útifundi til stuðnings kommúnista-
flokknum fyrir utan fundarstað
miðstjórnarinnar. Þátttakendur
sögðu að búlgarska sjónvarpið
hefði staðið fyrir fundinum en
sjónarvottur sagði að þetta væri
síðasta tilraun flokksforystunnar
til að sýna að flokkurinn nyti ein-
hvers stuðnings á meðal almenn-
ings.
Merkustu frétt-
ir áratugarins
Lundúnum. Reuter.
ATBURÐIRNIR í Austur-
Evrópu að undanfórnu þykja
merkustu iréttir þessa áratug-
ar samkvæmt könnun sem
fréttastofan Jfeuter liefur gert.
Könnunin tók til 16 dagblaða
og fréttastofa í Asíu, Afríku,
Evrópu og Norður-Ameríku og
þóttu eftirfarandi atburðir merk-
astir:
1. Kommúnistaflokkar missa
völdin í Austur-Evrópu; Berlínar-
múrinn hrynur og járntjaldið rof-
ið.
2. Míkhaíl Gorbatsjov verður
leiðtogi^ovétríkjanna og kynnir
umbótastefnu sína.
3. Mótmæli kínverskra lýð-
ræðissinna á Torgi hins him-
neska friðar kveðin niður með
grimmdarlegum hætti.
4. Samningur stórveldanna
um meðaldrægar kjarnorkueld-
flaugar og árangurinn í afvopn-
unarmálum.
5. íranar og írakar semja um
vopnahlé í Persaflóastríðinu.
6. Sovéskar hersveitir fluttar
úr Afganistan.
7. Tsjernobyl-slysið í Sov-
étríkjunum veldur geislamengun
í Evrópu.
8. Alnæmi breiðist út í heimin-
um.
9. Borgarastyijöldin í Líbanon
og gíslamálið.
10. Baráttan gegn kynþátta-
aðskilnaði í Suður-Afríku.