Morgunblaðið - 14.12.1989, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1989
Nokkrir kaupmenn
neita að kaupa ijúp-
ur af veiðimönnum
Telja verðið alltof hátt
KAUPMÖNNUM hefiir gengið heldur illa að útvega rjúpur íyrir
jólin, en að sögn Péturs Péturssonar kaupmanns hjá Kjötbúri
Péturs í Reykjavík stafar það af því að skotveiðimenn vilja fá
hátt verð fyrir þær eða 450 krónur fyrir stykkið. Það þýðir að
með 20% álagningu og 25% söluskatti kostar ijúpan 675 krónur
út úr búð. Pétur Pétursson kaupmaður hjá Kjötbúri Péturs segir
þetta verð vera móðgun við neytandann og hefúr ákveðið, ásamt
fleiri kaupmönnum, að kaupa ekki ijúpur af veiðimönnum á þessu
verði.
Pétur segjst hafa gert ráð fyrir
að kaupa stykkið á 280-290 krón-
ur og selja aftur á 440-450 krón-
ur. I fyrra kostaði ijúpan 390
krónur og þótti það hátt verð,
enda varð vart við samdrátt í söl-
unni.
Hann sagði að líkt og í fyrra
hafi gengið sögusagnir um að lítið
væri af ijúpu í nágrenni
Reykjavíkur. Hann telur skýring-
una ef til vill felast í því að líklega
væru um 100 fleiri skotveiðimenn
á ferðinni á þessum slóðum en í
fyrra.
„í rauninni er ekki skortur á
ijúpu því bæði eiga stórmarkaðir
og skotveiðimenn rjúpiir frá í
fyrra. Hins vegar vilja veiðimenn-
irnir fá óheyrilegt verð fyrir þær.
Ég óttast að þetta verði til þess
að fólk hætti að treysta því að fá
íjúpur í jólamatinn og snúi sér að
annarri villibráð. Nú er til dæmis
gott framboð á villigæs. Tveggja
kílóa reytt og sviðin gæs kostar
um 1.460 krónur," sagði hann.
Dræm loðnu-
veiði vegna
tunglskins
AÐEINS þrír bátar tilkynntu
Loðnunefiid um afla í gær,
rúm 1.000 tonn. Þeir fóru
allir inn til Raufarhafiiar til
löndunar.
Sjómenn telja töluvert af
loðnu á veiðisvæðinu, en hún
stendur of djúpt til að nást al-
mennilega, jafnvel í dýpstu
nætumar. Skýringin er talin
mikið tunglsljós, en lesbjart er
sagt á nóttunni þama úti. Veið-
um má halda áfram fram yfir
17. desember, vilji áhöfnin það,
en annars er um það ákvæði í
samningum, að veiðum skuli
hætt þann dag og þær hefjist
ekki að nýju fyrr en eftir ára-
mót.
Bátarnir, sem fóru til Rauf-
arhafnar í gær, voru Skarðsvík
með 550 tonn, Fífill 330 og
Svanur 260 tonn. Nokkrir bátar
vom með slatta á miðunum og
koma því væntanlega einhveijir
þeirra inn í dag með afla.
Fiskaflinn 200 þúsund
tonnum minni en 1988
FISKAFLI landsmanna var um síðustu mánaðamót tæp 1.360.000
tonn, nálægt 200.000 tonnum minni en á sama tíma i fyrra. Hver afli
í desember verður er ekki Ijóst. í desember í fyrra öfluðust 176.249
tonn, þar af 129.000 tonn af loðnu. Áætla má að afli nú verði á bil-
inu 50.000 til 100.000 tonn þennan síðasta mánuð ársins og heildar-
afli því 1.400.000 til 1.450.000 tonn. Þetta ár yrði þvi niunda eða
tíunda gjöfulasta aflaárið í sögunni. Nú munar mestu um loðnubrest-
inn, en heimildir til veiða á ýmsum öðrum fisktegundum hafa verið
skornar niður frá fyrra ári.
Loðnuaflinn frá áramótum nem-
ur 642.640 tonnum á móti 797.638
í fyrra. Munurinn er rúm 150.000
tonn. Þorskafli nú er tæpum 20.000
tonnum minni. Nokkru minna hefur
veiðzt af síld, rækju, humri, skar-
kola og karfa, en afli af öðrum teg-
undum hefur aukizt lítillega eða
óverulegar breytingar hafa orðið á
honum. Afli togara er tæpum
30.000 tonnum minni nú, bátaaflinn
rúmlega 60.000 tonnum minni, en
smábátamir auka hlut sinn um
5.000 tonn, eða áttung.
Heildaraflinn í nóvember var
138.763 tonn í ár, en 244.872 í
fyrra. Aðeins fengust 35.000 tonn
af loðnu nú, en 142.000 þá. Þorsk-
afli var 4.000 tonnum minni, en
karfaafli jókst að sama skapi. Sam-
drátturinn nú kemur harðast niður
á þeim stöðum, sem byggt hafa
afkomu sína á loðnuvinnslu á haust-
vertíð, svo sem Bolungarvík, Siglu-
firði og bræðslunum austur um
land.
Heildarafli síðustu ár hefur 13
sinnum farið yfir milljón tonn að
þessu ári meðtöldu. Árin 1965 og
1966 var aflinn um 1,2 milljónir
tonna, borinn uppi af síld. Næst fór
aflinn yfir milljónina 1977, tæpar
1,4 milljónir, borinn uppi af loðnu.
Síðan þá hefur loðnan haldið aflan-
um yfir milljón tonnum að undan-
skildum ámnum 1982 og 1983, er
loðnuveiðar brugðust.
Sala hlutabréfa í Stöð 2:
Sömu fyrirtæki at-
huga helgarsjónvarp
HLUTI þeirra fyrirtækja, sem ver-
ið hafa í viðræðum um kaup á
‘hlutabréfúm í fyrirtækjunum sem
reka Stöð 2, hefúr einnig til athug-
unar að taka þátt í uppbyggingu
helgarsjónvarpsins sem Sýn hf.
hyggst koma á fót. Upphaflega
Útbreiðsla eyðni
einna minnst á
Norðurlöndum
ÚTBREIÐSLA eyðni í Evrópu er einna minnst á Norðurlöndum,
í Bretlandi, Hollandi og V-Þýskalandi. I þessum löndum eru tæp-
lega 7.000 eyðnisjúklingar, þar af eru um 80% hommar og tví-
kynhneigðir, og virðist nýgengi sjúkdómsins í þeim hópi hafa
minnkað
í grein eftir Ólaf Ólafsson land-
lækni í Morgunblaðinu í dag kem-
ur fram að útbreiðsla eyðni á
Vesturlöndum er nú mest meðal
fíkniefnaneytenda og að erfitt sé
að ná árangri í baráttu við sjúk-
dóminn þar sem fíkniefnaneysla
er mikil og samfélagshjálp lítil að
vöxtum. Utbreiðsla eyðni hefur
fram að þessu verið hröðust í
Bandaríkjunum og þar er fjöldi
sjúklinga rúm 98 þúsund.
Fram hefur komið að á sjötta
tug íslendinga héfur greinst með
eyðni. Flestir eru hommar eða
tvíkynhneigðir. Vitað er um 4 til-
felli þar sem sjúkdómurinn ámit-
aðist við blóðgjöf. Nú er allt blóð
sem gefið er skimað þannig *að
þeirri smitleið hefur verið lokað.
Sjá Útbreiðsla eyðni á Vest-
urlöndum bls. 28.
voru þijú fyrirtæki aðallega í við-
ræðum við Stöð 2, Hekla, Vífilfell
og Hagkaup, en fleiri fyrirtæki
hafa bæst í hópinn, þar á meðal
Prentsmiðjan Oddi hf.
Bjöm Br. Bjömsson hjá Sýn hf.
sagði að áætlanir um helgarsjónvarp,
sem tæki til starfa fyrir vorið, væru
tilbúnar. Nú væri verið að leita eftir
fjármagni til uppbyggingarinnar.
Það mál væri til skoðunar hjá nokkr-
um fyrirtækjum og einstaklingum,
þar á meðal hluta þeirra fyrirtækja
sem væm í viðræðum um kaup á
hlutabréfum í Stöð 2.
Hert verðlagseftirlit:
Verðlagsstjóri
ræðir við ráð-
herra í dág
VERÐLAGSSTJÓRI mun í dag
eiga fúnd með viðskiptaráðherra
þar sem fjallað verður um með
hvaða hætti verður staðið að
hertu verðlagseflirliti eftir að
virðisaukaskattur verður tekinn
upp í stað söluskatts.
Georg Ólafsson verðlagsstjóri
sagði að Verðlagsstofnun ynni nú
að undirbúningi herts verðlagseftir-
lits í samvinnu við stjómvöld, en
vildi ekki tjá sig um hvemig hugs-
anlega yrði að því staðið.
Kristinn Björnsson
Kristinn Bjöms-
son ráðinn for-
stjóri Skeljungs
STJÓRN Olíufélagsins Skeljungs
hf. hefur ákveðið að ráða Kristin
Bjömsson forstjóra félagsins frá
miðju næsta ári, en þá lætur Indr-
iði Pálsspn af því starfi að eigin
ósk.
Indriði Pálsson staðfesti þetta við
Morgunblaðið, en hann hefur óskað
eftir að láta af störfum frá og með
1. júlí á næsta ári. Stjóm Skeljungs
tók endanlega ákvörðun um ráðningu
Kristins Bjömssonar á fundi í gær.
Kristinn Bjömsson er 39 ára.
Hann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla
íslands 1975 og starfaði sjálfstætt
sem lögmaður þar til hann tók við
framkvæmdastjórastarfi hjá Nóa-
Síríusi. Eiginkona Kristins er Sólveig
Pétursdóttir lögmaður.
Indriði Pálsson hefur starfað hjá
Olíufélaginu Skeljungi í 30 ár, þar
af í 19 ár sem forstjóri fyrirtækisins.
Lögreglufélag Suðurnesja:
Herlögreglu-
menn í störf
í auknum mæli
STJÓRN Lögreglufélags Suður-
nesja hefur harðlega mótmælt
þeirri ákvörðun stjórnvalda að
fækka í liði lögreglunnar á
Keflavíkurflugvelli og telur að
þessi fækkun hafi þegar haft í íor
með sér alvariegar afleiðingar,
samanber þá atburði sem hafa
átt sér stað i og við flugstöð
Leifs Eiríkssonar.
Ennfremur segir í ályktun sem
stjórnin hefur látið fara frá sér: „Og
hvað varðar löggæslu á varnar-
svæðinu sjálfu, hafa herlögreglu-
menn í auknum mæli gengið í störf
íslenskra lögreglumanna og er það
afturför um tugi ára auk mikillar
kjaraskerðingar. Þess má einnig
geta að áðurnefndir herlögreglu-
menn eru með öllu ómenntaðir hvað
íslenskt réttarfar varðar.“
Hótel Loftleiðir:
110 herbergi
endurnýjuð
ÁKVEÐDD hefúr verið að end-
urnýja 110 herbergi á Hótel Lofl-
leiðum og er undirbúningsvinnan
þegar hafin. Áætlaður kostnaður
við verkið er rúmlega 150 milljón-
ir króna.
Að sögn Einars Sigurðssonar
blaðafulltrúa Flugleiða hefur enn
ekki verið tekin ákvörðun um hvaða
húsgögn verða valin og er um tvo
kosti af fjórum að ræða, íslensk
húsgögn, þýsk, sænsk eða ítölsk.