Morgunblaðið - 14.12.1989, Qupperneq 28
68(>i aaaMaaaa .m huoauutmmm aiQAjaviuoHOM
28 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1989
Eðalhádegisverðir
á HótelHolti
í desember verður
á Hótel Holti sérstakur matseðill í hádeginu.
Forréttir, aðalréttir og eftirréttir
sem hver velur að vild. Þríréttaður hádegisverður
á viðráðanlegu verði án þess að slakað sé
á gæðakröfunum.
Forréttir
Hreindýrapáte
Innbökuð skinka
Pastasalat með kjúklingi
Grænmetissúpa
Spínat ravioli með reyktum lax
Abalréttir
Hreindýrasmásteik Waldorf
Hamborgarhryggur í jólaskapi
Steikt heilagfíski með
rækjum og kapers í rauðaldinsósu
Spaghetti Vongoli með skeldýrum
Eftirréttir
Heitt jólapúns og munngæti eða
Tiramisú
Forréttur, aðalréttur og eftirréttur
kr. 995
Bergstabastrœti 37, Sími 91-25700
Utbreiðsla eyðni
á Vesturlöndum
eftir Ólaf Ólafsson
Á fundi Evrópudeildar Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar í París
nú á dögunum kom fram að út-
breiðsla eyðni í löndum Evrópu er
misjöfn (júnílok 1989).
I. Norðurlönd, Bretlandseyjar,
V-Þýskaland og Holland: Fjöldi
eyðnisjúklinga 6.905, þ.e. 0,045 á
1.000 íbúa. Nær 80% af eyðnitil-
fellum eru meðal homma og
tvíkynhneigðra. Allt frá 1987 virð-
ist nýgengi sjúkdómsins í þeim
hópi ekki hafa aukist og jafnvel
minnkað. Um 6% tilfella eru
sprautunotendur, en tíðni meðal
þeirra og gagnkynhneigðra eykst
lítið (mynd 1).
Orsakir hægrar eða lítillar
útbreiðslu sjúkdómsins:
Breytt kynhegðun homma.
Áhrif lyfja.
Ááðrar óþekktar ástæður.
Mikil samfélagsleg aðstoð við
HlV-sýkta og eyðnisjúklinga.
II. Austurríki, Belgía, Frakk-
land, Grikkland, írland, ísrael,
Lúxemborg, Malta, Portúgal og
Sviss: Fjöldi eyðnitilfella 8.506,
þ.e. 0,08 á 1.000 íbúa. Um 50%
tilfella eru meðal homma og 20%
meðal sprautunotenda. Mesta
aukningin meðal gagnkynhneigðra
er í Belgíu, Grikklandi og Portúgal
(mynd 2).
III. Spánn og Ítalía: Tíðni 0,065
á 1.000 íbúa. Rúm 60% tilfella
meðal sprautunotenda en 17% til-
fella meðal homma. Stöðug hröð
hækkandi tíðni meðal sprautunot-
enda en fá tilfelli meðal annarra
hópa (mynd 3). Komið hefur á
óvart hve fíkniefnavandinn er mik-
ill i þessum löndum.
Orsakir mikillar aukningar
á tilfellum:
Mun erfiðara að fá sprautunot-
endur til samstarfs um fyrirbyggj-
andi aðgerðir en Samtök homma.
Samfélagshjálp við HlV-sýkta
og eyðnisjúklinga rýr að vöxtum.
IV. Útbreiðsla eyðni í öðrum
löndum Evrópu er hæg og fá til-
felli.
V. Önnur ríki.
Bandaríkin i Norður-Ameríku.
Fjöldi eyðnisjúklinga 98.255, þ.e.
0,4 á 1.000 íbúa, þ.e. 6-10 falt
fleiri en í Evrópuríkjum. Rúm 60%
tilfella eru meðal homma en 27%
Ólafúr Ólafsson
„Við verðum að halda
vöku okkar, þó að sum-
ir haldi að „hættan“ sé
liðin hjá. Við svífiim t.d.
í mikilli óvissu um út-
breiðslu sjúkdómsins
meðal gagnkyn-
hneigðra.“
meðal sprautunotenda. Útbreiðsl-
an virðist vera hröðust meðal
sprautunotenda og svipar þvi til
ástandsins í Suður-Evrópu. Mest
ber á-eyðni á vissum svæðum, t.d.
New York og Miami, en þar er
fíkniefnavandamálið landlægt. I
almennri athugun á sjúkrahús-
sjúklingum kom í ljós að á þessum
svæðum er tíðni HlV-sýkinga um
1% meðal 15-16 ára og 2-3% með-
al 21 árs. Meðal heimilislausra t.d.
í New York er tíðnin milli 7 og
15%. Há tíðni eyðni meðal unglinga
hefúr valdið mönnum miklum
áhyggjum en samkvæmt upplýs-
ingum í bandaríska læknablaðinu
(JAMA 1989; 262 : 516-522) búa
2/3 HlV-sýktra í Baltimore við
engar eða ónógar sjúkratrygging-
ar. Með hverju ári sem líður kemur
betur í ljos að lönd sem búa við
mikla stéttaskiptingu þar sem
samfélagshjálp er rýr að vöxtum
verða verst úti í þessum faraldri
og geta orðið smithreiður eða eru
þegar orðin það.
f Afríka: mikil óvissa ríkir um
útbreiðslu eyðni í Afríku. Sjúk-
dómurinn^ er algengastur í Mið-
Afríku. Ýmsir telja að allt að
300.000 hafi dáið af völdum sjúk-
dómsins. Sumir sérfræðingar
álykta að 1,5-2 milljónir manna
munu deyja á árunum 1990-2000!
Niðurstöður:
Af framangreindu er Ijóst að í
heild eru 8 af hveijum 10 eyðni-
sjúklingum hommar, tvíkyn-
hneigðir og/eða sprautunotendur.
Sjúkdómurinn þrífst langbest í
stórborgum en síst i dreifbýli. Aðal
gróðrarstía sjúkdómsins eru fá-
tækrahverfi stórborganna en þar
safnast saman meðal annars at-
vinnuleysingjar og fíkniefnaneyt-
endur sem hafa viðurværi sitt af
vændi enda búa þeir við litla eða
enga samfélagslega aðstoð. Á
tímabilinu júní 1988 til júní 1989
jókst tiðni eyðnitilfella meðal
sprautunotenda í Evrópu um 117%
en meðal homma og tvíkyn-
hneigðra um 58%. Greinilegt er að
erfitt er að ná árangri í baráttunni
við eyðni í löndum þar sem fíkni-
efnaneysla er mikil og samfélags-
hjálp lítiL að vöxtum. Útbreiðsla
sjúkdómsins hefur fram að þessu
verið hröðust í Bandaríkjunum og
er nú 7-15% í vissum hópum (heim-
ilislausra). Þegar smittíðnin er orð-
in svo há sem að framan greinir
er hætta á að sjúkdómurinn breið-
ist mjög ört út. Það skiptir aðrar
þjóðir miklu máli hvernig Banda-
ríkjamenn taka á þessu máli en
vitaskuld eru gerðar meiri kröfur
til auðugra þjóða sem veija hlut-
fallslega mun hærri upphæðum til
heilbrigðismála en aðrar þjóðir.
Við verðum að halda vöku okk-
ar, þó að sumir haldi að „hættan"
sé liðin hjá. Við svífum t.d. í mik-
illi óvissu um útbreiðslu sjúk-
dómsins meðal gagnkynhneigðra.
Sjúkdómurinn virðist breiðast
hægar út í þeim hópi en fáir koma
til HlV-prófa. Ekki má gleyma því
að meðgöngutími sjúkdómsins er
5-10 ár og smithættan er trúlega
mest þegar sjúklingur er að fá ein-
kenni.
Landlæknisembættið mun halda
áfram fræðsluaðgerðum í svipuð-
um. mæli og áður í samvinnu við
Landsnefnd um alnæmisvarnir þ.e.
með þunga áherslu á skóla og
vinnustaði.
Höfundur er landlæknir.
ER ÞINN SÍMIÚTIÍ KULDANUM?
SAAB 9000
MIÐI NUMEI
??????
SAAB 900
CITROENAX
Sparisjóöur Reykjavíkurog nágrennis
Vinningar eru skattfrjálsir
.________VERÐ KR--------
1 500.00 1
Upplýsingar um vinninga í símsvara
91-686690 og á skrifstofu félagsins í síma 91 -84999
DregiA 23. desember 1989
SIMAHAPPDRÆTT11989
STYRKTARFÉLAG
LAMAÐRAOG FATLAÐRA
Háaleitisbraut 11-13 Reykjavík