Morgunblaðið - 14.12.1989, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1989
29
Matareitrun vegna sveppa
eftir Franklín
Georgsson og
Jón Gíslason
Fyrir nokkru birtu fjölmiðlar
fréttir af matareitrunum í Banda-
ríkjunum, sem upp komu eftir
neyslu á niðursoðnum kínverskum
sveppum. Samkvæmt upplýsingum
frá Matvæla- og lyfjaeftirliti
Bandaríkjanna, veiktust u.þ.b. 100
einstaklingar í fjórum mismunandi
matareitrunartilvikum. Matareitr-
anirnar komu upp í mötuneytum
háskóla og á sjúkrahúsi og á tveim-
ur veitingastöðum í febrúar og apríl
á þessu ári.
Ástæður matareitrunar
Franklín Georgsson
Jón Gíslason
frá aðildarríkjum Evrópubandalags-
ins um að eiturefnið hafi fundist í
sveppum.
Framleiðsla annarra landa
Þau vandamál sem upp hafa kom-
ið varðandi sveppi frá Kína virðast
tengjast framleiðsluaðferðum eða
aðstæðum þar. Er nú unnið að úrbót-
um á þessum vandamálum og hafa
yfirvöld í Kína í þeim tilgangi óskað
eftir aðstoð bandaríska matvælaeft-
irlitsins.
Matareitrana hefur ekki orðið
vart vegna neyslu sveppa sem fram-
leiddir eru í öðrum löndum. Þess
má geta að samkvæmt innflutnings-
skýrslum fyrir árið 1989 hefur
stærstur hluti sveppa hér á markaði
komið frá Hollandi, en niðursoðnir
sveppir framleiddir í Kína eru um
'/< hluti (u.þ.b. 25% af heildarinn-
flutningi).
Innflutningseftirlit
í samvinnu við tollyfirvöld og inn-
flytjendur hér á landi fylgist Holl-
ustuvernd ríkisins með innflutningi
kínverskra sveppa og eru tekin sýni
til rannsókna áður en vörunum er
dreift til sölu. Stofnunin hefur þegar
hafið samstarf við framangreinda
aðila og veitt upplýsingar um þær
vörur sem eiturefni hefur fundist í
við rannsóknir í öðrum löndum.
Sýni rannsóknir að eiturefni hafi
myndast í vörunni verður ekki veitt
heimild til innflutnings og dreifing-
Höfimdar eru starfsmenn
rannsóknarstofu og
heilbrigðiseftirlits
Hollustu verndar ríkisins.
Orsök matareitrananna var rakin
til niðursoðinna kínverskra sveppa í
tveggja kílóa dósum. Þetta varð til
þess að allur innflutningur á niður-
soðnum sveppum í tveggja kg dósum
frá Kína, var bannaður til Banda-
ríkjanna frá og með 19. maí síðast-
liðnum. Þann 23. október tilkynnti
Matvæla- og lyfjaeftirlit Banda-
ríkjanna svo um algjört innflutnings-
bann á niðursoðnum og niðurlögðum
sveppum frá Kína, eftir að rannsókn-
ir höfðu sýnt ennfrekari mengun í
mörgum tegundum og mismunandi
stærðum af umbúðum.
Rannsóknir í
Bandaríkjunum
í Bandaríkjunum leiddu rann-
sóknir í ljós að innihald dósanna var
mengað eiturefni sem bakteríur af
tegundinni Staphylococcus aureus
framleiða. Þessar bakteríur eru út-
breiddar í náttúrunni. Þær má t.d.
finna í andrúmslofti, og vatni,
margvíslegum matvælum, skólpi og
líkama dýra og manna. Hjá dýrum
og mönnum eru bakteríurnar al-
gengastar í nefi, koki og á húð.
Talið er að 30-50% heilbrigðra
manna beri þessa bakteríu í nefi og
þær geta auðveldléga borist í mat-
væli við handfjötlun. Mest er hættan
ef fólk með sár, kýli, ígerðir eða slæ-
man hósta meðhöndlar matvæli.
Myndun eiturelhisins
í matvælum geta bakteríurnar
náð að fjölga sér við 10-45°C. Ef
fjöldi þeirra verður mjög mikill geta
þær myndað nægjanlegt eiturefni
(„enterotoxin") til að orsaka matar-
eitranirnar. Eitrið sem bakteríurnar
framleiða er óvenju hitaþolið og þol-
ir t.d. suðu í allt að 30 mínútur.
Hins vegar er baktería sjálf viðkvæm
fyrir svo háum hita og drepst hratt
við venjulega suðu. Upphitun mat-
væla sem innihalda eiturefni þessa
baktería er því ekki alltaf fullnægj-
andi aðferð til að koma í veg fyrir
matareitrun.
Sjúkdómseinkenni
Helstu sjúkdómseinkenni matar-
eitrunar eru flökurleiki, uppköst,
niðurgangur og mikill magaverkur.
Fyrstu einkennin koma fram 1-6
klst. eftir neyslu mengaðra matvæla
og standa yfirleitt ekki lengur en
1-2 daga. Langflestir ná sér fullkom-
lega og mjög sjaldgæft er að eitrun-
in hafi alvarlegar afleiðingar á
langtíma heilsufar þeirra sem fyrir
henni verða.
Rétt meðferð matvæla
Eins og fyrr segir geta þessar
bakteríur fjölgað sér í matvælum
við ákveðin skilyrði. Sem dæmi um
fæðutegundir má nefna mjólk og
tjóma, margskonar krem og búð-
inga, kökur, soðna skinku, ýmsa
soðna kjötrétti og iítið súrar sósur
og salöt. Sérstaklega eru varasöm
matvæli sem við framleiðslu og
geymslu eru mikið meðhöndluð af
starfsfólki, en það er oft uppspretta
mengunar af völdum þessarar bakt-
eríu í matvælum.
Gott hreinlæti ásamt góðri og
stöðugri kæligeymslu matvæla er
besta vörnin gegn þessari tegund
matareitrunar. Mikilvægt er að
ganga þannig frá matvælum í kæli-
geymslum að þau nái að kólna í
gegn á tiltölulega stuttum tíma.
„í samvinnu við tollyfír-
völd og innflytjendur
hér á landi fylgist Holl-
ustuvernd ríkisins með
innflutningi kínverskra
sveppa og eru tekin
sýni til rannsókna áður
en vörunum er dreift til
sölu.“
Rannsóknir á íslandi
Þegar fréttir bárust til íslands af
banni við innflutningi kínverskra
sveppa til Bandaríkjanna, var strax
hafist handa við að rannsaka niður-
soðna kínverska sveppi sem seldir
eru hér á landi. Hollustuvernd rikis-
ins aflaði upplýsinga um innflutning
kínverskra sveppa og heilbrigðiseft-
irlitið tók sýni af sveppunum og
sendi til rannsóknar hjá stofnuninni.
Þegar þetta er skrifað hafa rúmlega
20 sýni af öllum kínverskum tegund-
um niðursoðinna sveppa, sem seidar
eru hér á landi, verið rannsakaðar
Eitrið hefur ekki greinst i þessum
sýnum. Stofnuninni er heldur ekki
kunnugt um matareitranir sem gætu
tengst neyslu sveppa.
Merkin umbúða
Þó að hér á landi séu að hluta til
seld sömu vörumerki kínverskra
sveppa og seld hafa verið í Banda-
ríkjunum, þá virðist hér vera um
aðra framleiðslu að ræða samkvæmt
framleiðslumerkingum á dósunum.
Merkingar þessar (dulmerki/kódi)
benda til þess að niðursoðnir svepp-
ir, sem fluttir eru hingað til lands,
séu framieiddir í öðrum verksmiðjum
en þeir sem valdið hafa eitrunum í
Bandaríkjunum. Þetta getur verið
tilvikið, þó svo um sömu vörumerki
sé að ræða, þar sem margar niður-
suðuverksmiðjur í Kína framleiða
niðursoðna sveppi undir sama vöru-
merki.
Eftirlit í öðrum löndum
Hollustuvernd ríkisins hefur verið
í stöðugu sambandi við systurstofn-
anir sínar á Norðurlöndunum og
einnig hefur verið afiað upplýsinga
frá matvælaeftirliti í Bandaríkjun-
um. Eiturefnið hefur ekki fundist
við rannsóknir á sveppum í Svíþjóð,
en hins vegar hefur það fundist í
einu vörumerki í Danmörku, Noregi
og Finnlandi. Þá hafa tollayfirvöld
í Finnlandi stöðvað innflutning á
einni vörusendingu, þar sem eitur-
efnið fannst við rannsókn á vör-
unni. Engar tilkynningar hafa borist
Þ.ÞORGRfMSSON&GO
Ármúla 29, Reykjavík, simi 38640
Jólagjöf,
sem endist
og yljar lengi!
er tilvalin gjöf
sem hentar öllum
-fráöllum