Morgunblaðið - 14.12.1989, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. DESEMBER 1989
NY BOK EFTIR
DANIELLE STEEL
□ öfraheimar segir frá Zoyu,
17 ára frænku keisarans, sem
þarf að flýja land. Hún sest að í París
þar sem hún kynnist bandarískum
liðsforingja. Þau giftast og eiga nokk-
ur auðug og hamingjurík ár í Ameríku
en þá setja óvæntir erfiðleikar strik í
reikninginn ... Þetta er saga um
baráttu og ást, skrifuð á þann hátt sem
Danielle Steel einni er lagið.
SETBERG
¥
.
Gleymdi ríkisstjórnin áform-
um sínum um Héraðsskóg'?
Skogstefna a Egilsstöðum:
Egilsstödum.
EFA GÆTIR um að ríkisstjórnin ætli að standa við ákvörðun sína
frá í vor um stórátak í ræktun nytjaskóga á Fljótsdalshéraði.
Ekki er ætlað neitt fé í þetta verkefhi á fjárlögum næsta árs og
því ríkir nokkur óvissa um framhald málsins. I ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar sem tekin var á hátíðarfundi á Þingvöllum í vor
felst að gera eigi stórátak í ræktun nyfjaskóga á Fljótsdalshéraði
sem miða að því að fullnýta skógræktarland þar á næstu 40 árum.
Verkefhisstjórnin hefur sótt um 62 milljónir til þessa verkefhis á
árinu 1990. Sú fjárþörf lá fyrir þegar ríkisstjórnin tók þessa
ákvörðun.
Á fjölmennri ráðstefnu um
skógræktarmál sem haldin var á
Egilsstöðum kom þessi efi berlega
fram og lýstu fundarmenn áhyggj-
um sínum yfir óvissu um framtíð
þessa verkefnis. Hermann Ottós-
son verkefnisstjóri Héraðsskóga
taldi að á þessari stundu væru
Héraðsskógar aðeins samþykkt
ríkisstjórnarinnar og pappír frá
verkefnisstjóra. Því væri brýnt að
bændur gætu treyst því að staðið
yrði við gefin fyrirheit í þessu
máli. Nú þegar hefðu um 50 bænd-
ur úr 6 hreppum lýst yfir áhuga
á þátttöku í verkefninu. Ljóst hefði
verið þegar ríkisstjórnin ákvað að
hrinda í framkvæmd þessu skóg-
ræktarátaki á Fljótsdalshéraði að
árlegur kostnaður við verkefnið
yrði um 60 milljónir króna. Með
þessari ákvörðun hefði ríkisstjórn-
in ákveðið að hrinda í framkvæmd
átaki sem næði til að rækta skóg
á landsvæði sem væri 15 sinnum
stærra en allur Haliormsstaða-
skógur og 6 sinnum stærra en
allt skógarsvæði sem nú er til stað-
ar í Fljótsdalshéraði.
Hermann Ottosson segir að ber-
lega hafi komið í ljós viss tor-
tryggni bænda varðandi efndir
þeirra áforma ríkisstjórnarinnar
að hefja ræktun nytjaskóga á
Fljótsdalshéraði. Til að fyrirbyggja
að efndir verði litlar sem engar
telur Hermann að stilla verði Hér-
aðsskógum upp sem sjálfstæðu
óháðu verkefni með sjálfstætt
framlag til framkvæmda á fjárlög-
um hvers árs. Þetta framlag verði
bundið verkþáttum í fram-
kvæmdaáætlun Héraðsskóga til
10 ára. Þetta þýði í raun að land-
búnaðarráðherra geri bindandi og
lögfestan samning við Héraðs-
skóga um greiðslu á verkþáttum
skógræktarátaksins. Á móti samn-
ingi á milli Héraðsskóga og land-
búnaðarráðherra leggur Hermann
til að Héraðsskógar geri samning
við hvern jarðeiganda. Sá samn-
ingur mundi taka á skyldum Hér-
aðsskóga við að tryggja fram-
kvæmdir á viðkomandi jörð og
skyldum bænda við skóginn. Þetta
telur Hermann Ottosson verkefn-
isstjóri einu færu leiðina til að
tryggja framkvæmdir og að allir
standi við sitt.
Áhersla á fjölnytjaskóg
Helgi Hallgrímsson líffræðingur
benti á að náttúrulegur skógur
hefði yfirleitt hagstæð áhrif á
lífríkið. Skógurinn styrkti og bætti
jarðveginn og hindraði jarðvegs-
rof. Hann framkallaði sérstakt
veðurfar og yki gróðursæld og
gróðurmagn. Einhæfur timbur-
skógur væri þó ekki æskilegur
Morgunblaðið/Bjöm Sveinsson
Ráðstefnugestir á skógstefnunni.
Mark útvarp og kassettutæki
6.820 stgr.
Singer saumavélar
frá 19.277 stgr
Vöfflujárn
4.480 stgr
&SAMBANDSINS
HOLTAGÖRÐUM SÍMI 68 55 50
VID MIKLAGARÐ
Black & Decker borvél
7.979 stgr.