Morgunblaðið - 14.01.1990, Page 1
96 SIÐUR B/C
11. tbl. 77.árg.
SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Míkhaíl Gorbatsjov lýkur heimsókn til Litháens:
Akvörðun um slit flokks-
tengsla ekki tekin aftur
— segja leiðtogar hins nýja stjórnarflokks kommúnista
Vilnius. Keuter, Daily Telegraph og dpa.
MÍKHAÍL S. Gorbatsjov Sovétleiðtogi fundaði með leiðtogum stjórnarflokks litháískra
kommúnista í gær en þeir hafa ákveðið að slita flokkstengsl við sovéska móðurflokk-
inn. Leiðtogarnir kváðu ákvörðunina óhagganlega þar sem almenningur í Litháen
hefði misst alla trú á Kommúnistaflokki Sovétríkjanna og liti á sig sem Evrópubúa.
Þríhliða fúndi Gorbatsjovs, fúlltrúa hins nýja flokks kommúnista og lítils flokksbrots,
sem enn fylgir Moskvu að málum, var sjónvarpað beint í Litháen.
Kjurrar kjúk-
ur endast best
Sérfræðingar í geislafræði við Mus-
grave-sjúkrahúsið í Belfast hafa komist
að þeirri niðurstöðu að hættulegt geti
verið að láta braka í liðum.
Læknamir komust að því eftir rann-
sóknir á fólki sem vanið hafði sig á að
láta braka í liðum að sá ávani gæti
valdið varanlegum liðamótaskemmdum
og leitt til aukaverkana sem fylgja liða-
mótagigt.
Að sögn læknanna myndast brak-
hljóðið við skyndilegt þrýstingsfall í lið-
pokanum. Við þrýstingsfallið springur
svo vökvabóla sem umlykur liðinn.
Alögum létt
af svifdrekum
Þing Austur-
Þýskalands hefúr
samþykkt lög þess
efnis að mönnum
sé nú heimilt að
fljúga um loftin
blá í svifdrekum
sínum. Er
harðlínukommún-
istar voru einráðir í landinu var með
öllu óheimilt að eiga slík farartæki því
þeir sem ekki voru fullsáttir við hlut-
skipti sitt í sæluríkinu áttu það til að
segja skilið við föðurlandið með því að
svífa í vesturátt yfir Járntjaldið. Þá
hafa sfjórnvöld aflétt banni við sigling-
um á Eystrasalti auk þess sem mönnum
er nú heimilt að synda þar en áður
fyrr þótti ýmsum það álitlegur kostur
að freista þess að synda í frelsið í stað
þess að hætta lífí sínu með því að reyna
að komast yfir landamærin.
Fáðu þér sæti
— eftir 50 ár
Hugvitssamir verslunarmenn í rúss-
nesku borginni Volgda hafa fundið upp
nýja aðferð við vöruskömmtun í Sov-
étríkjunum. Þar fá neytendur að kaupa
munaðarvarning svo sem skó og hús-
gögn geti þeir sannað með óyggjandi
hætti að þeir séu fæddir í þeim sama
mánuði og kaupin fara fram. Verslunar-
menn gáfúst upp á gamla skömmtunar-
kerfínu þegar biðlistinn eftir húsgögn-
um var orðinn svo langur að mönnum
var tjáð að þeir þyrftu að bíða í 50 ár
hygðust þeir festa kaup á stólum eða
öðrum setgögnum.
Vasilíj Jemelíjanov, ritstjóri málgagns
kommúnista í Litháen, sagði Gorbatsjov
að siitin væru nauðsynleg. Flokkurinn hefði
glatað forystuhlutverki sínu í lýðveldinu og
almenningur misst alla trú á honum. „Stað-
reynd málsins er sú að fólkið hefur sagt:
Hingað og ekki iengra! Við viljum vera Evr-
ópubúar." Ætluðu kommúnistar sér eitthvert
hlutverk í Litháen væri óhjákvæmilegt að
segja sig úr lögum við Moskvukommúnista.
Gorbatsjov hlýddi á mál manna og ritaði hjá
sérminnispunkta.
Á föstudag ræddi Gorbatsjov við fulltrúa
Moskvuhollra kommúnista og hvatti til eining-
ar allra kommúnista í Litháen. Vladímír
Schwed, leiðtogi Moskvuhollra sagði Sovét-
leiðtogann hafa heitið þeim stuðningi. Schwed
sagði að ekki væri ágreiningur við meirihlut-
ann um að krefjast meira sjálfræðis í efna-
hags- og menningarmálum, tjáningarfrelsis
og mannréttinda. Hins vegar yrði þetta að
gerast í samráði við stjórn Sovétríkjanna og
sovéska kommúnistaflokkinn. Schwed sagði
að menn hefðu „misst tökin á erfiðu ástandi"
í Litháen.
Mörgum stjórnmálaleiðtogum í landinu
virðist mislíka yfirlætið sem gætir í orðum
Gorbatsjovs er hann ræðir sjálfstæðismál Lit-
háa. Meðal þeirra er dr. Rolandis Pavilionis,
aðstoðarrektor háskólans í Vilnius og hátt-
settur í kommúnistaflokknum. Hann sagðist
efast mjög um gildi laga sem Gorbatsjov
boðar þar sem ákvarðað verði hvernig lýð-
veldi geti sagt sig úr ríkjasambandinu. „Það
verða sett mörg skilyrði og þau verða okkur
óhagstæð," sagði Pavilionis. „Moskvustjórnin
mun krefjast þess að við greiðum skuldir
okkar við ríkjasambandið. En hvað um það
sem við höfum glatað, fólk sem var flutt á
brott ,með nauðung, allar fórnirnar til að
styrkja þetta mikla heimsveldi? Allt verður
gert til að gera úrsögn óframkvæmanlega."
Að sögn Pavilionis sýndi Algirdas Brazausk-
as, leiðtogi kommúnistaflokks Litháens,
Gorbatsjov fyrir skömmu áætlun um þróun
til sjálfstæðis og var þar ákvæði um brott-
f lutning sovésks herliðs frá landinu. Pavilion-
is sagðist ekki sjá þörf fyrir herliðið þar sem
engin hættá væri á árás af hálfu Vesturveld-
anna og Litháar vildu að land þeirra yrði
hluti af vopnlausu svæði við Eystrasalt.
JOM
I DRAUMA-
VERKSMIÐJUNNI
Sigurjón Sighvats-
son í Propaganda
films .
H'vao ersvona
rkilegt
me
EG
Ö baö
vi
aö
ALLT
um þig?
. LAND
IHJETTU?