Morgunblaðið - 14.01.1990, Blaðsíða 6
6 FRETTIR/INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. JANÚAR 1990
Jón Kristinsson á Akureyri:
Ákveðinn í að fara alla
leið ef á þyrfti að halda
Akureyri.
„ÉG er auðvitað ánægður með að þetta mál er í höfn, en það
hefiir aldrei íþyngt mér á nokkum máta. Lögfræðingur minn,
Eiríkur Tómasson, hefur séð um þetta mál og staðið sig með
prýði,“ sagði Jón Kristinsson á Akureyri. I kjölfar þess að ákveð-
ið var að láta á það reyna fyrir Mannréttindadómstólnum í Strass-
borg, hvort sú skipan stæðist að einn og sami maður færi með
lögreglustjórn og dómsvald, eins og gerðist heima í héraði vegna
tveggja umferðarlagabrota sem Jón var kærður fyrir, hefúr sú
staða nú komið upp að Hæstiréttur hefur fellt úr gildi dóm og
alla dómsmeðferð sakadóms Arnessýslu i minniháttar sakamáli.
Hæstiréttur vísar til þeirrar
niðurstöðu Mannréttinda-
nefndarinnar í Evrópu í máli Jóns
gegn íslenska ríkinu, að óhlut-
drægni í dómsstörfum sé ekki
talinn nægilega tryggð vinni sama
maður við lögreglustjóm og fari
með dómsvald. Ahrif þessa dóms
Hæstaréttar eru m.a. þau, að skil-
ið verður á milli starfa sýslu-
manna sem dómara og lögreglu-
stjóra og kallar þetta á breytingar
í 19 lögsagnarumdæmum á
landinu. Á næstunni mun dóms-
málaráðuneytið gefa út leiðbein-
ingar um hvernig brugðist verður
við dóminum.
Það var í júní árið 1984, sem
Jón Kristinsson var kærður vegna
tveggja umferðarlagabrota, ann-
ars vegar of hraðan akstur og
hins vegar að hafa ekki virt stöðv-
unarskyldu. í héraði var Jón sak-
felldur fyrir bæði brotin og því
vildi hann ekki unda. „Mig greindi
á við lögregluna um stöðvunar-
skyldubrotið, ég var alveg viss í
minni sök um að ég hefði stöðvað
bifreiðina, en það stóð staðhæfing
gegn staðhæfingu,“ sagði Jón.
Málinu var skotið til Hæstaréttar
þar sem Jón var sýknaður af þessu
broti vegna ónógra /sannana.
„Þetta var það mark sem ég setti
mér, ég var ákveðinn í að gefa
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Jón Kristinsson á Akureyri:
„Hef fylgst með þessu, án þess
að málið hafí á nokkurn hátt
íþyngt mér.“
mig ekki fyrr en það mál kæmist
á hreint, því ég taldi alla tíð að
ákæran um stöðvunarskyldubrot-
ið væri ekki rétt.“
Lögfræðingur Jóns gerði þá
kröfu fyrir Hæstarétti að máli
hans yrði vísað aftur heim í hér-
að, en því var hafnað. Við það
segir Jón að vendipuntur hafi orð-
ið í málinu, lögfræðingur hans
hefði óskað þess að hann gæfi
fyrir því leyfi að málinu yrði skot-
ið til Mannréttindadómstólsins í
Strassburg þar sem á það skyldi
reyna hvort einn og sami maður
gæti bæði farið með dómsvald og
lögreglustjórn. „Ég samþykkti
það strax og hef haft gaman af
því að fylgjast með gangi mála.
Ég býst við að að einhveiju leyti
hafi það verið þrái í mér, en ég
var alltaf ákveðinn í að fara alla
leið, ef á því þyrfti að halda,“
. sagði Jón.
Mál þetta fór fyrir Mannrétt-
indanefndina og í fyrrasumar var
ákveðið að Mannréttindadómstóll-
inn tæki málið til meðferðar og
var það í fyrstá sinn sem sam-
þykkt var að taka þar fyrir mál
Islendings. í nóvember síðastliðn-
um gerðu ríkisstjórn íslands og
Jón Kristinsson með sér sátt sem
fólst í því að Jóni er endurgreidd-
ur sakarkostnaður og sekt vegna
málsins, lögfræðikostnaður fyrir
Mannréttindanefnd Evrópu og að
málalokin yrðu færð í sakaskrá.
Jón samþykkti að falla frá sínum
kröfum og að fallið yrði 'frá máls-
höfðun hans fyrir .Mannréttinda-
dómstóli Evrópu, féllist dómstóll-
inn á það.
„Ég er mjög sáttur við málalok-
in og þá umbyltingu sem hún
hefur í för með sér fyrir dómskerf-
ið í landinu, en að þessu hefði
hlotið að koma. Einkum er ég
stoltur af lögfræðingi mínum, það
er fyrst og fremst hann sem haft
hefur með þetta mál að gera. Ég
hef fylgst með þessu, án þess að
málið hafi á nokkurn hátt íþyngt
mér,“ sagði Jón.
Sigurvegarinn í íslensku undanúrslitunum í fyrra, Valgeir Guðjóns-
son, ásamt Daníel Haraldssyni, söngvara.
Söngvakeppni sjónvarpsstöðva:
Tólf lög keppa til úr-
slita í sjónvarpssal
DOMNEFND hefur valið 12 lög, sem keppa í íslensku undankeppn-
inni í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (Eurovision). Lögin
verða kynnt í tveimur sjónvarpsþáttum, þann 27. janúar og 3. febrú-
ar, 6 í hvorum þætti. Að loknum hvorum þætti fellir dómnefnd þrjú
lög út, svo sex lög keppa endanlega í beinni útsendingu þann 10.
febrúar.
Fimm manna dómnefnd valdi
lögin tólf. Tvö þeirra eru eftir
Hörð G. Ólafsson, sem samdi sjálfur
texta við annað, en hinn textann
samdi Aðalsteinn Ásberg Sigurðs-
son. Magnús Þór Sigmundsson er
með eigin lag og texta og sömuleið-
is þeir Björn Björnsson og Jóhann
G. Jóhannsson. Gunnar Þórðarson
á sjötta lagið, við texta Aðalsteins
Ásbergs og hann samdi einnig texta
við sjöunda lagið, sem er eftir Ey-
jólf Kristjánsson. Áttunda lagið
samdi Gísli Helgason, en textinn
er eftir Ásgeir Ingvarsson. Ingi
Greiðslum fyrir taunrétt-
ingar skipt í þrjá flokka
BREYTINGAR hafa verið gerðar á Iögum í sambandi við greiðslu
ríkissjóðs vegna tannréttinga. Ríkissjóður mun ekki greiða helming
kostnaðar einstaklings vegna tannréttinga eim og áður, heldur hafa
greiðslur vegna tannréttinga verið flokkaðar niður í þijá flokka
eftir mikilvægi tannréttinga af heilsufarsástæðum. Þátttaka hins
opinbera er mest í þeim tilvikum, þar sem um er að ræða aðgerðir
í lækningaskyni.
Þessar reglur um f lokkun tann-
réttinga er gerð eftir norskum
reglum um flokkun tannréttinga.
Við fengum Norðmanninn Arnljot
Gaare, sérfræðing í tannréttingum,
hingað tii lands til að fræða okkur
um norska fyrirkomulagið," sagði
Magnús R. Gíslason, yfirtannlæknir
í heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu. Gaare var formaður
nefndar á vegum norska ríkisins,
sem m.a. fjallaði um tannréttingar.
„Við töldum mikilvægara að taka
að mestu þátt í greiðslum í sam-
bandi víð tannréttingar af heilsu-
farsástæðum heldur en tannrétting-
um vegna útlitsatriða. Þess vegna
voru tannréttingar f lokkaðar niður.
Norðmenn eru ánægðir með þetta
fyrirkomulag og hafa ekki hugsað
Leiðrétting
TÍMI á sunnudagaskóla í Hafnar-
fjarðarkirkju var rangur í blað-
inu í gær og ekki var getið um
guðsþjónustu.
Sunnudagaskólinn verður klukk-
an 11 og eru bömin minnt á skóla-
bílinn. Guðsþjónusta verður klukk-
an 14. Organisti Helgi Bragason.
Sr. Gunnþór Ingason.
sér að breyta því,“ sagði Magnús
R. Gíslason.
Nýju reglurnar tóku gildi 1. jan-
úar, en hafi tannrétting að lokinni
skoðun sannanlega hafist fyrir 1.
nóvember 1989 skal henni lokið
samkvæmt eldri ákvæðum um 50%
þátttöku ríkissjóðs.
Flokkarnirþrír
í fyrsta f lokki, þar sem full þátt-
taka sjúkratrygginga er, eru þrír
liðir. Klofin vör og gómur. Skekkja
sem veldur andlitslýtum og skekkja
sem þarfnast einnig skurðaðgerða.
Sjúkratryggingar greiða helming
kostnaðar við tannréttingar í öðrum
flokki, en í flokknum eru eftirtaldir
liðir:
1. Lárétt yfirbit sem er 9 mm og meira.
2. Undirbit allra fjögurra framtannanna
með eða án þvingunar.
3. E)júpt bit þar sem tvær tennur eða fleiri
bita í slímhúðina.
4. Krossbit cða saxbit öðru megin hjá þrem-
ur eða fleiri tannpörum sem orsakar þving-
un og/eða ósamræmi í andliti.
5. Saxbit báðum megin hjá tveimur eða
fleiri tönnum i hvorri hlið.
6. Opið bit þar sem einungis bitfletir aftari
jaxla snertast.
7. Eina eða ficiri framtönn vantar.
8. Meðfædd vöntun tveggja eða fleiri jaxla
sömu megin (endajaxlar ekki meðtaldir).
9. Innilokaðar fram- og augntennur sem
þarfnast tilfærslu.
Sjúkratryggingar greiða 30%
kostnaðar í þriðja flokki, en í
flokknum eru þessir liðir:
1. Létt yfirbit sem er 6-9 mm.
2. Djúpt bit þar sem tennur snertast ekki
eða bitið lendir á þeim fjórðungi tunguflat-
ar efri góms tanna sem næstur er tann-
holdinu.
3. Tennur, sem eru fyrir innan eða utan
tannbogann.
4. Opið bit þriggja eða fleiri tannpara.
5. Meðfædd vöntun á jaxli.
6. Mikið þrengsli hjá framtönnum (miðast
við mm og stöðu einstakra tanna).
7. Bil á milli miðframtanna 3 mm eða
meira. Of mikið rými fyrir framtennur (mið-
ast við mm).
8. Frávik í biti með mikilli skerðingu á starf-
semi og notagildi.
Fyrir aðrar tannréttingar en að
ofan er greint frá greiðist ekkert
úr sjúkratryggingum.
Þess má geta að fyrir böm 5 ára
eða yngri greiðir sjúkratrygging
75% kostnaðar við hvers konar
þjónustu. Fyrir börn og unglinga
6-15 ára greiðir sjúkratrygging all-
an kostnað við tannlækningar, aðra
en gullfyllingar, krónu- og brúar-
gerð og tannréttingar. Heimilt er
að greiða allt áð 50% kostnaðar
samkvæmt reglum. Fyrir 16 ára
unglinga greiðist 50% kostnaður við
tannlækningar, en samkvæmt regl-
um er heimilt að greiða 50% kostn-
aðar vegna gullfyllingar, krónu- og
brúargerðar og tannréttingar.
Fyrir elli- og örorkulífeyrisþega,
sem njóta tekjutryggingar, 75%
kostnaðar, en fyrir aðra elli- og
örorkulífeyrisþega 50% kostnaðar,
þó ekki fyrir gullfyllingar, krónu
eða brýr. Heimilt er að hækka
greiðslur fyrir bótaþega eftir regl-
um í allt að 100%.
Þess má geta að Tryggingaráð
hefur ákveðið að ráða tannlækni,
sem hefur eftirlit með framkvæmd-
um nýju laganna, er lúta að tann-
lækningúm.
Gunnar Jóhannsson á níunda lagið
og texta einnig. Tíunda lagið er
eftir Friðrik Karlsson, við texta
Eiríks Haukssonar, Birgis Braga-
sonar og Friðriks. Birgir Jóhann
Birgisson samdi ellefta lagið, sem
er við texta Davíðs Þórs Jónssonar
og loks á Bergþóra Árnadóttir tólfta
lag og texta.
Höfundar laganna tólf útsetja
þau í samráði við eigin útsetjara
og Vilhjálm Guðjónsson, sem stjórn-
ar hljómsveit sjónvarpsins. Ekki
verða gerð myndbönd við lögin,
heldur verða þau tekin upp í sjón-
varpssal. Lokakvöldið, 10. febrúar,
verður bein útsending úr sjónvarps-
sal. Úrslitakeppni söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva verður í
Júgóslavíu þann 5. maí.
Dómnefndina, sem valdi iögin
tólf, skipuðu þau Edda Borg, tón-
menntakennari, Egill Eðvarðsson,
kvikmyndagerðarmaður, Eva Ás-
rún Albertsdóttir, starfsmaður Rás-
ar 2, Jón Ólafsson, tónlistarmaður
og Vilhjálmur Guðjónsson, tónlist-
armaður.
Flytjendur laganna tólf eru þau
Sigríður Beinteinsdóttir, Grétar
Örvarsson, Björgvin Halldórsson,
Eyjólfur Kristjánsson, Ingi Gunnar
Jóhannsson, Ari Jónsson, Helga
Möller, Ágúst Ragnarsson, Ellen
Kristjánsdóttir, Bergþóra Árnadótt-
ir, Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson
og Rut Reginalds.
„STJÖRN Heimdallar hefur verið fylgjandi prófkjöri fyrir borgar-
stjórnarkosningar í vor, en á fundum fulltrúaráðsins bera menn upp
tillögur sem einstaklingar, ekki sem fulltrúar sinna félaga," segir
Birgir Ármannsson, formaður Heimdallar um ummæli Árna Sigurðs-
blaðinu í gær.
sonar
Ai
ræddar leiðir við val frambjóð-
enda S lista flokksins fyrir komandi
borgarstjómarkosningar. Árni Sig-
urðsson virðist telja að það hafi
verið mítt hlutverk frekar en ann-
arra, að ieggja til á fundinum að
prófkjör yrði haldið. Hann er hugs-
anlega að reyna að sýna fram á
að stjóm Heimdallar hafi ekki fylgt
prófkjörsmálinu eftir, en virðist
misskilja eðli fulltrúaráðsins.
Leiðrétting
FIMM hjartaaðgerðir hafa verið
gerðar á Landspítalanum það sem
af er þessu ári, en ekki þijár eins
og sagði í frétt í Morgunblaðinu í
gær. Þá er einnig rangt farið með
fjölda þeirra hjartaskurðlækna sem
starfa við þessar aðgerðir. Þeir
hafa verið 4 í 3 'k starfi, en verða
5 á þessu ári í 4 'U stöðugildi.
Einstaklingar bera upp tillögnmar
-segir formaður Heimdallar um fimd fulltrúaráðsins
Ég greiddi að sjálfsögðu atkvæði
í samræmi við afstöðu Heimdallar
í málinu og tel víst að aðrir stjórnar-
menn félagsins sem sæti eiga í full-
trúaráðinu hafi gert hið sama. En
auðvitað er ekki aðalatriðið hvernig
valið er á lista flokksins til kosn-
inga, heldur að menn fylki sér bak
við hann þegar þar að kemur,“ seg-
ir Birgir Ármannsson.