Morgunblaðið - 14.01.1990, Blaðsíða 7
Tjón ekki
fullmetið í
Sandgerði
TJÓNIÐ sem varð þegar
fiskverkunarhúsið í Sangderði
bann nemur tugum milljónum
króna. „Það er ekki búið að meta
skemmdirnar sem urðu á húsinu,
en hámarkstrygging hússins losar
um tuttugu milljónir. Aftur á móti
var ekkert tryggt sem var inni í
húsinu,“ sagði Svavar Ingibers-
son, annar eigandi fiskverkunar-
hússins.
Svavar ásamt öðrum útgerðar-
mönnum voru með öll sín veiða-
færi í húsinu. „Það voru hátt í fjög-
ur hundruð balar með línu inni í
húsinu og var búið að beita línurnar.
Hver lína með íláti kostar um tíu
þúsund krónur, þannig að línutjónið
er um fjögur hundruð þúsund krón-
ur. Einnig voru þrír lyftarar í hús-
inu, netateinar, snui-voð, netaspil og
fiskur, svo eitthvað sé upp talið,“
sagði Svavar.
Sóley KE 15, 9,8 tonna plastbátur
Svavars, skemmdist nokkuð. Hann
stóð á landi. Búkkar fóru undan
bátnum og valt hann á hliðina. Svav-
ar keypti bátinn í Noregi sl. sumar
og sigldi honum heim. „Báturinn var
tyggður, en það er slæmt að missa
hann núna,- Það verður ekki búið að
gera við bátinn fyrr en í lok jan-
úar,“ sagði Svavar.
Farþegar til
íslands 1989:
Fækkar
um 5.000
Heildarfjöldi farþega til lands-
ins hefúr minnkað um 5.000 á
nýliðnu ári miðað við árið 1988.
Heildarfjöldi farþega á árinu var
273.082. Þar af voru útlendingar
130.503 og fjölgar um tæplega tvö
þúsund. Islenskir farþegar sem
komu til landsins voru hins vegar
142.579 og fækkar þeim um tæp-
lega sjöþúsund á milli ára. Far-
þegafjöldi er mjög svipaður árið
1989 og árið 1987.
Flestir hinna erlendu farþega
koma frá Bandaríkjunum eða
22.952. 18.316 koma frá Vestur-
Þýskalandi, 16.430 frá Svíþjóð,
16.159 frá Danmörku og 11.990 frá
Stóra-Bretlandi. Farþegar frá öðrum
löndum voru færri en 10.000. ríkis-
fangslausir farþegar voru 26 talsins.
Frá eftirtöldum löndum kom einn
farþegi: Bangladesh, Barbados,
Botswana, Djibouti, Haiti, írak,
Líbýu, Madagaskar, Maritíus, San
Marino, Senegal, Sierra Leone, Só-
malíu og Súdan.
Garðabær:
Ekkí prófkjör
hjá sjálfstæð-
ismönnum
ÁKVEÐIÐ hehir verið að halda
ekki prófkjör mcðal sjálfstæðis-
manna í Garðabæ fyrir komandi
sveitarstjórnarkosningar, en liðs-
mönnum sjáffstæðisféfaganna
gafst færi á að tilncfna menn á
lista flokksins.
Björn Pálsson, formaður fulltrúa-
ráðs félaganna í Garðabæ, segir
að tilnefningarnar gefi bendingu um
vilja f lokksmanna. Uppstillinganefnd
geri fyrir miðjan febrúar tillögu til
stjórnar fulltrúaráðsiiís, en loka-
ákvörðun verði tekin á fundi ráðsins.
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14, JANÚAR J990
81fi®
á
Fjölbreytt landslag, gott veður allan
fyrir alla þá sem vilja stytta skamm-
degið og hvfla sig á hryssingslegri
vetrartíð, skemmta sér og snæða
fjölbreyttan mat, lita hörundið, spila
golf og eiga góða daga á „Hamingju-
eyjunni". íslenskir fararstjórar á
Kanaríeyjum eru Auður og Rebekka .
BEINT DAGFLUG:
29/1 19/2 12/3 2/4 16/4
úrval/útsýn
Pósthússtræti 13, s: 26900 Álfabakka 16, s: 603060