Morgunblaðið - 14.01.1990, Blaðsíða 9
MORGUNBLÁÐIÐ HUGVEKJA/VEÐUR SUNNUDAGUR 14. 'JANÚAR 1990
9
Opinberun og þroski
eftir HERRA OLAF
SKÚLASON
Á þrettándanum og sunnudög-
unum, sem síðan fylgja og eru
tengdir honum, er fjallað um opin-
berun Jesú. Á sunnudaginn var
fylgdum við honum í musterið tólf
ára og urðum enn vitni að því,
þegar honum virtist himinn kalla
og boða sig til fylgdar við hinn
himneska föður, sem var honum
sérstaklega greinilegur í hinu
helga musteri. í dag, annan sunnu-
dag eftir þrettánda, fylgjum við
Jesú, móður hans og lærisveinum
til Kana í Galíleu, þar sem þau
sátu brúðkaup og voru boðin í
veislu. Og enn erum við vitni að
opinberun á dýrð og mætti Jesú,
þegar hann vinnur sitt fyrsta
kraftaverk, eins og nánar er skýrt
frá í öðrum kaf la Jóhannesarguð-
spjalls.
Þessi dýrðaropinberun fellur hjá
sumum í skuggann af því hver til-
gangur hins fyfsta kraftaverks
Jesú var. Hann breytti vatni í vín
að beiðni móður sinnar, til þess
að veisluföng þrytu ekki gestgjöf-
um til skammar. Og komast þá
sumir ekki lengra en að horfa til
vínsins, sem borið var gestum eft-
ir að Jesú hafði þannig áhrif á
vatn, að enginn gat fundið annað
en um eðalvín væri að ræða. Þyk-
ir sumum sem Jesús sé þarna á
óeðlilegan hátt að handleika og
gera fólki mögulegt að stunda
víndrykkju oggeti ekki samræmst
köllun hans, háleitri og göfugri.
Aðrir telja þetta sjálfsagt og sanni,
að vín sé ekki eins hættulegt og
skaðlegt og sumir láta, úr því Jes-
ús var valdur að því að birgðir
voru bættar, eftir að allt var kom-
ið í þrot.
Hvorugt framansagðs er aðalat-
riði í frásögninni. Vínið, sem borið
var fram, var hluti af því sem
samtími Jesú áleit sjálfsagt með
mat. Og segir það ekkert um það,
hver afstaða okkar á að vera í því
máli. Enda lærist okkur seint að
átta okkur á því, að við hljótum
að lesa Biblíuna með þeim skiln-
ingi, að þar birtist sá tími, sem
atburðirnir gerast á. Samtími Jesú
var um f lest ólíkur okkar og fyrir-
mæli, sem má lesa á síðum Biblí-
unnar um marga siði, taka mót
sitt af því sem þá var sj álfsagt og
eðlilegt og einnig þarft, eins og til
dæmis í sambandi við neyslu
ýmissa fæðutegunda. En slík fyrir-
mæli spegla þann tíma sem þau
eiga við, en eru ekki algild um
alla tíma. Þetta á m.a. við um
hárskurð og ýmsa siði og þá ekki
síst sumt af því, sem Páll postuli
segir um konur og er alls ekki al-
gildur boðskapur, heldur sýnir okk-
ur aðeins þjóðfélagið, sem postul-
inn var hluti af.
Þannig er þá kraftaverkið í
Kana enginn lærdómur um vín og
er það algjört aukaatriði í þessu
sambandi. Það er Jesús sjálfur,
sem gengur fram á sviðið og sýnir
svo ekki verður um villst, hver
hann er og hvílíkur máttur honum
er gefinn, en aðrir hafa ekki hlot-
ið. Kraftaverkið í Kana er saga
um Jesú, fullvissu móður hans um
sérstöðu hans og hlýðni hans við
hana, enda þótt hann hljóti senn
að marka sér sérstöðu, sem enginn
getur mótað annar en hann eftir
þeirri opinberún, sem hann þiggur
af sínum himneska föður.
Og þegar við lesum þessa þætti
og hlýðum á útleggingu þeirra í
guðsþjónustunum hljótum við að
leitast við að skilja þá með það
fyrst og fremst í huga, hvað þarna
er verið að segja okkur og til hvers
er ætlast af okkur um skilning og
túlkun.
Þrettándasunnudagarnir varð-
veita tengslin við þá fornu hátíð
sem bar-heitið Epifanía og er
síðasti jóladagurinn að okkar venju
um mörkun daga. Opinberunin
hélt áfram frá fæðingu Jesú á
Betlehemsvöllum og síðan starfs-
daga hans alla og var þó sú opin-
berun alstærst, sem við tengjum
krossinum og síðan hinni tómu
gröf í upprisunni. Það er með þetta
í huga, sem kirkjan notar græna
litinn í helgihaldinu til þess að
höfða til þess, að opinberun krefst
þroska með skilningi og framrás í
þeim anda. Fermingarbörnin skilja
vel að græni liturinn er á sunnu-
dögunum eftir þrenningarhátíð,
þegar náttúran skartar sinni
grænu skikkju gróanda og bjartra
daga, en þau eiga erfiðara með
að tengja græna litinn þroska og
vexti í janúar og fram í febrúar.
En það er andlegi vöxturinn sem
græni litur þessa tíma höfðar til,
að vaxa í skilningi og að tileinka
sér í trú. Það gerði María og varð-
veitti allt. Þetta sáu lærisveinarnir
og síðan mannfjöldinn og þannig
var opinberunin um Jesú og opin-
berun hans sjálfs gerð lýðum kunn-
ug. Og enn er höfðað til okkar um
skilning á þessari opinberun og
hvatningu til þess að vaxa í sam-
ræmi við græna lit kirkjunnar,
vaxa í birtunni frá opinberun
Drottins og nærast af því sem
hann veitir okkur og er sígilt og
óháð hverjum tíma og siðvenjum
fólks. Jesús rís ofar tímanum, þó
að við séum háð honum og við
eigum ekki að láta hið ytra ráða
um innri afstöðu, heldur í ábyrgð
að greina til hvers er ætlast af
okkur og hvað helst tryggir feg-
urra samfélag. Þar á vissulega við
varkárni og varfærni gagnvart öllu
því sem svipt getur manninum vilj-
anum til að velja hið góða og mun
því leiða hann í ógöngur og er
ekki síst varað við öllu því sem
slævir dómgreind mannsins eins
og vímuefnin gera. Úr þeim villum
frelsar Jesús og það eigum við að
nema nú á tíma opinberunarinnar
í kirkjunni.
VEÐURHORFUR I DAG, 14. JANUAR
Hægviðri og þungbúið
YFIRLIT kl. 10:10 í GÆR: Um 450 km norðaustur, af Langanesi
er 972ja millibara lægð sem fer minnkandi og hreyfist norðaustur.
Um 700 km suðsuðvestur af landinu er 980 miliibara lægð sem
þokast norðnorðaustur.
HORFUR á SUNNUDAG: Hæg suðlæg átt. É1 við suðvestur- og
vesturströndina en þurrt annars staðar. Hiti á bilinu -3 til 3 stig.
HORFUR á MÁNUDAG: Breytileg átt og víða slydduél. Hiti 1-2 stig.
HORFUR á ÞRIÐJUDAG: Norðan og norðvestan kaldi eða stinn-
ingskaldi, él um landið norðan- og vestanvert. Úrkomulítið annars
staðar. Frost 1 til 2 stig.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 6:00 í gær að ísl. tíma
Staður hiti veður Staður hiti veður
Akureyri -3 alskýjaö Glasgow 4 skýjað
Reykjavík -5 léttskýjað Hamborg 2 þokumóða
Bergen 5 skýjað London 1 þokumóða
Heisinki -12 snjókoma LosAngeles 14 skúr
Kaupmannah. 4 þokumóða Lúxemborg -2 hrímþoka
Nar.ssarssuaq -11 heiðskírt Madrid 0 heiðskírt
Nuuk -12 heiðskírt Malaga 7 'heiðskírt
Osló 2 léttskýjað Mallorca 11 skýjað
Stokkhólmur 4 súld Montreal -6 snjóél
Þórshöfn 5 skúr NewYork vantar
Algarve 7 heiðskírt Orlando 11 heiðskírt
Amsterdam 2 þoka Paris 3 súld
Barcelona 6 heiðskírt Róm 2 þokumóða
Chicago vantar Vín -7 jirímþoka
Feneyjar -3 þokumóða Washington -1 skýjað
Frankfurt -2 þokumóða Winnipeg -17 skýjað
Ó Heiöskírt / / / / / / / / / / Rigning V Skúrir A Norðan, 4 vlndstlg: Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar
á Léttskýjað * / * Stydda # Slydduól vindstyrk, heil flöður er tvö vindstig.
/ / * V
Hálf8kýjaö / * / \ 0° Hitastig:
A SkýjaS # * # # # * * # * * Snjókoma V Él 10 gróður ó Celsíus — Þoka
A Alskýjað 5 5 9 Súld oo Mistur = Þokumóða
Kvöld-, nætur- og helgarþjónusta apótekanna í
Reykjavík dagana 12. janúar til 18. janúar, að báðum
dögum meðtöldum, er í Garðs Apóteki. Auk þess er
Lyfjabúðin Iðunn opið til kl. 22 alla daga vaktvikunnar
nema sunnudag.
Læknastofur eru lokaðar laugardaga og helgidaga.
Nesapótek: Virka daga 9-19. Laugard. 10-12.
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarnarnes og Kópavog
í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur við Barónsstíg frá kl. 17
til kl. 08 virka daga. Allan sólarhringinn, laugardaga og
helgidaga. Nánari uppl. í s. 21230.
Borgarspítalinn: Vakt 8-17 virka daga fyrir fólk sem ekki
hefur heimilislækni eða nær ekki til hans s. 696600).
Slysa- og sjúkravakt allan sólarhringinn sami sími. Uppl.
um lyfjabúðir og læknaþjón. í símsvara 18888.
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna gegn mænusótt fara fram
í Heilsuverndarstöð Reykjavíkur á þriðjudögum kl.
16.30-17.30 Fólk hafi meö sér ónæmisskírteini.
Tannlæknafél. Símsvari 18888 gefur upplýsingar.
Alnæmi: Uppl.sími um alnæmi: Símaviðtalstími fram-
vegis á míðvikud. kl. 18-19, s. 622280. Læknir eða hjúkr-
unarfræðingur munu svara. Uppl. í ráögjafasíma Samtaka
'78; mánud. og fimmtud. kl. 21-23: 28539. Símsvarar
eru þess á milli tengdir þessúm símnúmerum.
Alnæmisvandinn: Samtök áhugafólks um alnæmisvand-
ann vilja styðja smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra,
s. 22400.
Krabbamein. Uppl. og ráðgjöf. Krabbameinsfél. Virka
daga 9-11 s. 21122, Félagsmálafulltr. miðviku- og
fimmtud. 11-12 s. 621414.
Ónæmistæring: Upplýsingar veittar varðandi ónæmis-
tæringu (alnæmi) í s. 622280. Milliliðalaust samband við
lækni. Fyrirspyrjendur þurfa ekki að gefa upp nafn. Við-
talstímar miðvikudag kl. 18-19. Þess á milli er símsvari
tengdur við númerið. Upplýsinga- og ráögjafasími Sam-
taka '78 mánudags- og fimmtudagskvöld kl. 21-23. S.
91-28539 — símsvari á öðrum tímum.
Samhjálp kvenna: Konur sem fengið hafa brjóstakrabba-
mein, hafa viðtalstíma á þriðjudögum kl. 13-17 í húsi
Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8, s.621414.
Akureyri: Uppl. um lækna og apótek 22444 og 23718.
Seltjarnarnes: Heilsugæslustöð, s. 612070: Virka daga
8-17 og 20-21. Laugardaga 10-11.
Apótek Kópavogs: virka daga 9-19 laugard. 9-12.
Garðabær: Heilsugæslustöð: Læknavakt s. 51100. Apó-
tekið: Virka daga kl. 9-18.30. Laugardaga kl. 11-14.
Hafnarfjarðarapótek: Opið virka daga 9-19. Laugardög-
um kl. 10-14. Apótek Norðurbæjar: Opið mánudaga —
fimmtudaga kl. 9-18.30, föstudaga 9-19 laugardögum
10 til 14. Apótekin opin til skiptis sunnudaga 10-14.
Uppl. vaktþjónustu i s. 51600.
Læknavakt fyrir bæinn og Álftanes s. 51100.
Keflavík: Apótekið er opið kl. 9-19 mánudag til föstu-
dag. Laugardaga, helgidaga og almenna frídaga kl. 10-12.
Heilsugæslustöð, símþjónusta 4000.
Selfoss: Selfoss Apótek er opið til kl. 18.30. Opið er á
laugardögum og sunnudögum kl. 10-12. Uppl. um lækna-
vakt fást í símsvara 1300 eftir kl. 17.
Akranes: Uppl. um læknavakt 2358. — Apótekið opið virka
daga til kl. 18.30. Laugardaga 10-13. Sunnudaga 13-14.
Heimsóknartími Sjúkrahússins 15.30-16 og 19-19.30.
Rauðakrosshúsið, Tjarnarg. 35. Ætlað börnum og ungl-
ingum í vanda t.d. vegna vímuefnaneyslu, erfiðra heimilis-
aðstæðna, samskiptaerfiðleika, einangrunar eða persón-
ul. vandamála. S. 622266. Barna og unglingasími 622260.
LAUF Landssamtök áhugafólks um flogaveiki. Skrifstofa
Ármúla 5. Opin miðvikudaga og föstudaga 13.00-17.00.
s. 82833.
Samb. ísl. berkla- og brjóstholssjúklinga, S.Í.B.S. Suður-
götu 10.
G-samtökin: Samtök gjaldþrota greiðsluerfiðleikafólks.
Uppl. veittar í Rvík í símum 75659, 31022 og 652715. í
Keflavík 92-15826.
Foreldrasamtökin Vímulaus æska Borgartúni 28, s.
622217, veitir foreldrum og foreldrafél. upplýsingar.
Opin mánud. 13-16. Þriðjud., miðvikud. og föstud. 9-12.
Fimmtud. 9-10.
Kvennaathvarf: Allan sólarhringinn, s. 21205. Húsaskjól
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í
heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun.
MS-félag íslands: Dagvist og skrifstofa Álandi 13, s.
688620.
Lífsvon — landssamtök til verndar ófæddum börnum.
S. 15111 eða 15111/22723.
Kvennaráðgjöfin: Sími 21500. Opin þriðjud. kl. 20-22.
Fimmtud. 13.30 og 20-22. Sjálfshjálparhópar þeirra sem
oröið hafa fyrir sifjaspellum, s. 21260.
SÁÁ Samtök áhugafólks um áfengisvandamálið, Síðu-
múla 3-5, s. 82399 kl. 9-17.
Skrifstofa AL-ANON, aðstandenda alkohólista, Hafn-
arstr. 5 (Tryggvagötumegin 2. hæð). Opin mánud.—
föstud. kl. 9—12. Símaþjónusta laugardaga kl. 10—12,
s. 19282.
AA-samtökin. Eigir þú við áfengisvandamál að stríða,
þá er s. samtakanna 16373, kl. 17-20 daglega.
Fréttasendingar Ríkisútvarpsins til útlanda daglega á
stuttbylgju til Norðurlanda, Betlands og meginlands Evr-
ópu: Daglega kl. 12.15-12.45 á 15767, 15790, 13855
og 11418 kHz. kl. 18.55-19.30 á 15767, 13855, 11418,
9268, 7870 og 3295 kHz.
Hlustendum á Norðurlöndum er bent á 15790, 11418
og 7870 kHz og á 15767 kHz kl. 14.10, 13855 kHz kl.
19.35 og 9268 kHz kl. 23.00.
Kanada og Bandaríkin: Daglega: kl. 14.10-14.40 á 13855,
13830, 15767,og kHz.
Kl. 19.35-20.10 á 15767, 15780 og 13855 kHz.
23.00-23.35 á 13855, 11418 og 9268 kHz.
Hlustendur geta einnig oft nýtt sé sendingar kl. 12.15
og kl. 18.55 og hlustendum í mið- og vesturríkjum Banda-
ríkjanna og Kanada er bent á 15780, 13830 og 11418
kHz.
Að loknum lestri hádegisfrétta á laugardögum og sunnu-
dögum er lesið fréttayfirlit liðinnar viku.
ísl. tími, sem er sami og GMT.
SJÚKRAHÚS - Heimsóknartímar
Landspítalinn: alla daga kl. 15 til 16 og kl. 19 til kl.
20.00. kvennadeildin. kl. 19.30-20. Sængurkvennadeild.
Alla daga vikunnar kl. 15-16. Heimsóknartími fyrir feður
kl. 19.30-20.30. Barnaspítali Hringsins: Kl. 13-19 alla
daga. Öldrunarlækningadeild Landspítalans Hátúni
10Br Kl. 14-20 og eftir samkomulagi. — Landakotsspít-
ali: Alla daga kl. 15 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19. Barna-
deild : Heimsóknartími annarra en foreldra er kl. 16-17.
— Borgarspítalinn í Fossvogi: Mánudaga til föstudaga
kl. 18.30 til kl. 19.30 og eftir samkomulagi. á laugardög-
um og sunnudögum kl. 15-18. Hafnarbúðir: Alla daga
kl. 14-17. — Hvítabandið, hjúkrunardeild og Skjól hjúk-
runarheimili. Heimsóknartími frjáls alla daga. Grensás-
deild: Mánudaga til föstudaga kl. 16-19.30 — Laugar-
daga pg sunnudaga kl. 14-19.30. — Heilsuverndarstöð-
in: Kl. 14 til kl. 19. — Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla
daga kl. 15.30 til kl. 16.30. — Kleppsspítali: Alla daga
kl. 15.30 til kl. 16 og kl. 18.30 til kl. 19.30. - Flóka-
deild: Alla daga kl. 15.30 til kl. 17. — Kópavogshælið:
Eftir umtali og kl. 15 til kl. 17 á helgidögum. — Vífilsstað-
aspítali: Heimsóknartími 'xjaglega kl. 15-16 og kl.
19.30-20. — St. Jósefsspítali Hafn.: Alla daga kl. 15-16
og 19-19.30. Sunnuhlíð hjúkrunarheimili í Kópavogi:
Heimsóknartími kl. 14-20 og eftir samkomulagi. Sjúkra-
hús Keflavíkurlæknishéraðs og heilsugæslustöðvar:
Neyðarþjónusta er allan sólarhringinn á Heilsugæslustöð
Suðurnesja. S. 14000. Keflavík - sjúkrahúsið: Heimsókn-
artími virka daga kl. 18.30—19.30. Um helgar og á hátíð-
um: Kl. 15.00—16.00 og 19.00-19.30. Akureyri — sjúkra-
húsið: Heimsóknartími alla daga kl. 15.30 -16.00 og
19.00-20.00. Á barnadeild og hjúkrunardeild aldraðra
Sel 1: kl. 14.00-19.00. Slysavarðstofusími frá kl. 22.00-
8.00, s. 22209.
BILANAVAKT
Vaktþjónusta. Vegna bilana á veitukerfi vatns og hita-
veitu, s. 27311, kl. 17 til kl. 8. Sami sími á helgidögum.
Rafmagnsveitan bilanavakt 686230.
SÖFN
Landsbókasafn íslands: Aðal lestrarsalur opinn mánud.
— föstudags kl. 9-19. Laugardaga kl. 9—12. Útlánssalur
(vegna heimlána) mánud. — föstudags 13-16.
Háskólabókasafn: Aðalbyggingu Háskóla íslands. Opið
mánudaga til föstudaga kl. 9-19. Upplýsingar um útibú
veittar i aöalsafni, s. 694326.
Árnagarður: handritasýning StofnunarÁrna Magnússon-
ar, þriðjud., fimmtud.- og laugardögum kl. 14-16.
Þjóðminjasafnið: Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. kl. 11-16.
Þjóðminjasafnið: Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugar-
daga og sunnudaga frá kl. kl. 11-16.
Árbæjarsafn: Opið eftir samkomulagi s. 671280.
Akureyri: Amtsbókasafnið: Mánud.—föstud. kl. 13-19.
Nonnahús alla daga 14-16.30.
Náttúrugripasafn Akureyrar: Opið sunnudaga kl. 13-15.
Borgarbókasafn Reykjavíkur: Aðalsafn, Þingholtsstræti
29a, s. 27155. Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s.
79122 og 79138. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270.
Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind
söfn eru opin sem hér segir: mánud. — fimmtud. kl. 9-21,
föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn — Lestrarsal-
ur, s. 27029. Opinn mánud. — laugard. kl. 13-19. Hof-
svallasafn, Hofsvallagötu 16, s. 27640. Opið mánud. —
föstud. kl. 16-19. Bókabilar, s. 36270. Viðkomustaðir
víðsvegar um borgina. Sögustundir fyrir börn: Aðalsafn
þriðjud. kl. 14-15. Borgarbókasafnið i Gerðubergi
fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn miðvikud. kl. 10-11.
Sólheimasafn, miðvikud. kl. 11-12.
Norræna húsið. Bókasafnið. 13-19, sunnud. 14-17. —
Sýningarsalir: 14-19 alla daga.
Listasafn íslands, Fríkirkjuveg. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 12-18. Sýningin Islensk myndlist 1945-’89
stendur yfir.
Safn Ásgríms Jónssonar: Opið alla daga nema mánu-
daga frá kl. 13.30-16.00.
Höggmyndasafn Ásmundar Sveinssonar við Sigtún er
opið alla daga kl. 10-16.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laugardaga og sunnu-
daga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn dag-
lega kl. 11-17.
Kjarvalsstaðir: Opið alla daga vikunnar kl. 11-18.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnesi: Opið laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14-17 og á þriðjudagskvöldum
kl. 20-22.
Bókasafn Kópavogs, Fannborg 3-5: Opið mán.—föst. kl.
10-21. Lesstofan kl. 13-19.
Myntsafn Seðlabanka/Þjóðminjasafns, Einholti 4: Opið
sunnudaga milli kl. 14 og 16. S. 699964.
Náttúrugripasafnið, sýningarsalir Hverfisg. 116: Opnir
sunnud. þriðjud. fimmtud. og laugard. 13.30-16.
Náttúrufræðistofa Kópavogs: Opið á miðvikudögum og
laugardögum kl. 13.30-16.
Byggðasafn Hafnarfjarðar: Laugardaga og sunnudaga
kl. 14-18. Aðra eftir samkomulagi. Heimasími safnvarðar
52656.
Sjóminjasafn íslands: Laugardaga og sunnudaga kl.
14-18. Sími 52502.
ORÐ DAGSINS Reykjavík sími 10000.
Akureyri s. 96-21840. Siglufjörður 96-71777.
SUNDSTAÐIR
Sundstaðir í Reykjavík: Sundhöllin: Mánud. — föstud.
kl. 7.00-19.00. Lokað í laug kl. 13.30-16.10. Opið í böð
og potta. Laugard. 7.30-17.30. Sunnud. kl. 8.00-15.00.
Laugardalslaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30.
Laugard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnudaga frá kl. 8.00-17.30.
Vesturbæjarlaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30.
Laugard. frá kl. 7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-17.30.
Breiðholtslaug: Mánud. — föstud. frá kl. 7.00-20.30. Laug-
ard. frá 7.30-17.30. Sunnud. frá kl. 8.00-17.30.
Varmárlaug í Mosfellssveit: Opin mánudaga — föstu-
daga kl. 6.30-21.30. Föstudaga kl. 6.30-20.30. Laugar-
daga kl. 10-18. Sunnudaga kl. 10-16.
Sundhöll Keflavíkur er opin mánudaga — fimmtudaga.
7-9, 12-21. Föstudaga kl. 7-9 og 12-19. Laugardaga 8-10
og 13-18. Sunnudaga 9-12. Kvennatímar þriðjudaga og
fimmtudaga 19.30-21.
Sundlaug Kópavogs: Opin mánudaga — föstudaga kl.
7-9 og kl. 17.30-19.30. Laugardaga kl. 8-17. Sunnudaga
kl. 9-12. Kvennatímar eru þriðjudaga og miðvikudaga kl.
20-21. Sl’minn er 41299.
Sundlaug Hafnarfjarðar er opin mánud. — föstud. kl.
7-21. Laugard. frá kl. 8-16 og sunnud. frá kl. 9-11.30.
Sundlaug Akureyrar er opin mánudaga — föstudaga kl.
7-21, laugardaga kl. 8-18, sunnudaga 8-16. Sími 23260.
Sundlaug Seltjarnarness: Opin mánud. — föstud. kl.
7.10-20.30. Laugard. kl. 7.10-17.30. Sunnud. kl. 8-17.30.